Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1993, Síða 4
30
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1993
^1©nlist
a>t“
DV
Hátíöahöld fyrirhuguð f tilefni stórafmæiis merks rafmagnsgítars:
Fender Strato-
caster gítarinn
fertugur
Mikið verður um að vera á
næstunni í tilefni þess að einn
þekktasti rafmagnsgítar sögunnar,
Fender Stratocasterinn, er fertugur.
Þeir sem best þekkja sögu rafmagns-
gítarsins telja raunar að réttast hefði
verið að bíða með öll hátíðarhöld til
næsta árs. Þá verði liðin fjörutíu ár
'síðan Leo Fender kynnti fyrst nýja
módelið sitt. En eigi að síður ætla
aðdáendur Stratocastersins að halda
upp á afmælið í ár.
Hátiðahöldin eru raunar þegar
byrjuð. í síðustu viku tóku Rory
Gallagher og Bert Weedon lagið
Aerosmith - Get a Grip:
★ ★ ★ ★
Get a Grip sannar að Aerosmith hefur
aldrei höfðað betur til fjöldans en ein-
* mitt nú. -ÁT
Blur- Modern Life Is Rubbish:
★ ★ ★ ★
ásamt undirleikurum á Hard Rock
Café í Lundúnum. Rory leikur á einn
slitnasta Stratocaster sem sögur fara
af. Árgerð 1954 af Stratocaster veröur
boðinn upp hjá Southebys í Lundún-
um í dag. Ekki hafa borist upplýsing-
ar um hve margir hafa átt gripinn né
hverjir.
í tilefhi fertugsafmælisins hefur ný
útgáfa lagsins Wonderful Land verið
hljóðrituð. Það er sem kunnugt er eitt
vinsælasta lag gítarhljómsveitarinn-
ar The Shadows. Skuggamir fá að-
stoð að þessu sinni og það eru gítar-
leikaramir Mark Knopfler og Jeff
Lynne sem taka lagið með hljóm-
sveitinni. Lagið verður gefið út á
næstunni. Fimmtánda september
verður síðan efnt til tónleika í Man-
chester. Þar koma fram valinkunnar
Stratocasterhetjur, svo sem Joe
Walsh, Nils Lofgren og Rory Gallag-
her. Hljómleikamir verða teknir upp
og verður hluti þeirra notaður í
klukkustundarlangan heimildarþátt
um gítarinn margumtalaða.
Gripur
gítarhetjunnar
Flestir þekktustu gítarleikarar
síðari tíma leika aðallega á Fender
Stratocaster þótt sumir grípi einnig í
aðrar tegundir. Meðal þeirra þekkt-
ustu eru Eric Clapton, Robbie Robert-
son, Mark Knopfler, Ry Cooder og
Hank B. Marvin. Jimi heitinn
Hendrix spilaði á Stratocaster. Frægt
er atvikið þegar hann sprautaði
kveikjarabensini yflr gítarinn sinn,
kveikti í og spilaði síðan á brennandi
gítarinn. Stratocasterinn fór illa.
Hann er eigi að síður enn þá til og í
þokkalega nothæfu ástandi. Gripur-
inn þykir einn hinn merkasti í
Stratocaster fjölskyldunni og er nú í
eigu Dweezils, sonar Franks Zappa.
Leo Fender útvarpsvirki kynnti
sinn fyrsta rafmagnsgítar árið 1948.
Hann kallaði gripinn Fender Broad-
caster en breytti nafninu í Telecaster
árið 1950. Ári síðar varð Precision
rafmagnsbassinn til og loks kom
Flestir þekktustu grtarleikarar heimsins spila á Fender Stratocaster. Jimi Hendrix
var í þeirra hópi meðan hann lifði.
Stratocasterinn á almennan markað
árið 1954. Á honum var sveif, svonefnt
tremolo, sem gitarleikarinn gat teygt
lítillega á strengjunum með og skap-
að þannig titrandi tón.
Hank B. Marvin varð meistari
tremolosins. Hann hefur sagt frá því
í viðtölum hvemig hann heillaðist af
hljómi Stratocastersins þegar hann
hlustaði á bandaríska gítarleikara
eins og Buddy Hohy. En Hank gat
ekki eignast slíkan grip því að lengi
framan af var innflutningsbann á
slíkum tækjum til Bretlands. Hank
varð því að notast við breskan gitar
sem hann var alltaf óánægöur með.
