Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1993, Qupperneq 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1993
ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1993
17
íþróttir
íþróttir
Heil umferð
í 2. deild
Heil umferð fer fram í 2. deild-
irrni í knattspymu í kvöld.
Reykjavíkur-Þróttur tekur á móti
toppliði Breiðabliks á heimavelli
sínum, Grindavík fær Stjörnuna
í heimsókn, KA og BÍ mætast á
Akureyri, Leiftur og Tindastóll
leika á Ólafsfirði og loks mætast
Þróttur og ÍR á Neskaupstað. AU-
ir leUárnir hefiast klukkan 19.
-RR
Fyrirlestur
körfuboltaþjálfara
Körfuknattleiksþjálfarafélagið
heldur fyrirlestur í húsakynnum
ÍSÍ á miövikudagskvöld klukkan
20.30. Þar fiytur Steve Bergman,
þjálfari West High Iowa og fyrr-
um þjálfari Vals, fyrirlestur. Að-
gangseyrir er krónur 1000.
Fijálsar:
HSHogHHF
upp í 2. deild
Bikarkeppnin i ítjálsum íþrótt-
um í 3. deild fór fram um helgina
á LýsuhólsvelU í Staðarsveit.
Heimamenn í Hérðssambandi
Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu
báru sigur úr býtum og færast
upp í 2. deUd að ári ásamt Hérðs-
sambandinu Hrafnafióka sem
varð í öðru sæti. HSH hlaut 91
stig en HHF 65 stig. í þriöja sæti
varð Uð Strandamanna í HSS með
48 stig og Dalamenn í UDN urðu
í íjórða og síðasta sæti með 47
stig. Hörður Gunnarsson, HSH,
sigraði í Ijórum greinum í keppn-
inni. Hann hljóp 100 m á 11,2 sek„
400 m á 53,8 sek., stökk 6,46 m i
langstökki og var í boðhlaups-
sveit HSH í 4x100 m sem hljóp á
46,5 sek. -BL
Kvartmílukeppni
Kvartmiluklúbburinn hélt ís-
landsmót í kvartmílu um helgina
og uröu úrslit þessi:
Útbúnir götubilar
f. GisU Styff......13*562
2. Árni Hjaltason..15.533
Götubíiar
1. Agnar H. Arnarson
2. EgiU Guðmundsson
13.228
13.628
Bifhjól að 750 cc
1. UnnarM. Magnússon.....10.874
2. Sveinn Logi Guðmundsson 11.128
Bifhjól yfir 750 cc
1. Björn I. Jóhannsson...10.604
10.558
-GH
2.HörðurLýðsson
*>•!*>• <**>•:<♦>•<**:
til Skotlands
Þrír íslenskir ungUngalandsl-
iðsmenn í golfi taka þátt í hinu
árlega stórmóti The British Boys
Amateur Open Championship
sem nú stendur yfir í Skotlandi,
Birgir Þór Leifsson, GL, Sigurpáll
Sveinsson, GA og Tryggvi Péturs-
son, GE, keppa á mótinu. Birgir
Leifur og Tryggvi sigruðu báðir
andstæðinga sína í 1. umferðinni
í gær en SigurpáU beið hins vegar
lægri hlut og er úr leik á mótinu.
Eftir að þessu móti lýkur munu
þremenningarnir halda til
Aberdeen þar sem SigurpáU og
Tryggvi leika á sterku opnu golf-
móti. Birgir Leifur verður hins
vegar fulltrúi íslands í alþjóðlegu
unglingamóti þai* sem keppa full-
trúar frá öllum þátttökuþjóðum
Evrópugolfsambandsins.
-RR
Aðalfundur
hjáHK
Aöalfundur HK verður haldinn
í kvöld I íþróttahúsinu í Digra-
nesi í Kópavogi. Fundurinn hefst
klukkan 20 og eru allir veikomn-
ir.
