Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1993, Page 4
»" - •*
30
^ 1L«
FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1993
Rafn Jónsson sendir frá sér nýja plötu, Ef ég hefði vængi:
Kynnti útgáfuna
í Vestf jarða-
göngunum
Rafn Jónsson leikur í síðasta skipti á trommusett á útgáfutónleikunum I
viku. DV-mynd BG
næstu
Sennilega hefur enginn valið
frumlegri stað en Rafli Jónsson til að
kynna útkomu nýju plötunnar sinn-
ar, Ef ég hefði vængi. Hann hóaði
þrjátíu manna hópi inn í Vestfjarða-
göngin, Suöureyrarmegin, á föstu-
daginn var og tók þar lagið með
hljómsveit sinni.
Rafn heldur síðan áfram að fagna
útkomu plötunnar í næstu viku. Á
miðvikudaginn kemur verða útgáfu-
tónleikar í Borgarleikhúsinu þar sem
lögin af plötvmni verða flutt ásamt
nokkrum lögum af fyrri plötu hans
svo og nokkur gömul og góð Graflk-
lög. Þar annast hljómsveitin Rabbi og
co. allan undirleik og síðan mæta til
leiks söngvararnir sem syngja lög
plötunnar.
Á þessum útgáfutónleikum spilar
Rafn í síðasta skipti á hefðbundið
trommusett. Hann er haldinn
svonefndum MND sjúkdómi og segir
að úthaldið í höndunum sé ekki
nægilega gott lengur til að spfla á
heilum dansleikjum. Tónleikarnir
verða kvikmyndaðir og verða
lokaatriðið í sjónvarpsmynd um
Rafn. Hún verður sýnd í sjónvarpi í
næsta mánuði.
Rafn lék tfl skamms tíma með
hljómsveitinni GalOeó. Hún er nú
hætt og hann stofnaði fyrir skömmu
nýja hljómsveit, Rabbi og co. Með
honum i henni eru Sævar Sverrisson
söngvari, Haraldur Þorsteinsson
bassaleikari, Ásgeir Óskarsson sem
leikur á trommur, Jens Hansson
saxófón- og hljómborðsleikari og
Magnús Einarsson sem leikur á gítar.
Sjálfur spilar Rafn á slagverk. Á
hljómleikunum í næstu viku bætast
Jón Elvar Hafsteinsson gítarleikari
og Jón Ólafsson orgeOeikari í hópinn
og einnig mætir fjöldi trommu-
leikara tO leiks: Gunnlaugur Briem,
Ólafur Hólm, Birgir Baldursson og
synir Rafns, EgOl og Ragnar. -ÁT-
Rúnar Þór með blöndu gamalla laga og nýrra á plötunni Að mestu:
Sjálfs sín útgefandi á ný
„Það má segja að ég sé búinn aö
fara í hring, prófa þjónustu hljóm-
plötuútgefendanna, og sé nú kominn
á upphafsreitinn að nýju,“ segir
Rúnar Þór. Hann var að senda frá
sér plötuna Að mestu. Á henni eru
lög af tveimur fyrri plötum hans,
Eyðimerkurhálsum og Tryggð og ný
lög að auki.
„Mér fannst rétt að gefa út það sem
mér virðist helst hafa staðist tímans
tönn á þessum tveimur plötum,“ segir
Rúnar. „Þessi lög hafa ekki verið fá-
anleg á geisladiskum og raunar verið
ófáanleg á plasti í fjögur ár. Meðal
þeirra eru Brotnar myndir og 1.12.87.
Þá er ég með tvö ný lög við texta
Heimis Más. Þau heita Fossar og Mið-
bæjarhjartað. Að auki hafði ég með
Hörður Torfason - Gull:
★ ★ ★ ★
Lifandi plata sem okætt er aö mæla
með, skemmtileg blanda af leiftrandi
lifsgíeöi og ljúfsárum trega. -SMS
Paul Young - The Crossing:
★ ★ ★
Platan er tileinkuð minningunni um
trommuleikarann Jeff Porcaro og er
tvímælalaust verðugur minnisvarði um
hann. -SÞS
Steve Vai - Sex and Religion:
★ ★ ★
Tónlistin á Sex and Religion er
kraftmikið rokk, hvergi gefið eftir frá
fyrsta lagi til hins síðasta. -ÁT
Boo Radleys - Giant Steps:
★ ★ ★ ★
Hér er komin ein af betri plötum ársins
1993 og ómögulegt að gera upp á milli
laganna 17 sem prýða Giant Steps.
