Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1993, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1993, Page 4
FIMMTUDAGUR 11. NOVEMBER 1993 ► * < Musteri rokksins - Stone Temple Pilots hrista upp í Hollywood-rokkinu Ein af þeim hljómsveitum sem hafa verið aö vinna sér fylgi allt þetta ár er bandaríska rokksveitin Stone Temple Pilots. Tónlist sveitarinnar, sem er hart rokk, er ekki þess eðlis að hún sigri heiminn á einum degi en á síðustu mánuðum hafa augu rokkáhugamanna æ oftar rekist á nafn hljómsveitarinnar i blöðum og tímaritum. Fyrsta plata Stones, Temple Pilots, kom út í lok síðasta árs og kallast hún Core. Lög á borð við Dead and Bloated, Sex Type Things og Plush hafa hitt margan rokkjálkinn í hjartastað og gefið sveitinni byr í seglin. Hugmyndin að stofnun hljóm- sveitarinnar varð til á tónleikum lítt þekktrar rokksveitar á Long Beach í Kaliforníu. Weiland söngvari og Robert DeLeo bassaleikari rákust fyrir tilviljun hvor á annan og tóku tal saman. Þeir ræddu tónlist fram og til baka og komust að því að þeir voru sömu skoöunar um marga hluti í þeim eöium. Þeir komust líka að því aö þeir voru hrifnir af sömu stúlk- unni. Eftir þennan fyrsta fund varð ekki aftur snúið og þegar nefnd spúsa fluttist til Texas tóku tvímenn- ingarnir saman föggur sínar og fluttust inn á hana. Robert DeLeo átti átta rása upptökutæki og í iðjuleysi sínu í Texas hófu félagamir að fondra við tónlist. Þó bakgrunnur þeirra í tónlist væri ólíkur náðu þeir vel saman og tónlistin varð sambland af pönki sem Weiland hafði aðallega hlustað á og þyngra rokki í anda Led Zeppelin og Black Sabbath sem Robert haíði mætur á. Þeir ákváðu að Smashing Pumpkins - Siamese Dreams: ★ ★ ★ Siamese Dream er varla hægt að telja söluvæna vöru en lögin eru frumleg og með grípandi melódíum sem hitta beint í mark. -PJ Paul Young - The Crossing: ★ ★ ★ Platan er tileinkuð minningunni um trommuleikarann Jeff Porcaro og er tvímælalaust verðugur minnisvarði um hann. -SÞS Steve Vai - Sex and Religion: ★ ★ ★ Tónlistin á Sex and Réligion er kraflmikiö rokk, hvergi gefið eftir frá fyrsta lagi til hins síðasta. -ÁT Boo Radleys - Giant Steps: ★ ★ ★ ★ Hér er komin ein af betri plötum ársins 1993 og ómögulegt að gera upp á miili laganna 17 sem prýða Giant Steps. -SMS Ýmsir- Diskóbylgjan: ★ ★★★ Diskóbylgjan er sennilega sú plata sem gefur heillegasta mynd af því sem gekk á diskótekum landsins á þessum um- deilda tíma. -ÁT Ýmsir- Rokk í Reykjavík: ★ ★ ★ ★ Hér má heyra tónum skrýdda sögu af þvf þegar bllskúrsböndin kúventu ís- lensku tónlistarlifi og bjuggu til íslenska nýbylgju. -SMS A.J. Croce - A.J. Croce: ★ ★ ★ Þegar á heildina er litið er þessi frumsmíð Croce virkilega góð tónlist, heillandi í öllum sínum gamaldags flumingi. -HK Ham - Saga rokksins: ★ ★ ★ Sú blanda, sem hér er hrist saman, er góö viðkynningar fyrir þá sem hafa vilja og nennu til að kynnast Ham. -SÞS Ein af þeim hljómsveitum sem hafa verið að vinna sér fytgi alft þetta ár er bandaríska rokksveitin Stone Temple Pilots. stofna hljómsveit. Fegurð og hávaði Eftir að Weiland og Robert sneru :pt^lugagnrýni ► ?4 aftur til Kaliforníu fundu þeir háværan og ákafan trymbil, Eric. Rúnar Þór: ★ ★ Að mestu Þegar mér barst þessi plata í hendur hélt ég að nú væri Rúnar Þór