Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1993, Side 4
FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
lílnlist________________
Hvíta perlan
- Jason Kay - ungur og reiður og slær í gegn
Fyrr í sumar fór plata með hljóm-
sveitinni Jamiroquai beint á topp
breiðskífúlistans í Bretlandi. Nafn
hljómsveitarinnar, sem er reyndar
- heiti á ættbálki Indíána, hefur ekki
farið hátt í tónlistarheiminum og því
kom frammistaðan mörgum á óvart.
í Bretlandi hefur hljómsveitinni og
þá einkum forsprakka hennar,
hinum 23 ára gamla Jason Kay, verið
hampað sem miklum hæfileika-
manni á tónlistarsviðinu. Hljóm-
sveitin vakti fyrst á sér athygli í fyrr-a
með laginu When you Gonna Leam
sem gefið var út af litlu óháðu út-
gáfufyrirtæki og fékk hvarvetna frá-
bæra dóma. Áhugamenn um tónlist
voru varla búnir að festa nafn sveit-
arinnar á minnið þegar Jamiroquai
hafði skrifað undir átta platna
samning við útgáfurisann Sony.
Frumburður JK og félaga, sem var
gefinn út fyrir tveimur mánuðum,
ber heitið Emergency On Planeth
Earth. Sá titill er nokkuð dæmi-
gerður fyrir yrkisefnið á plötunni því
að JK er ungur reiður maður sem er
mikið niðri fyrir og vill gera sitt til
að bjarga heiminum. Textamir em
fullir ádeilu á stríðsbrölt og önnur
mein sem em siðuðum þjóðfélögum
til vansa. Þannig opinberar JK
útópiudrauma svipaða þeim sem
John Lennon og aðrir hugmynda-
fræðingar hippakynslóðarinnar
geröu á sínum tíma. Lagaheiti á borð
við Too Young to Die, I Like it I Do
. it, Music of The Mind og Revolution
1993 segja talsvert um andann sem er
ríkjandi. Þetta er fráleitt ljóður á
plötu Jamiroquai því margir eru á
því að þeir búi til bitastæðasta rokkið
sem vilja breyta heiminum, hvort
sem er tónlistarlega eða pólitískt.
Nægir að nefna listamenn eins og
Elvis Presley, Bob Dylan, The
Beatles, Sex Pistols og U2. Það var þvi
ekki alveg út í loftið að breska blaðið
Evening Standard spurði á forsíðu 23.
júní; Verður JK skærasta popp-
stjama okkar tíma?
Líkt við Stevie
Wonder
Sjálfur hefur JK lýst tónlist
Jamiroquai þannig að hún eigi sér
engan tilbúinn rekka í plötubúðum.
Hann segir hana einstaka en viður-
kennir að undirtónninn sé jass-funk.
Á heimili sínu í Ealinghverfi í
London kynntist hann tónlist Ellu
Fitzgerald og Dinah Washington í
bland við Motown tónlist og þá
sérstaklega Stevie Wonder. JK
viðurkennir þann síðastnefnda sem
sérstakan áhrifavald enda rödd
þeirra mjög svipuð. Það fer hins
vegar mikið í taugamar á JK þegar
blaðamenn snúa út úr þessari aðdáun
hans á Stevie Wonder og segja hann
bera sig saman við meistarann.
JK flutti úr foreldrahúsum 15 ára
gamall. Þetta var á þeim tíma þegar
poppið var í lægð og Rick Astley og
hans líkar áttu vinsældalistana. JK
fannst hann geta gert betur og þegar
flestar ungar sveitir vom að reyna sig
við Techno fór hann að þróa
tónlistina sem hann haföi alist upp
viö. „Ég hafði allá tíð trú á sjálfum
mér og minni tónlist. Því lét ég vera
að eltast við tískustrauma eins og
Technoið," segir JK.
Þannig fer JK eigin leiðir og neitar
að láta stjórnast af duttlungum
annarra. Þegar upptökur á Emerg-
ency On Planet Earth voru í und-
irbúningi vildi Sony fyrirtækið ráða
reyndan og-jarðbundinn pródusent
til verksins sem gæti setið á stél-
fjöðrum Gammsins. JK hristi haus-
inn og sagði að ef hann fengi ekki að
sjá um ferlið til enda væri verið að
vinna skemmdarverk á tónlistinni.
