Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1993, Page 1
DV-mynd GVA
„Tilgangurinn er að kynna Reykja-
víkurhöfn sem fyrirtæki og starf-
semina sem þar fer fram,“ segir Ág-
úst Ágústsson, umsjónarmaöur
hafnardagsins sem verður við gömlu
höfnina á morgun, laugardag. Dag-
skráin hefst kl. 8.00 með því að flögg
verða dregin að húni og hátíðarsvæði
skreytt. „Við byrjuðmn á því að
halda slíka hátíð í fyrra á 75 ára af-
mæh hafnarinnar og á ég von á því
að þetta verði árlegur atburður hér
eftir,“ segir Ágúst ennfremur.
Dagskráin á hafnardeginum er
mjög fjölbreytt og stendur yfir til
klukkan 18.00. „Það helsta sem verð-
ur í boði er fiskmarkaðstorg með
ýmsum sjávarvörum á Austurbakka
og sjávarréttaveitingahús á sama
stað. Einnig verður dorgveiðikeppni,
ókeypis sigUng út fyrir höfnina, sýn-
ing á danska varðskipinu Vædderen
og sjótívoU fyrir börnin, svo eitthvað
sé nefnt.
Þá mun nýuppgerður hafnar-
bakki, Miðbakkinn, verða til sýnis
en þar er nú mjög faUegt umhorfs.
Ýmsir gamUr munir tengdir höfninni
munu áreiðanlega vekja áhuga
margra, svo sem 101 árs gömul jám-
braut sem notuð var til að búa til
höfnina á sínum tíma.
Deginum lýkur með djasstónleik-
um sem hefjast kl. 16.00 á Austur-
bakka. Þar mun hljómsveit Carls
Möllers leika og spila frumsaminn
Hafnarblús með söngkonunni
Andreu Gylfadóttur í broddi fylking-
ar,“ segir Ágúst að lokum.
-as
Hin árlega Skálholtshátíð um helgina
„Skálholtshátíð er samkvæmt
venju haldin næstkomandi sunnu-
dag en þar sem 30 ár eru liðin frá
því að Sigurbjörn biskup vígði
Skálholtskirkju verður dagská há-
tíðarinnar heldur viðameiri," segir
sr. Kristján Valur Ingólfsson, rekt-
or Skálholtsskóla. „Þess er einnig
minnst að í ár era Uðin 100 ár frá
fæðingu Páls ísólfssonar. Á laugar-
dag um kl. 14.00 verður af því til-
efni flutt Skálholtshátíðarkantata
sem hann samdi við ljóö sr. Sigurð-
ar Einarssonar og var frumflutt
árið 1956,“ segir sr. Kristján enn-
fremur.
„Á fostudag verður opnuð sýning
á fomum munum kirkjunnar og
stendur hún yfir til sunnudags-
kvölds. Að kvöldi fostudags verður
haldið málþing um helgisiði og er
það öllum opið.“
Að sögn sr. Kristjáns á Skálholts-
hátíð upphaf sitt að rekja til þess
að Þorláksmessa á sumri er 20. júlí.
í ár era auk þess 800 ár frá dauða
Þorláks biskups Þórhallsonar hins
helga í Skálholti og af því tilefni
verður kaþólsk biskupsmessa í
Skálholti á sunnudag kl. 10.30. Há-
tíðarmessa mun verða kl. 14.00 en
20 mínútur fyrir messu leikur
Haukur Guðlaugsson söngmála-
stjóri verk eftir Pál ísólfsson á org-
el kirkjunnar. Hátíðarsamkoma
verður í kirkjunni kl. 16.30 og mun
kirkjumálaráðherra, Þorsteinn
Pálsson, og biskup íslands, herra
Ólafur Skúlason, flytja ávörp. Sr.
Guðmundur Óli Ólafsson flytur
erindi, Helga Ingólfsdóttir leikur
einleik á sembal og fluttir verða
þrír þættir úr Skálholtshátíðar-
kantötu. -as
i
■') m *
;» v j j ■ I
A dagskrá hátíðarinnar eru m.a. tónieikar í Skálholtskirkju á laugardag.
Veit-
inga-
húsið
Jónatan
living-
ston
Mávnr
- sjábls. 18
Sushi-
bar í
miojum
sal
- sjábls.21
íslands-
mót
í hesta-
íþrótt-
um
- sjábls. 21
Lands-
mot
skáta
- sjábls. 21
VJCl"
rauna-
deildin
- sjábls.23
Tón-
vaka-
keppni
- sjá bls. 21