kominn í flokk þeirra íslensku listamanna sem gætu sent frá sér Best of-plötu. Og það var svo sem ekkert fjarri lagi að halda þetta því Rúnar hefur sent frá sér átta plötur og þó svo hann hafi ekki tröliriðið vinsældalistum landsins hafa mörg laga hans notið almennrar hylli. Hann á tvímælalaust nóg af vin- sælum lögum til að fylla eina Best of. Þess vegna urðu mér það’nokkur vonbrigði þegar ég varð þess áskynja að Að mestu er ekki safn þess besta sem Rúnar hefur gert, eins og nafiiið gefur til kynna, heldur er hér um að ræða endur- útgáfu á lögum af fyrstu plötum Rúnars, Eyðimerkurhálsum frá 1988 og Tryggð frá 1989, auk þess sem þrjú ný lög fá að fljóta með. Eflaust er það einhverjum fengur að fá að heyra þessi gömlu lög Rúnars á geislaplötu en mér finnst þessi blanda ekki ganga upp. Bæði ér að mörg af þessum lögum eru fjarri því að vera meðal þess besta sem Rúnar hefur gert og nýju lögin passa heldur engan veginn við þessa endurútgáfu. Annaðhvort átti þá einfaldlega að endurútgefa gömlu plötumar í heild eða þá bæta við fleiri nýjum lögum og gefa út nýja plötu. Af nýju lögunum eru tvö, Foss og Hvít orð, róleg í ekta Rúnars Þórs stíl en Miðbæjarhjartað eilítið rokkað og þar kveður við nokkuð nýjan tón í texta og Rúnar bregður sér í hlutverk þjóðfélagsgagnrýn- andans. Rúnar á sem sagt enn eftir að gefa út Best of-plötuna og þeirri hugmynd er hér með komið á framfæri að hann skoði þann möguleika þegar tóm gefst. Sigurður Þór Salvarsson Herði hefur tekist að leysa trúbadorþrautina með miklum sóma síðan hann söng Þú ert sjálfur Guðjón á sinni fyrstu plötu. Honum hefur tekist að sameina leiklist og söng og þannig hrifíð fólk meö sér. Gull heitir nýjasta verk Harðar Torfasonar og er það engin undan- tekning þar á. Tvö ár eru liðin frá því Hörður sendi frá sér plötu og er Guli því kærkomin fjölmörgum aðdáendum tónlistarmannsins. Yfirbragð plöfimnar er rólegt og á sfimdum dramatískt þó kímnin sé ekki langt undan þegar Hörður stingur á kýlum eins og í karl- rembu- og rasistabragnum um Karl R. Emba. Lagasmíðarnar, sem sumar eru frá Kaupmannahafnar- árum Harðar, eru ljúfsárar en grípandi. Lifandi myndbrot og fílósóferingar gera það að verkum að maður finnur fljótt hjá sér þörf til að setjast niður með textablaðið og lesa sem ljóð á bók. Herði Torfasyni hefur tekist aö skapa lifandi plötu sem óhætt er að mæla með, skemmtilega blöndu af leiftrandi lífsgleði og ljúfsárum trega. -Snorri Már Skúlason HörðurTorfason-GuII: ★ ★ ★ * Trúbador í essinu sínu Dave Grusin -The Firm: r- ★ ★ ★ Árangri náð með Hörður Torfason er samkvæmt skilgreiningunni eini hreinræktaði íslenski trúbadorinn. Þessi er ein- stæðingur sviðsljóssins sem hefur ekki á aðra að treysta en sjáifan sig, gítarinn og sögumar sem hann segir í tónlistinni eða, eins og Hörð- ur segir svo réttilega í opnunarlagi plötunnar Gull: Vertu þér sjálfum tryggur og trúr, treystu á þig sjáifan eins og trúbador. Það tónlistarform sem Hörður hefúr helgað krafta sína í meira en tuttugu ár er heillandi en gerir miklar kröfur til tónlistarmannsins. frumlegri aðferð Kvikmyndin The Firm hefur fengið misjafnar viðtökur og þykir flestum sem hún standi bókinni langt að baki. En það hefúr ekki farið fram hjá neinum sem séð hafa myndina að tónlistin er sérstök