Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1993, Síða 5
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ1993
Messur
Árbæjarkirkja: Guðsþjónusta kl.
11 árdegis. Prestur dr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson héraðsprestur.
Organisti Þóra Guðmundsdóttir.
Eiríkur Jónsson leikur á trompet.
Sóknarprestur.
Áskirkja: Vegna sfimarleyfa
starfsfólks Áskirkju er minnt á
guðsþjónustu í Laugarneskirkju
sunnudag kl. 11.00. Sóknar-
prestur.
Breiðholtskirkja: Biblíulestur í
umsjá Ungs fólks með hlutverk
kl. 20.30. Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl.
11.00. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Pálmi Matthíasson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11.00.
Prestur sr. Hjalti Guðmundsson.
Dómkórinn syngur. Organisti
Marteinn H. Friðriksson. Ferming
og altarisganga. Fermdur verður
Stefán Úlfur Brynjólfsson, Keilu-
felli 6, Rvk.
Fella- og Hólakirkja: Sumarsam-
vera kl. 20.30. Kristniboð, ábyrgð
kristinna manna. Skúli Svavars-
son kristniboði prédikar. Jón
Ágúst sér um tónlist. Ritningar-
lestra annast Ásthildur Sigurðar-
dóttir, Ragnhildur Hjaltadóttir og
Örn Egilsson. Tekið verður á
móti gjöfum til Kristniboðsins.
Prestarnir.
Fríkirkjan í Reykjavik: Safnaðar-
ferð. Brottför kl. 9.00 frá kirkj-
unni. Farið verður um Kaldadal í
Reykholt undir fararstjórn Jóns
Böðvarssonar. Guðsþjónusta í
Reykholtskirkju kl. 14.00. Heim-
ferð um Akranes og Hvalfjörð.
Cecil Haraldsson.
Garðakirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Séra Sigurður H. Guðmunds-
son messar.
Grensáskirkja: Messa kl. 11.00.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal.
Organisti Pavel Smid.
Hallgrímskirkja: Messa kl. 11.00.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Fermd verður Lilja Sturludóttir,
Macon, USA, Ofanleiti 23, Rvk.
Tónleikar kl. 20.30. Oskar Gott-
lieb Blarr leikur á orgelið.
Háteigskirkja: Messa kl. 11.00.
Sr. Arngrímur Jónsson. Kvöld-
bænir og fyrirbænir eru í kirkj-
unni á miðvikudögum kl. 18.00.
Keflavíkurkirkja: Guðsþjónusta
verður í Keflavíkurkirkju sunnu-
dag kl. 11 árd. Ólafur Oddur
Jónsson.
Kópavogskirkja: Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Þorbergur Kristjánsson.
Landspitalinn: Messa kl. 10. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson.
Langholtskirkja, Kirkja Guð-
brands biskups: Engin guðsþjón-
usta vegna sumarleyfa starfs-
fólks.
Laugarneskirkja: Bænastund
með altarisgöngu kl. 11. Prestur
sr. Sigrún Úskarsdóttir.
Neskirkja: Guðsþjónusta kl.
11.00. Orgel- og kórstjórn Reyn-
ir Jónasson. Guðmundur Óskar-
Ólafsson.
Seljakirkja: Kvöldguðsþjónusta
kl. 20. Áltarisganga. Prestur sr.
Þórhallur Heimisson. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Jónas
Ingimarsson sér um tónlistar-
kynningu. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Helgistund
kl. 11.00 í umsjá sóknarnefndar.
Organisti Hákon Leifsson.
Hótel Borg:
Sushi-bar í miðjum sal
„Ef gestir okkar taka sushi-bamum
vel verður þetta fastur liður hjá okk-
ur í framtíðinni," segir Ámi Siemsen
hjá Hótel Borg en frá og með þessari
helgi breytist barinn í miðju salarins
úr hefðbundnum áfengisbar í sushi-
bar að japönskum hætti.
Hingað til lands er kominn þekktur
japanskur kokkur, Tsuneo að nafni.
Hann hefur starfað við Sushi-matar-
gerð í 20 ár og ferðast víða til þess
að kynna öðrum þjóðum þessa jap-
önsku matarmenningu. Undanfarin
ár hefur Tsunep búið og starfað í
New York en á íslandi verður hann
næstu þrjá mánuði.
