Alþýðublaðið - 31.03.1967, Side 9
mennt mjög alvarlega — sumir
kannski einum of hátíðlega.
— Sjálfur ólst ég upp við hefð
bundin leikrit, raunsæ í bygg-
rngu og persónusköpun, sagði
Valur Gíslason ennfremur. Og
áð öllum jafnaði held ég að ég
eigi auðveldast með að vinna úr
slíkum efniviði. Það er erfitt fyr
ir leikara og leikstjóra, og áhorf
endur ekki síður að glíma við
leikrit sem enginn þeirra botnar
upp né ofan í. Þar fyrir er gam-
an að ýmsum nútímaverkum og
munurinn ekki eins mikill og
menn vilja vera láta þó formið
virðist ankannalegt, verkum eins
og Sköllóttu söngkonunni eða
Nashyrningunum til dæmis.
Efniviðurinn er allténd sá
sami: maðurinn sjálfur og mann
lífið. Allt byggist þetta á mann-
legri hugsun og tilfinningum og
form leikritsins hefur engin úr-
slitaáhrif, hvernig menn kjósa
að sýna þetta. Mörg nútímaleik-
rit eru líka mjög leikhæf verk
og lifna ótrúlega lá sviðinu þeg-
ar þau fara að leikast. Þannig
var til dæmis Húsvörðurinn sem
lætur litið yfir sér við lestur,
státar engum sláandi replíkum
eða fílósófiskum vangaveltum,
en var mjög skemmtilegt við-
fangsefni að fást við.
— Loftsteinninn sem við leik-
um í kvöld er heldur ekkert raun
sæisverk. En þar verða sannar-
'lega miklar sviptingar í lífi og
dauða, — það má kannski segja
að höfundurinn sé að setja fram
og gera gys að þeim eilifu spurs-
málum hvað líf sé og hvað dauði,
hvers virði frægð og frami, heið-
ur og afrek raunverulega séu.
Það er varla viðeigandi að ég sé
að leggja út af leikritinu sama
daginn sem ég á að fara að leika
í því. En höfundurinn hefur
sjálfur sagt að leikritið sé um
upprisuna: Schwitter sem vill
deyja fullkomnum dauða rís á
dauðastundinni upp til síns fyrra
lífs sem allt er samandregið í
leiknum. Hann er svo gerbund-
inn sínum viðfangsefnum að
hann getur elcki skilizt frá þeim.
Annars hef ég lúmskan grun um
að Dúrrenmatt hafi sjálfur gam-
an af að leika sér og ekki sé
jafn-djúp merking í öllu sem
hann segir, það er að minnsta
kosti engin ástæða til að taka
hann alltof hátíðlega. En hvað
sem öðru líður er Loftsteinninn
mjög leikhæft verk og ég von-
ast til að hann njóti sín á svið-
inu hjá okkur. Persónurnar eru
allar mjög klárar <yg skýrlega
gerðar, allar smákómískar. All-
ar nema Schwitter sem ekki er
skoplegur i eðli sínu hvað sem
atvikum líður, — innsti kjarni
efnisins er alvarlegur.
— Ég held að Þjóðleikliúsið
‘hafi leyst sitt hlutverk vel af
'höndum undanfarin ár, sagði
Valur Gíslason að lokum. Auð-
vitað má alltaf búast við mis-
tökum, átökum og deilum um
slíka stofnun; annars væri hún
ekkert leikhús. En ég held að
allt á litið hafi starfið farið vel
úr hendi og verður kannski bet-
ur metið þegar fram líða stund-
ir. Nú vaxa ungir leikarar upp
við allt aðra hagi en þekktust á
minni tíð, en ég hygg að við
verðum að hugsa vel fyrir því
unga fólki sem á að taka við
leikhúsunum ekki líðast að bjóða
upp á un'ga og óreynda leikara í
meiriháttar hlutverkum. Þroski
leikara er vitaskuld alltaf per-
sónulegur og þrautseigja og þol-
Framhald á 10. síðu.
linn, sem frumsynt vcrður í kvöld i Þjoöleikhusinu. (Ljosm.: Bjarnleifur.)
WMMMWWVVMWUWWWVWHWWMW MWWMMWWWWWWWWMWWWWWWWViI
Stór sending
AF HOLLENZKUM ULLARKÁPUM,
TERYLÉNEKÁPUM OG DRÖGTUM
TEKIN UPP \ DAG
BERNHASiD LAXDAL
KJÖRGARÐI — LAUGAVEGI 59.
SÍMI 14422.
Genð góð kaup
Vegna flutnings seljum við næstu daga, sófa-
sett, svefnbekki og svefnstóla,
með miklum afslætti.
VALHÚSGÖGN
Skólavörðustíg 23 — Sími 23375.
Bústaðasókn
Aðalfundur Bústaðasóknar verður haldinn í Réttarholts-
skóla, sunnudaginn 2. apríl næstkomandi að aflokinni
messu sem hefst kl. 2 eftir hádegi.
D a g s k r á : Venjuleg aðalfundarstörf, Kirkjubygrg-
ingin, önnur mál.
SÓKNARNEFNDIN.
77/ fermingargjafa
RADIONETTE ÚTVÖRP OG ÚTVARPSFÓNAR.
AIWA SEGULBANDSTÆKI, margar gerðir
fyrir 220 volta straum og rafhlöður.
Verð frá kr. 3.129.00
TRANSISTOR ÚTVÖRP: Norsk, japönsk, frönsk
og ítölsk. Verð frá kr. 1.150.00.
PLÖTUSPILARAR; Monarch, Aiwa og Ðenon.
Verð frá 1.700.00.
AIWA PLÖTUSPILARAR með útvörpum,
gerðir fyrir 220 volta straum og rafhlöður.
Verð frá kr. 5.083.00.
RONSON — ISMET — A.D.A.X. og A.B.C.
HÁRÞURRKUR.
PAYER — LUX — REMINGTON — ARVIN og
OXFORD RAFMAGNSRAKVÉLAR.
PÓSTSENDUM.
Ratsjá hf.
Laugavegi 47, Reykjavík — Sími 11575.
31. marz- 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9