Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1993, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1993
21
Messur
Arbæjarkirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Þór Hauksson. Organisti Sigrún
Steingrímsdóttir. Sr. Guðmundur Þorsteins-
son.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.00.
Guðsþjónusta kl. 14.00. Kaffi eftir messu.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Bessastaðakirkja: Guðsþjónusta kl.
14.00. Sr. Bragi Friðriksson.
Breiðholtskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti Daníel Jónasson. Samkoma Ungs
fólks með hlutverk kl. 20.30. Sr. Gísli Jónas-
son.
Bústaðakirkja: Barnamessa kl. 11.00.
Foreldrar hvattir til þátttöku i vetrarstarfinu.
Guðsþjónusta kl. 14.00. Athugið breyttan
messutíma. Fjölbreytt tónlist. Einsöngur
Reynir Guðsteinsson. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Pálmi Matthiasson.
Dömkirkjan: Messa kl. 11.00. Guðsþjón-
usta fyrir alla fjólskylduna i upphafi barna-
starfs. Dómkórinn syngur. Organisti Kjartan
Sigurjónsson. Sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl.
14.00. Sr. Grimur Grímsson. Organisti Kjart-
an Ólafsson. Félag fyrrverandi sóknarpresta.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Organisti
Lenka Mátéová. Prestarnir.
Frikirkjan i Hafnarfirði: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Kristjana Þ. Ás-
geirsdóttir. Einar Eyjólfsson.
Fríkirkjusöfnuðurinn i Reykjavík:
Barnaguðsþjónusta kl. 11.00, upphaf
barnastarfs i vetur. Guðsþjónusta kl. 14.00.
Sérstaklega beðið fyrir friði og kærleika.
Gestir aðstoða i tali og tónum. Organisti
Pavel Smid. Cecil Haraldsson.
Gaulverjabæjarkirkja: Messa kl. 14.
Grafarvogssókn: Guðsþjonusta kl. 11 I
Félagsmiðstöðinni Fjörgyn. Guðsþjónusta
kl. 12.30 í Hjúkrunarheimilinu Eir. Organisti
Sigurbjörg Helgadóttir. Vigfús Þór Árnason.
Grensáskirkja: Barnastarfið hefst kl.
11.00. 3-6 ára börn á neðri hæð. 6-10 ára
börn og foreldrar I fjölskyldumessu í kirkju-
salnum. Föndur og fræðsla. Leikræn tjáning
og mikill söngur. Messa kl. 14.00. Altaris-
ganga. Barnakór Grensáskirkju syngur undir
stjórn Margrétar Pálmadóttur. Organisti Árni
Arinbjarnarson. Prestur sr. Gylfi Jónsson.
Innritun fermingarbarna eftir messu. Þess
er óskað að foreldrar fermingarbarna komi
til kirkju ásamt börnum sinum.
Hallgrímskirkja: Barnasamkoma og
messa kl. 11.00. Altarisganga. Sr. Karl Sigur-
björnsson. Orgeltónleikar kl. 17.00. Kvöld-
messa kl. 20.00 á vegum Reykjavikurpróf-
astsdæmis vestra fyrir presta, sóknarnefndir,
starfsfólk, sóngfólk og sjálfboðaliða safnaða
i prófastsdæminu. Fjölmennum. Fjórir prest-
ar og fjöldi leikmanna annast messuna.
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Organ-
isti Hörður Áskelsson.
Hafnarfjarðarkirkja: Messa kl. 14.00.
Altarisganga. Fermdar verða Solveig Lilja
Snæbjörnsdóttir og Svava Alfreðsdóttir. Sr.
Bjarni Þór Bjarnason messar. Organisti:
Helgi Bragason. Sr. Gunnþór Ingason.
Háteigskirkja: Messa kl. 11.00. Sr. Tóm-
as Sveinsson.
Hjallakirkja: Guðsþjónusta kl. 10.30.
Fundur með fermingarbörnum og foreldrum
þeirra að lokinni guðsþjónustu. Organisti
Kristín G. Jónsdóttir. Guðsþjónusta kl. 14.
Fundur með fermingarbörnum og foreldrum
þeirra að lokinni guðsþjónustu. Organisti
Kristín G. Jónsdóttir. Kristján Einar Þorvarð-
arson.
