Alþýðublaðið - 31.03.1967, Síða 11
I
Frjálsíþróttamótib |
hefst kl.8.15 í kvöld
Meistaramót íslands í frjáls-
um íþróttum innanhúss hefst í
íþróttahöllinni í Laugardal kl.
20.15 í kvöld. Keppt verður í
kúluvarpi, 600 m hlaupi, lang-
stökki án atrennu, 40 m hlaupi
og þrístökki án atrennu fyrir
karla og 40 m hlaupi og lang-
stökki án atrennu fyrir konur.
Auk þess verður aukakeppni í
stangarstökki, en meðal kepp-
enda þar er langbezti stangar-
stökkvari sem hér hefur keppt,
Dennis Philips frá Bandaríkj-
unum. Hann hefur hæst stokk-
ið 5,10 m.
Á morgun kl. 15.30 lýkur
mótinu á sama stað og þá verð
ur m.a. aftur keppt í stangar-
stökki.
Meðal keppenda eru flestir
beztu frjálsíþróttamenn og kon
ur landsins, m.a. Jón Þ. Ólafs-
son, Valbjörn Þorláksson, Guð-
mundur Hermannsson og Björk
Ingimundardóttir, en ails eru
keppendur um 60 frá 10 fé-
lögum.
mWWWWHMWHMVHHHHHMHUMVVVVMMWMHHmMUVl
Stjórn KSÍ á 30 ára afmælinu, talið frá vinstri: Ingvar N. Pálsson, Guðmundur Sveinbjörnsson, Ragnar
Lárusson, Björgvin Schram, formaður, Sveinn Zoega, Jón Magnússon og Axel Einarsson.
Tekst Islendingum a5 sigra
KNAITSPYRNUSAMBAND
ISIANDS 20 ÁRA
ReykjavíJc, Hdan.
Knattspyrnusamband íslands er
20 ára um þess'ar mundir, en stofn
fundur sambandsins var 26. marz
1947.
í tilefni afmælisins hefur stjórn
in boðið hingað til lands Sir Stan
ley Rous forseta Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins og mun hann
halda fyrirlestur um dómara- og
knattspyrnumál í Þjóðleikhúskjall
aranum á sunnudag kl, 14.
Á laugardag hefur stjórn KSÍ
gestamóttöku í Sigtúni kl. 3—5
í tilefni afmælisins. Þá. mun stjórn
Berteclikt
Jakobsson
bráðkvaddur
i fyrrad.
Benedikt Jakobsson, íþrótta-
ikennari varð bráðkvaddur £
fyrradag, tæplega 62ja ára að
aldri. Benedikt var við störf í
íþróttahúsi Háskólans, er hann
veiktist skyndilcga og léitt á
leið í sjúkrahús.
Benedikt var þöóðkunnur
maður fyrir mikil og merkileg
störf á sviði íþróttamála. Ilans
verður minnzt nánar hér í
blaðinu síðar.
in minnast afmælisins á komandi
sumri með landsleikjum við ýms-
ar þjóðir og verður nánar skýrt
frá þeim síðar.
Knattspyrnan hefur um langan
aldur verið vinsælasta iþrótta-
greinin hérlendis, en hingað til
lands barst hún með skozkum
prentara nokkru fyrir síðustu
aldarmót. Árið 1916 eru gefin út
fyrstu knattspyrnulögin og
skömmu síðar koma út almennar
reglur um knattspyrnumót.
Stjórn ÍSÍ hafði með mál knatt-
spyrnunnar að gera frá stofnun
þess árið 1912 og þar til 1919 er
Knattspyrnunefnd Reykjavíkur er
stofnuð, en hennar hlutverk var
að vinna að knattspyrnumálum í
höfuðstaðnum.
Árið 1923 er nafni nefndarinn-
ar breytt í Knattspyrnuráð Reykja
víkur og það er fyrir forgöngu
þess, að árið 1946 er fyrir alvöru
farið að vinna að stofnun sérsam-
bands fyrir knattspyrnumenn er
nái til alls landsins.
26. marz árið 1947 boðaði stjórn
ÍSÍ til stofnfundar KSÍ í Reykja-
vík og stjórnaði þáverandi forseti
ÍSÍ Benedikt G. Wage fundinum.
Aðilar að stofnun ÍSÍ voru auk
KRR, ÍBH, ÍA, ÍBA, ÍBV, ÍBS,
og ÍBÍ, en aðiljar að samband-
inu í dag eru 17 íþróttabandalög.
Fyrsta stjórn KSÍ skipuðu þess-
ir menn: Agnar Kl. Jónsson for-
maður, Björgvin Schram, Pétur
Sigurðsson, Guðmundur Svein-
björnsson og Rútur Snorrason.
Tveir menn, þeir Björgvin
Schram og Guðmundur Svein-
björnsson hafa setið í stjórn sam-
bandsins frá byrjun.
Auk Agnars Kl. Jónssonar hafa
eftirtaldir menn verið formenn
KSÍ: Jón Srgurðsson slökkviliðs-
stjóri á árunum 1948—1952,- Sig-
Framhald á 15. síðu.
Dani í körfuknattleik?
Á sunnudaginn kemur leikur ís- með hliðsjón af árangri leikmanna
lenzka landsliðið í körfuknattleik
6. landsleik sinn gegn Danmörku.
Fyrstu tveim leikjunum, sem fóru
fram í Danmörku, tapaði ísland
með fárra stiga mun, en í hinum
þrem síðustu, sem hafa verið lið-
ur í Norðurlandamótinu „Polar
Cup“, hefur íslenzka landsliðið
farið með sigur af hólmi, að vísu
tvívegis með aðeins eihs stigs
mun.
Um 20 manna hópur hefur tek-
ið þátt í landsliðsæfingum í vet-
ur undir stjórn Helga Jó'hanns-
sonar, og eftir síðasta leik keppn-
innar við varnarliðið á dögunum
var endanlegt landslið valið, m.a.
í þeirri keppni.
Liðið skipa 12 leikmenn úr 4
félö’gum, einn úr KFR, einn úr
Ármanni, fjórir úr ÍR og sex úr
KR* Hinir 12 ei-u: Kolbeinn Páls-
son, fyrirliði, Gunnar Gunnars-
son, Jón Jónasson, Guttormur Ól-
afsson, Skúli Jóhannsson, Þórir
Magnússon, Agnar Friðriksson,
Hjörtur Hansson, Birgir Örn Birg
is, Birgir Jakobsson, Einar Bolla-
son og Kristinn Stefánsson.
Á undan landsleiknum sjálfum,
sem fer fram í íþróttahöllinni I
Laugardal, leika tvö úrvalslið úr
2. flokki hinna ýmsu félaga.. Sá'
leikur hefst kl. 8.15.
Danska landsliðið í körfuknattleik, scm Ieikur her a sunnudagskvöld.
31. marz 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