Gullskalli
ÓlaÞórs
- skoraði þrennu í stórsigri ÍBK gegn ÍB V
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Ég bjóst við þeim miklu grimmari
og átti von á meiri hörkuleik. Það
var ágætt að ná í þrjú stig tíl viðbót-
ar fyrir bikarúrsUtaleikinn gegn
Skaganum en ég á von á að þar verði
mótspyman miklu meiri,“ sagði ÓU
Þór Magnússon, Keflvíkingur, en
hann skoraði þrennu fyrir lið sitt
gegn Eyjamönnum í Getraunadeild-
inni í gærkvöldi. Keflvíkingar sigr-
uðu, 4-0, og eru komnir í fiórða sæti
deildarinnar.
Eyjamenn máttu þakka fyrir að
tapa ekki stærra í Keflavík því
heimamenn höfðu mikla yfirburði.
Það var eins og Eyjamenn hefðu
gleymt að hlaða rafhlöðurnar því
þeir voru óvenjudaufir og baráttan,
sem venjulega einkennir Uðiö, var
ekki 111 staðar.
Fyrsta markið kpm eftir hálftíma
leik en þá skoraði Óli þór með skalla
eftir sendingu Gunnars Oddssonar.
Á síðustu sekúndum fyrri hálfleiks
bætti ÓU Þór öðru markinu við úr
vítaspymu eftir að Jón Bragi Arnar-
son hafði brotið á Marko Tanasic
innan vítateigs.
Strax á 3. mínútu síðari hálfleiks
bætti Tanasic þriðja markinu við
með fóstu skoti í hornið hjá Friðriki
Friðrikssyni, markverði ÍBV. Óli þór
var síöan enn á ferðinni á 65. mínútu
og skoraði þá sitt þriðja mark í leikn-
um með laglegum skalla eftir send-
ingu frá Gunnari.
Keflvíkingar léku mjög vel og sér-
staklega var miðjan sterk með þá
Gunnar, Tanasic, Gest og Ragnar
mjög öfluga. Óli þór var sterkur í
sókninni en hann var deyíður með
þremur sprautum fyrir leikinn
vegna meiðsla. Þá var Sigurður
Björgvinsson öflugur í vöm liðsins.
Eyjamenn vora eins og áður sagði
mjög slakir. Nökkvi Sveinsson og
Friðrik markvörður voru bestu
menn iiðsins.
„Ég er alveg gáttaður af frammi-
stöðu minna leikmanna. Þetta er ör-
ugglega það lélegasta sem 1. deildar
lið hefur sýnt í langan tíma og hvílík
hörmung. Það mætti halda að það
hefði verið mánudagur eftir þjóðhá-
tíð og við vomm í raun heppnir að
tapa ekki miklu stærra,“ sagði Jó-
hannes Atlason, þjálfari Eyjamanna,
skiljanlega óhress með sína menn
eftir leikinn.
Jóhannes sagðist ætla að kvelja
leikmenn sína með því að fá video-
spólu af leiknum og láta þá horfa á
hana nokkrum sinnum.
Oli þór Magnússon skoraði þrennu
fyrir ÍBK í gærkvöldi.
Marko Tanasic skoraði eitt af mörk-
um ÍBK.
Ágúst til Hácken?
Ágúst Gylfason, knattspyrnumaður í Val, mun að öllum líkindum fara
til Svíþjóöar í haust og kanna aðstæður hjá sænska úrvalsdeildarliðinu
Hácken. Með því liði leika einmitt þeir Amór Guðjohnsen og Gunnar
Gíslason og ef Agúst fer út þá yrði hann þriðji íslendingurinn hjá liðinu.
„Ég hef mikinn hug á að komast út og eins og staðan er nú er Svíþjóð
helst inni í myndinni. Ég mun leika með Valsmönnum út keppnistímabil-
ið og síðan mun ég hara sjá til. Það er ekkert öruggt í þessu ennþá en
stefnan liggur út,“ sagði Ágúst Gylfason við DV í gærkvöldi.
