Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1993, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1993, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1993 Fréttir Sprenging 1 húsi við Njarðargötu: Rúður þeyttust úr húsinu Sprenging varð á annarri hæð hússins að Njarðargötu 39 í gær og var allt tiltækt slökkvilið kallað út. Gluggar hússins þeyttust út og glerbrotunum rigndi á götuna. Á sama tíma blossaöi mikill eldur upp. Það var ófagurt um að litast þegar blaðamaður DV kom á svæð- ið stuttu seinna. Glerbrotin höfðu þeyst yfir götuna og skollið í vegg- - mikill eldur blossaði upp - maður lést í brunanum inn á garðinum á móti. Búið var að slökkva mesta eldinn en þó logaði ennþá efst í þakinu og svartan reyk lagöi frá húsinu. Eftir voru kolsvartar hliðar hússins og búið var að loka götunni beggja megin. Tvær íbúðir eyðilögðust í eldinum. Einn maður var í húsinu þegar sprengingin varð og var hann lát- inn þegar slökkviliðið kom á stað- inn. Að sögn Andra Stefánssonar, sem var sjónarvottur aö sprengingunni og kom rétt á undan slökkvihðinu, þeyttust rúðumar út og eldur kviknaði á sama tíma. „Ég kom hingað þegar rúðurnar voru aö springa út og mikill eldur logaði strax. í því kom slökkviliðið á stað- inn,“ segir Andri Stefánsson sem var sjónarvottur að sprengingunni. „Þegar við komum á staðinn vom miklar sprengingar og eldtungum- ar stóðu út um aðra hæðina. Tveir reykkafarar fóm strax inn og reyndu að ráða niðurlögum eldsins innan frá. Sprengingamar héldu áfram svolitla stund í viðbót og ég var hræddur um að missa eldinn yfir í næstu hús. Þaö gekk frekar illa að ijúfa þakið því við vorum svo fáir til að byija með,“ segir Jón Friðrik Jóhannsson, varðstjóri á B vakt hjá slökkviliðinu, en hann stjórnaði aðgerðum í gær. Húsin í kring slupppu en kjallar- inn varð fyrir töluverðum vatns- skemmdum. -em Verðlaunasamkeppni arkitekta: Nýtt hús Hæstarétt- ar við Lindargötu - einfalt og skrautlaust, koparklætt grágrýtishús Aögeröir NATO í Bosníu: w um afstöðu íslands „Það er ljóst að fyrir rúmri viku skipuðu íslendingar sér í hóp þeirra ríkja innan NATO sem studdu tillögu Bandaríkjamanna um loftárásir á Serba, án þess að Sameinuðu þjóð- irnar hefðu þar ákvörðunarvald," sagði Ólafur Ragnar Grímsson, fuU- trúi Alþýðubandalagsins í utanríkis- málanefnd. Á fundi utanríkismála- nefndar í gær var hart deilt um af- stöðu íslendinga á tveimur samráðs- fundum NATO ríkja um hemaðarað- gerðir gegn Serbum í Bosníu en þar var ákveðið að hemaðaraðgerðir NATO yrðu háðar ákvörðun Samein- uðu þjóðanna. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra segir að þessi afstaða stjómarandstöðunnar s.é á misskiln- ingi byggð. „Fastafulltrúi okkar hjá NATO fékk frá upphafi fyrirmæli um að styðja tillögur um hemaðaraö- gerðir, með þeim skilyrðum að sam- ráð yrði haft við Sameinuðu þjóöirn- ar og aö ekki yrði um einhliða að- gerðir að ræða. Það voru allir fulltrú- ar NATO ríkjanna sammála um að samráð yrði haft við Sameinuðu þjóðimar og það eina sem hefur breyst frá fyrri fundinum er að fastar var svo búið um að aðgerðir hæfust ekki nema samkvæmt fyrirmælum framkvæmdastjóra þeirra," sagði JónBaldvin. -bm Viðræður um herstöðina: Alger leynd hvíliryfirtil- lögunum „Það er greinilegt að Bandaríkja- menn hafa komið fram með svo gagngerar tillögur að utanríkisráö- herra ætlar ekki að sýna þær nokkr- um manni, hvorki ríkisstjóm né ut- anríkismálanefnd. Hann ætlar að setja fram gagntillögur án þess að ræða það við kóng né prest og hér er bara ekki þannig stjómarfar að menn stjómi með leyndarráðum," segir Ólafur Ragnar Grímsson, full- trúi Alþýðubandalagsins í utanríkis- málanefnd, en á fundi sem haldinn var í gær, kom fram gagnrýni á þá leynd sem hvílir yfir tillögum Banda- ríkjamanna um framtíð herstöðvar- innar í Keflavík. Á fóstudaginn var fyrsti_ fundur samninganefnda ís- lands og Bandaríkjanna um breyt- ingar á starfsemi herstöövarinnar. