Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1993, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993
29
tónli0t;
er líf Bjarkar Guðmundsdóttur þessa
mánuðina
Skærasta stjama íslendinga um
þessar mundir, Björk Guðmunds-
dóttir, kom hingað til lands á dög-
unum í stutta heimsókn. Erindið var
einkum tvíþætt, að taka við gullplötu
fyrir fimm þúsund seld eintök af
Debut á íslandi og myndataka í
íslenskri náttúru fyrir tímaritið Face
sem á næstunni mun birta stórt
viðtal við söngkonuna.
Nú eru þrír mánuðir liðnir frá
útkomu Debut og er áætlað að á milli
7 og 800 þúsund eintök hafi selst af
henni í heiminum, þar af helming-
urinn í Bandaríkjunum. Debut náði
hæst í 61. sæti á Biilboard listanum
í byrjun september en er nú á
niðurleið. Þrátt fyrir það er ekki úti-
lokað að Björk slái sölumet Sykur-
molanna með Life’s too Good en af
henni seldist í heildina ein milljón
eintaka. Sjálf segist Björk vera hissa
á þeim frábæru viðtökum sem Debut
hefur fengið meðal gagnrýnenda og
almennings.
„Ég gat í rauninni átt von á hverju
sem var því að með Debut tók ég stórt
skref frá því sem Sykurmolarnir
voru að gera,“ segir Björk oghnyklar
brýrnar. „Ég fór inn í skápinn og
læsti á eftir mér. Ég bjó til plötu þar
sem ég gekk einvörðungu út frá
sjálfri mér og mínum hugmynda-
heimi. Athyglin sem ég hef fengið
kemur því á óvart."
Björk situr ekki með hendur í
skauti þessa dagana. Hún hefur þeg-
ar lokið við að semja lög á næstu
plötu sem hefur vinnuheitið Björk’s
Atfair en hún er ekki væntanleg á
markað fyrr en í lok næsta árs. Vinna
við plötuna er þó að fara af stað þessa
dagana. „Næsta plata verður nafla-
skoðunarplata líkt og Debut. Ég hóf
ýmsa tilraunastarfsemi á Debut og
mun ég ganga lengra í tilraunum
mínum á Björk’s Affair. Ég er í
sífelldri leit að hinum sanna hljómi,“
segir Björk Guðmundsdóttir.
eðlilegt sé því hljóðfæraleikaramir
hafi komið hver úr sinni áttinni.
„Það er stórkostlegt við lifandi
tónlist að heyra hana þróast og verða
betri. Hljómsveit eins og mín er
spuming um efnafræði og skilning
spilaranna hvers á öðrum. Við
verðum að blandast sem persónur.
Það þarf í raun að myndast ástar-
samband milli manna í hljómsveit
eins og þessari.”
- Þú varst ekki ánægð með upp-
hitunartónleikana fyrir U2 á Wem-
bley.
„Það er eins og að ganga yfir
hraðbraut með bundið fyrir augun
að hita upp fyrir svona stóra hljóm-
sveit,“ segir Björk. „Þú veist ekki
hvað gerist á leiðinni. Það voru 70
þúsund áheyrendur komnir til að
hlusta á U2. Ég fékk enga hljóðprufu
og sá hljómsveitina mína illa á
risastóru sviðinu sem var slæmt því
þetta vom tónleikar númer tvö og
samæfmgin því ekki mikil.“
- Þú vilt frekar minni hús.
„Já, fyrst og fremst vegna ástar
minnar á tónlist. Það skapast allt
önnur stemning og nánari tengsl
milli hljómsveitar og áhorfenda í
2000 manna sölum en 20.000 manna
gímöldum. Þá finnur maður líka
sterkt hvað tónleikar eru mikið
samspil hljómsveitar og áhorfenda.
- Þú fékkst MTV verðlaun fyrir
besta myndband Evrópu í byrjun
september. Fagfólkið valdi Human
Behaviour en áhorfendur völdu
George Michael. Þú fékkst verð-
launagrip þó það hafi ekki komið
fram á verðalaunahátíðinni. Varstu
svekkt að hreppa ekki aðalverðlaun-
in?
„Nei, þvert á móti þótti mér heiður
að því komast jafn langt og ég gerði.