-RR
Markaskoraranum fagnað. Anthony tekur á móti fagnaðaróskum frá félögum sínum eftir að hann hafði skorað fyrsta markið.
DV-mynd GS
Getraunadeildin í knattspymu:
Anthony sá um Fylki
- skoraði þrennu þegar Valur lagði Fylki að Hlíðarenda
„Við tryggðum okkur þrjú mikilvæg
stig og erum komnir í efri hiutann. Við
lékum vel í fyrri hálfleik en hleyptum
þeim inn í leikinn í seinni hálfleik. Þaö
er enn skortur á einbeitingu í liðinu og
það vantar meira sjálfstraust til að að
klára leikina," sagði Kristinn Bjömsson,
þjálfari Vals, eftir að lið hans hafði sigr-
að Fylki, 4-2, í Getraunadeildinni á Hlíð-
arenda í gærkvöldi.
Valsmenn komu miklu sterkari til
leiks og hefðu getað skorað strax á 4.
mínútu en stöngin bjargaði þá Fylkis-
mönnum. Það var þó aðeins gálgafrestur
fyrir Árbæinga því Anthony Karl Greg-
ory skoraði skömmu síðar af stuttu færi
eftir að Páll Guðmundsson, markvörður
Fylkis, hafði hálfvarið skot frá Kristni
Lárussyni. Valsmenn bættu öðru mark-
inu við á 37. minútu þegar Steinar
Adólfsson skoraði með glæsilegu þm-
muskoti af um 20 metra færi.
Tveimur mínútum síðar minnkuðu
Fylkismenn muninn þegar Baldur
Bjamason bmnaði í gegn vinstra megin
og sendi boltann laglega í netið fram hjá
Bjarna Sigurðssyni. Baldur og félagar
hans vom enn að fagna þegar Valsmenn
skoruðu þriðja mark sitt 50 sekúndum
síðar. Vöm Arbæinga svaf þá á verðin-
um eins og oft í leiknum og Anthony
Karl skallaði í netið af stuttu færi og
staðan var 3-1 í leikhléi.
Allt annað var að sjá til Árbæinga í
seinni hálfleik. Leikmenn liðsins börð-
ust þá af krafti og náðu að minnka mun-
inn með fallegu skallamarki Kristins
Tómassonar. Árbæingar fengu síðan
dauðafæri á að jafna en Þórhallur Dan
Jóhannsson skaut á ótrúlegan hátt yfir
mark Vals þegar hann stóð aleinn á miðj-
um markteig. Valsmenn náðu aftur und-
irtökunum í leiknum síðasta stimdar-
fiórðunginn og gerðu út um leikinn 7
mínútum fyrir leikslok. Anthony Karl
kórónaði þá góðan leik sinn með því að
skora af stuttu færi, hans þriöja mark í
leiknum.
Valsmenn komust því aftur á sigur-
braut eftir frekar dapurt gengi undan-
farið. Anthony Karl, Steinar og Ágúst
Gylfason vom bestu menn Vals í leikn-
um og Sævar Jónsson stóð fyrir sínu í
vörninni. Fylkismenn vom afar slakir í
fyrri hálfleik en náðu að rífa sig upp í
þeim síðari. Þeirra bestu menn voru
Ásgeir Ásgeirsson og Finnur Kolbeins-
son og Kristinn átti einnig góða spretti.
„Þetta var ekki nógu gott hjá okkur.
Við þurfum að taka okkur tak og laga
marga hluti og ætlum okkur að gera
það. Við erum ekki hættir og það er enn
mikið eftir," sagði Magnús Jónatansson,
þjálfari Fylkis, eftir leikinn.
-RR
Hótel Áningar rall:
Ásgeir Sigurösson og Bragi Guðmunds-
son á Metro, sigruðu í Hótel Áningar rall-
inu, sem haldiö var á Sauðárkróki um
arsýslu og Húnavatnssýslu.
