Alþýðublaðið - 31.03.1967, Page 14
TIL FERMINGAGJAFA
FYRIR TELPUNA!
FYRIR DRENGINN:
SAUMABORÐ
SNYRTIBORÐ
KOMMÓÐUR
SVEFNBEKKIR
SKRIFBORÐ
STÓLAR
HANSAHILLUR
O.FL O FL.
Aldrei meira úrval
SKEIFAM
\
KJÖRGARÐI
SÍMAR 18580 og 16975
I
Veðurat.tæki
Framhald af 3. síðu
bil 715 mílna hæð og fara hring
um jörðu á 113 mínútum, eða
12 til 13 hringi á sólarhring. Taka
þeir myndir á þriggja og hálfrar
mínútu fresti, sem er hæfilegt
til að myndirnar nái saman.
Myndatakan og sendingin taka
rúmar þrjár mínútur. Fara fyrstu
8 sekúndurnar í að taka myndina
og það sem eftir er fer í að
senda hana. Stöðvar á norðurhveli
geta tekið við myndum nokkrum
sinnum á sólarhring yfir sumar-
mánuðina, en í skammdeginu
einu sinni til tvisvar á sólar-
hring, eftir því sem dagsljós end
ist.
í náinni framtíð verða sett
upp infra-rauð móttökutæki og
verður þá hægt að taka á móti
myndum jafnt á nóttu sem degi.
Hver mynd nær yfir svæði,
«em er 2700 kílómetrar á kant.
iÞaning sést skýjafar yfir öllu
Noregshafi, íslandi og norðan-
verðu Bretlandi á einni mvnd. Af
lögun skýja er hægt að draga
margar ályktanir, svo sem um loft
strauma og fleira. Með auknum og
nýrri upplýsingum á þessu sviði,
er hægt að auka nákvæmni í
veðurspám, sem getur haft mikla
þýðingu bæði fyrir kaupskipa- og
fiskiflota íslendinga.
Þá er einnig verið að ljúka við
byggingar fyrir háloftarannsókn-
ir. Byggingin, þar sem loftbelg
irnir eru blásnir upp og einnig
stöðin, sem fylgist með og tekur
við upplýsingum frá loftbelgjun-
um, verða starfræktar sameigin-
lega af starfsfólki Veðurstofu ís
lands og Veðurstofu flotans. Bygg
ingarkostnaður er greiddur að
jöfnu af ríkisstjórnum Bandaríkj
anna og íslands.
Fjórum sinnum á dag verða
s^endir upp loftbelgir, sem flytja
á loft mælitæki og senditæki, upp
úr meira en 100 þúsunda feta hæð
(30.500 metra). Senda tækin til
jarðar upplýsingar um hita, raka
og loftþrýsting í mismunandi
hæð, með því að fylgjast með
hreyfingum sendisins er hægt að
reikna út vindátt og vindhraða á
hinum ýmsu hæðarstigum. Þess
ar upplýsingar eru svo sendar til
veðurstöðva út um heim með fjar
ritum.
Þessi nýju tæki auka mjög á
grundvallarupplýsingar á sviði
veðurfræði, hér á landi og auka
einnig framlag íslands til Alþjóð
legu Veðurfræðistofnunarinnar
(Worldwide Meteorological Organ
isation)-.
Grikkland
Frambald af 2. síðu.
þinghelgi Andreasar Papandreous
verði afnumin vegna meintrar
þátttöku hans í samsæri liðsíor-
ingja úr leynifélaginu Aspida um
að steypa konunginum af stóli. Ný
lega voru helztu foringjar Aspida
dæmdir til langrar fangelsisvist-
ar.
Leyfi hermanna voru afturköl!-
uð í dag samtímis því sem leið-
togar tveggja helztu flokkanna
sökuðu hverjir aðra um að eiga
sökina á stjórnarkreppunni. Ge-
org Papandreou sagði, að flokkur
hans mundi ekki styðja neina aðra
ríkisstjórn en þá sem nú fer með
völdin.
Við háskólann í Saloniki í Norð
ur-Grikklandi sló í dag í brýnu
milli vinstrisinnaðra stúdenta og
hægri sinnaðra ungmenna. Vegna
stjórnarkreppunnar hafa 20.000
læknar, tannlæknar og lyfjafræð-
ingar landsins ákveðið að aflýsa
verkfalli, sem staðið hefur yfir
síðan á mánudaginn.
Norðurlandsáætl.
