Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1993, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1993, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1993 DV Talið í með Rokkabillybandinu vikunnar í flóru íslenskrar dægurtónlistar kennir margra grasa. Rokkabilly- band Reykjavíkur er ein þeirra hljómsveita sem athygli hefur vakið fyrir vasklega spilamennsku en sveitin hefur ljáð fornum dægur- flugum vængi á öldurhúsum víða um land siðustu mánuði. Hljómsveitin hefur reyndar starfað um langt skeið en hún var stofnuð árið 1988. „Við höfðum spilað mikið saman í samkvæmum, sjálfum okkur og vinum til skemmtunar," segir Bjöm Vilhjálmsson bassaleikari en ásamt honum skipa Tómas Tómasson gítar- leikari og Jóhann Hjörleifsson trymbiil Rokkabillyband Reykjavík- ur. „Síðan gerðist það að samkvæm- ið færðist inn á Gauk á Stöng og við byrjuðum að fá borgað fyrir gam- anið. Eftir það varð ekki aftur snú- ið.“ Rokkabylliband Reykjavíkur hef- ur starfað með lengri og skemmri hléum þessi fimm ár og íjölmargir trommuleikarar hafa komið við sögu þess. Síðan í nóvember í fyrra hefur hljómsveitin starfað af fullum krafti og er hún bókuð á öldurhús víða um land fram á haust. Þá kemur fyrsta plata rokkabillybandsins á markað í næstu viku en sú mun innihalda hóruhúsajass, blús, hippastef og umfram allt þekkt rokkabillylög. „Þetta eru allt lög sem hafa fylgt hljómsveitinni og við höfum verið að fikta með útsetningar á,“ segir Tómas og hann heldur áfram. „Af- skipti okkar af rokkabilly byrj uðu nú reyndar með því aö Bjöm asnaðist til að skipta á mótorhjóli og austur- þýskum kontrabassa fyrir margt löngu. Á sama tíma hlustuðum við Plata Rokkabillybandsins verður sú fyrsta og eina því hljómsveitin hættir um áramótin. DV-mynd JAK Bjöm bassi. „Það tekur öðrum fram í stærð og hljómurinn er frábær. Eini möguleikinn til að nota þetta magnaða verkfæri í rokktónlist er í rokkabilly. Þú spilar t.d. ekki mikið þungarokk á hann. Við heilluðumst af bassanum og áður en við vissum af vorum við komnir í bullandi rokkabilly sveiflu." Fyrsta og eina platan - Það vekur athygli aö á nýju plötunni eru standardar eftir Bill Haley, Eddie Cochran og fleiri jöfra rokksins en ekkert frumsamið efni. „Við höfum reynt að böggla saman almennilegu rokkabillyi en litið gengið. Við áttum reyndar eitt lag á safnplötu hjá Skifunni fyrir nokkr- um misserum en það er það eina. Eftir töluverðar vangaveltur er okkar skoðun sú að erFitt sé að semja ekta rokkabilly án þess að fara út í endurtekningar á gömlu standörd- unum. Þá er miklu vænlegra að halda sig við það sem best hefur verið gert í þessum geira í stað þess að gera vondar kóperingar. Á sama hátt má segja að tilraunir til að þróa rokka- billyið leiði menn út í rokk og ról. Stray Cats tókst fyrir rúmum áratug að semja gott rokkabilly en það er líka eina tilraunin í þá átt sem hefur heppnast. Langi Seli og skuggamir voru að fikta við þetta og komu með eigið afbrigði sem kalla má pönka- billy. Við erum of miklir púritanar í okkur til að gera slíkar tilraunir. Við þrjóskumst við að spila Rokkabilly með stóru erri og erum sáttir við árangurinn því þetta er tónlist sem nær til gífurlega breiðs hóps. Það höfum við sannreynt í sumar. Rokkabillyið er þeim eiginleika gætt að nái bandið góðri sveiflu þá spilar tónlistin sig sjálft." Plata Rokkabillybands Reykjavík- ur, sem kemur út í næstu viku, verður fyrsta og eina plgta hljóm- sveitarinnar því þungavigtarmað- urinn Björn Vilhjálmsson flyst búferlum til Svíþjóðar um áramótin og þar með leggur hljómsveitin upp laupana. Þeir félagar segja plötuna vera uppgjör á fimm ára ferli og minnisvarða þegar bandið heyrir sögunni til. -SMS mikið á Bill Haley og stúderuðum sérstaklega ásláttartæknina sem notuð var á kontrabassann." „Hljóðfæriö sem slíkt er einstakt og með mikinn karakter," segir M’ALevis Tónlistargetraun DV og Spors Tónlistargetraun DV og Spors er 'laufléttur leikur sem allir geta tekið þátt í og unnið geisladisk að launum. Leikurinn fer þannig fram að í hverri viku verða birtar nokkrar auðveldar spumingar um tónlist og það sem er að gerast í tónlistarlífinu. Fimm vinningshafar hljóta svo geisladisk í verðlaun frá hljóm- plötufyrirtækinu Spori hf. Að þessu sinni er það geisladisk- urinn frá hljómsveitinni Pláhnet- unni sem er í verðlaun en Pláhnetan sat á toppi íslenska listans í tvær vikur samfleytt nú fyrir skömmu. Hér koma svo spumingamar: 1. Tryllt er nýtt lag á íslenska listanum. Hvaða hljómsveit flyt- ur lagið? 2. Hvað heitir geisladiskurinn með Pláhnetunni? 3. Rigg er nýr geisladiskur með Stjórninni, sem kostar 1.599 krónur. Hvað heitir kassettan? Rétt svör sendist DV fyrir 29. júlí merkt: DV, Tónlistargetraun Þverholti 11 105 Reykjavík. Dregið verður úr réttum vinn- ingum 29. júlí og rétt svör verða birt í tónlistarblaði DV 5. ágúst. tónli0t Hljómleikaferð DV og SL: Rokk- veisla DV og Samvinnuferðir- Landsýn bjóða nú 130 les- endum DV til hljómleika- veislu í Luneburg í Þýskalandi dagana 3. til 6. september. Margar af þekktustu stór- stjömum í tónlistarheiminum koma fram á hátíðinni og má þar nefna stjömur eins og Tinu Turner, Prince, Rod Steward, Chris De Burgh, Joe Cocker og hinar vinsælu hljómsveitir Foreigner, O.M.D. og Duran Duran. Tina Turner Þann 3. september klukkan 9 um morguninn verður lagt af stað frá Keflavíkurflugvelli og þaðan flogið til Hamborgar. Gist verður á TrefEhótelinu sem er rétt fyrir utan Hamborg. Prince Frá hótelinu er um einnar klukkustundar akstur á hljóm- leikasvæðið sem er við flug- völlinn í Luneburg. Hótelið er mjög gott og þar eru 204 her- bergi með baði, minibar, síma og sjónvarpi. Á hótelinu er veit- ingastaður, pöbb, bar, sána og heilsurækt. Rod Steward Tónleikamir hefjast klukkan 18 sama kvöld og komið er tO Hamborgar. Þeir standa til 22.30. Daginn eftir eru tónleikar frá klukkan 12 á hádegi til klukkan 23 um kvöldið og einnig verða tónleikar 5. september. Sjötta september klukkan 13 verður síðan flogið aftur heim til íslands. Ferðin kostar 39.600 krónur á mann í tvíbýli. Innifalið í verðinu er flug, akstur til og frá flugvelli og á tónleikana alla dagana, gisting með hlaðborðs- morgunverði, íslensk farar- stjóm og flugyallarskattur. Fararstjóri verður Magnús Kjartansson tónlistarmaður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.