Þeir Ásgeir óg Bragi óku sérleiðirnar
ellefu á 85,4 km meðalhraða. í öðru sæti,
18 sekúndun á eftir sigurvegurunum, urðu
Steingrímur Ingason og Kári Pálsson á
Nissan. Óskar Olafsson og Jóhannes Jó-
rallkempan Öm Ingólfsson mætti til leiks
á Trabantinum sínum, ásamt Ægi Arnar-
syni og urðu þeir í 12. og síðasta sæti, 46
mín. á eftir Metroinum með 55,1 km með-
alhraða.
Þegar tveimur keppnum er ólokið eru
örugga forystu. Þeir eru með 80 stig en
næstir koma Steingrímur Ingason og Kári
Pálsson með 57 stig. Önnur af þeim tveim-
mín. á eftir fyrsta bíl.
Þrettán bílar vora skráðir til keppni og
luku þeir henni allir nema einn. Ólafur
Asgeír og Bragí eru hér á fleygllerð á Melro btl sínum.
DV-mynd ÆgirMár
sem veröur í septemher en sú keppni hef-
ur tvöfalt vægi og því en mörg stig eftir í
pottinum.
1- 0 Óli Þór Magnússon (30.)
2- 0 Óli Þór Magnússon (v) (45.)
3- 0 Marko Tanasic (48.)
4- 0 Óli Þór Magnússon (65.)
Lið ÍBK: Ólafur (l), Sigurður (2),
Karl (1), Jakob (1), Gestur 8(2),
Georg (1) (Eysteinn (2) 8. mín.),
Ragnar (2), Gunnar (2),,Marko (2)
(Kjartan (1) 72. mín.), Ólí Þór (3),
Jóhann (1).
Lið ÍBV: Friðrik (1), Jón Bragi
(1), Sígurður (1), Yngvi (1), Rútur
(1), Makonchnly (1), Anton (1),
Nökkvi (2), Steingrímur (1), Ingi (1)
(Bjarnólfur (1)46. mín.), Bjarni (1).
Gul spjöld: Gestur, Karl (ÍBK),
Anton, Bjarnólfur (ÍBV).
Rauð spjöld: Engin.
Dóraart Sæmundur Víglunds-
son, stóð sig mjög vel.
Áhorfendur; Um 400.
Aðstæður: Vindur, sólin á lofti
en frekar kait. Völlurinn háll eftir
rigningar undanfarna daga.
Valur
1- 0 Anthony Karl Gregory (9.)
2- 0 Steinar Adólfsson (37.)
2- 1 Baldur Bjarnason (39.)
3- 1 Anthony Karl Gregory (40.)
3- 2 Krístinn Tómasson (60.)
4- 2 Anthony Karl Gregory (83.)
Lið Vals: Bjami (1), Bjarki (1),
Hörður Már (1) (Guðmundur (87.
mín.), Jón Grétar (l), Jón S. (1),
Sævar Jónsson (2), Águst (2),
Steinar (2), Anthony Karl (2),
Kristinn (1) (Sigurbjörn (87. min.),
Amljótur (1).
Lið Fylkis: PáU (1), Helgi (1),
Baldur (1), Bergþór (1) (Porca (1)
46. mín.), Björn (1), Ásgeír (2), Aö-
alsteinn (1) (Ólafur (1) 65. mln.)
Finnur (2), Haraldur (1), Kristinn
(2), Þórhallur (1).
Gul spjöld: Höröur Már, Jón S.,
Ágúst (Val), Baldur, Finnur. Porca
(Fylki).
Rauð spjöld: Engin.
Ðómari: Ari Þórðarson, ágætur.
Áhorfendur: Um 400.
Aðstæður: Vindur og napurt
veður. Góður grasvöliur.
Akranes....11
FH 11
Fram.......11
Keflavík...11
Valur
KR.
