Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Qupperneq 4
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993
30
l t'ónlist
►f
kallast In Utero.
bassaleikari, Terry Bozzio trommii-
leikari og Devin Townsend söng-
vari einnig í veigamiklum hlutverk-
um. Townsend er komungur og
hefur ekki látiö í sér heyra á plötu
fyrr. Þar er gríðarlegt rokksöngv-
araefni á ferðinni. Frammistaða
hans er slík að hann stelur oft
senunni frá virtúósnum sjáifum.
Tónlistin á Sex and Religion er
kraftmikið rokk. Hvergi er gefið
eftir frá fyrsta lagi til hins síðasta.
Hljómsveitin Vai býður ekki upp á
neins konar listapopp og rokkið
hennar er lítt útvarpsvænt. Að
skaðlausu hefðu eitt eða tvö slík lög
mátt fljóta með. En fyrir þá sem
enn geta hlustað á annars konar
rokk en það sem borið er á borö hjá
misgóðum útvarpsstöðvum landsins
er Sex and Religion gripurinn sem
oma má sér við á dimmum
vetrarkvöldum.
Ásgeir Tómasson
Smashing Pumpkins-
Siamese Dream:
★ ★ ★
Sérstök
tónlistar-
stefna
Síðan Nirvana sló rækilega í
gegn með plötuna Nevermind hefúr
bandarískt „altemative" rokk (þýð-
ing óskast) flætt yfir tónlistar-
markaðinn með mismiklum árangri
enda em bæði gæðin og sölu-
Nirvana frá Seattle var
óumdeilanlega hljómsveit ársins
1991, frumburðurinn Nevermind
plata ársins og lagið Smells Like Teen
Spirit lag ársins. I popppressunni var
rödd Kurts Cobain oft sögð rödd
nýrrar kynslóðar f rokkinu. Þre-
menningamir í Nirvana vom engan
veginn undir velgengnina búnir og er
óhætt að segja að hún hafi verið á
góðri leið með að leggja meðlimina
og þá einkum Kurt Cobain í gröfina
í orðsins fyllstu merkingu. Eftir
tveggja ára hlé sneri Nirvana aftirr í
sviðsljósið fyrir fáum vikum með
nýja plötu í farteskinu, hún kallast In
Utero.
Fræg
-Nirvana með nýja p
Saga Kurts Cobain, sem nú er 26
ára gamall, er þymum stráð. Hann
var fæddur og uppalinn í smábænum
Aberdeen í Seattle, skilnaðarbarn
sem átti erfitt uppdráttar í skóla.
Hann var öðmvísi, afskiptur og oft
lagður í einelti af skólafélögum
sínum. Hann passaði ekki inn í það
mynstur sem samfélag smábæjarins
skóp bömum sinum. Hann varð fyrir
miklu áfalli þegar hann var níu ára
gamail en þá skildu foréldrar hans og
eftir það var hann á sifelldu flakki
milli foreldra sinna og annarra
ættingja og átti í raun enganstað sem
hann gat kallað heimili. Á meðan
jafnaldrarnir léku sér í íþróttum
mundaði Kurt pensilinn heima fyrir
og átti þá ósk heitasta að komast burt
úr smábænum. Á unglingsárum varð
hann þunglyndur og baldinn. Honum
segist sjálfum svo frá: „Á kvöldin átti
ég það til að skríða undir sæng og
halda niðri í mér andanum í þeirri
von að hausinn á mér myndi springa,
en með því að deyja hélt ég að ég gæti
búið til sektarkennd hjá foreldrum
mínum þannig að þau sæju eftir öllu
saman. A tímabili hélt ég að ég myndi
ekki ná því að verða 21 árs gamall,
sjálfseyðingarhvötin var svo sterk.“
Veltu Michael
Jackson
af toppnum
Árið 1986 stofnuðu Cobain og
bassaleikarinn Krist Novoselic
hljómsveitina Nirvana. Þeir komust
fljótlega á samning hjá óháðu
útgáfufyrirtæki í Seattle sem heitir
Sub Pop en á því merki voru ýmsar
hljómsveitir sem reyndu fyrir sér í
pönk-metal rokki. Á þessu merki
gerði Nirvana dúettinn sína fyrstu
plötu sem kostaði tæplega 50 þúsund
krónur. Platan hét Bleach og kom út
árið 1989. Hún vakti athygli stóru
útgáfufyrirtækjanna sem vildu ólm
fá Nirvana á samning. Það var Geffen
Records sem hreppti hnossið en
hljómsveitin valdi það fyrirtæki
einkum vegna þess að á því merki var
Sonic Youth og töldu Kurt og Krist
þá hljómsveit ekki hafa beðið skaða
af samvinnu við fyrirtækið eins og
hent hefur svo margar hljómsveitir
sem hafa gert samning við risa-
fyrirtæki í útgáfugeiranum. Á svip-
uðum tíma bættist þriðji meðlim-
urinn í hópinn en það var trommu-
leikarinn Dave Grohl. Framhaldið er
flestum kunnugt. Bjartsýnustu menn
hjá Geffen vonuðust til að Nevermind
myndi seljast í tvö til þrjú hundruð
þúsundum eintaka en raunin varð sú
að platan fór i 10 milljón eintökum.
