Alþýðublaðið - 31.03.1967, Qupperneq 4
EDémO)
Eitstjóri: Benedikt Gröndal. Simar 14900—14903. — Auglýsingasími:
14906. — A'ðsetur: All>ýðuliúsið við Hvcrfisgötu, Iívik. — Prentsmiðja
Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — í lausa-
sölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandi: Aiþýðuflokkurinn.
SJÚKRASJÓÐIR
UNDANFARIN ÁR hefur verkalýðshreyfingunni
tekizt að fá framgengt mörgum hagsmunamálum með
samningum við atvinnurekendur og fyrirgreiðslu rík-
isstjórnarinnar. Er þessi friðsamlega þróun mikils
virði, og væri æskilegt að framhald gæti orðið á sömu
braut. Þess er þó varla að vænta, nema framkvæmd
þeirra mála, sem um er samið, sé með viðunanlegum
íiætti.
Eitt þeirra mála, sem samið var um fyrir fáum ár
um, voru greiðslur í sjúkrasjóði verkalýðsfélaga.
Gegna þessir sjóðir mikilsverðu hlutverki fyrir vinn*
andi fólk, sérstaklega það tekjulægsta, og veita því
margvíslega aðstoð, þegar á móti blæs.
Nú hefur farið svo, að verkalýðsfélögum gengur
mörgum hverjum mjög illa að innheimta greiðslur til
gjúkrasjóðanna frá atvinnurekendum. Er þetta til mik
ils haga og raunar hættulegt að láta ógreiddar upp-
iiæðir safnast og aukast. Af þessum sökum hafa þing-
menn Alþýðuflokltsins hvað eftir annað flutt frum-
varp þess efnis, að þessar greiðslur verði lögtakshæf-
ar. Ætti slíkt lagaákvæði að vera nægilegt aðhald til
þess að erfiðleikar verkalýðsfélaganna hverfi úr sög"
unni.
■ Þessi frumvörp Alþýðuflokksþingmanna, flutt sam-
kvæmt beinum tilmælum verkalýðsfélaga, hafa ekki
náð fram að ganga. Hafa þau jafnan verið svæfð í
nefndum Alþingis, og þykir félögunum það vera slæm
ar undirtektir. Verkalýðsfélögin vænta þess, að Al-
þingi veiti þeim þessa smávægilegu aðstoð til þess að
framkvæma samninga sem gerðir hafa verið, svo að
þeir reynist ekki orðin tóm.
KVENFÉLAGIÐ
KVENFÉLAG ALÞÝÐUFLOKKSINS í Reykjavík
•hefur í þrjá áratugi verið ein blómlegasta deild flokks
ins, þar sem haldið hefur verið uppi margvíslegu og
oniklu starfi. Konur hafa jafnan verið fljótar 'að skilja
hina mannúðlegu hlið jafnaðarstefnunnar og hafa tek
ið virkan og mikilsverðan þátt í baráttunni, aðallega
á hinu félagslega sviði. Þess vegna er stórt og traust
kvenfélag, eins og Alþýðuflokkurinn hefur átt í
Reykjavík, flokknum ómetanlegt.
Fyrir nokkrum dögum var haldinn aðalfundur Kven
félagsins og gerðust þar þau tíðindi, að Soffía Ingvars
dóttir baðst undan endurkjöri sem formaður, en Svan
'hvít Thorlacius tók við. Soffía hefur verið í stjórn
félagsiijs í rúm 30 ár, þar af formaður þess í 24 ár.
Ligjgur þar eftir hana mikið starf, og hefur hún verið
einn farsælasti leiðtogi Alþýðuflokksins þetta tíma-
bil.j Þótt Soffía láti af trúnaðarstörfum, mun flokkur
innjlengi enn njóta krafta hennar og ráða.
4 31. marz 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
BILA OG
BÚVÉLA
SALAN
v/Miklatorg
Sími 2 3136
Koparpípur og
Rennilokar.
Fittings.
Ofnkranar,
Tengikranar,
Slöngukranar,
Blöndunartæki.
Burstafell
bygffittgavöruverzluii
Réttarholtsvegi 3.
Sími 3 88 40.
AUGLÝSING UM
ÁBURÐARVERÐ 1967
Heildsöluverð fyrir hverja smálest eftirtalinna
áburðartegunda er ákveðið þannig fyrir árið
1967:
Við skipshlið á Afgreitt á
ýmsum höfnum bíla í
umhverfis land. Gufunesi.
