Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1993, Page 17
16
MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1993
MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1993
17
íþróttir
Reykjavikur
maraþon 1993
Hiö árlega Reykjavíkur mara-
þon veröur haldið á götum höfuö-
borgarinnar sunnudaginn 22. ág-
úst.
Fjórarvegalengdir
Hægt verður aö velja um fjórar
mismunandi vegalengdir, mara-
þonhlaupiö, sem er 42,195 km,
hálfmaraþon, sem er 21 km, 10
km hlaup og skemmtiskokk sem
er 3 km langt. Maraþonhlaupið
er íslandsmeistaramót. 10 km
hlaupiö er nýjung í Reykjavíkur
maraþoni og þá hefur vegalengd
í skemmtiskokki verið stytt.
Þátttakendur
Maraþonhlaupið er opið öllum
18 ára og eldri. Hálfmaraþon-
hlaupið er opið hlaupurum 16 ára
og eldri en 10 km og skemmti-
skokkið er öllum opið.
Þátttökugjöld
Þátttökugjöld er krónur 1.300
fyrir maraþonhlaupiö, krónur
1.100 fyrir hálfmaraþon, krónur
1.000 fyrir 10 km og krónur 800
fyrir skemmtiskokkið en krónur
600 fyrir 12 ára og yngri.
Þátttakatilkynnist
fyrir19.ágúst
Þátttökutilkynningar ásamt
þátttökugjaldi berist til Reykja-
víkur maraþons, íþróttamiðstöð
ÍSÍ, Laugardal, 104 Reykjavík,
fyrir 19. ágúst. Ávísanir skulu
stílaðar á Reykjavíkur maraþon.
Þátttökutilkynningar eru ekki
teknar gildar nema þátttökugjöld
fylgi. Hægt er að skrá sig í and-
dyri íþróttamiðstöðvar ÍSÍ í
Laugardal klukkan 9-17 frá
12.-19. ágúst og 9.-19. ágúst í Frí-
sporti, Laugavegi 6, Kringlu-
sporti í Borgarkringlunni, Hótel
Eddu, Akureyri, Nesjaskóla við
Höfn og hjá Vesturferðum,
ísafirði. Upplýsingar eru í síma
813377 hjá skrifstofu Reykjavíkur
maraþons.
Verðlaun
AUir er ljúka hlaupinu hljóta
verðlaunapening. Þeir fyrstu í
maraþoni, hálfmaraþoni og 10 km
karla og kvenna hljóta sérverð-
laun. Sigurvegarar karla og
kvenna í maraþoni og hálfmara-
þoni fá utanlandsflugmiða frá
Flugleiðum í verðlaun. Peninga-
verðlaun eru fyrir efstu sætin í
maraþoni og hálfmaraþoni, sam-
tals 6.850 Bandaríkjadalir. Auk
þess er greiddur bónus ef braut-
armet eru slegin. í skemmti-
skokkinu og 10 km er dreginn út
flugmiði frá Flugleiðum. Sigur-
vegarar í einstökum aldursflokk-
um í maraþoni, hálfmaraþoni og
10 km hljóta viðurkenningu. Veitt
verða verðlaun fyrir furðulegasta
hlaupabúninginn og einnig verð-
ur dregið um fjölda aukaverð-
launa.
KlúbburlO
Reykjavíkur maraþon bryddar
upp á þeirri nýjung að þeir sem
taka þátt í Reykjavíkur maraþoni
í 10. sinn fá sérstaka viðurkenn-
ingu. Þessir aðilar eru beðnir um
að gefa sig fram við skrifstofu
Reykjavíkur maraþons hið
fyrsta.
-GH
íslandsmótið -2. deild:
Færin illa nýtt
-þegar UMFG og Stjaman skildu jöfn, 1-1
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Þetta er alveg hrikalega svekkj-
andi að ná ekki í öll stigin þar sem
við fengum sannkölluð dauðafæri
undir lokin. Svona er þetta búið að
vera í sumar hjá okkur. Við fáum
nóg af færum en heppnin hefur ekki
verið með okkur hingað til,“ sagði
Þorsteinn Bjarnason, þjálfari og
markvörður Grindvíkinga, eftir að
Suðurnesjamenn höfðu gert 1-1 jafn-
tefli við Stjörnuna í Grindavík í 2.
deildinni í gærkvöldi.
