Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1993, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1993, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1993 11 3o»v________________________________Fréttir Einstaklingar hundeltir en hlutafélögin borga ekkert - segir bóndi á Svalbarðsströnd um innheimtu sjóðagjalda hjá kartöflubændum Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyii „Framleiösluráð landbúnaðarins hefur nú hert innheimtuaðgerðir hjá bændum í kartöflurækt og ýmsum öðrum búgreinum sem skulda svo- kölluð „sjóðagjöld" og mun víða vera um uppsafnaðan vanda að ræða. Þessar innheimtuaðgerðir hafa ekki mælst vel fyrir hjá öllum og bændur segja að ekki sitji allir við sama borð varðandi skil á sjóðagjaldinu. „Einstaklingar, sem eru í fram- leiðslu og sölu, komast ekki undan þessu og á þá er gengið með ljámámi og jarðir seldar ofan af þeim. Hins vegar láta þeir hlutafélög, sem eiga að standa skil á þessum gjöldum, í friði og þau lýsa sig frekar gjaldþrota en borga gjaldið og byrja síðan bara upp á nýtt,“ segir Sveinberg Laxdal, kartöílubóndi á Svalbarðsströnd í Eyjafirði. Sem dæmi um hlutafélög sem aldr- ei hefur greitt þessi gjöld nefndi Sveinberg fyrirtækið Ágæti hf. Það segir hann að hafi skilað inn sölu- skýrslum en aldrei greitt krónu af þessum sjóðagjöldum og nefnir tengsl fyrrverandi og núverandi Framleiðsluráð: Löglegt aðtaka beingreiðslur upp í sjóðagjöld - segirformaðurmn Haukur Halldórsson, formaður Framleiðsluráðs, segir að fram- kvæmdanefnd Framleiðsluráðs hafi ákveðið á fundi sínum nýlega að ganga til lögfræðilegra innheimtuað- gerða gagnvart 36 aðilum í kartöflu- rækt og öðrum sérbúgreinum eftir að frestir sem þessum aðilum hafði verið gefinn til að ganga frá skuldum sínum vegna vangoldinna sjóða- gjalda hafi runnið út. Haukur segir að innheimtuaðgerð- ir Framleiðsluráðs séu fullkomlega löglegar og að ákveðið hafi verið að taka svokallaðar beingreiðslur bænda upp í skuldir vegna sjóða- gjalda í samræmi við heimildir í lög- um þar sem lögfræðilegar inn- heimtuaðgerðir hafi aukinn kostnað í för með sér fyrir bændur. Haukur heldur því fram að bænd- um og fyrirtækjum, sem skuldi sjóðagjöld, hafi margítrekað verið gefinn frestur til að ganga frá sínum málum. Framkvæmdanefnd Fram- leiðsluráðs hefði ákveðið að setja skuldir þeirra í innheimtu eða taka beingreiðslur til þeirra upp í skuldir eftir að ljóst þótti að skuldirnar myndu ekki innheimtast. Til þess væru heimildir í lögum og þær heim- ildirværunýttar. -GHS Alþýðubandalagiö: Auglýsteftir framboðum Fátt bendir nú til annars en að Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, verði sjálfkjör- inn formaður á landsfundi flokksins í lok nóvember. Yfirkjörstjóm bandalagsins hefur auglýst efir fram- boðum til embætta formanns og varaformanns. Samkvæmt nýjum reglum skal kjósa formann og vara- formann í allsherjaratkvæðagreiðslu flokksmanna berist fleiri en eitt lög- legtframboð. -DBE formanns félags kartöflubænda í því sambandi. Hann telur að forsvars- menn Félags kartöflubænda vinni beinlínis gegn félagsmönnum í þessu máh sem ýmsum öðmm. „Það þarf að ná sáttum í þessu máh og finna hentugri leiðir varð- andi innheimtuna. Ég hef komið með þá hugmynd hvort ekki megi inn- heimta þetta gjald í tengslum við áburðarkaup og finnst tilvalið að ræða það. Það gengur ekki að sumir séu látnir í friði varðandi gjaldið en aðrir ekki, sérstaklega í þeirri miklu samkeppni sem er á markaðnum,11 segir Sveinberg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.