Kurt Cobain segir að álagið sem
fylgdi velgengni plötunnar hafi verið
yfirþyrmandi og að þeir hafi á engan
hátt verið undir það búnir. „Við
höfðum alist upp við pönkið og dáð-
Eftir tveggja ára hlé snýr Nirvana aftur í sviðsljósið með nýja plötu í farteskinu, hún
pÍQtugagnrýni
Halli - Undir hömrunum háu:
Enginn
byrjenda-
bragur
Þeir eru ekki margir sem með
sanni geta staðið undir nafninu
trúbadúr. Hörður Torfason og
Bubbi Morthens era þeir sem koma
fyrst upp í huga manns, þótt sá
síðamefndi eigi að baki flölskrúð-
ugri tónlistarferil en svo að hægt sé
eingöngu að staðsetja hann í flokk
trúbadúra.
Halli eða Haraldur Reynisson er
ekki þekktur trúbadúr en hefur í
nokkur ár sungið og leikið einn
síns liðs á krám lög sín og texta
sem og alþekkta kráarsöngva. Sú
reynsla sem hann hefur fengið í
þessari spilamennsku skilar sér á
fyrstu hljómplötu hans, Undir
hömrunum háu. Það er enginn
byrjendabragur á flutningnum,
heldur er Haraldur öryggið upp-
málað bæði í söng og leik.
Halli sagði í viðtali fyrir stuttu að
hann hefði fyrst hugsað sér að vera
einn með gítarinn en horfið frá því.
Tel ég það skynsamlegt, aðallega
vegna þess að lög hans sem era á
Undir hömranum háu henta misvel
fyrir slíkar útsetningar. Til dæmis
get ég ekki séð að Þjóðarsálin, sem
hefur náð nokkram vinsældum,
hefði gert sig jafn vel og raunin er,
með aðeins gitarundirspili. Aftur á
móti titillagið, Undir hömrunum
háu, sem og nokkur önnur lög era
örugglega alveg jafn góð án
hljómsveitar.
Söngur Halla er ágætur og
framburður hans skýr. Það kemur
ekki á óvart að heyra að áhrifa
gætir frá Herði Torfasyni. Má með
sanni segja að Hörður sé fyrir-
myndin, enda er eina lagið á plöt-
unni, sem ekki er eftir Halla, eftir
Hörð, gott lag sem nefnist Frysti-
húsabragur og er vel flutt af þeim
báðum.
í heild má segja að Undir
hömrunum sé nokkuð vel heppnuð,
lögin hitta misvel í mark, en það
leynir sér ekki að Halli á auðvelt
með að semja melódísk lög og
textar hans era myndrænir.
Hilmar Karlsson
Vai-Sex and Relígion:
★ ★ ★
Sirkusmaður
Steve Vai á alveg eins heima á
sirkussviði og rokkhljómleikum.
Kúnstir hans með gítamum eru oft
svo ótrúlegar að maður hefði að
óreyndu ekki trúað að hægt væri að
gera þær. Margir minnast Vais ef-
laust í hlutverki djöfúlsins í bíó-
myndinni Crossroads þar sem hann
sýndi margar sínar trylltustu hlið-
ar. Þá var hann á ferð hér á landi
með hljómsveitinni Whitesnake
fyrir nokkrum haustum.