Leikurinn var mjög opinn og
skemmtilegur og fullt af færum á
báða bóga. Stjömumenn komust yfir
á 6. mínútu þegar hinn stóri og stæði-
legi Bjami Benediktsson skoraði
auðveldlega. Þorsteinn sá til þess að
Stjörnumenn bættu ekki mörkum
við og hinum megin var Jón Otti
Jónsson í banastuði í marki gestanna
en hann fékk nóg að gera í síðari
hálfleik. Grindvíkingar sóttu látlaust
undir lokin og náðu að jafna á 75.
mínútu. Ólafur Ingólfsson átti þá
sendingu fyrir mark Garðbæinga og
boltinn fór af einum varnarmanni
Stjömunnar í netið. Þórarinn Ólafs-
son fékk mörg góð færi undir lokin
en heppnin var ekki með honum og
mörkin urðu ekki fleiri.
„Við áttum að gera út um leikinn
í fyrri hálfleik en ég er ánægður með
annað stigið í heildina," sagði Sigur-
lás Þorleifsson, þjálfari Stjömunnar,
eftir leikinn.
Menn leiksins: Þorsteinn Bjarna-
son, Grindavík, og Jón Otti Jónsson,
Stjörnunni.
ÍR steinlá eystra
Mágnús Jónasson, DV, Austurlandi:
Þróttur, Nes„ vann stórsigur, 3A),
á ÍR-ingum á Neskaupstað og sjá ÍR-
ingar nú fram á fallbaráttu eftir slakt
gengi í undanfómum leikjum. Þrótt-
arar hífðu sig upp í sjöunda sætið
með sigrinum en hðið hefur verið í
fallsæti í allt sumar.
Heimamenn náðu forystunni á 40.
mín. þegar Kári Jónsson skoraði glæsi-
legt mark með viðstöðulausu skoti upp
i þaknetið efhr hornspymu. Þrátt fyrir
einstefnu á mark ÍR kom annað mark-
ið þó ekki fyrr en á 65. mínútu og þar
var að verki Viðar Þorkelsson með sitt
fyrsta mark fyrir Þrótt. Þróttur sótti
áfram og uppskar þriðja markið á 80.
mín. og Kári var þar kominn aftur eft-
ir glæsilega sendingu frá Zoran Cikic.
Maður leiksins: Kári Jónss., Þrótti,
Nes.
Mikilvægur sigur
hjá Leiftursmönnum
- unnu Tindastól, 1-0, á Ólafsfiröi
Helgi Jónsson, DV, ÓlaMrði:
Leiftur sigraði Tindastól, 1-0, á Ól-
afsfirði í gærkvöldi. Leikurinn ein-
kenndist af baráttu og dálítilli hörku
undir lokin enda þrjú dýrmæt stig í
húfi.
Sigurinn var mikilvægur fyrir
Leiftur sem er nú aðeins stigi á eftir
Stjömunni. Leiftursmenn skomðu
sigurmarkiö á 30. mínútu og var þar
að verki Mark Duffield eftir horn-
spyrnu Páls Guðmundssonar.
Heimamenn fengu góð færi á að bæta
mörkum við og hinum megin var
Pétur Pétursson tvívegis í dauðafær-
um en Þorvaldur Jónsson bjargaði
vel frá honum. Stólarnir voru sterk-
ari í síðari hálfleik en tókst ekki að
jafna.
Maður leiksins: Þorvaldur Jóns-
son, Leiftri.
sigurinn
Gylfi Kxistjánsson, DV, Akureyri:
„Staðan er orðin þægilegri eftir
þessa sigra en við tökum bara
einn leik í einu og næst er það 6
stiga leikur á Króknum,'1 sagöi
Njáll Eiðsson, þjálfari KA, eftir
3-0 sigur á Boltafélagi isafjaröar
á Akureyri í gærkvöldi í 2. deild-
inni.
KA vann þar sinn fjórða sigur
í röð og ef byrjun mótsins hjá Uð-
inu hefði ekki verið jafnafleit og
hún var væri liðið nú í toppbar-
áttu. Þótt liðið léki ekkert sérlega
vel í gærkvöldi vom KA-menn
alltaf betri en ísfirðingarnir enda
var „lítill bolti“ hjá þeim Boltafé-
lagsstrákum.
KA skpraði öll mörkin í síöari
hálfieik, Ormarr Örlygsson það
fyrsta strax i upphafi hálfleiksins
eftir leikhlé, þá Stefán Þórðarson
með skalla og loks Þorvaldur Sig-
björnsson rétt fyrir leikslok.
