Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1993, Page 6
22
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ1993
Laugarásbíó:
Laugarásbíó veröur opnaö á ný í
dag, fostudag, eftir breytingar. Kvik-
myndahúsinu hefur veriö gjörbreytt
aö innan, auk þess sem THX-hljóð-
kerfi hefur veriö komið fyrir. Nýir
aðilar hafa tekið við rekstrinum og
verður áherslan lögð á gæðamyndir
í framtíöinni. Fyrsta myndin sem hið
nýja bíó býður upp á er grínmyndin
Helgarfrí með Bemie n.
Myndin er beint framhald af fyrri
myndinni um Bernie. Hún hefst eftir
brjálaða helgi hjá Bemie á Hampton-
eyju. Þá koma Larry og Richard aftur
tÍL New York. Þeir skila Bemie í lík-
húsið og er þeir koma í tryggingafé-
lagið til að gefa skýrslu um atburðinn
komast þeir að því að þeir hafa verið
reknir. Fyrirtækið gmnar þá um að
hafa hjálpað Bemie að draga undan
2 milljónir dollara og hefur ráöið
rannsóknarmann til að elta þá þar
til þeir framselja peningana.
Larry og Richard áttu von á stöðu-
hækkun en ekki uppsagnarbréfi og
eru því steinhissa á þessu öllu. Þeir
ákveða að grípa til sinna ráða. Með
lykil í fómm sínum, sem gengur að
Kvikmyndin Helgarfrí meö Bernie II verður frumsýnd í dag, föstudag.
öryggishólfi í banka á Jómfrúareyj-
um, ræna þeir Bemie úr líkhúsinu
og fara til eyjanna til að finna pening-
ana og hreinsa nöfn sín. Þeir vita
hins vegar ekki um tilvist Mafíunnar
sem hefur sínar áætlanir um afdrif
Bernies. Þá hefst mikill eltingarleik-
ur þar sem hinn steindauði Bemie
er í fararbroddi. Hvernig sú ferð end-
ar kemur í ljós í Laugarásbíói.
Bemie II
Helgarfrí með
, Haskolabio:
Utlagasveitin
Háskólabíó frumsýnir í dag, fóstu-
dag, myndina Útlagasveitina eða
Posse. ViUta vestrið er sögusvið þess-
arar myndar og er þsð sýnt á nýjan
og óvenjulegan hátt. Hetjur hinnar
slægu útlagasveitar, sem sjást á
tjaldinu, eru nefnilega flestir þel-
dökkir.
Myndin hefst á Kúbu í styrjöld
Bandaríkjamanna og Spánverja und-
ir lok síðustu aldar. Þar koma við
sögu nokkrir þeldökkir hermenn og
foringi þeirra, Graham ofursti.
Fremstur í flokki óbreyttu hermann-
anna er aðalpersóna myndarinnar,
Jessie Lee. Fljótlega kemur í ljós að
ekki fer sérlega vel á með honum og
ofurstanum. Ofurstinn sendir af stað
sveit manna undir stjóm Jessie Lee
til að ráðast á spænska hergagnalest.
Fyrir tilviljun finna þeir kistu fulla
Mario Van Peebles fer með aðalhlut-
verk myndarinnar Útlagasveitin.
af gullpeningum í farangri Spánveij-
anna. Raunar hefði Graham ofursti
ætlað sér þennan fjársjóð og því flýja
Jessie og félagar til meginlandsins
með fjársjóðinn með sér, faldir í lík-
kistum. Þegar þangað kemur em
Graham ofursti og járnsveit hans
stöðugt á hælum þeirra Jessie Lee
og félaga.
Leikstjóri myndarinnar er Mario
Van Peebles en hann fer jafnframt
með aðalhlutverkið.
Bíóborgin:
Einkaspæj arinn
Bíóborgin hefur tekið til sýningar
myndina Einkaspæjarann eða The
Puplic Eye með Joe Pesci í aðalhlut-
verki. Myndin segir sögu Leons
„Bernzy" Bernstein einhvers
harðsvíraðasta fréttaljósmyndara
Bandaríkjanna. Samkeppnin er hörð
í þessari atvinnugrein og allt er lagt
í sölumar til að ná sem bestum
myndum til að selja dagblöðum og
tímaritum.
Myndin segir frá starfi þessa ein-
staka listamanns, ást hans á vinnu
sinni og hættum þeim sem fylgja ljós-
myndumm er fást við skuggahliðar
mannlífsins.
