Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1993, Síða 3
FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
tónlí0t r
Fasískt samstarf
- segja Einar og Hilmar sem skipa hljómsveitina Frostbite
Einar Örn Benediktsson og
Hiirnar Öm Hilmarsson era i smáum
hópi íslenskra tónlistarmanna sem
hafa orðið frægir í útlöndum. Einar
Öm með Sykurmolunum og Hilmar
Öm þegar hann tók við Felixnum
(hinum evrópska bróður Óskars)
fyrir magnaða kvikmyndatónlist í
Bömum náttúrunnar. Emimir störf-
uðu saman á fyrri hluta siðasta ára-
tugar og gerðu þá eina plötu. Árið
1986 ætlaði tvíeykið að endurtaka
leikinn en forlögin gripu í taumanna,
sendu Einar í Sykurmolana og Hilm-
ar í sámstarf við tónlistarmennina
Tibet og Rose MacDowel. Síðan eru
liðin tæp 8 ár. Það er ekki fyrr en
nýlega að þeim gafst tóm til að vinna
saman á ný og í síðustu viku kom
afrakstur samstarfsins út á plötunni
The Second Coming.
Lögin átta á plötunni urðu til á
tveimur dögum í hljóðveri í Hafn-
arfirði en voru síðan hljóðblönduð í
London. Þau eru flest dansskotin
eins og mikið af þeirri tónlist sem
borin er á borð tónlistarunnenda
þessi misserin. En hvers vegna fara
þeir fóstbræður, sem báðir eru
þekktir fyrir að fara nýjar leiðir, svo
margtroðna slóð?
„Danstónlist byggist upp á staf-
rænni söfhun (sampling) og mikið af
þeirri tækni sem notuð er í dag er
eitthvað sem ég var að gera fyrir tíu
árum,“ segir Hilmar. „Sumar stemn-
ingar og sánd, sem eru í gangi í dag,
era upphaflega komin frá mér, t.d.
eins og á nýju David Bowie plötunni
þar sem pomo sömplin mín frá 1987
eru notuð í tólf tommu útgáfunni af
Jump They Say. Við ákváðum að
taka danstónlist fyrir á þessari plötu
en gefa fordæmi fyrir því hvemig
væri hægt að gera hana skapandi en
ekki endurtekningar á sömu þremur
töktunum. Ryþmarnir eru til að
mynda fæstir samplaðir heldur end-
urgerð úr öðra formi. í staðinn fyrir
að nota trommusett er áslátturinn
spilaður á eldhúsáhöld, drullusokk
og klósett. Þannig er nauðsynlegt að
virmuaðferðimar séu sífellt ferskar.
Þannig er mér lífsins ómögulegt að
vinna einhverjar James Brown
lykkjur eins og svo margir í þessum
geira gera. Það er margtroðin slóð,“
segir Hilmar Öm.
Dagbók lögreglu
- Af danstónlist að vera er hljóm-
urinn harður og kaldur.
„Fyrir okkur er yrkisefnið ískald-
ur raunveruleikinn,“ segir Einar
Örn. „Flestir textarnir fjalla um
næturlíf I Reykjavík. Þetta er dagbók
lögreglunnar í tónlistarformi. Nafn-
ið á plötunni er líka hálft í hvoru
tilvísun í þá grimmu og guðlausu
tíma sem við lifum á enda er hann
hálfdjöfullegur pilturinn sem prýðir
umslagið. Það er líka undarleg til-
viljun að katalógnúmer plötunnar er
666.“
Hilmar segir The Second Coming
vera grasrótarplötu í þeim skilningi
að þeir félagar, sem hafa verið starf-
andi í tónlist í fjölda ára, eru að fara
aftur á byrjunarreit með henni. Þeir
kostuðu hana sjálflr og unnu hana
algerlega á eigin forsendum. Hilmar
segir samstarflð fasískt í þeim skiln-
ingi að þeir hafi sjálflr ráðið öllu en
ekki látið undan þrýstingi útgáfu-
fyrirtækis og markaðssérfræðinga
sem vildu söluvænni plötu.