Þróttarinn Zoran Stosic í baráttu við leikmann Breiðabliks í leik liðanna á Þróttarvelli í gærkvöld. Zoran átti góðan leik en
Blikar fögnuöu sigri. DV-mynd GS
íslandsmótið í knattspymu - 2. deild:
Blikar á toppnum
Breiðablik sleppir ekki takinu af
fyrsta sætinu í 2. deildinni í knattspyrnu
og stefnir nú hraðbyri að því að endur-
heimta sæti sitt í 1. deild. í gærkvöldi
vann liðið 2-4 sigur á Þrótti á Þróttar-
velli. Staðan í leikhléi var 2-2.
Leikurinn var fjörugur og bauð upp á
mörg marktækifæri. Harkan var þó
helst til mikil á köflum og kom það nið-
ur á gæðum knattspyrnunnar. Þróttarar
tóku forystu þegar eftir þriggja mín. leik.
Hajrudin Cardakhja, markvörður Blik-
anna, missti boltann yfir sig eftir fast
skot að marki en Sigurður Hahvarðsson
náði að snerta með tánni og fær því
markið skráð á sig. Bhkarnir sóttu í sig
veðrið eftir þetta áfall og jöfnuðu á 15.
mín. Kristófer Sigurgeirsson komst í
gegnum vörn Þróttar og sendi fast skot
í fjærhomið. Fimm mín. síðar fengu
Blikarnir vítaspyrnu sem skrifast alfar-
ið á reikning Axels Gomes, markvarðar
Þróttar. Hann átti misheppnaða spymu
frá marki sínu og felldi síðan Arnar
Grétarsson sem stakk vamarmenn
Þróttar af. Jón Þórir Jónsson skoraði af
öryggi úr vítinu. Þróttarar náðu að jafna
fyrir hlé og var þar aftur aö verki Sigurð-
ur Hallvarðsson sem aftur hafði betur í
baráttunni við Cardakhja.
Bhkamir voru sterkara Uðið í síðari
hálfleik og bættu við tveimur mörkum.
Það fyrra gerði Willum Þór Þórsson á
74. mín. eftir að Kristófer óð upp allan
völl og lagði boltann á Willum. Fimm
mín. síðar svaf vöm Þróttar illa á verðin-
um, Bilkar voru fljótir að taka auka-
spymu, gáfu á Arnar Grétarsson sem
skoraði með góðu skoti, 2-4.
Sigur Blikanna var fyllilega sanngjarn
en með smáheppni hefði Þróttarhðið
getað náð jafntefli. Kristófer, Amar og
Jón Þórir áttu allir mjög góðan leik hjá
Kópavogshðinu og einnig vom Úlfar
Óttarsson og Sigurjón Kristjánsson góð-
ir. Hjá Þrótti áttu lykilmenn slæman leik
og þá vom þeir Theodór Jóhannsson og
Vilhjálmur Vilhjálmsson í leikbanni og
munar um minna. Dragan Manojlovic
var besti maður Uðsins og Zoran Stosic
átti góða spretti. Sigurður Hahvarðsson
var fylginn sér í framlínunni.
Maður leiksins: Kristófer Sigurgeirs-
son, UBK.
-BL
Rífið af / klipplð Vinsamlegast skrifið prentstafi
SKRÁNINGAREYÐUBLAÐ
NAFN(name) (SexM/F) KENNITALA (date of birth)
HEIMILI PÓSTNÚMER SlMI ÞJÓÐERNI (Nationality)
Ég skrái mig til þátttöku f: Kr.
□ MARAÞONHLAUPI 1.300
□ HÁLFMARAÞONHLAUPI 1.100
□ 10 KM HLAUPI 1000/600
□ SKEMMTISKOKKI, 3 KM 800/600
□ SVEITAKEPPNI (3 i SVEIT)
Ég undirritaöur/undirrituð leysi hér með framkvæmdaraöila
Reykjavíkurmaraþons undan allri ábyrgö á tjóni, meiðslum eða
veikindum sem ég gæti orðið fyrir í viðkomandi hlaupi. Ég stað-
festi það einnig að ég er bæði líkamlega og andlega fær um að
Ijúka viðkomandi veglengd.