Þetta kom á óvart þar sem ég hafði
ekkert pælt í þessum möguleika. Ég
er tilnefnd í nokkrum blöðum íyrir
tónlist mína þessar vikurnar. Mér
finnst það fyndið að hægt sé að fá
verðlaun fyrir tónlist því að ég hef
ekki hugmynd um hvernig á að mæla
hana.“
Hljómsveit er
ástarsamband
Undanfarinn mánuð hefur Björk
verið á tónleikaferöalagi um Evrópu
með átta manna hljómsveit. Hún
segir tónleikana hafa gengið vel þó
þeir fyrstu hafi verið stirðir sem
A næstu vikum hefjast upptökur á nýjasta myndbandi Bjarkar.
Björk segir að þrátt fyrir góðar
viðtökur hafi pyngjan ekki þyngst að
ráði. Hún segist leggja mikið í
listræna hlið málsins. Þannig séu
tónleikaferðin og myndböndin dýr
en á næstu vikum hefjast einmitt
upptökur á nýjasta myndbandi
Bjarkar sem verður Big Time
Sensuality. Björk segist ekki hafa séð
neinn aukapening en tekur þó fram
að bransinn sé þannig að ár geti liðið
áður en góð söluplata skilar höf-
undinum einhverjum tekjum að
ráði. Hún segir peninga ekki skipta
sig miklu.
„Ég er mjög kát því ég fæ að búa
til tónlist og það eru forréttindi,”
segir Björk og brosir út í bæði.
„Auðvitað fylgir mikið kjaftæði en
maður gengur í gegnum 90% af
kjaftæði til þess að geta gert 10% af
tónlist. Það er nógu mikið til að
fullnægja sjálfri mér og þúsundum
annarra." -SMS
föstudaginn
október
Tónlistargetraun DV og Spors er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
í og hlotið geisladisk að launum.
Leikurinn fer þannig fram að í hverri
viku verða birtar þrjár spumingar
um tónlist. Fimm vinningshafar
hljóta svo geisladisk í verðlaun frá
hljómplötufyrirtækinu Spori hf.
Að þessu sinni er það geisla-
diskurinn Grensan, ný safnplata með
rokklögum, sem er í verðlaun.
Hér koma svo spurningamar:
1. HljómsveitinAceofBaseermeð
sitt þriðja lag af plötunni Happy
Nation, sem kemst inn á Is-
lenska listann. Hvað heita hin
lögin 2?
2. 4 Non Blondes eru með nýtt lag
í 10. sæti listans þessa vikuna.
Hvað heitir nýja platan frá
þeim?
3. 113. sæti listans eru rokkaramir
i hljómsveitinni Mr. Big með
gamla smellinn Wild World.
Eftir hvem er lagið?
Rétt svör sendist DV fyrir 7.
október, merkt:
DV, Tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum
7. október og rétt svör verða birt í
tónlistarblaði DV 14. október.
Hér eru svo birt rétt svör við
getrauninni sem birtist 9. september:
1. Erasure.
2. Grave Dancers Union.
3. Þrjár.
alveg meiriháttar show!!!
Að þessu sinni er það geisladiskurinn
Grensan, ný safnplata með rokklögum,
sem er í verðlaun.
vikunnar
Keith Richards og félagar i hljómsveitinni Rolling Stones hyggja á
hljómleikaför um heiminn.
Rolling Stones
fá 4 milljarða fyrir tónleikaferð
Rolling Stones eru aó leggja upp í enn eina tónleikareisuna um
gjörvalla heimsbyggóina og eins og aó líkum lætur kostar slíkt
fyrirtæki feiknin öll af peningum. Sem betur fer fyrir Jagger og
félaga eru fjölmörg fyrirtæki enn áfjáó aó opna pyngjuna þegar
Stoneseru annarsvegarog adþessusinni varþaó hinn umdeildi
ítalski fataframleióandi Benetton sem bauó best. Upphæóin,
sem hann er tilbúinn aó snara út, er litlir 4 milljarðar íslenskra
króna,segi og skrifa! Þetta er helmingi hærri upphæó en Stones
tókst ad herja út fyrir síóustu feró en þá var þaó ameríski
bjórframleidandinn Budweiser sem átti hæsta boð. Þaó má svo
fljóta meó ad nýjasta nafnid á vangaveltunum um hver muni
leysa Bill Wyman af hólmi á bassann er Joey nokkur
Spampinato sem unnið hefur ad undanförnu með Keith Richard
aó gerð kvikmyndar um Chuck Berry. -SÞS
,!!! * il k - « i'.\.
e;.-.
lí.’Hj. |í«j§í. Hifíi