Þór
IBV
Fylkir
Vfidngur
•►:•:<♦>:•:«♦>:*♦>:•:«♦►:
♦♦>:*+>y<>;>:>«;:
10 0 1 37-9 30
632 22-17 21
605 28-18 18
524 18-20 17
5 1 5 18-14 16
5 1 5 22-19 16
4 3 4 10-11 15
335 15-24 12
3 1 7 13-25 10
028 10-36 2
Handknattleikur:
Gunnar er
hættur við
- og leikur því með FH í vetur
Gunnar Beinteinsson, hand-
knattleiksmaður úr FH, er hætt-
ur við að fara út til Svíþjóðar en
þangað ætlaði hann að halda út
í nám í vetur samhliöa því að
leika handknattleik með sænska
félaginu Söder.
„Það eru fyrst og fremst per-
sónulegar ástæður sem liggja að
baki þessari breyttu ákvörðun
minni. Ég var búinn að ganga frá
öllum málum við félagið og ætlaði
mér að halda út á miðvikudag en
um helgina tók þá ég þá ákvörðun
að fara hvergi. Ég mun því leika
áfram með FH og hlakka mjög til
vetrarins," sagði Gunnar í sam-
tali við DV í gærkvöldi.
FH-ingar hljóta að kætast yfir
þessu enda er Gunnar mjög snjall
leikmaður sem leikið hefur stórt
hlutverk með liðinu undanfarin
ár.
FH leitar í Júgóslavíu
FH-ingar geta því teflt fram sama
mannskap og á síðasta keppnis-
tímabili en forráðamenn liösins
eru enn að leita að hægri handar
skyttu eftir að Patrekur Jóhann-
esson hætti við að koma í FH.
FH-ingar hafa verið með fyrir-
spurnir í Júgóslavíu og eru með
nokkra leikmenn í sigtinu.
-GH
Baldur ekki
meira með
- í sumar efdr aö hafa lent í umferðarslysi
Baldur Bragason, knattspyrnu-
maður úr Val, leikur ekki meira með
félagi sínu á þessu keppnistímabili.
Hann lenti í umferðarslysi á Bú-
staðavegi á föstudagskvöldið og slas-
aðist þónokkuð. Jeppabifreið, sem
erlend hjón voru í, var ekið í veg
fyrir mótorhjól sem Baldur ók með
þeim afleiðingum að hjólið skall
harkalega framan á bifreiðinni og að
sögn sjónarvotta má Baldur teljast
heppinn að hafa þó ekki slasast enn
meira.
Að sögn Björns Zoöga, læknis
Valsliösins í knattspyrnu, og læknis
á slysadeild Borgarspítalans skarst
Baldur í andliti og á skrokknum og
marðist nokkuð illa. Aö auki sködd-
uðust hálsliðir. Baldur var lagður
inn á Borgarspítalann en var útskrif-
aöur þaðan í gær og er líðan hans
eftir atvikum góð.
Baldur leikur því ekki meira með
Val á þessu keppnistímabiii og sum-
arið hjá þessum snjalla leikmanni
hefur ekki verið dans á rósum. Hann
er búinn að vera meira og minna
meiddur í allt sumar. Baldur tá-
brotnaði í vetur og þegar hann var
búinn að ná sér tábrotnaði hann aft-
ur í leik gegn Fylki í fyrri umferð
Getraunadeildarinnar. Baldur var
síðan rétt að koma inn í Valsliðið að
nýju þegar hann lenti í þessu slysi.
-GH
Lögregla og sjúkralið hlúa hér að Baldri skömmu eftir að hann hafði lent
i árekstri á Bústaðavegi á föstudagskvöld. DV-mynd S
Þróttarvöllur
ÞRÓTTUR R -
í kvöld kl. 19.00.
Láttu sjá þig!