Leikstjóri er Howard Frankhn en
auk Joe Peci leika í myndinni Bar-
bara Hershey, Stanley Tucci og Jerry
Adler.
i +*E @ i
Allt fyrir útlitið
RobertZemeck-
is er leiðandi
leikstjóri þegar
tæknibrellur eru
annars vegar og
Death Becomes
Her er sönnun
þess. Þar eru það
útlitsbreytingará
Goldie Hawn og
Meryl Streep sem
vekja mikla at-
hygli. Þær stöllur leika gamlar vinkon-
ur sem börðust um sama manninn á
áram áður og hafa síðan hatað hvor
aðra. Án þess að vita hvor af annarri
fara þær til sama yngingarlæknisins
og öðlast eilífan ungdóm. En böggull
fylgir skammrifi og þar kemur að not-
um eiginmaðurinn sem þær börðust
um því hann er líksnyrtir. Death Beco-
mes Her er, þegar tæknibrellunum
sleppir, ekki ýkja merkileg. Efnið er
margnotað en framsetningin er þannig
að myndin er hin besta skemmtun.
DEATH BECOMES HER - ClC-myndbönd.
Leikstjóri: Robert Zemeckis. Aöalhlutverk:
Meryl Streep og Goldie Hawn.
Bandarisk, 1992 - sýningartimi 104 min.
Leyfð öllum aldurshópum. _ _ -HK
Föðurhefna
Dirty Games
gerist jöfnum
höndum í París
og Afríku. Aðal-
persónan er vís-
indamaðurinn
Nicola Kenda
sem fyrir nokkr-
um árum varð
vitni aö því þegar
faðir hennar,
frægur vísinda-
maður, var myrtur. Hún veit hver stóð
á bak við morðið. Franska leyniþjón-
ustan er á eftir flokki manna sem er
að reyna að ná undir sig kjamorku-
vopnum. Þegar Kenda fréttir að morð-
ingi föður hennar er einn af leiðtogum
flokksins tekur hún að sér að vera
njósnari. Dirty Games er sæmileg af-
þreying en of lítil fiárráö gera það að
verkum að myndin verður aldrei sann-
færandi þótt nokkur metnaður sé að
baki gerð hennar.
DIRTY GAMES - Útgef. Háskólabíó.
Leikstjóri: Anthony Busbridge. Aðalhlut-
verk: Jan Michael Vincent.
Bandarisk, 1992 - sýningartími 92 mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára. -HK
**‘/2 l
Að láta drauminn rætasta
Öll böm hefur sjálfsagt dreymt
um að að geta flogið. Hjá sumum
er draumurinn sterkari en öðram
og koma þar kannski til heimilis-
aðstæður eins og raunin er í
Radio Flyer. í þessari hugljúfu
kvikmynd kynnumst við tveimur
ungum bræðram sem búa sér til
draum þegar veruleikinn er sem
grimmastur í þeirra garð. Hug-
mynd verður til og framkvæmd
hefst en eldri bróðirinn veit að
það er aðeins bróðir hans sem
hefur hæfileika til að fram-
kvæma.
Mike og Bobby eru í bjujun
myndarinnar á leið með móður
sinnar í Kalifomíu en faöirinn
hefur yfirgefið fiölskylduna.
Fljótlega kynnist móðir þeirra
manni sem hún fer að búa með
og er yfir sig ástfangin. Þessi sam-
býlismaður er drykkjubolti sem
leggur Bobby í einelti og mis-
þyrmir honum. Þeir bræður gera
sér grein fyrir því að móðir þeirra
er hamingjusöm og segja henni
því ekki frá ofbeldinu. Bobby á
lítinn hjólvagn sem nefnist Radio
Flyer. Þegar bræðurnir era bæði
niðurlægðir af fósturföðurnum
og öðram bömum í hverfinu
verður til hugmynd um að búa
til flugvél úr hjólvagninum og
endurtaka afrek sem annar
drengur hafði reynt tíu árum áð-
ur....
Með Radio Flyer er greinilega
verið að höfða til breiðs hóp
bama. Að mörgu leyti tekst að
ná upp góðri stemningu og er það
sérstaklega að þakka hinum
ungu leikurum, Ehjah Wood og
Joseph Mazzeho, sem leika bræð-
uma tvo. Leikur þeirra er ein-
staklega sannfærandi og innheg-
ur og þau atriði þar sem þeir era
einir standa uppúr.