Allt að 17 sushiréttir verða í boði á
Hótel Borg úr mörgum tegundum af
flski. Tsuneo segir að þrátt fyrir að
fiskurinn hér sé ferskur og góður
reynist honum stundum erfitt að
finna réttu tegundirnar fyrir þessa
matargerð. Það sem upp á vantar
verður flutt inn. Sushi byggist upp á
hráum fiski, hrísgrjónum,.þangblöð-
um og kryddi. Útlit réttanna er sér-
kenni þeirra þvi að hver biti er
skreyttur og frágenginn líkt og við
þekkjum með konfektmolana.
Sushi-forréttur kostar 490 krónur,
hefðbundin samsetning, sem dugar
Tsuneo á barnum við einn af hinum fjölmörgu réttum sem hann ætlar að matreiða á Hótel Borg næstu þrjá mánuði.
DV-mynd JAK
semmáltíð,kostar980krónuroglúx- sem áður geta gestir valið rétti af sem Haukur Víðisson gestakokkur
usútgáfan kostar 1490 krónur. Eftir hinum hefðbundna matseðli hússins sérum. -JJ
Heyjað verður við Árbæ á sunnudag.
Heyannir á Árbæjarsafni
Landsmót skáta:
Áannað þús-
und þátttak-
endurfrá4
heimsálfum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Landsmót skáta verður sett í
Kjarnaskógi á Akureyri n.k. sunnu-
dagskvöld og stendur mótið yfir í
vikutíma. Reiknað er með að um 1350
þátttakendur dvelji á mótsstaðnum
allan tímann meðan mótið stendur
yfir en að um 2500 gestir verði þegar
flest verður er líða tekur á mótið.
„Framkvæmd svona móts kallar á
geysilegan undirbúning og það má
segja að 60-80 manns hafi starfað í
hópum og nefndum í heilt ár við
undirbúninginn. Þegar mótið hefst
verða starfsmenn um 150 auk fjöl-
margra sem vinna við ákveðin verk-
efni á hverium degi," segir Tryggvi
Marinósson landsmótsstjóri.
Þátttakendur í mótinu koma víða
að og erlendir gestir verða frá 17
löndum. Þeirra á meðal eru skátar
frá Ástralíu, Japan, víðsvegar úr
Evrópu og bandarískir skátar af
Keflavíkurflugvelli koma til mótsins.
Alls verða því fulltrúar íjögurra
heimsálfa á mótinu.
Tryggvi segir að dagskrá mótsins
sé geysilega umfangsmikil og hún
teygir sig reyndar víðsvegar um
Norðurland. Nefna má í því sam-
bandi gönguferðir og öræfaferðir auk
skoðunarferða í Mývatnssveit. Meg-
inhluti dagskrárinnar fer þó fram í
Kjarnaskógi þar sem tjaldbúðirnar
verða staðsettar en einnig í miðbæ
Akureyrar og víðsvegar í bænum
alla mótsdagana.
Tryggvi Marinósson, mótsstjóri
Landsmóts skáta. DV-mynd gk.
Túnið við Árbæinn verður slegið
með orfi og ljá sunnudaginn 25. júlí.
Þá verður einnig rakað, riijað, tekiö
saman og bundið í bagga. Eru gestir
hvattir til að taka þátt í heyskapnum.
Kvennaklúbburinn í Hafnarfirði
stendur fyrir karlakvöldi í kvöld á
A. Hansen. Þar verða ýmsar uppá-
komur og má nefna uppboð á konum
til styrktar Sophiu Hansen. Að sögn
Sigríðar Ævarsdóttur, formanns
klúbbsins, veröur það framkvæmt
þannig að nokkrar stúlkur og einn
karlmaður halda á ávísun veglegra
verðlauna sem ýmis fyrirtæki hafa
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
íslandsmótið í hestaíþróttum hófst
á Akureyri í gær og stendur yfir óslit-
ið fram á sunnudag. Reiknað er með
miklu íjölmenni til mótsins og áætlað
að þar verði um 2 þúsund gestir þeg-
ar flest veröur.
í dag er keppni unglinga á dagskrá
pg hefst síðasta keppnisgrein kl. 17.