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðhema segir að samkvæmt beiðni Bandaríkjamanna sé efnislega farið með tillögumar sem algert trúnaðarmál. „Islenska samninga- nefndin fjallar nú um tillögurnar og undirbýr gagntillögur. Það ræðst síð- an af því hvenær næsti formlegi samningafundur verður, hvenær tímabært er aö leggja málið fyrir rík- isstjóm og utanríkismálanefnd," sagöi Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra. -bm Urslit í samkeppni um teikningu og hönnun nýs húss fyrir Hæstarétt íslands voru birt síðdegis í gær. Fjörutíu tillögur bárust til keppninn- ar en fyrstu verðlaun féllu í skaut Studio Granda, ráðhúsarkitektunum Margréti Harðardóttur og Steve Christer. Gert er ráö fyrir að hæsta- réttarhúsið nýja standi þar sem nú er bílastæðaplan norðan safnahúss- ins við Hverfisgötu. Byggingu á að ljúka 1995. Keppendum vom sett skilyrði um 2800 fermetra hámarksgólfilöt og að verktakakostnaður mætti ekki verða meiri en 302 milljónir. Steindór Guð- mundsson, formaður dómnefndar, tilkynnti úrslitin. Sagði hann dóm- nefnd hafa haft í huga að hús Hæsta- réttar ætti að vera virðulegt, eðlilegt og látlaust en um leið sjálfstætt. Þá hafi það ekki mátt hafa neikvæð áhrif á byggingar í næsta umhverfi. Tillögu Studio Granda, sagði Sigur- jón, hafa uppfyllt öll skilyrði sam- keppninnar og gott betur því um snilldarlega lausn væri að ræða. Dómnefnd var samdóma í áliti sínu. Hið nýja hús verður einfalt og skrautlaust. Byggingin leggst upp að Lándargötu og breikkar til vesturs. Útveggimir verða gerðir af tilhöggnu og söguðu grágrýti. Húsiö verður að öðm leyti klætt forveðmðum kopar. Þannig á það að minna á Alþingis- húsið og þak Dómkirkjunnar í senn. Margrét Harðardóttir, annar til- löguhöfundanna, sagði að það sem skipti mestu máli í samkeppni sem þessari væri að hugsa skýrt um hvað væri við hæfi. Ekki eru nema um fimm ár frá því að hún og Steve Christer, eiginmaöur hennar, bám sigur úr býtum í samkeppni arki- tekta um teikningu Ráöhúss Reykja- víkur. „Við fömm mjög vel í gegnum forsendur hvérs verks og hverju ver- ið er að lýsa. Þannig reynum við að skilja hvemig fólk vinnur þarna og hvers er krafist. Við leggjum líka mikið upp úr umhverfinu. Verkið verður að falla vel að umhverfinu í kring. Það er mikilvægt að mynda ekki bara einhver rými innanhúss heldur líka úti. Það höfum við lagt mesta áherslu á í okkar vinnu." Ekki var annað að heyra en að vel heföi til tekist hjá sigurvegumnum. Þór Vilhjálmsson, forseti Hæstarétt- ar, sagði að nú vonaöi hann bara að húsið risi sem fyrst. Tók hann jafn- framt í sama streng og Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra sem sagði að lengi hefði brýna nauðsyn borið til að búa Hæstarétti nýtt hús. Sagði Þorsteinn þó mestu skipta að sér sýndist sem hið nýja hús tæki gott tillit til annarra bygginga í ná- grenninu. Það hafi verið viðkvæm- astí þáttur verksins. Önnur verðlaun, 700 þús., hlutu arkitektamir Halldóra Bragadóttir, Helgi B. Thoroddsen og Þórður Stein- grímsson. Til þriðju verðlauna, 500 þús., unnu Ögmundur Skarphéðins- son arkitekt og Ragnhildur Skarp- héðinsdóttir landslagsarkitekt. Auk þessara keypti dómnefnd tvær tillög- ur á 200 þús. hvora. Meðalaldur verð- launahafa er 34 ár. -DBE Stuttar fréttir Ekkert vetrarflug SAS SAS mun ekki fljúga til og frá íslandi næsta vetur, eða frá októ- ber.nk. fram í mars’94. Þjóðarbúið réttir við Þjóðhagsstofnun telur að hagur þjóðarbúsins muni verulega rétta við í kjölfar mokveiða á loðnu- miðunum. Stöö 2 greindi frá þessu. 51,5 milljóna króna hagnaður varð af rekstri Granda hf. fyrstu 6 mánuði þessa árs sem einkum má rekja til 48% aflaaukningar milli árstímabila. ÓöinntiíGrænlands? Flugráð telur Flugfélagið Óðin hf. hæft til aö sinna áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Kulusuk á GrænlandL Yfirmenn öryggis- mála eru því andvígir, samkv. frétt Morgunblaðsins. Smjörlikiáhaugana Jóhannes í Bónusi þarf að henda um 2 tonnum af dönsku smjörlíki sem hann borgaði fyrir 200% vörugjöld, samkv. ffétt Stöðvar 2. Ökufantar kvikmy ndaðk Skrifstofustjóri borgarverk- fræðings hefur komist að þvi að heimilt sé aö nota myndavélar við ljósastýrð gatnamót, eins og ákveðíð hefur verið að sefja upp á nokkrum gatnamótum í Reykjavík. Fleirimeðréttíndí Reiknaö er með að fieiri kenn- arar með réttindi verði við grunnskóla landsins í vetur, samkv, Mbl. Sæmundar Sigurjónssonar og Karls Steinars Guðnasonar um stöðu forstjóra Tryggingastofh- unar ríkisins, samkv. frétt Tímans. Dýraríbúðlr Jóhanna Sigurðardóttir segir í Timanum í dag að hún teþi þjón- ustíúbúðir fyrir aldraða yfirleitt óhóflega dýrar og vitnar þar til úttektar sérstakrar nefndar. Fyrsti þing* flokksfundurinn Rannveig Guðmundsdóttir stýröi í gær sínum fyrsta þing- flokksfundi Alþýðuflokksins sem þingflokksformaöur, fyrsta kon- an í því hlutverki hjá flokknum. Samkv. Alþýöublaöinu fór fund- urinnveifram. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.