Keflavikurkirkja: Sunnudagaskóli kl. 11
árd. í umsjá Málfríðar Jóhannesdóttur,
Ragnars Karlssonar og sr. Sigfúsar Ingva-
sonar. Munið skólabilinn og verið með frá
byrjun. Guðsþjónusta kl. 14. Sóknarprestur.
Kópavogskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Sigurjón Arni Eyjólfsson héraðs-
prestur. Organisti Stefán R. Gíslason. Sr.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Landspitalinn: Messa kl. 10. Sr. Jón
Bjarman.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands bisk-
ups. Guðsþjónusta kl. 11.00. Prestur sr.
Kristinn Á. Friðfinsson. Organisti Jón Stef-
ánsson. Kór Langholtskirkju (hópur V)
syngur. Kaffisopi eftir guðsþjónustu.
Laugarneskirkja: Guðsþjónusta kl.
11.00. Bjóllusveit Laugarneskirkju leikur.
Organisti Ronald Turner. Sr. Jón D. Hró-
bjartsson. Barnastarfið hefst á sama tíma í
umsjá Þórarins Björnssonar. Heitt á könn-
unni eftir guðsþjónustu, og kökubasar
bjöllusveitar.
Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11.00.
Munið kirkjubílinn. Sr. Frank M. Halldórs-
son. Messa kl. 14.00. Orgel og kórstjórn
Reynir Jónasson. Guðmundur Óskar Ólafs-
son.
Óháði söfnuðurinn: Guðsþjónusta kl.
11. Organisti Smári Ólason. Safnaðarprest-
ur.
Seljakirkja: Guðsþjónusta kl. 14. Bogl
Arnar Finnbogason syngur einsöng. Organ-
isti Kjartan Sigurjónsson. Sóknarprestur.
Seltjarnarnesklrkja: Messa kl. 11.00.
Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Organisti Hákon Leifsson. Þema ársins,
Biblian, verður kynnt. Kirkjugestir taki Bibl-
iuna með sér til messu. Bamastarfið hefst á
sama tíma. Nýtt barnaefni. Umsjón Eirný
Ásgeirsdóttir og Bára Friðriksdóttir.
Frjálsi leikhópurinn:
Standandi pína
nýstárlegt rappverk
„Svona verk fer ekki inn i stóru
húsin en þetta er nýstárlegt rappverk
sem fjallar um haröa lífsbaráttu
unglinga í hinni brjáluðu New York-
borg. Þaö er harka í þessu leikriti og
ýmis endurskoðun á hlutum í þjóðfé-
laginu. Umræðan höfðar til unga
fólksins og þeirra sem standa á bak
viö ungt fólk á íslandi," segir Halldór
E. Laxness, leikstjóri Frjálsa leik-
hópsins sem frumsýnir á sunnudags-
kvöld kl. 20 leikritið Standandi pínu.
Verkið er djarft og áleitið, fullt af
spennu og svörtum húmor þar sem
hvert atriði er spuming um Ííf eða
dauða. í leikritinu er tekist á við
hnignun sem á sér stað í borgar-
umhverfi okkar tíma. Hin gömlu
grundvallargildi, eins og fjölskylda,
skóli og kirkja, eru hrunin og eftir
stendur hálfrústaö hverfi þar sem
dópsalar standa í hverju horni.
Leikritið gerist í fmmskógi New
York-borgar en samt er ekkert erfitt
fyrir okkur að nálgast þaö,“ segir
Halldór.
-em
Standandi pina er nýstárlegt rappverk sem fjallar um harða lifsbaráttu unglinga í frumskógi New York.
Gallerí Borg:
Myndir úr
borgarlífinu
Listamaðurinn Ásgeir Smári opnar
sýningu í Gallerí Borg á morgun kl.
16. Á sýningunni eru um það bil 25
ný málverk. Ásgeir er þekktur fyrir
myndir sínar úr borgarlifi Reykja-
víkur. í Danmörku, þar sem hann
býr, hefur hann haldið áfram að
mála og þróa sitt persónulega borg-
arlandslag. Sýningin er opin virka
daga frá klukkan tólf til sex en frá
klukkan tvö til sex um helgar.
Handmálað
postulín
í íspan
* Haldin verður sýning á handmál-
uðu postulíni og gleri í húsnæði
íspan á Smiðjuvegi 7 í Kópavogi.