Hann hafði sitt fram enda viður-
kennir hann að vera haldinn full-
komnunaráráttu sem sé erfitt þegar
menn séu að læra. Líkt og Lenny
Kravitz vill hann helst gömul hljóð-
færi og upptökutæki. Þannig segir
hann tónlistina verða fyllri og mýkri.
Merki Jamiroquai er hárprúður
maður með horn sem JK segir
táknrænt fyrir dýrið í okkur öllum.
Hann telur það hlutverk sitt og allra
listamanna að temja dýrið því aðeins
þannig lifl mannkynið af. Það starf
hefur hann þegar haflð með ágætum
árangri.
-SMS
Jason Kay, forsprakka hljómsve'rtarinn ar Jamiroquai, hefur verið hampað sem
miklum hæfileikamanni á tónlistarsviðinu.
Harry Connick Jr. — 25:
★ ★ *
1 heild er 25 mjög ánægjuleg hlustun
en frumleikinn er horfinn. Platan er
nánast endurtekning á því sem hann
geröi á 20. -HK
Dire Straits - On the Night:
★ ★ ★
Níu manns eru á sviðinu og allir vinna
þeir vel fyrir kaupinu sínu. Hins vegar
er litið um ævintýramennsku og sjaldan
brugðið á leik. -ÁT
Tina Turner
-What's Love Gotto Do with lt?:
★ ★ i.
Tina sýnir mikil tilþrif í söng og
greinilegt er að hún á nóg eftir af
kraftinum sem hefur ávallt einkennt
hana. -HK
Björk — Debut:
★ ★ ★ ★
Án efa það persónulegasta sem frá
höfundinum hefur komið. Debut er
einstök, rétt eins og Björk sjálf. -SMS
Ýmsir - íslensk tónlist 1993:
★ ★ *
Platan gefur þokkalega raunsanna
mynd af því sem er að gerast í íslenskri
tónlist á því herrans ári 1993. -SÞS
U2- Z00R0PA
★ ★ ★ 'i
í safni frábærra platna U2 verður
ZOOROPA vafalaust talin með hinum
athyglisverðari. -SMS
Neil Young-Unplugged:
★ ★ ★
Platan er skyldueign allra gamalla
sem nýrra Neil Young aödáenda. -SþS
Rokkabillyband Reykjavíkur
- Læf:
★ ★ i
Gamalt vín á
nýjum belg
Góð tónlist deyr ekki, þvert á
móti gengur hún reglulega í
endumýjun lífdaga í meðfórum
ólíkra tónlistarmanna. Besta dæmið
er Yesterday sem Paul MacCartney
samdi á miðjum sjöunda áratugn-
um en fram á þennan dag hefur
lagið komið út á plötu með yfir eitt
þúsund ólíkum tónlistarmönnum
og hljómsveitum.
íslenskir tónlistarunnendur hafa
í sumar kynnst sigildum lögum úr
suður-amerísku deildinni sem
Bogomil Font hefur framreitt af
alkunnri sniild. Rokkabillyband
Reykjavíkur er önnur hljómsveit
ðD n»ioi\jeen
The Art of Entertainment
sem starfað hefur í nokkur ár en
sendir nú frá sér sína fyrstu plötu.
Líkt og plata Bogomils inniheldur
þessi klassísk lög þó að úr annarri
átt sé, nefhilega blús og rokka-
billylög sem flestir þekkja. Nægir
að nefna lög eins og See You Later
Aligator, Rock This Town og Devil
in Disguise. RR gerir lögunum góð
skil en eins og hljómsveitarmenn
orðuðu það í viðtali við DV nýlega
þá er þetta frumrokk þeim göldrum
gætt að spila sig sjálft. Það kemur
enda á daginn að RR bætir fáu við
fyrri útsetningar á lögunum. Hljóð-
færaskipan er einfóld, trommur,
bassi og gítar auk saxófóns og
slaghörpu í nokkrum lögum. Tíma-
bilið sem hér er sótt í krefst þess að
tónlistin sé hrá en kraftmikil og
þeim áhrifum nær RR að skila.
