Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Side 3
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
-
tónli0t:
Orri Harðarson, tvítugur Akurnesingur, með sína fyrstu plötu, Drög að heimkomu:
Þarf að vera uppáþrengj-
andi næstu mánuðina
Orri Harðarson gefur út sína fyrstu plötu aöeins tvrtugur að aldri og heldur af því tilefni útgáfutónleika í kvöld.
I aöra á næsta ári. „Hún veröur allt
öðru vísi en þessi. Ég vil ekki gefa
upp hvemig en ég reikna með að hafa
önnur þijátíu lög til að velja úr næsta
vor til að taka upp á hana. Ég hef enn
ekkert áformað um til hverra ég leita
um samstarf en vildi að minnsta
kosti sjá Birgi Baldursson og Sigurð
Bjólu í hópnum. Bjólan tók upp Drög
að heimkomu og hann er snillingur.“
Orri reiknar einnig með að gefa
næstu plötu út sjálfur. Hann þekkir
lítt til íslenskra hljómplötufyrir-
tækja en hefur lítillega kynnst þeim
dönsku.
„Ég var um skeið í danskri hljóm-
sveit sem lék eigin lög - þar á meðal
tvö eða þijú sem era á plötunni. Við
sendum prufuupptöku á kassettu til
PolyGram og fengum hana senda til
baka með kurteislegu bréfi þar sem
okkur var hrósað fyrir góða tónlist.
DV-mynd SSv.
En því miður gat fyrirtækið ekki
sinnt okkur eins og sakir stóðu.
Félagi minn í hljómsveitinni ákvað
þá að senda fyrirtækinu tóma
kassettu. Hún var sömuleiðis endur-
send með afar kurteislegu bréfi þar
sem okkur var hrósað fyrir góða
tónlist sem fyrr. Fyrirtækið átti þess
bara engan kost að gefa hana út að
sinni!“
-ÁT
Tónlistargetraun DV og Spors
Tónlistargetraun DV og Spors er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
í og hlotið geisladisk að launum.
Leikurinn fer þannig fram að í hverri
viku eru birtar þijár spumingar um
tónlist. Fimm vinningshafar hljóta
svo geisladisk í verðlaun frá hljóm-
plötufyrirtækinu Spori hf.
Að þessu sinni er það geisladisk-
urinn Grensan, ný safnplata með
rokklögum, sem er i verðlaun.
Hér koma svo spurningarnar:
1. Á safnplötunni Grensan, sem
kom út í síðustu viku, eru tvær
íslenskar hljómsveitir. Hvað
heita þær?
2. Síðast liðinn mánudag kom út
safnplatan Algjört möst. Hvaða
íslensku hljómsveitir syngja
saman eitt lag á plötunni?
Aö þessu sinni er það Grensan, ný
safnplata með rokklögum, sem er í
verðlaun.
3. Á Grensu-plötunni er ein erlend
hljómsveit sem komið hefur
hingað til tónleikahalds. Hvað
heitir hún?
Rétt svör sendist DV fyrir 14.
október, merkt:
DV, Tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum >
14. október og rétt svör verða birt í
tónlistarblaði DV 21. október.
Hér eru svo birt rétt svör við
getrauninni sem birtist 16. sept-
ember:
1. Grave Dancers Union.
2. So I Married An Axe Murderer.
3. Hollandi.
„Ég var búinn að lofa sjálfum mér
og öðrum að koma með mína fyrstu
plötu fyrir 25 ára afmælið og tel mig
hafa staðiö fyllilega við það loforð,"
segir Orri Harðarson, tvítugur Akur-
nesingur sem var að senda frá sér
sína fyrstu plötu, Drög að heimkomu.
Á henni eru tíu frumsamin lög og
textar.
