Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1993, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1993, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993 DHGUnnaf! A 29 'tónlíét smíðar sólóplötu - fyrri plata hans, Andartak, seldist í um tíu þúsund eintökum Rafn Jónsson vinnur af kappi aö annarri sólóplötunni sinni um þessar mundir. Hljóðfæraleikarar eru aö ljúka sínum hlutverkum í þessari viku og um helgina verður byrjað að syngja lögin tíu sem verða á plötunni. „Þessa stundina lítur út fyrir að fjórir söngvarar skipti aðallega með sér söngnum. Þeim getur þó íjölgaö," segir Rafn. „Mest mæðir á Sævari Sverrissyni og Margréti Sigurðar- dóttur en Helgi Bjömsson og Andrea Gylfadóttir verða einnig með. Svo er bresk söngkona, Linda Taylor, reyndar búin að syngja eitt lag. Hún var hér á ferð í síðustu viku og hljóðritaði þá sinn hluta.“ Linda Taylor hefur lítillega komið við sögu íslenskrar dægurtónlistar. Þegar hún var hér á ferð ásamt hljómsveit árið 1976 söng hún hlut- verk franskrar stúlku í lagi Magn- úsar Kjartanssonar, Ferðin mín til Frakklands. Það lag kom út á fyrri stóru plötunni sem hljómsveitin Haukar sendi frá sér 1976. „Ég lék með Haukum um þetta leyti. Ég hitti Lindu siðan í fyrra og hún sagðist vera til i að syngja fyrir mig eitt lag ef ég gerði aðra sólóplötu og hún stóð við það,“ segir Rafn. „Linda var nýkomin úr hljómleika- ferð með Mike Oldfleld um Banda- ríkin þegar hún skrapp hingað. Hún fer síðan með Oldfield til Spánar og síðan aftur til Bandaríkjanna þannig að það var heppni að hún gat skroppið hingað til lands.“ Mestallt frumsamið Rafn Jónsson semur öll lögin á nýju plötunni nema hvað Andrea Gylfadóttir á hlut í einu. Hún semur einnig einn texta, Helgi Bjömsson annan og Linda Taylor þann þriðja. Að öðm leyti sér Rafn um textagerð- ina. „Ef hægt er að tala um einhvem þráð í textagerðinni eru það pæling- ar um lífið og tilvenma,“ segir hann. „Svo em vitaskuld léttari textar inn á milli.“ Hann annast upptökustjóm plötunnar í samvinnu við breskan pródúsent, David Joralh að nafni. Hann á hljóðverið Surrey Sounds I Bretlandi þar sem hljómsveitin Police tók upp tvær fyrstu plötumar sínar. Rafn lætur vel af samstarfmu og segir að Joraih sé fær á sinu sviði. Nokkur hópur hljóðfæraleikara kemur fram á plötu Rafns. Má þar nefna gítarleikarana Rúnar Þórisson og Kristján Edelstein, bassaleik- arana Harald Þorsteinsson og Birgi Bragason, trommuleikarana Gunn- laug Briem og Birgi Baldursson, Kjartan Valdimarsson píanóleikara, Jón Ólafsson sem leikur á Hammond Björk Guðmundsdóttir gerir það ekki endasli þessa dagana og vinsældir hennar og sú r1— fara dagvaxandi. í síðustu viku kom hún fi Forum í Lundúnum fyrir fullu húsi og vakti \ Og nú bætir hún enn um betur því nýja smáskífan f laginuVenusasaBoyersmáskífa vikunnar ítónlis Melody Maker. í umsögn um lagið er því hrósað í I gagnrýnandinn á í erfiðleikum með að finna réttu orð lýsa hrifningu sinni. Hann segir lagió tignarlega barn náttúrulegt, sakleysislegt og ferskt. Hann getur þes plötunni fylgi með stórfengleg útgáfa af laginu Violer og allt þetta geri þessa plötu smáskífu smáskífanna. Rafn Jónsson hans. DV-mynd Brynjar Gauti og Jens Hansson saxófónleikara. Sjálfur sér Rafn um áslátt. Ef allt fer samkvæmt áætlun lýkur vinnu við plötuna tíunda september og útkomutíminn er byrjun nóv- ember. Til stendur að halda stóra útgáfutónleika í Reykjavík um það leyti. Rafn gefur plötuna út sjálfur og þegar kostnaður vjð gerð hennar hefur verið greiddur rennur afgang- urinn til MND-samtakanna. Samtök- in styrkja rannsóknir á taugalöm- unarveiki sem Rafn er haldinn. Rafh gaf ágóðann af fyrri sólóplötu sinni, Andartaki, til sams konar rann- sókna. Sú plata seldist í um það bil tíu þúsund eintökum. Galíleó kveður Auk þess að vinna að plötu sinni leikur Rafn Jónsson með danshljóm- sveitinni Galileó. Liðsmenn hennar tóku sér reyndar sumarleyfi en hófu störf að nýju um síðustu helgi. Rafn segir að úthaldið verði reyndar ekki langt að þessu sinni því að til stendur að hljómsveitin hætti í haust; væntanlega um það leyti sem plata Rafns kemur út. -ÁT Tónlistargetraun DV og Spors Tónlistargetraun DV og Spors er léttur leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum. Leikurinn fer þannig fram að í hverri viku verða birtar þrjár spum- ingar um tónlist. Fimm vinnings- hafar hljóta svo geisladisk í verðlaun frá hljómplötufyrirtækinu Spori hf. Að þessu sinni er það geisladisk- urinn Pocket Full of Kryptonite með hljómsveitinni Spin Doctors sem er í verðlaun. Hér koma svo spumingamar: 1. Spin Doctors er með nýtt lag á íslenska listanum. Hvaða lag með hljómsveitinni fór á topp listans fyrr á þessu ári? 2. Hljómsveitin Sue Ellen er með nýtt lag á íslenska listanum sem heitir Þessi nótt. Hvaðan kemur hljómsveitin? Söngkonan Sigríður Guðnadóttir. 3. Madonna er þessa vikuna með lagið Rain sem er i 37. sæti íslenska listans. Af hvaða plötu er lagið? Rétt svör sendist DV fyrir 2. september merkt: DV, Tónlistargetraim Þverholti 11 105 Reykjavík Dregið verður úr réttum lausnum 2. september og rétt svör verða birt í tónlistarblaði DV 9. september. Hér eru svo rétt svör við get1 rauninni sem birtist 12. ágúst: 1. Sigríður Guðnadóttir. 2. Loðin rotta og Rikshaw. 3. Ég vil brenna, Ég vil fá að lifa lengur, Tryllt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.