NAFN SVEITAR:
Undirskrift (signature)
Dagsetning (date)
StaðaníS UBK 12 8 Stjarnan 12 7 Leiftur 12 7 Grindavik 12 4 KA 12 5 Þróttur, R 12 4 Þróttur, N 12 4 ÍR 12 4 Tindastóll 12 3 BÍ 12 2 !. deild 2 2 24-8 26 3 2 22-12 24 2 3 22-17 23 4 4 13-14 16 1 6 17-19 16 3 5 19-21 15 2 6 16-24 14 1 7 16-20 13 3 6 18-24 12 3 7 14-22 9
Markahac Jón Þórðarson, Stjöi PéturB, Jónsson, Lc G unnar Már Mássoi Stir: -nunni .7 iftri 7 i,Leiftri 6
Þórður Gíslason, Tii Wilium Þór Þórsson idastóli 6 , UBK .6
Leifur G. Hafsteinss SiguríónKrísfiánssc Dorde Tosic, BI on, Stjörnunni ..5 5 * ..5
Monaco vann
Bordeaux
Monaco sigraði Bordeaux, 3-2, í frönsku
1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi.
Afríkubúinn Amara Simbo skoraði tvö af
mörkum Monaco í leiknum.
Skoski deildarbikarinn hófst í gærkvöldi
með nokkrum leikjum. Helstu úrsht urðu
þessi: Stirhng-Celtic 0-2, Aberdeen-
Cowdenbeath 5-0, Hamilton-Dundee Utd.
2-0, Hibs-AUoa 0-1, Ayr-Motherweh 0-6
og Kilmarnock-Morton 1-2. John Collins
gerði bæði mörk Celtic gegn Stirling.
-RR
Evrópukeppni félagsliða í handknattleik:
Góðir möguleikar
íslensku liðanna
- kvennaliðin eiga þó erfiða leiki fyrir höndum
í gær var dregið í Evrópumótunum
í handknattleik í aðalstöðvum EHF
í Vín í Austurríki. í karlaflokki verð-
ur að telja möguleika íslensku hð-
anna á að komast í 2. umferð nokkuö
góða en það verður á brattann að
sækja hjá kvennaliðunum.
í karlaflokki drógust íslandsmeist-
arar Vals gegn Tatra Koprivnice frá
Tékklandi og fer fyrri leikurinn fram
ytra. Mikil flótti leikmanna hefur
verið frá Tékklandi til annarra Evr-
ópulanda sem hefur gert það að verk-
um að félagsliðin eru ekki sterk og
því ættu Valsmenn að eiga nokkuð
greiða leið áfram.
Selfyssingar, sem leika í Evrópu-
keppni í fyrsta sinn, leika gegn HC
Bauska Riga frá Lettlandi og eiga
Selfyssingar fyrri leikinn hér heima.
Lettneska liðið er óskrifað Mað en
það verður eflaust erfitt heim að
sækja.
FH-ingar, sem leika í nýrri keppni
svokallaðri Borgarkeppni Evrópu,
mæta norska liðinu Stavanger IF og
er fer fyrri leikurinn fram í Noregi.
Þetta er þriðja árið í röð sem lið Stav-
anger mætir íslenskum hðum. Fyrir
tveimur árum slógu Víkingar þá út
og Valsmenn endurtóku leikinn í
fyrra. Svíamir Magnus Anderson og
Robert Hedin sem léku með gegn
Víkingum eru farnir frá Stavanger
og hðið skipa nú að mestu ungir og
óreyndir leikmenn. FH-ingar með
sitt reynsluhð ættu því að eiga stóra
möguleika á að komast áfram.
ÍR-ingar eru nýhðar í Evrópu-
keppni og þeir drógust gegn danska
hðinu Virum Sorgenfri í Evrópu-
keppni félagshða og er fyrri leikur-
inn í Danmörku. Dönsk félagslið hafa
í gegnum árin staðið sig vel á Evr-
ópumótunum og ÍR-ingar þurfa ör-
ugglega að taka á öllu sínu ef þeim
á að takast að slá Danina úr leik.
Tvö kvennalið
mæta spánskum liðum
íslandsmeistarar Víkings í kvenna-
flokki drógust gegn CB Mar Valencia
frá Spáni og eiga fyrri leikinn ytra.
Bikarmeistarar Vals mæta Land-
haus Post frá Austurríki og er fyrri
leikurinn í Austurríki.
Stjarnan tekur þátt í Borgarkeppni
Evrópu og mætir þar spænska liðinu
Alcala Pegaso Madrid og eiga
Stjörnustúlkur fyrri leikinn ytra.
Þá drógust Eyjastúlkur gegn hði
Varpa Riga frá Lettlandi og eiga fyrri
leikinn á heimavelli.