Kjarnl 33,5% N Kr. 4.060.00 Kr. 4.120.00
Blandaður túnáburður 22-11-11 — 4.000.00 — 4.100.00
Þrífosfat 45% P2 05 — 3.620.00 — 3.720.00
Kalí klórsúrt 50% K20 — 2.220.00 — 2.320.00
Kalí brennist. súrt 50% K20 — 3.100.00 — 3.200.00
Blandaður Garöáburður 9-14-14 — 3.300.00 — 3.400.00
Kaiksaitpétur 15,5% N — 2.260.00 — 2.360.00
Tröliamjöl 20,5% N — 4.620.00 — 4.720.00
Uppskipunar- og afhendingargjald er ekki
innifalið í ofangreindum verðum fyrir áburð
kominn á ýmsar hafnir. Uppskipunar- og af'
hendingargjald er hins vegar innifalið í ofan
greindum verðum fyrir áburð, sem afgreidd-
ur er á bíla í Gufunesi.
ÁBURÐARSALA RÍKISINS
ÁBURÐARVERKSMIÐJAN H.F.
UNGUR bandarískur kaupsýslumaður
hefur áhuga á bréfaskfptum við unga íslenzka konu. Kem
ur í heimsókn til landsins eftir nokkra mánuði.
Mr. Abel Wolfson
620 Colewok Rd.,
Pliiia. 19115 Pa.
U. S. A.
krossgötum
★ PÁSKAHRETIÐ.
Páskarnir eru um garð gengn-
ir að þessu sinni og þar með lokið lengsta fríi
ársins. Margir notfærðu sér frídagana til ferða-
laga utan lands og innan, og skíðafólk var mikið
á ferli, enda snjórinn nægur. Páskahretið lét
heldur ekki á sér standa og hefur ekki um langt
árabil verið þvílíkt hörkuveður um land allt á
páskum og núna: Þó voru einstaka staðir undan-
tekning frá reglunni, eins og til dæmis Þórs-
mörk, þar sem veður var einmuna kyrrt og gott
allan tímann, og Hafnfirðingar segjast heldur
ekki þurfa að kvarta yfir slæmu páskaveðri. —
Mikill lausasnjór var víða um land og spilltist
fljótlega færð á vegum, þegar hvessti, svo að ó-
fært varð nema stærstu bílum.
Segja má, að búnaður fólks í
hópferðabílum í vetrarferðalögum sé yfirleitt
með góðu móti, fólkið er kappklætt, vel búið að
nesti og bílarnir margir með talstöð, sem er mik-
ið öryggistæki, ef eitthvað ber út af í ferðalag-
inu, maður veikist eða bíll bilar. Öðru máli
gegnir með smábílana. Þar er fólk oft nestislaust
og illa búið, nánast götuklætt, kvenfólkið jafn-
vel í nælonsokkum og annað eftir því. í veðri og
færð eins og núna um páskana situr svo farar-
tækið fast í fyrsta skaflinum, sem á leið þess
verður, og verður ekki þaðan þokað, hvað sem
tautar og raular, nema aðstoð komi til.
★ MIKILSVERÐ
ÖRY GGISÞ JÓNU STA.
Sannleikurinn er sá, að gæta
þarf mikillar varúðar í vetrarferðalögum í smá-
bílum, því að þessi farartæki eru ckki fær í hvað
sem er, enda aðvaraði lögreglan bílaeigendur
núna í páskaveðrinu að ana ekki út í ófæruna,
en halda sig lieldur heima, þangað til um hægðist.
Þrútt fyrir ítrekaðar aðvaranir lögðu fjölmargir
af stað héðan úr bænum á smábílum austur fyrir
fjall í skafbylnum og ófærðinni, þangað til lög-
regian setti vörð á veginn og lokaði honum
fyrir alla smærri bíla. Það verður aldrei brýnt
nógsamlega fyrir fólki, að tefla ekki í tvísýnu á
litlum bílum í slæmu veðurútliti eða ófærð og
allra sízt á fjallvegum, þar sem allra veðra er
von um þetta leyti árs. Að vísu er allt gert til að
bjarga fóiki og farartækjum, þegar í óefni er kom-
ið, og tekst að jafnaði, en hitt er þó betra að
komast hjá slíku erfiði og óþægindum, ef unnt er.
Hins vegar ætti þetta páskaveð-
ur að minna okkur á, hve mikils virði góð ör-
yggisþjónusta er, þegar á þarf að halda, svo sem
hjálparsveitir, þyrlur og aðrar björgunarflugvélar,
og verða hvatning til að efla hvers konar slysa-
varnastarfsemi í landinu. — S t e i n n .