í erlendum tónlistarblöðum hefur
The Second Coming fengið misjafna
dóma. Einhvers staðar hefur tónlist
Frostbite verið líkt við fund sturlaðs
Morricone og Toms Wait allsgáðs.
Þannig lofa sumir gagnrýnendur
hana í hástert, einhverjir telja tví-
Drengirnir í U2 stefna að því að setja heimsmet í áheyrenda-
fjölda á tónleikum sem þeir halda í Dublin á írlandi 28. ágúst
næstkomandi. Tónleikunum verður útvarpað beint víðsvegar
um heiminn og ef allt gengur upp mun áheyrendafjöldinn ná
meira en einum milljarði manna. Metið sem U2 er að reyna að
slá var sett 1985 ítengslum við Band Aid tónleikana margfrægu
en þá er talið að um það bil einn milljarður manna um ailan
heim hafi hlýtt á útsendingar frá tónleikunum. Bjartsýnustu
menn telja að U2 muni slá metið hressilega og að áheyrenda-
skarinn muni jafnvel fara yfir tvo milljaróa. Það er bandaríski
fjölmiðlarisinn NBC sem hefur tekið aó sér að standa að
útsendingunni og auövelt ætti að vera að ná henni hér á landi
með því aó stilla sig inn á BBC Radio 1. -SþS
Félagarnir Einar Örn og Hilmar Örn. Þeir segja flesta textana á nýju plötunni fjalla um næturlrf Reykjavíkurborgar.
DV-mynd JAK
menninganna bræður og gera út á
geggjun Arnar ættarinnar og enn
aðrir agnúast út I Einar Öm en sem
söngpípa Sykurmolanna fór hann í
taugarnar á mörgum gagnrýnend-
um.
Einar og Hilmar vöktu fyrst
athygli í nýbylgjuvakningunni um
1980. En hvenær mættust þeir fyrst
tónlistarlega?
„Við höfum aldrei mæst,“ segir
Einar og hlær og Hilmar bætir við.
„Þetta gengur allt út á að skora hvor
annan á hólm. Við rífumst t.d. mikið
og mörgum þykir ótrúlegt að við
skulum vera vinir. Það hendir okkur
líka oft að skapa út frá misskilningi.
Einar kemur t.d. með hugmynd sem
að ég misskil. Útkoman verður því
undantekningalítið allt önnur en
frumhugmyndin en oftast brilljant.
Þetta er eiginlega okkar samstarf í
hnotskurn og okkur finnst það
skemmtilegt." -SMS
Tónlistargetraun DV og Spors
Tónlistargetraun DV og Spors er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
í og unnið geisladisk að launum.
Leikurinn fer þannig fram að í
hverri viku verða birtar þrjár auð-
veldar spumingar um tónlist. Fimm
vinningshafar hljóta svo geisladisk í
verðlaun frá hljómplötufyrirtækinu
Spori hf.
Að þessu sinni er það geisla-
diskurinn Last Action Hero sem er I
verðlaun.
Hér koma svo spumingamar:
1. Hvað heitir nýja platan með
Billy Joel?
2. Hvað hafa mörg lög með Plá-
hnetunni verið á íslenska list-
anum?
3. Hvað heita lögin sem Todmobile
flytur á plötunni Algjört
skronster?
Rétt svör sendist DV fyrir 26. ágúst
merkt:
Pláhnetan.
DV, Tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum
26. ágúst og rétt svör verða birt í
tónlistarblaði DV 2. september.
Hér eru svo rétt svör við get-
rauninni sem birtist 5. ágúst:
1. Freedom og Tryllt.
2. Fjórar.
3. Sniglabandið, Sálin hans Jóns
míns, Pláhnetan.