Sömu leikdagar eru hjá körlunum
og konunum. Fyrri leikirnir eiga að
fara fram 25. eða 26. september og
síðari leikimir 2. eða 3. október.
-GH
Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum:
Fimm til Stuttgart
- Einar Vilhjálmsson enn meiddur og keppir ekki
Fimm íslenskir frjálsíþróttamenn
munu keppa á heimsmeistaramótinu
í frjálsum íþróttum sem hefst í
Stuttgart í Þýskalandi á laugardag-
inn. Sigurður Einarsson, Ármanni,
keppir í spjótkasti, Vésteinn Haf-
steinsson, HSK, keppir í kringlu-
kasti. Pétur Guðmundsson, KR, í
kúluvarpi. Guðrún Arnardóttir, Ár-
manni, tekur þátt í 100 metra grinda-
hlaupi og Þórdís Gísladóttir, HSK,
keppir í hástökki.
Einar Vilhjálmsson, spjótkastari
úr ÍR, getur ekki tekið þátt í mótinu,
þar sem hann er ekki oröinn góður
af olnbogameiðslun, sem hrjáð hafa
hann í aht sumar. Einar stefndi að
þátttöku en ákvað í gærkvöldi, eftir
kastæfingu, að betra væri að sitja
heima.
„Olnboginn bólgnaði upp þegar ég
var að undirbúa mig fyrir Smáþjóða-
leikana í vor og hann er enn bólginn
og ég hef ekki fulla hreyfigetu í oln-
boganum. Þetta er mjög sárt þar sem
stoðæfingar fyrir tímabihð gengu vel
og ég sá fram á að bæta mig verulega
í sumar. En ég er ekki hættur, þetta
er svo gaman. Ég hætti ekki meðan
Tom Petranov er enn að,“ sagði Ein-
ar við DV seint í gærkvöldi.
Martha Ernstdóttir, ÍR, var vahn
til þátttöku í 10 kílómetra hlaupi en
hún hefur átt við veikindi að stríða
aö undanfómu og mun því ekki gefa
kost sér á mótið.
Spjótkastkeppnin er á dagskrá
strax á sunnudag en þá verður keppt
í undankeppninni og úrslitakeppnin
er síðan á dagskrá á mánudaginn.
Vésteinn keppir í undankeppni
kringlukastsins á mánudag og ef
hann kemst í úrshtin eru þau á dag-
skrá á þriðjudag.
Riðlakeppni í 100 metra grindahlaupi
og undankeppnin í hástökki er á
fimmtudag og kúluvarp karla á fostu-
dagogúrshtálaugardag. -GH/BL
Sigbjörn þjálfar ÍBV
- Zoltan Belany verður aðstoðarmaður
Sigbjörn Óskarsson mun þjálfa
Eyjamenn i vetur.
lSigbjörn Óskarsson var í gær ráð-
inn þjáífari 1. deildar hðs ÍBV í hand-
knattleik. Sigbjörn mun einnig leika
með liðinu en hann hefur leikið und-
anfarin ár með Eyjamönnum. Hon-
um til aðstoðar verður Ungverjinn
Zoltan Belany, en hann hefur leikið
með hði Eyjamanna undanfarin tvö
ár við góðan orðstír. Sigbjöm og Bel-
any taka við starfi Sigurðar Gunn-
arsson, sem þjálfaði liðið í fyrra, en
hann þjálfar nú norska liðið Bodö.
„Mér hst mjög vel á þessa tvo menn
og það er gott að það er búið að ganga
frá þessu. Það þýðir ekkert annað en
að vera bjartsýnn á komandi tímabil
en það er ljóst að þetta verður erfitt.
Við erum búnir að missa snjaha leik-
menn eins og Sigmar Þröst mark-
vörð. Við eigum þó unga og efnilega
stráka sem era að koma upp og við
munum treysta á þá,“ sagði Grímur
Gíslason, formaður handknattieiks-
deildar ÍBV, í samtah við DV í gær-
kvöldi. -RR
íþróttir
klnnbeinsbrotini)
Breski knattspymumaöurinn
Peter Beardsley kinnbeinsbrotn-
aði í leik með Newcastle gegn
Liverpool á mánudagskvöld og
veröur frá næstu sex vikurnar
að minnsta kosti. Berdsley, sem
gekk til liðs viö Newcastle frá
Everton í sumar, lenti í samstuði
viö hinn nýja varnarleikmann
Liverpool, Neil Ruddock, og var
hann þegar fluttur á sjúkrahús
þar sem hann gekkst undir að-
gerð. Leikurinn, sem var ágóða-
leikur fyrir Ronnie Whelan, end-
aði með 1-6 sigri Liverpool og
skoraði Neil Ruddock sigurmark-
ið. -GH
Villamarðl
siguráWlgan
Enska dehdarkeppnin hefst nk.