Söngur Tómasar Tómassonar er
hressilegur og röddin gróf sem
hentar töffaratónlist sem þessari
mjög vel. Bandið er í heild vel
spilandi og tekur sig greinilega ekki
of hátíðlega enda fer það langt á
leikgleðinni.
Læf er platasem bætir fáu nýju
við lög sem allir þekkja. Hún er
aftur á móti góður samkvæmis-
gripur og fln til dansæflnga. Þannig
er hljómsveitin trú uppruna sínum
þvi hún varð til upp úr partíspili
fyrir nokkrum árum.
Snorri Már Skúlason
Jamiroquai
- Emergency On Planet Earth:
★ ★ i
Gamaldags,
vandað soul
Þegar þessi plata með bresku
soulsveitinni Jamiroquai er sett
undir geislann er ekki laust við að
manni bregði dálítið í brún því
engu er líkara en að Stevie Wonder
sé vaknaður af værum blundi og
búirin að taka upp þráðinn þar sem
hann missti hann fyrir rúmum tíu
árum. En svo er ekki því miður og í
staðinn fyrir Wonder kallinn verða
þeir soul aðdáendur sem aðhylltust
Stevie Wonder að láta sér nægja
vasaútgáfur af tónlist hans.
Reyndar er kannski fullmikið
sagt að Jamiroquai sé einhver
Stevie Wonder eftirherma en vissu-
lega er margt líkt með mörgu af því
sem sveitin hefur fram að færa og
því sem Wonder var að gera hér á
oamirocfuati
Emcrgcncy On Plonct Eorth
árum áður. Þetta er ýmist þétt eða
blíð melódísk soultónlist, með
hæfilegu brassi þar sem það á við
og verulega vönduðum söng. Og
þetta er afit afskaplega vel gert og
kannski er það liðin tíð að menn
geti fitjað upp á einhverjum
nýjungum í þessari tónlist. Gæðin
verða ef til vill ekki lengur mæld í
frumlegheitum heldur vandvirkni í
tónsmíðum, flutningi og umgjörð. Á
slíkum skala fær Jamiroquai býsna
háa einkunn en frekar lága á
frumlega skalanum.
Sigurður Þór Salvarsson
Ýmsir- Lagasafnið 3:
★
Sköpunar
gleðin meiri
en gæðin
Lagasafnið 3 er þriðja platan í
þessum flokki sem Stöðin undir
stjórn Axels Einarssonar hefur
gefið út. Markmiðið er að gefa út
tónsmíðar tónlistarmanna sem eru
að koma undir sig fæti í bransa þar
sem samkeppnin er mikil og tæki-
færin fá. Má segja að flytjendur og
höfundar kaupi sig inn á plötuna og
ráði síðan alfarið hvað þeir koma
til með að senda frá sér. Þetta ætti
að gera Lagasafhið að fjölbreyttri
plötu en svo er ekki, langflest lögin
eru rólegheita melódíur sem bera
keim af Landslags- og Eurovision-
lögum og segir mér svo hugur um
að nokkur laganna hafi verið send
inn í þessar keppnir en ekki fengið
náð fyrir augum dómnefhdar-
manna.
í heild eru gæðin á Lagasafninu 3
ekki mikil. Lögin bera vott um litla
reynslu af lagasmíð en inni á milli
eru örugglega hæfileikamenn sem
eiga seinna meir eftir að láta að sér
kveða í fjölbreyttri flóru islensks
tónlistalifs. Þau lög sem imdir-
ritaður hafði mest gaman af eru
Gott í kroppinn, sem Vinir vors og
blóma fLytja, og Beinf í punginn
sem flutt er af Helga spé og
félögum. Það er húmor og sköpun-
argleði í lögum þessum sem gaman
er að.
Ekki er hægt að láta hjá líða að
minnast á Indian Princess Leonice
sem sker sig nokkuð úr öðrum
flytjendum. Hún flytur hér tvö lög
hvort öðru verra, dansmelódíuna
Safe Sex og hið klassíska rokklag
Black Magic Woman. Meðferðin á
þessu ágæta lagi er slík að maður á
þá ósk heitasta að Peter Green fái
aldi’ei að heyra flutning
„prinsessunnar", það gæti riðið
honum að fullu.
Hilmar Karlsson