Það sem kannski fyrst og fremst
aögreinir Radio Flyer frá öðrum
samskonar myndum er sú alvara
sem er í söguþræðinum. Þar er
komið bæði inn á barnaofbeldi
og einelti. Þessi alvarlegi undir-
tónn blandast ekki nógu vel við
sakleysislegt yfirborðið og því
veröur Radio Flyer aldrei jafn
mikil ævintýramynd og E.T. var,
svo einhver sé nefnd. Um leið er
alvaran aldrei tekin föstum tök-
um. Þessi tvöfeldni hefur sjálf-
sagt gert það að verkum að mynd-
in náði aldrei neinum vinsældum
í kvikmyndahúsum og fór hér á
landi beint á myndband.
RADIO FLYER
Útgefandi: Skífan.
Leikstjóri: Richard Donner.
Aðalhlutverk: Loraine Bracco, John
Heard, Elijah Wood og Joseph Mazz-
ello.
Bandarisk, 1992 - sýningartimi 110
min.
Leyfö öllum aldurshópum. -HK
D V-myndbandalistiim
Bodyguard
Home Alone II
Death Becomes Her
Sneakers
A Few Good Men
Unlawful Entry
Howard’s End
Sister Act
Home Alone II er I öðru sætí listans þessa vlkuna. Á myndínn!
eru þrjár aðalpersónur myndarlnnar, Kevln McCallister (Mac-
aulay Culkin) og ræningjarnir tvelr, Harry (Jœ Pescf) og Marv
(Daniel Stem).
1(1)
2(3)
3(5)
4(2)
5 (•)
6(4)
7(8)
8(9)
9(7)
10 (12) Stay Tuned
11 (6) Last of the Mohican
12 (10) Single White Female
13 (-) Class Action
14 (15) Devlin
15 (11) Mo’ Money
★★>/2
í Sneakers leik-
ur Robert Red-
ford Martin Bis-
hop, yfirmann og
eiganda öryggis-
þjónustufyrir-
tækis sem nýtir
sér tölvutæknina
út í ystu æsar.
Hjá honum vinna
nokkrir snilhng-
ar, hver á sínu
sviði. Með vitneskju í pokahominu,
sem ekki þohr dagsbirtuna, neyðir FBI
Bishop til að taka að sér verkefni. Þaö
kemur fljótt í ljós að það býr fleira
undir en Bishop hefur vitneskju um
og brátt er flokkurinn í mikilh hættu
en verður að halda áfram ef einhver á
að komast lífs frá þessu verki. Snea-
kers er góð skemmtun þótt tölvutækn-
inni sé gert of hátt undir höfði. í mynd-
inni leika margir þekktir leikarar sem
hafa ekki mikið til að spila úr en hjálpa
þó til við að skapa úrvals afþreyingu.
SNEAKERS: - Útgef. ClC-myndbönd.
Leikstjóri: Phil Alden Robinson. Aðalhlut-
verk: Robert Redford og Ben Kingsley.
Bandarísk, 1992 - sýningartími 135 mín.
Bönnuð börnum innan 12 ára. -HK
★ '/2
Lífvörðurinn
MVtS wrftííÍM
COSTCEI HltllSTOK
„THE
Rodyguard
Miklar vin-
sældir The Bo-
dyguard eru ekki
aö þakka gæðum
myndarinnar,
þvert á móti er
myndin frekar
slök sakamála-
mynd. Skýring-
arnar á vinsæld-
unum era aðrar.
Kevin Costner er
vinsæh og Whitney Houston heyr
frumraun sína sem leikkona og syngur
í myndinni lag sem hefur náð miklum
vinsældum. The Bodyguard er róman-
tísk mynd um lífvörð sem veröur ást-
fanginn af söngkonu sem hann á að
passa. Þessi staðreynd og það að söng-
konan er ahs ekki fráhverf honum
ruglar hann í ríminu um stund en
hann sér að sér. The Bodyguard er
fyrir rómantískar sáhr; þeim sem vilja
raunsæi er bent á að forðast myndina.
THE BODYGUARD - Útgef. Steinar hf.
Leikstjóri: Mick Jackson. Aðalhlutverk: Ke-
vin Costner og Whitney Houston.
Bandarísk, 1992 - sýningartimi 98 min.
Leyfð öllum aldurshópum. -HK