laugardag. Fjölmargir æfinga-
leikir fóru fram um síðustu helgi
og eins og oft í slíkum leikjum
voru óvænt úrsht. Aston Villa
lenti í miklu bash með 3. deildai-
lið Wigan en vann þó 1-6 sigur.
Guy Wittingham skoraði sigur-
mark Viha en hann var keyptur
til liðsins á fostudag. Newcastle,
sem margir spá góðú gengi í úr-
valsdeildinni, náði aðeins 1-1
jafntefh gegn Scunthorpe, sem
leikur í 3. deild, Shefíield Wedn-
esday, sem einnig er spáð góðu
gengi í vetur, gerði einnig 1-1
jafhtefli, gegn Derby. Paul War-
hurst skoraði mark Wednesday,
en liann er líklega á leið frá félag-
inu til Blackbui-n. Liverpool vann
stórsigur á Burnley, 6-4, á úti-
vehi og skoraði lan Rush 2 mörk
fyrir Liverpool og þeir Steve
McManaman og Mark Walters
sitt markið hvor. Nýliðar Swind-
on töpuöu óvænt, 1-2, fyrir Brist-
ol City og WBA vann óvæntan
sigur á Chelsdea, 3-0, en þar skor-
aði gamla kempan Simon Garner
2 mörk fyrir WBA. Þá vann Cam-
bridge 3-2 sigur á Nottingham
Forest, QPR sigraði Oxford, 2-6,
og Norwich sigraði Birmingham,
3—2.
Handboltaskúli FH
Handknattleiksskóli FH veröur
starfræktur í Kaplakrika 16.-21.
ágúst. Frá klukkan 16-12 verða
drengir og stúlkur 6-9 ára og
klukkan 12-14 stúlkur og drengir
10-14 ára. Kennt verður í tveimur
sölum og fá ahir viðurkenning-
skjöl. Leikmenn meistai-aflokks
karla- og kveima koma í heim-
sókn 21, ágúst. Þátttökugjald er
krónur 1060 og veittur er systk-
inaafsláttur. Þeir krakkar sem
ætla að sækja skólann era beðnir
um að koma með handbolta við
stærð. Kennarar verða Gunnar
Beinteinsson og Kristín Guðjóns-
dóttir.
Víkingur-KRí
Getraunadeildinni
12. umferð Getraunadeildarimi-
arí knatispymu liefst í kvöld með
leik Víkings og KR á Laugardals-
velli. Leikurmn fer fntm á Laúg-
ardalsvelh og hefst klukkan 19.
Nóatúnsmót
stúlkna
Nóatúnsmót Aftureldingar i
knattspyrnu fý’rir stúlkur 10 ára
og yngri fer fram á Tungubökk-
um um næstu helgi. Um 230
stúlkur taka þátt í mótinu og má
búast við að rnikið fiör verði hjá
þessum yngstu . knattspymu-
stúlkum landsins. Keppt er í fjór-
um riðlum á laugardeginum og
síðan fer fram úrslitakeppni á
sunnudag.
Gestur í
leikbann
Gestur Gylfason, leikmaður
með Keflvíkingum, var dæmdur
í eins leiks bann á fundi aga-
nefndar KSÍ í gærkvöldi vegna
fjögurra gulra spjalda. Hann var
eini leikmaður Getraunadehdar-
innar sem dæmdur var í leik-
bann. Tveir leikmenn með 3.
deildar hði Hauka, þeir Guð-
mundur Valur Sigurösson og
Davíð Ingvason voru dæmdir í
eins leiks bann vegna fiögurra
gulra spjalda.
-RR<QR>
KNATTSPYRNA
Firma-
keppni
Knattspyrnudeild Hauka heldur firmakeppni á gervi-
grasinu, Ásvöllum, 14.-15. ágúst nk.
Uppl. og þátttökutilkynningar í síma 652466 (Svav-
ar) eftir kl. 13.00 alla daga en fyrir kl. 16.00 föstud.
13. ágúst.
Stjórnin