Þetta er nemendasýning þeirra sem
stundað hafa námskeið hjá Jónínu
Magnúsdóttur, Ninný. Sýningin
stendur frá 18. september til 26. sept-
ember og er opin frá kl. 14-18.
Orð lífsins
stofnar
kvöldbibl-
íuskóla
Um þessar mundir er söfnuðurinn
Orð lífsins í Reykjavík að fara af stað
með kvöldbiblíuskóla. Þessi skóli er
settur þannig að kennt verður annað
hvert fóstudagskvöld frá kl. 20-23.
Biblíuskólinn hefst í kvöld kl. 20
með Jens Garnfeldt frá Kaupmanna-
höfn. Jens er forstöðumaður safnað-
arins Kobenhavns bibeltrænings-
center og skólastjóri bibliuskóla þess
safnaðar.
Páll Reynisson ásamt verkum sínum.
ListasafnASÍ:
Svart-hvítar ljósmynd-
ir og litljósmyndir
Páll Reynisson, ljósmyndari og
kvikmyndatökumaður, opnar sýn-
ingu á morgun kl. 14 í Listasafni
ASÍ, Grensásvegi 16a.
Á sýningunni eru 65 svart-hvítar
ljósmyndir og litljósmyndir sem Páll
hefur tekið og unnið á undanförnum
fjórum árum. Sýningin er opin kl.
14-22 en lokað er á miðvikudögum.
Hreyfímyndafélagió:
This Is Spinal Tap
Hreyfimyndafélagið sýnir í kvöld
í Háskólabíói myndina This Is
Spinal Tap. Myndin lítur út fyrir
að vera heimildarmynd um stór-
fræga en eilítið aldurhnigna rokk-
hljómsveit en svo er ekki því hljóm-
sveitin Spinal Tap var sett saman
eingöngu fyrir myndina. Myndin
var frumraun Robs Reiner sem í
seinni tíð hefur orðið frægur fyrir
myndir eins og Stand by Me, Mis-
ery og A Few Good Men og leikur
Reiner sjálfur í myndinni leikstjóra
sem elt hefur bandið í 17 ár og
ákveður að gera heimildarmynd
áður en yfir lýkur.
Leikhús
Þjóöleikhúsið
Smíðaverkstæðið
Ferðalok
laugardag kl. 20.30
sunnudag kl. 20.30
Borgarleikhúsið
Stóra svið:
Spanskflugan
föstudag kl. 20.00
laugardag kl. 20.00
sunnudag kl. 20.00
íslenska Óperan:
Pé-leikhópurinn
Fiskar á þurru landi.
laugardag kl. 20.30
Tjarnarbíó:
Standandi pína
sunnudag kl. 20.00
Leikfélag Akureyrar:
Ferðin til
Panama
Leikfélag Akureyrar frumsýriir á
sunnudag í Grímsey barnaleikritið
Ferðina til Panama. Þetta er ævin-
týrasýning fyrir börn á öllum aldri.
Leikritið hefur leikhópur LA unnið
upp úr sögum eftir Janosch sem er
kunnastur þýskra barnabókahöf-
unda um þessar mundir. Hefur frægö
hans borist víða, einkum fyrir sög-
urnar um htla björninn og tígrisdýr-
ið.
í leikritinu segir frá því þegar htli
björninn finnur í ánni fljótandi kassa
sem lyktar uppúr og niðrúr af banön-
um. Við nánari skoðun reynist hann
vera frá Panama. Hann segir vini
sínum, tígrisdýrinu, frá fundi sínum
og félagarnir ákveöa að fara þangað.
Leikfélag Akureyrar frumsýnir
barnaleikritið Ferðina ti! Panama á
sunnudag í Grímsey en næstu vikur
verða sýningar á öllu Norðurlandi.
Kammermúsík:
Fyrstu
tónleikar
í Bústaða-
kirkju
Fyrstu tónleikar Kammermúsík-
klúbbsins verða í Bústaðakirkju á
mánudag kl. 20.30. Flytjendur veröa
Sinnhoffer-kvartettinn frá Munchen
sem heimsækir Kammermúsík-
klúbbinn í áttunda sinn. Hljómsveit-
in var stofnuð 1530 og er elsta starf-
andi hljómsveit í Þýskalandi. Ingo
Sinnhoffer er konsertmeistari hljóm-
sveitarinnar.