Loks kom að því að Cliff Richard
þurfti að skreppa í stutta ferð til
Bandaríkjanna og hann keypti
rauðan Fender Stratocaster fyrir
Hank vin sinn.
Gamlir Fender Stratocaster gítarar
þykja kjörgripir og seljast á háu verði
séu þeir vel með famir. Einn gamall
gripur var til hér á landi fyrir
nokkrum árum og þótti kjörgripur.
Hann var til sölu um skeið en enginn
treysti sér til að koma með viðunandi
tilboð þannig að á endum var hann
seldur úr landi. Verðið fékkst ekki
upp gefið. Á.T.
Platan er meistaraverk... betri kaup
fmnast vart 1 nýútgefnu efni þessa dag-
ana. -PJ
TinaTurner
- What's Love Got to Do with It:
★ ★ ★
Tina sýnir mikil tilþrif í söng og
greinilegt er að hún á nóg eftir af kraft-
inum sem hefur ávallt einkennt hana.
-HK
Björk - Debut:
★ ★ ★ ★
Án efa það persónulegasta sem frá
höfundinum hefur komiö. Debut er ein-
stök, rétt eins og Björk sjálf. -SMS
Rod Stewart
- Unplugged... and Seated:
★ ★ ★
Spilagleöin og einlægnin á þessari
plötu setja hana í flokk allra bestu Un-
piugged platna hingað til. -SþS
U2-Z00R0PA
★ ★ ★ ★
í safni frábærra platna U2 verður
ZOOROPA vafalaust talin með hinum
athyglisverðari. -SMS
The Waterboys - Dream Harder:
★ ★ ★
Mike Scott leikur tiltölulega hráa
rokktónlist með þéttum takti og kröft-
ugum sólógítar . . . hér er um fyrsta
ílokks rokktónlist að ræða. -SþS
Bogomil Font...
-Ekki þessi leiðindi:
★ ★ ★
Sannkailaður gleðigjaft sem á eftir að
hressa lund landans. -SMS
The Posies
- Frosting On The Beater:
★ ★★
Heilsteypt
verk
Undanfarin ár hefur nýsköpun í
tónlist að mestu leyti farið fram
vestanhafs þótt einhver teikn séu á
lofti um breytingu þar á. The Posies,
sem tók þátt í að setja Seattle-bylgj-
una af stað með fyrstu plötu sinni,
Dear 23, er nú á ferðinni með nýjan
grip, Frosting on the Beater. Þar
halda þeir áfram á sömu braut og fyrr
undir styrkri stjóm upptökustjórans
Don Fleming. Jon Auer og Ken
Stringfellow eru sem söngvarar,
gítarleikarar og lagahöfundar hljóm-
sveitarinnar auðvitað aðalnúmerin í
henni. Þeir eru sæmilegir gítarleik-
arar, góðir söngvarar og ágætis
flD PIONEER
The Art of Entertainment
lagasmiðir, þótt íjölbreytnin mætti
kannski vera meiri. Lítið fer fyrir
Dave Fox bassaleikara en Mike Mus-
burger á trommunum er sennilega
besti hljóðfæraleikari sveitarinnar
(takið sérstaklega eftir skemmti-
legum trommuleik hans í Lights
Out). Tónlistin, sem þessir herra-
menn semja og spila, er þétt, melód-
ískt rokk. Þeir renna í gegnum flest
lögin á mikilli keyrslu en hægja á sér
einstaka sinnum og tekst þá yfirleitt
best upp. Lights Out er besta lag
plötunnar .og frumlegasta lagasmíð-
in, lag sem sveiflast á milli blíðlegrar
næmni og grófs ruddaskapar í hljóð-
færaleik. Bum & Shine og Coming
Right Along, lengstu lög plötunnar,
eru líka mjög góð. Fyrrnefnda lagið
er draumórakennt rokklag með
þungri undiröldu en hið síðamefhda
er hægasta lagið á plötunni þar sem
þeir félagar halda hvað mest aftur af
sér í hljóðfæraleik. Platan er í heild
mjög heilsteypt verk en um leið
svolítið einstrengislegt. Lögin era þó
flest yfir meðallagi góð og nokkur
mjög góð. Þessi plata mun falla vel í
kramið hjá unnendum draumóra-
rokks en á líklega ekki mikið erindi
til annarra. Pétur Jónasson
Neil Young - Unplugged:
★ ★ ★
Ein af þeim
allra bestu
Unplugged plötumar halda áfram
að streyma á markaðinn og nú er þaö
Neil Young sem skemmtir án raf-
magns. Young er alveg kjörinn til
tónlistarflutnings af þessu tagi; hans
hljóðfæri gegnum tlðina hafa oftast
nær veriö kassagítarinn og munn-
harpan og því kannski ekki mikil
viðbrigði fyrir hann að troða upp
„unplugged".