Hjörtursigraði
Hjörtur P. Jónsson á BME sigr-
aði í rallíkrossflokki í QMI ralli-
krossinu sem haldið var á braut-
inni við Krýsuvíkui*veg um síð-
ustu helgi. Alls tóku 46 keppend-
ur þátt í keppninni og keppt var
í fiómm flokkum. Hjörtur fékk
tímann 3,46 mín. í öðru sæti varð
Guðmundur Pálsson á Toyota á
3,53 mín. og þriðji varð Elías Pét-
ursson á Skoda á 3,56 mín. I opn-
um flokki sigraði Guðni Guöna-
son á Porche grínd, fékk tímann
3,41 min. og í öðru sæti varð Már
Árnason á grmd á 4,08 mín. í
krónuflokki varð Garðar Þór
Hilmarsson hiutskarpastur á
Sapporo, fékk tímann 3,43 mín.
Annar varð Gunnar Geir Hall-
dórsson á Toyota á 3,50 mín. og
þriðji varð Sveinn Simonarson á
Skoda á 3,51 mín. í teppaflokki
sigraði Brynjar Kristjánsson á
Malibu, fékk timann 3,46 mín.
Annar varð Gunnar Örn Hjálm-
arsson á Cadtílac á 3,53 mín. og
þriðji Óskar Einarsson á Monte
Carioá3,56min. BL
FJölmlðlaitiót
Hið áriega fiölmiölamót i golfl
verður háð á Jaðarsveili, golfvelli
Akureyringa, næstkomandi laug-
ardag, 14. ágúst, klukkan 14. Þetta
er í 4. skiptið sem golfmót þetta
er háö og er baföi keppt í þriggja
manna sveitum og í einstaklings-
keppni. Þátttökurétt hafa ailir
þeir sem vinna við fiölmiðla eða
hafa unnið á þessu ári. Keppt er
um farandbikara auk þess sem
glæsileg verðlaun eru í boði.
Breytingarí
Leik ÍA og Fram í 12. umferð
Getraunadetídarinnar hefur ver-
ið flýft vegna þátttöku ÍA i for-
keppni Evrópumóts meistaraliða
en Skagamenn leika gegn Tirana
í Albaníu 22. ágúst. Upphaflega
áttí leikur ÍA og Fram að vera á
Akranesi 19. ágúst en verður þess
í stað 16. ápúst. Þá hefur leikur
Vikings og IA veriö færður til 26.
ágúst en hann áttí að vera 22.
ágúst. Loks hefur leik Vals og ÍBK
verið flýtt vegna Evrópuieiks
Vals sem fram fer 18. ágúst. Valur
og ÍBK leika 15. ágúst i stað 19.
ágúst. GH
Útfarflmm
undirpari
Úlfar Jónsson, GK, sigraöi á
Merild mótinu í golfl sem haldið
yar i Hafnarfirði á laugardaginn.
Úlfar lék frábært golf og lék 18
holur á 63 höggum sem eru fimm
högg undir pari vallarins. Sveinn
Sigurbergsson, GK, kom næstur
meö 71 högg og Guðmundur Vig-
fússon varð þriðji á sama högga-
fjölda. Með forgjöf sigraði Jakob
M. Böðvarsson, GK. á 60 höggum
nettó. Guðjón Sveinsson, GK, lék
á 61 liöggi og Guömundur Vigfús-
son þriðji á 62 höggum. _GH
HjattiogBjörk
unnuáFlúðum
Opna Límtrésmótiö í golfl var
haldiö á Flúðum. Án forgjafar
sigraði Hjalti Páhnason, GR, á 72
höggum. Jón H. Guðlaugsson,
GKJ, varð annar á 74 höggum og
Svavar Egilsson, GK, þriðji á 77
höggum. Meö forgjöf sigraði Stur-
láugur Ólafsson, GS, á 66 högg-
um. í kvennaflokki sigraöi Björk
Ingvarsdóttir, GK, á 83 höggum.
Jakobína Guðlaugsdóttir, GV,
varð önnur á 90 höggum og
Hrafnliildur Eysteinsdóttir, GK,
þriðjaá95höggum. GH