Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1993, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1993, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1993 3 Fréttir Eyjólfur Kjalar Emilsson heimspekingur, vegna ferðar starfsmanna ÁTVR í Viðey 1 boði Globusar: Komnir á hæpna braut með að hygla starfsmönnum - hvað þýðir það fyrir samkeppnisaðilana? „Hvemig starfsmenn ÁTVR geta haft áhrif á hvað er selt veit ég ekki. En þeir ráða kannski einhverju um hvað er framarlega í hillum á áber- andi stöðum. Ef sú hugmynd kemst inn að það sé nauðsynlegt að hygla þeim til að fá nauðsynlega þjónustu myndi ég segja að það væri mjög varasamt. Þar eru menn komnir út á mjög hæpna braut. Þá er það ekki aðalatriðið sem forstjóri ÁTVR segir, að þetta gildi einu fyrir hans fyrir- tæki, heldur hvað þetta þýðir fyrir samkeppnisaðilana," sagði Eyjólfur Kjalar Emilsson heimspekingur í samtali við DV um þá „viðskipta- hætti“ að bjóða starfsmönnum ÁTVR í ferðir og veislur eins og Glo- bus gerði um síðustu helgi. Eyjólfur sagðist ekki hafa kynnt sér mál Globus og ÁTVR nákvæm- lega. Lagalega séð teldi hann þó al- mennt að ef um mútur væri að ræða í lagalegum skilningi þyrfti að vera sannanlegur ásetningur fyrir hendi. Viðkomandi hefði þannig gert það sem hann gerði í því skyni að fá ein- hvern til að breyta hegðun sinni. „Um þessi boð og smágjafir, að það sé bannað að sýna góðum viðskipta- vinum þakklætisvott, er kannski erf- itt er segja hvar mörkin hggja ná- kvæmlega,“ sagði Eyjólfur. „Maður hefur heyrt um boðsferðir lyfjafyrir- tækja sem bjóða læknum á svokall- aðar ráðstefnur með miklum lysti- semdum. í þeim tilfellum virðist vera um siðferöilegar mútur að ræða - hvað sem sannanlegum ásetningi viðvíkur. Málið er að þó að þetta breyti engu fyrir ÁTVR og okkur skattborgarana kemur þetta ekki eins út fyrir um- boðsaðilana. Ef einhver, sem flytur inn vöru til þess að fá hana selda, þarf að gera eitthvað af þessu tagi til að eiga möguleika á markaðnum kallar það á ýmiss konar óeðlilega viðskiptahætti - hverjir bjóða betur í lystisemdunum meö fjárútlátum og kynningum," sagði Eyjólfur. Skiptir ekki máli hvort þú selur Fin- landia eða Smirnoff - segir forstjóri ÁTVR „Ef talsmenn Verslunarráðsins telja að hér sé verið að bera mútur á starfsfólk er rétt að fletta upp í hegningarlögunum. Þá eru þeir sem bera mútur á opinbera starfsmenn ekki síður sekir en þeir sem við þeim taka. Það væri ráðlegra fyrir Versl- unarráðið að minna sína félagsmenn á þetta ákvæði áður en þeir hafa mikla umvöndun í garð okkar starfs- rnanna," sagði Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, vegna ummæla Vil- hjálms Egilssonar hjá Verslunarráði íslands um óeðlilega viðskiptahætti. Máhð er sprottið af því að Globus, sem selur ÁTVR áfengi í umboðs- sölu, bauð starfsmönnum ÁTVR í ferð og veislu í Viðey. Stöð 2 sýndi myndir frá ferðinni sem fram fór á laugardag. „Viðskiptahagsmunir eru engan veginn á þann veg að þeir geti hugs- anlega skaðað ÁTVR,“ sagði Hösk- uldur. „Ég vil benda á að hvort þú selur eina flösku af Smirnoff eða eina flösku af Finlandia skiptir alls engu máh fyrir þetta fyrirtæki. Við fáum nánast nákvæmlega sömu krónutölu fyrir þá sölu. Þetta er því eingöngu spuming um það hvað umboðs- mennimir gera við sín umboðslaun. Því get ég ekki skipt mér af.“ Höskuldur telur ekki óeðlilegt að starfsfólk hans fari í boðsferð og njóti veitinga umboðssölufyrirtækis. „Af minni hálfu hef ég látið þetta afskiptalaust. Ég hef aldrei sett starfsmönnum neinar reglur um hvernig þeir eiga að nota sinn frí- tíma. Vitaskuld myndi ég gera það ef ég teldi þá koma fram eða aðhaf- ast eitthvað í nafni fyrirtækisins sem væri til skaða fyrir það. Þetta boð Globusar hefur ekki skaðað þetta fyrirtæki fjárhagslega. Hitt er svo annað mál að þetta er sett í mjög annarlegt ljós í fjölmiðlum, sérstaklega ef miðað er við að í ís- lensku athafnalífi bjóða fyrirtæki hinum og þessum til mannfagnaða, móta og jafnvel utanferða." - Er eðlilegt að starfsfólk opinberrar stofnunar, sem nýtur einkasölueyfis, þiggi boðsferðir og veitingar á gmnd- velh viðskiptasiðferðis? „Ég sé ekki mun á því hvort þetta er ríkisfyrirtæki eða ekki. Markmið þess er að afla ríkissjóði tekna. Þeirra er aflað algjörlega óháð því hvort Globus býður starfsmönnum þess út í Viðey. Ég hef margoft bent fjölmiðlum á, sem eru aðaláhugaaðil- arnir um þetta, vafalaust til að bæta viðskiptasiðferði í landinu, að ekki þarf að hlusta lengi á stöð eins og Bylguna til að finna að meirihluti dagskrárinnar er meira og minna duldar auglýsingar og hagsmuna- tengdur fréttaflutningur," sagði Höskuldur Jónsson. -Ott Tíð skemmdarverk „Þetta er óþolandi ástand. Tjóniö vörgum því fyrir nokkru voru níu af þessum völdum nemur tugum vagnarskemmdirognokkrirbílar. þúsunda,“ segir Þórður Þórðarson, Þórður segist ekki skilja i þessu. framkvæmdastjórí bifreiðastöðv- Hann eigi ekki sökótt við neinn. arinnar ÞÞÞ á Akranesi, en fyrir Enn hefur rannsókn lögreglu eng- skömmu voru unnin skemmdar- an árangur borið og biöur Þórður verk ásjö tengjvögnum og bíl í eigu þá sem kunna að búa yfir vitneskju fyrirtækisins. Þetta er ekki í fýrsta um atburöina að liafa samband við skipti sem bílarnir hjá fyrirtækinu lögreglu. verða fyrir baröinu á skemmdar- -pp „Hvernig starfsmenn ÁTVR geta haft áhrif á hvað er selt veit ég ekki. En þeir ráða kannski einhverju um hvað er framarlega í hillum á áberandi stöðum,“ segir Eyjólfur Kjalar Emilsson. HREINT ÓTRÚLEGT V E RÐ AMSTERDAM 2+3 SÆTA SVART VERÐ KR. 65.950 STGR. VlSA raðgreiðslur - engin útborgun. 4.200 krónurá mánuði. tvtM-JA 3+1+1 LEÐUR: KONÍAKLITT / SVART VERÐ KR. 139.000 STGR. LEÐUR: KREMLITT / SVART VERÐ KR. 159.000 ST6R. VERÐ í takt við tímann AFBORGUNARKJÖR VIÐ ALLRA HÆFI SMIBJUVEGI 6, KÓPAVOGI S 91-44S44 Eigum enn nokkur sófasett frá því fyrir gengisfelfingu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.