„Flest lögin urðu til meðan ég var
í Danmörku. Þetta eru mansöngvar
sem ég samdi - suma hverja að
minnsta kosti - þegar kominn var í
mig ferðahugur. Upphaflega voru
lögin raunar þijátíu en ég valdi tíu
úr á plötuna,” segir Orri. Þótt hann
sé ungur að árum er hann búinn að
fást alllengi við tónlist. Lærði á gítar
ellefu til tólf ára og lék síðar með
nokkrum hljómsveitum á Akranesi
sem vöktu meðal annars athygli í
Músíktilraunum.
„Ég er búinn að fá nóg af hljóm-
sveitastarfinu, í bili að minnsta
kosti,“ segir Orri. „Ég ákvað því að
keyra áfram á eigin spýtur næstu
misserin. Þannig byijaöi ég svo að
það er að sumu leyti afturhvarf fyrir
mig að koma fram einn með gítarinn.
plötunnar: Jón Ólafsson, upptöku-
stjóri og hljómborðsleikari, Stefán
Hjörleifsson gítarleikari, Friörik
Sturluson bassaleikari, Birgir Bald-
ursson trommari og söngkonumar
Valgerður Jónsdóttir og Anna
Halldórsdóttir.
„Ég veit ekki hversu mikið við
spilum saman til viðbótar. Þetta fólk
er önnum kafið á öðrum víg-
stöðvum," segir Orri. Honum hefur
verið boðið að hita upp á útgáfu-
tónleikum Bubba Morthens í Borgar-
leikhúsinu í nóvember. „Það er vel
viðeigandi því að þegar ég var að
byrja stældi ég Bubba og Megas
óspart,“ segir hann og glottir. Síðan
stendur til að spila í skólum og víðar.
„Svo verö ég að reyna að komast
að í útvarps- og sjónvarpsþáttum
eins og hægt er. Ég verð þess vegna
að vera óskaplega uppáþrengjandi
næstu tvo til þijá mánuðina meðan
ég er að kynna plötuna."
Næsta plata
Tónleikahald
Orri Harðarson verður þó ekki
einn á ferð í kvöld þegar hann heldur
útgáfutónleika vegna plötunnar á
Akranesi. Þá kemur fram með
honum fólkið sem tók þátt í gerð
Orri segir aö vissulega sé dýrt að
gefa út plötu en hann kaus að gefa
hana út sjálfur og láta Japis annast
dreifinguna. „Sumir jafnaldrar mín-
ir eignast einnar eða tveggia milljóna
króna bíl. Aðrir kaupa vélsleða.
Tónlistin er mitt hobbí og ég stend
og fell með henni,“ segir hann og
bætir því við að tapi hann ekki á
útgáfu fyrstu plötunnar verði ráðist
vikunnar
MickeyJupp
Hátt metinn, lítt þekktur
Breski rokktónlistarmaó- V ■■ 'i
urinn Mickey Jupp er kom-
inn tii landsins og kemur /
fram á tónleikum víóa um 'IÍl!' í
land á næstunni meö KK- .4
bandinu. Jupp er afsprengi
bresku rokkbylgjunnar í \
byrjun sjöunda áratugarins
og hófferilinnmeð mönnum .
a boró vió Gary Brooker og
Keith Re d sem síóar stofn-
uóu Procol Harum. Jupp
var spaó mikilli velgengni á HP ®|S||j|| 9K
þessum árum enda lunkinn
lagasmiður en örlög hans _ '^HPr
urðu þess í staö þau að - •
semja lög fyrir aðra. Hann
hefur gegnum árin notið ^
mikillar virðingar í breskum '—-
tónlistarheimi en sitt er _> _________
hvaó gæfa og gjörvileiki og Jupp hefur aldrei náð að baóa sig í
sviósljósinu að ráði þráttfyrir ótvíræöa hæfileika til að ná langt.
Allshefur Juppgefið útá annantug sóióplatna af hverjum platan
Juppanese er þekktust en hún kom út undir merki Stiff
hljómplötufyrirtækisins árið 1978.
-SÞS