Framhald af 1. síöu.
tæki. Þar væru sjö félagsheildir,
sem engin hefði megnað umfram
aðrar að ná forustu sem miðstöð
í þjónustu- og menningarmálum.
Við Húnaflóa hefði íbúum fækk-
að á seinustu 15 árum úr 5400 í
5250 og væri Húnaflóasvæðið sá
landshluti, sem sérstalrrar athug-
unar þyrfti við í atvinnumálum.
\ R^ísteifnunni heldur áfram í
fyrramálið og hefst hún með er-
indi Torfa Ásgeirssonar skrifstofu
stjóra í Efnahagsstofnuninni um
fræðsluáætlanir.
Rækjuveiðar
Fj'amhalds af 1 síðu.
.febrúarbyrjun sl. þannig að Inn
djúpinu og fjörðunum yrði þá
lokað. Hafi orðið um þetta nokk
ur samstaða hjá rækjusjómönn-
um um tíma, en þessu hafi þó
ekki fengizt framgengt að fullu.
Telur Unnur, að mjog óráðlegt
sé að létta af öllum takmörkun-
um á rækjuveiðum, eins og radd
ir hafi komið fram, heldur sé
þvert á móti tímabært að stöðva
rækjuveiðar á ísafjarðardiúpi og
Arnarfirði nú þegar.
Loftárásir
Framhald af 2. síðu.
★ UNDRAEFNl
Víða eru strendur útataðar í
olíu á ný þótt þær hafi verið
hreinsaðar áður, og er flóðinu i
nótt kennt um. í St. Ives og víðar
ákváðu verkamenn að fresta frek-
ari aðgerðum unz mesta olíuflóðið
væri liðið hjá.
Ritzau-frét'tastafan hermir að
danskt fyrirtæki, Anti-Oil, hafi
boðizt til að fjarlægja alla olíuna
á iströndum Bretlands fyrir um
385 þús. ísl. kr. Brezka stjórnin
tekur ákvörðun í málinu einhvern
næstu daga. Hreinsiefni fyrirtæk-
isins er verksmiðjuleyndarmál.
Níu franskir sérfræðingar og
stjórnarfulltrúar komu í dag til
Penzance á Cornwall til að ræða
hættu þá sem ströndum Frakk-
lands stafar af olíubrákinni frá
,,Torrcy Canyon“. Hér er um að
ræða nefnd, sem á að samræma
[adgerðir Frakka t)il að bægja
þessari hættu frá dyrum.
Aðalfundur
Verzlunarbanka íslands hf.
verður haldinn í veitingahúsinu Sigtúni laug-
ardaginn 8. apríl 1967 og hefst kl. 14.30.
DAGSKRÁ:
I. Aðalfundarstörf.
1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bank-
ans síðastliðið starfsár.
2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
bankans fyrir síðastliðið reikningsár.
3. Lögð fram tillaga um kvittun til banka’
stjóra og bankaráðs fyrir reikningsskil.
4. Kosning bankaráðs.
5. Kosning endurskoðenda.
6. Tekin ákvörðun um þóknun til banka'
ráðs og endurskoðenda fyrir næsta kjör-
tímabil.
7. Tekin ákvörðun um greiðslu arðs.
II. Lögð fram tillaga bankaráðs um stofnun
stofnlánadeildar við bankann, ásamt tillögu
að reglugerð fyrir hana.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins
verða afhentir í afgreiðslu bankans Banka-
stræti 5, Reykjavík, miðvikudaginn 5. apríl,
fimmtudaginn 6. apríl og föstudaginn 7. apríl
kl. 10—12.30 og 14—16.
Reykjavík, 30. marz 1967.
í bankaráði Verzlunarbanka íslands hf.
Þ. Guðmundsson.
Egill Guttormsson.
Magnús J. Brynjólfsson.
KVÖLDVAKA FÉLAGS
ÍSLENZKRA LEIKARA
verður flutt í Þjóðleikhúsinu í
SÍÐASTA SINNi
næstkomandi mánudagskvöld kl. 20.
Yfir 40 leikarar, söngvarar og hljómlistar-
menn koma fram á kvöldvökunni.
SÍÐASTA SINN.
Ástkæri eiginmaöurinn minn, faöir okkar, afi og tengdafaðir
BENEDIKT JAKOBSSON,
íþróttakennara, Bólstaðarhlíð 10
andaðist miðvikudaginn 29. marz.
GYÐA ERLENDSDÓTTIR
BÖRN, TENGDABÖRN OG BARNABÖRN.
14 31. marz 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