Og Young nýtur sín svo sannarlega
á þessari plötu og gerir víðreist um
tónlistarferil sinn. Hann flytur ein-
göngu lög eftir sjálfan sig enda af
nógu að taka. Elsta lagið er frá árinu
1967 og þau yngstu frá síðasta ári; lög
af plötunni Harvest Moon. Það sem
vekur þó sérstaka athygli mína og
rýrir örlítið gildi plötunnar fyrir
mína parta er tregða Youngs til að
taka þau lög sem skutu honum upp á
stjömuhimininn sem sólólistamanni
á sínum tíma. Þannig lætur hann
nægja að taka eitt einasta lag af plöt-
unum After The Goldrash og Harv-
est, The Needle og The Damage Done;
plötum sem annars eru fullar af
lögum sem gaman væri að heyra
Young flytja aftur. Eina verulega
þekkta lagið þar fyrir utan sem hann
tekur er lagið Helpless frá Crosby,
Stills, Nash & Young tímabilinu.
En þetta er minniháttar skaði því
Young á slíkt úrval frábærra laga að
hann gæti eflaust gefið út nokkrar
„Unplugged" plötur. Og það sem er
ótrúlegast að heyra á þessari plötu er
að þrátt fyrir rysjótt lífemi hefur hin
sérstaka söngrödd Youngs ekkert
látið á sjá og bara þroskast ef eitthvað
er. í það minnsta syngur Young eins
og engill alla plötuna út í gegn. Neil
Young Unplugged er plata sem er
skyldueign allra gamalla sem nýrra
Neil Young aðdáenda.
Sigurður Þór Salvarsson.
Vinir Dóra — Mér líður vel:
★ ★ ★
Góðir
gestgjafar
í Hávamálum er talsvert fjallað um
gesti. Hvemig gestimir skuli hegða
J
sér og hvernig koma skuli fram við
þá. Það hefur verið gestkvæmt hjá
Vinum Dóra síðustu árin. Sennilega
hefðu þeir ekki orðið jafn margir og
raun varð á ef móttökumar hefðu
ekki verið góðar.
Á plötunni Mér líður vel fáum við
að heyra í þessum erlendu gestum
sem áttu það sammerkt að koma frá
Chicago. Platan hefst reyndar með
titillaginu, Mér líður vel. Þótt það
minni á engan hátt á gamla góða I'm
so Glad er útilokað annað en að
manni detti það í hug. Mér líður vel
er þokkalegasta fluga. Það er eftir
Halldór Bragason sem jafnframt
syngur lagið og tekst þokkalega sem
og í tveimur öðrum lögum plötunnar.
Vissulega eru gestimir á plötunni,
Mér líður vel, misjafnir að gæðum.
Sumir ekki nema í góðu meðallagi.
Aðrir frábærir. Jimmy Dawkins og
Billy Boy Arnold eru minnisstæð-
astir. Sér i lagi er gaman að heyra
þann síðamefnda flytja I Wish You
Would.
Vinir Dóra era vel samspilaðir og
öraggir, kannski helst til öruggir á
köflum. Miðað við að platan er öfl
tekin upp „lifandi" er ótrúlega lítið
um mistök. En það væri nú ekki sann-
gjamt að fara að biðja um eitthvað
slíkt.
Hverri einustu blúsplötu, sem
kemur út hér á landi, ber að fagna
standist hún allar almennar gæða-
kröfur. Það gerir Mér liður vel svo
sannarlega.
Ásgeir Tómasson