og frumleg þegar haft er í huga að um kvikmyndatónlist er að ræða en hún er eingöngu leikin á píanó. Kretz, sem passaði vel við hugmyndir tvimenninganna. Leit að gítarleikara varð hins vegar meira mál og endaði með því að bróðir Roberts kom frá New Jersey, þar sem hann bjó, og vann nokkur Demólög með sveitinni áður en hann var ráðinn sem gítar- leikari. Stone Temple Pilots störfuðu fyrst um sinn í Hollywoodhæðum en andrúmsloftið í tónlistarlífinu þar féll þeim lítt í geð þar sem hver hljómsveitin reyndi að stæla aðra og meðalmennskan var ríkjandi. Þeir tóku annan pól í hæðina. Hljóm- sveitin einbeitti sér að því að gera hluti sem gengu þvert á ráðandi stefnur í kvikmyndaborginni, þeir gáfu Los Angeles-rokkinu langt nef og fluttu til San Diego. Þar í borg tróðu þeir reglulega upp og prófuðu tónlist sína á fólkinu. Stone Temple Pilots gerðu nokkur lög sem óháða útgáfufyrirtækið STP i New York gaf út og í byijun árs 1992 gerði hljómsveitin samning við Atlantic Records. Plötuna Core, sem kom eins ogfyrr segir út seint á síðasta ári, vann hljómsveitin með upptökustjóranum Brendan O’Brian sem m.a. hefur starfað með Red Hot Chili Peppers. Weiland lýsir samstarfinu sem einu stóru jibbí jey þar sem menn skemmtu sér við kaldan húmor og ferskar hugmyndir þar sem upptöku- stjórinn lagði sitt af mörkum. Útkoman varð hressilegt rokk og ról sem við fyrstu kynni virkar eins og hver meðlimur hljómsveitarinnar reyni að valta yfir hina i hávaða og látum. Við nánari kynni greiðist þó úr flækjunni og eftir stendur dægi- legasta rokk, sneisafullt af nettum melódíum, eða, eins og söngvarinn Weiland segir sjálfúr: „Við reynum aö skila ástríðum og tiífinningum í tónlist okkar. Við forðumst endur- tekningar og leggjum áherslu á að mála ólíkar myndir og skapa mis- munandi stemmningar. Þessum markmiðum náum við ekki með því að spila eins hrátt og þungt og hátt og við getum frá fyrsta lagi til þess síðasta. Tónlist okkar hefur meira aö bjóða en svo.“ Höfundur tónlistarinnar og sá sem flytur hana er Dave Grusin. Nú er það svo að þegar kvikmynd er gerð af þeirri stærðargráðu sem The Firm er þá er ekkert sparað þegar tónlistin á I hlut og þess vegna hefði Grusin getað farið öruggari leið með aðstoð hljóm- sveitar. En Grusin tekur áhættu sem heppnast fullkomlega. Tónlistin er áberandi þegar horft er á myndina en skemmir ekki fyrir eins og oft vill vera þegar tónskáldið hugsar meira um tónlistina heldur en kvikmyndina. Dave Grusin hefur skipt tíma sínum nokkuð jafnt á milli kvikmyndatónlistar og djass þar sem hann hefur átt gott samstarf viö gítarsnillinginn Lee Rittenour. Ber píanóleikur hans þess vitni að þar er á ferðinni tónlistarmaður sem hefur skilning á þeirri tónlist sem hann flytur. Lög Grusins eru djass og blús og geysivel flutt af honum. Það sem kemur kannski mest á óvart er að tónlistin missir ekki hinn myndrærta kraft þegar eingöngu er hlustað á hana. Til uppfyllingar í kvikmyndinni er notast við nokkur lög þekktra listamanna. Má þar nefna Jimmy Buffett, Lyle Lovett og Robben Ford með ágæt lög sem þjóna tilgangi í myndinni en skemma fyrir á plötunni þar sem þau eru sett inn á milli flutnings Grusins í stað þess að hafa þau öll saman. Hilmar Karlsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.