Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1993, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1993, Page 4
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993 v‘ t@nlist ► ▼ 4 Billy Joel með nýja plötu, Stormfront: Tók sömu plöt upp tvisvar af gospeláhrifum. Joel neitar engu þegar borið er upp á hann að hann sé undir áhrifum frá hinu og þessu í tónlist sinni. „Tónlistin mín er samnefnari allrar þeirrar tónlistar sem ég hef gaman af að hlusta á,“ segir hann. „Ég blanda öllu saman: sígildum stefum, söngleikjatónlist, rokki og róli, blús, djassi og hverju sem er.“ Um það leyti sem Billy Joel vann að nýju plötunni hlustaði hann aðallega á sígilda tónlist. Hann segist raunar hafa verið að reyna að þýða dulmál gömlu meistaranna og sjá af hverju Beethoven, Brahms, Chopin, De- bussy og fleiri sömdu tónlist sína ein- mitt á þann hátt sem þeir gerðu. „Eftir þetta er ég ekki lengur viss um að ég sé rokkari,“ segir hann. „Ég held að ég sé á einh vers konar einskis manns landi í tónlistinni. Ég hef raunar alltaf verið þeirrar skoðunar að fegurð amerískrar tónlistar sé fólgin í því hvernig ólíkum stefnum er blandað saman." Upphafið rakið til Elvis Billy Joel byrjaði að vinna viö River of Dreams í fyrrasumar. Hann hljóðritaði þá tvö gömul Elvis Presley-lög fyrir kvikmyndina Honeymoon In Vegas. Eftir það setti hann upp lítið vinnuhljóðver á Shelter eyju og dvaldi þar fram í september við að semja og hljóðrita fyrri útgáfu plötunnar River of Dreams sem hann nefndi raunar Shelter Island Sessions. Meðan á vinnunni stóð' hitti hann Danny Kortchmar og endaði á því að hljóð- rita með honum öll lögin upp á nýtt með völdum hópi tónlistarmanna. Meðal þeirra er Leslie West, gít- arleikarinn gamalkunni sem gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Mountain í gamla daga. Síðasta plata Joels var Storm Front. Sú seldist í rúmlega þremur milljónum eintaka i Bandaríkjunum og var tilnefnd til fimm Grammy- verðlauna. Útkomunni var fylgt eftir með fimmtán mánaða hljómleika- ferð. Ails var leikið á 174 tónleikum í sextán löndum fyrir um það bil 4,3 milljónir hljómleikagesta. Meðal minnisstæðustu hljómleika Joels og hljómsveitar hans í ferðinni var konsert í Berlín kvöldið eftir að múr- inn féll. Þá léku þeir fyrir bandaríska hermenn á Filippseyjum daginn eftir að Persaflóastríðið hófst. Fyrir dyr- um stendur önnur heimsferð og Biíly Joel segist ekkert hafa á móti því að einhverjir múrar verði brotnir i tengslum við hana. ^ltútugagnrýni Billy Joel segir að út úr textunum á sinni nýjustu plötu, River of Dreams, megi lesa sögu manns í erfiðleikum. „Það er ljóst af textum fyrstu tveggja laganna að þama er reiður maður á ferð,“ segir hann. „Þegar fer að líða á plötuna fer þessi maður þó að taka sig saman í and- litinu og í lokin öðlast hann trúna á hluti sem skipta raunverulegu máli, hluti sem styrkja manninn í baráttu sinni í daglega lífinu." River of Dreams er tiltölulega nýkomin út en hefur þegar fengið ágætar viðtökur. Sér í lagi virðist titillagið hafa fallið í kramið. Af því er dálítill „doo-wop" keimur með ögn Harry Connick Jr. — 25: ★ ★ i, í heild er 25 mjög ánægjuleg hlustun en frumleikinn er horfinn. Platan er nánast endurtekning á því sem hann gerði á 20. -HK Dire Straits - On the Night ★ ★ ★ Níu manns eru á sviðinu og allir vinna þeir vel fyrir kaupinu sínu. Hins vegar er lítið um ævintýramennsku og sjaldan brugðið á leik. -ÁT Jamiroquai - Emergency On Planet Earth: ★ ★ •<■ Allt afskaplega vel gert og kannski er það liðin tíð að menn geti fitjað upp á einhverjum nýjungum í þessari tónlist. -SþS Björk - Debut: ★ ★ ★ ★ Án efa það persónulegasta sem frá höfundinum hefur komið. Debut er einstök, rétt eins og Björk sjálf. -SMS Ýmsir - íslensk tónlist 1993: ★ ★ i Platan gefur þokkalega raunsanna mynd af því sem er að gerast í íslenskri tónlist á þvi herrans ári 1993. -SÞS U2-Z00R0PA ★ ★ ★ i í safni frábærra platna U2 verður ZOOROPA vafalaust talin með hinum athyglisverðari. -SMS Rokkabillyband Reykjavíkur - Læf: ★ ★ i Bandið er í heild vel spilandi og tekur sig greinilega ekki of hátiölega enda fer það langt á leikgleðinni. -SMS Tears for Fears - Elemental: ★ ★ ★ Lögin eru grípandi og útsetningar margar hverjar frábærar. Sannkallað gæðapopp. -SMS Frostbite-The Second Coming: ★ ★ ★ Hart og kalt en heillandi Frostbite kallast hljómsveit þeirra Einars Arnar Benediktsson- ar og Hilmars Amar Hilmarssonar. Þeir segja samstarfið áskorenda- einvígi þar sem hugmyndir berjast. Þeir segjast oft rífast og gjaman misskilja hvor annan og því hendi það þá oft að skapa tónlist út frá misskilningi. í þvi kristallast snilli þeirra, segja fóstbræðumir sjálfir. Fyrir nokkrum dögum snera þeir aftur eftir 8 ára hlé með plötuna The Second Coming en ásýnd plöt- unnar er næsta djöfulleg. Umslagið sýnir illilegt andlit ungs manns birtast úr tóminu en með tilliti til titils plötunnar mætti ætla að hér væri sjálfur myrkrahöfðinginn kominn. Tónlistin sem The Second Coming opinberar virkar líka myrk og köld við fyrstu kynni. Takturinn harður og fráhrindandi og söngur Einars og ensku söngkonunnar KJ Garside pfrrandi. Fyrstu viðbrögð við plötunni voru því afneitun. Sú skoðun átti eftir að breytast. Ólíkt annarri danstónlist, ef hægt er að kalla tónlist Frostbite því nafni, verður að setjast niður til að hlusta á þessa. Lögin eru flókin í uppbyggingu og fráleitt endurtekn- ing á sömu fjórum töktunum eins og obbi danstónlistar nútímans. Eftir nokkra yfirlegu kom í ljós að platan er stútfull af göldrum Hilm- ars Amar sem heilabúið ánetjast hægt en örugglega eins og lögin Bar Tender, Frostbite, Only The Light og Goldfish sanna. Ekki spilla smellnir textamir en í þeim ræður kaldhæðni Einars ríkjum. Hjá mér kom rössið í sjöttu hlustun. Skyndileg ölvim af völdum tónlistar sem hafði nánast vakið fyrirlitningu áður. Snorri Már Skúlason Deep Purple -The Battle Rages on: ★ ★ ★ * Gamlirog baráttuglaðir Þeir eru allir mættir til leiks á ný: Blackmore, Lord, Paice, Glover - og Gillan. Hann var ekki með á síðustu plötu, Slaves and Masters, sem kom út 1990. Ástæðan var sú að hinir fjórir gáfust upp á að vinna með söngvaranum, ráku hann og fengu sér nýjan. Síðan þá hafa sættir bersýnilega tekist og Ian Gillan hefur ráðið sig í Deep Purple í þriðja sinn í 25 ára öö PiOMeen The Art of Entertainment Billy Joel hefur ekkert á móti því að viðurkenna að hann er undir margvíslegum áhrrfum þegar hann semur tónlist sína. sögu hljómsveitarinnar. The Battle Rages on kemur einmitt út í tilefni aldarfjórðungsafmælisins og verður fylgt eftir með myndarlegri hljóm- leikaferð. The Battle Rages on er besta plata Deep Purple i mörg ár. Jafn- vel sú besta síðan veldi hljómsveit- arinnar reis sem hæst á árunum 1970-73. Nokkur lög plötunnar myndu sóma sér með prýði á Deep Purple in Rock eða Machine Head. Hlustið bara á Time to Kill, Anya, The Battle Rages on og Ramshackle Man og berið saman við það besta sem hljómsveitin sendi frá sér á gullaldarskeiði sínu. Siðasttalda lag- inu má með góðri samvisku skipa í flokk með Black Night og Highway Star; gott boogie með trukki. Einn liðsmaður Deep Purple er kominn á sextugsaldurinn og hinir nálgast flestir fimmtugt. Það aftrar fimmmenningunum þó ekki að rifja upp gamlar útsetningar, fella þær að nýjum lögum og kíla á'ða - með stæl. Ásgeir Tómasson Vagnsbörnin að vestan - Vagg og velta: Ekki boðlegt Vagg og velta er önnur plata syskinanna úr Bolungarvík og segir á plötuumslagi að tónlistin á þess- um geisladiski hafi veitt þeim mikla gleði sem vonast er til að skili sér í flutningi þeirra. Sú gleði hlýtur að vera mjög takmörkuð því satt best að segja er flutningurinn á þeim sextán lögum sem prýða Vagg og veltu afleitur og er það fyrst og fremst söngurinn sem ekki er boð- legur. Á Vaggi og veltu em gömul og létt rokklög og lög sem oft era kennd við gömlu dansana, lög sem gjaman em sungin á mannamótum. Lög þessi em öll til í betri flutningi en hér er boðið upp á og er manni með öllu óskiljanlegur tilgangurinn með útgáfu þessari. Það er Hrólfur Vagnsson sem á mestan heiður af útsetningum og stjómar hann upptökum. Hans hlutur er ekki svo slæmur í þeim VAee 8 VMÆA med Vagnsbörrwm ad vesian efnum og auk þess leikur hann ágætlega á harmoníku þegar þess þarf með. En öll hljóðblöndun og tækni í hljóðveri getur ekki bjargað rödd sem syngur falskt og allt of mörg dæmi em um slíkt á Vaggi og veltu. Eftir að hafa hlustað á plöt- una er manni nær að halda að betur hefði farið ef flest lögin hefðu aðeins verið útsett fyrir hljóm- sveit. Hilmar Karlsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.