Alþýðublaðið - 31.03.1967, Page 16

Alþýðublaðið - 31.03.1967, Page 16
 VEÐURFRÆÐIN6AR MANNLlFSINS ÞEGAR MENN hafa ekkert að tala um tala þeir um veðrið. Það -er alltaf eitthvert veður, og þó að sé ekkert veður, þá tala menn toara um ekkert veður. Á meðan ,það er ekki alltaf 27 stiga hiti í lofti og sjó (eins og á þarna Suðurhafseyjunum) þá hafa menn «óg að tala um, án þess að jþurfa nokkuð að hugsa. Og það -er afar þaegilegt, því það getur kostað mestu bölvuð óþægindi að tiugsa. En maður vill vera kurt •eis og þess vegna verður maður •eifihverju að svara ef á mann er yrt, og helzt geta byrjað á ein- tiverju umræðuefni sjálfur svo- leiðis að maður líti ekki út eins og naut (því að það er í rauninni tniklu verra að líta út eins og «aut en vera nautþ Samtölin verða eitthvað á jþessa leið: í strætisvagni. Ég er þreyttur toúinn að standa í þvargi og sam tölum allan daginn. AA kemur inn: AA: Meiri bölvaður kuldinn þetta. Ég: (til að segja eitthvað): Sann Itallað vetrarveður. AA: Hafís fyrir norðan. En það cr náttúrulega vetur og kannski yorbatinn verði bara betri fyrir þetta. Ég: (hugsa: sftli hann eigi ekepnur og sé að verða heylaus). Já, það batnar oft vel eftir svona lcafla. AA: Þetta er bara eðlilegt, það er ágætt að fá svona hrinur, við og við, a. m. k. ef maður er inni, ekki uppi á fjöllum. Ég: (hugsa, láttu mig í friði, bölvaður, ég er með hausverk). AA: En hitaveitan bregzt bara alltaf, flýtir hann sér að segja áður en hann fér út, og hlær að sinni eigin fyndni. Bræt gæ, hugsa ég. Og inn kemur BB. Hann hristir sig. BB: Bölvuð nepja er þetta og komið fram undir vor. Ég: (hugsa: hamingjan hjálpi mér) Já, hann er svalur. BB: Og hafís fyrir norðan. Ég: (hugsa: „Öllum hafís verri er hjartans ís“, af hverju geta þessir veðurfræðingar ekki látið mig í friði). Já, það er eitthvert hrafl þar. BB: Annars eru þetta engir vet ur hjá því sem var þegar ég var strákur. Ég: (hugsa: þaS er sjálfsagt tími síðan, þá hefur verið ís- öld) Nei, tíðarfarið er betra, BB: Þetta er ágætt, ég hef bara gaman af svona veðri. Ég: (hugsa: en ég hef ekkert gaman af svona tali) Það er eðii legt að það komi kuldakaflar ann að slagið. BB: Já, það styrkir manndóm- inn. Og í þvi stökk hann út úr vagninum til að styrkja mann- dóminn, tel ég víst. HEIMSÓKN Karim Aga Khan kom og fór. Það var fjallafjúk, frost og vetrarsnjór. Múhameð er mikill. > í Múhameð er stór. Karim Aga Khan ' kom og fór. r- '\r~- " í r V r !r CC: (kemur inn) Hann er sval ur. Ég: (alveg ráðalaus) Já, hann er svalur. CC: Bölvaður kuldi. C: Annars bara gott vetrarveð- ur. Ég: Já, já, bara gott. CC: Kemur bara betra vor. Ég: Já, bara betra vor. Og svo kom inn fjórði maður- inn sem kinkaði til mín kolli. Ég: Sæll, Hann: Sæll. Og hann sagði ekkert. Ég þagði dálitla stund, horfði á hann og út um gluggann. Hann þegir enn. Ég: Hann er svalur í dag, finnst þér ekki? Mér til skelfingar heyri ég sjálf an mig byrja á veðurfræðinni við aumingja manninn. — Get ég fengið að tala við þ e t t a þarna — Siggi minn er reyndar mjög hófsamur, hann drekkur aðeins með máltíðum... Komu þar 18 kokteilaskáld með nýjustu skáldverk sín til keppni og þeir, sem dæmdu voru bragðlaukar gesta, sem boðið var að vera viðstadd- ir. Vísir. i Þeir eru að tala um að flytja umferðina til hægri á Hvíta- sunnunni að ári. Ég gæti nú trúað, að klerkarnir hafi þá nóg að sýsla næstu daga á eftir.... Kennarablókin kemur alltaf æðandi inn í tírna og hrópar: „hljóð“. En skverlega varð hann spældur, þegar ég spurði,, hvort hljóð gæti ekki þýtt hávaði. Það vona ég að Guð gefi, a® ég geti séð Njál og Berg- þóru á hvíta tjaldinu. áður en ég dey.... j

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.