í fyrramálið hefst keppni kl. 8 með
hlýönikeppni og síðan tekur við tölt
í unglinga- og barnaflokki. Eftir há-
degishlé hefst keppni kl. 13 meö
Veitingasalan í Dillonshúsi verður
opin um helgina. Þá geta menn
brugðið sér í Árbæinn. Þar verður
boðið upp á lummur og fengist við
ýmis störf á baðstofuloftinu.
gefið. Þar má nefna ferð til Edinborg-
ar, sælulykil að Hótel Örk, svítulykil
að Hótel Borg og fataúttekt í Evu, svo
eitthvað sé nefnt. Hæstbjóðandi hlýt-
ur svo vinninginn.
Kynnir kvöldsins verður Rósa Ing-
ólfsdóttir en auk hennar koma fram
André Bachmann og Bjarni Ara.
Aðgangur er ókeypis.
hindmnarstökki við Samkomuhúsið
í miöbænum en kl. 16 er tölt fullorð-
inna og ungmenna á dagskrá.
Mótinu lýkur á sunnudaginn. Þá
hefst keppni kl. 9 með gæðinga-
skeiði, kl. 11 er keppni í fjórgangi og
svo úrslit í öllum flokkum. Kl. 13.30
hefst úrslitakeppni í öllum flokkum
í fimmgangi og kl. 15 er úrslitakeppn-
in í tölti á dagskránni. Mótinu lýkur
með verðlaunaafhendingu sem hefst
kl. 16.30 á sunnudaginn. Mótið fer
fram á svæði Léttis við nýja hest-
húsahverfið norðan Glerár.
Norraena húsið:
Tónvaka-
keppni
; Lokaáfangi Tónvakakeppni
Ríkisútvarpsins hefst með tón-
leikum í Norræna húsinu á
sunnudag kl. 13.00 og verður fram
haldiö næstu sumiudaga, allt til
15. ágúst. Þá verður sigurvegari
keppninnar kynntur í beinni út-
sendingu rásar 1. Dómnefnd lief-
ur valið fimm tónlistamienn til
lokakeppni. Þeir eru: Elsa Waage
altsöngkona, Erna Guðmunds-
dóttir sópransöngkona, Ingumt
Ósk Sturludóttir, messósópran-
söngkona, Valgerður Andrésdótt-
ír píanóleikari ogÞorsteinn Gauti
Sigurðsson píanóleikari.
Norðurlandi
Flytjendur í fiórðu tónleikaröð
Sumartónleika á Norðurlandi
eru þatt Kolbeinn Bjm-nason
flautuleikari og Guðrún.Óskars-
dóttir semballeikari. Á efnis-
skránni eru verk eftir S. Bach,
L. Couperin og K. Lécher.
Guðrún og Kolbeitm eru bæði
menntaðir hljóðfæraleikarar og
hafa viða tekið þátt í tónleika-
haldi. Þau héldu fyrstu sameigin-
legu tónleika sína í desember 1989
og hafa síðan komiö vjða fram.
Óke>T)is aðgangur er að tónleik-
unum. Þeir verða sem hér segir:
í kvöld, fóstudagskvöld, í Húsa-
vikurkirkju kl. 20.:«, á morgun,
laugardag, í Reykjahlíðarkirkju
kl. 21.00 og í Akureyrarkirkju á
sunnudagkl, 17.00.
Líf í miðbænum
f miðbæ Reykjavíkur eru nú
sýningarnar Útivist og stigar og
Sjósókn og sjávarfang. Þær eru
til húsa í Geysishúsinu, Aðal-
stræö 2 og Vesturgötu 1. Á föstu-
dag og laugardag mun Jóna Ein-
arsdótör leika fjörug sjómanna-
lög á harmóniku sína. Verður
hún í IlalakoLsbátnum kl. 16.00.
Þá mun Steinar Axelsson hnýta
net við stefni bátsins frá kl. 13.00
á laugardag og sunnudag. Fjöl-
menni hefur þegar sótt sýning-
arnar heirn og má búast við lífi
og fiöri i miðbænimi inn helgina.
---------------------------------r
Kvennaklúbbur Hafnarfjarðar:
Styrkir Sophiu Hansen
íslandsmót í hesta-
íþróttum á Akureyri