Á Sex and Religion er Steve Vai
hins vegar allstflltur víðast hvar.
Enda er platan raunar ekki með
honum einum heldur hljómsveit-
inni Vai. Þar era T.M. Stevens
fiö PIONEEn
The Art of Entertainment
um það frarn í fingurgóma en á sama
tíma fyrirlitum við þær hljómsveitir
sem vora í efstu sætum vinsælda-
listanna. Skyndilega var Nirvana
orðin ein af þeim og velti meira að
segja Michael Jackson úr toppsætinu
í Bandaríkjunum. Okkar viðbrögð
voru þau að gefa skít í allt draslið og
við helltum okkur út í áfengis- og
eiturlyfjaneyslu af þvílíkum ofsa að
ég furða mig oft á því hvemig standi
á þvi að við erum enn ofar moldu,“
segir Cobain.
Fjölmiðlar fylgdust grannt með
hljómsveitinni og hvert hneykslis-
málið rak annað. Hljómsveitin var út
úr heiminum þegar hún kom í sjón-
varpi og fresta varð hljómleikum
vegna slappleika meðlimanna. Sú
flölmiðlaumfiöllun sem fór þó verst í
Cobain var frásögn í Vanity Fair af
því að kona hans, pönkdrottningin
Courtney Love sem hann hafði ný-
lega kvænst, hefði árið 1992 neytt
heróíns meðan hún gekk með fyrsta
barn þeirra hjóna. Þessu hafa þau
staðfastlega neitað en blaðið stendur
við frásögn sína. Dóttir þeirra
Francis er nú tæplega eins árs gömul
og við góða heilsu. Þessar fréttir og
aðrar gerðu Cobain mjög þunglyndan
og hann hugsaði oft um að leysa
hljómsveitina upp. Góðu heilli varð
ekki af því heldur beit hann á jaxlinn
og hætti áfengis- og eiturlyfianeyslu.
Hann segist hafa gert það konu sinnar
og barns vegna en fleiri njóta góðs af
því. Eftir að hann breytti um lifnaðar-
hætti hóf Nirvana vinnu viö plötuna
In Utero í byrjun þessa árs ásamt
upptökumanninum kunna Steve
Albini. Platan, sem hefur fengið mis-
jafna dóma, boðar endurkomu
Nirvana í rokkið eftir tveggja ára hlé
og því hljóta rokkunnendur um allan
heim að fagna.
-SMS
mennskan í mismiklum mæli.
Smashing Pumpkins er ein af
þessum hljómsveitum og hér er til
umfiöflunar nýjasta afurð þeirra,
Siamese Dream. Tónlistin minnti
mig einmitt á Nirvana til að byrja
með þótt hún sé ekki nándar nærri
eins þung en eftir svolitla hlustun
kemur í ljós að Smashing Pumkins
hafa sína eigin sérstöku tónlistar-
stefnu. Tónlistin er oft mjög hæg,
en líka kaflaskipt, og lögin geta á
nokkrum sekúndum umbreyst úr
rólegum ballöðum í hratt og há-
vaðasamt, næstum yfirþyrmandi
rokk. Tónlistin er líka oft mjög
draumkennd og má stundum greina
austurlensk áhrif í henni. Billy
Corgan er aðalsprauta hljómsveitar-
innar, semur lög og texta, syngur
og spilar á gítar, og er einnig í upp-
tökustjórahlutverki ásamt Butch
Vig. Sem textasmiður er hann
enginn siðapostuli. Textar hans era
ekki þjóðfélagsádeilur eða baráttu-
söngvar, heldur persónulegar pæl-
ingar og rannsóknir á eigin sálar-
lífi. Sem lagasmiður er hann
agaður og melódískur en leyfir sér
þónokkra tilraunastarfsemi oft.
Frumleikinn verður þar hljómsveit-
inni að falli, því slíkt á ekki upp á
pallborðið hjá tónlistameytendum,
og er því varla hægt að telja
Siamese Dream mjög söluvæna
vöra þótt ég hafi reyndar séð eitt
laganna, Today, á MTV um daginn.
Bestu lög plötunnar era Rocket,
Geek USA, Mayonaise og Sweet '
Sweet, allt lög með frumlegum og
grípandi melódíum og textum sem
hitta í mark.
Pétur Jónasson