-SMS
Ýmsir- Diskóbylgjan:
★ ★ ★ *
Diskóbylgjan er sennilega sú plata sem
gefur heillegasta mynd af því sem gekk
á diskótekum landsins á þessum
umdeilda tima. -ÁT
Ýmsir- Rokk í Reykjavík:
★ ★ ★ ★
Hér má heyra tónum skrýdda sögu af
því þegar bílskúrsböndin kúventu
íslensku tónlistarlífi og bjuggu til
íslenska nýbylgju. -SMS
Dave Grusin
- The Firm:
★ ★ ★
Lög Grusin eru djass og blús. Það
kemur á óvart að tónlistin missir ekki
hinn myndræna kraft þegar eingöngu er
hlustað á hana. -HK
lagið Hvlt orð sem kom út á plötu til
styrktar Sophiu Hansen fyrir tæpu
ári.“
Rúnar Þór hefur valið sömu leið og
ýmsir aðrir tónlistarmenn að undan-
fomu og gert dreifingarsamning við
fyrirtækið Japis. Hann segir að
fyrirkomulagið sé mjög hagstætt.
Fyrirtækið borgi framleiðslukostnað
geisladiskanna og síðan stjómi hann
útgáfumálunum að öðm leyti sjálfur.
„Manni líður hundrað sinnum betur
Ijpföugagnrýni
Paul Simon - Anthologi:
★ ★★
Frábær
listamaður
Paul Simon er tvímælalaust einn
af allra merkustu tónlistarmönnum
samtímans. Þessi staðreynd verður
með því að hafa hlutina svona en með
gamla laginu," segir hann.
Eins og smurð vél
Rúnar Þór segir spilamennsku hjá
sér og hljómsveit sinni í ákaflega
föstum skorðum. „Maður spilar um
hveija helgi eins og raunar síðast-
liðin níu ár,“ segir hann. „Ég hef í
mesta lagi sleppt úr einni helgi á ári.
Fyrirkomulagið er að verða næstum
jafn vel smurt og hjá hljómsveit
Geirmundar. Ég er einu sinni i
mánuði á Ránni í Keflavík, fer á fimm
til sex vikna fresti í Sjallann á
Akureyri, er reglulega á Rauða
ljóninu og fylli síðan upp í með
spilamennsku á Siglufirði, Isafirði, í
Vestmannaeyjum og víðar.“ Með
Rúnari Þór í eru í hljómsveitinni þeir
Jónas Björnsson, Örn Jónsson og
Lárus Grímsson. -ÁT-
Rúnar Þór segir að sér líði hundrað
sinnum betur en fyrr við að hafa stjóm
á útgáfumálum sínum á ný.
DV-mynd BG
AuífioiopB
manni glögglega ljós þegar safn
eins og þetta sem hér er til
umfjöllunar er skoöað. Allur sá
fjöldi klassískra dægurlaga, sem
Simon hefur samið í gegnum tíðina,
er ótrúlega mikill.
Fyrri platan samanstendur af lög
um frá því Simon og Art Garfunkel
félagi hans slógu fyrst I gegn 1966
og nær líka yflr sólóferil Simons
fram til 1983 er platan Hearts and
Bones kom út. Síðari platan inni
heldur aðallega lög af plötunum
Graceland og The Rythm of the Sa
ints. Að auki er eitt lag sem ekki
hefur áður komið út og tvö lög af
tónleikaplötunni Paul Simon’s
Concert in the Park.
Fyrir mína parta heföi ég kosið
að gera ferli Simons með Garfunkel
betri skil í safni sem þessu. Til
dæm is eru fimm lög af plötunni
The Rythm of the Saints í þessu
safiii og með allri virðingu fyrir
þeirri plötu jafnast hún ekki á við
það besta sem Simon gerði með
Garf unkel. Hins vegar er fyllilega
eðli legt að hafa sjö lög af Graceland
í safiiinu því sú plata er ein merk-
asta plata síðari ára og ein af bestu
plöt um rokksögunnar.
Sólóferli Simons eru annars gerð
nokkuð eölileg skil, Simon var iðn
astur við kolann fyrst eftir að hann
og Garfunkel hættu samstarfi en
eftir 1976 fór hann að róast og frá
því ári fram til 1983 gaf hann aðeins
út þrjár plötur. Nú eru komin þrjú
ár síðan platan The Rythm of the
Saints kom út svo það fer að koma
tími á nýja plötu. A meðan geta
menn yljað sér við þetta safn sem
gefur allgott yfirlit yfir feril frábærs
listamanns.
Sigurður Þór Salvarsson
Herbert Guðmundsson
- Being Human:
Góðir sprettir
Herbert Guömundsson hitti í
mark svo að um munaði þegar
hann sendi frá sér plötuna Dawn Of
The Human Revolution um miðjan
síð asta áratug. Lagið Can’t Walk
Away varð fimavinsælt og nokkur
önnur lög af þlötunni heyrðust
einnig oft í útvarpi. Áður var
Herbert reyndar búinn að undirbúa
jarðveginn með plötu sem hann
sendi frá sér með hljómsveitinni
Kan. Af henni varð lagið Megi sá
draumur vinsælt.
Ekkert lag á nýju plötunni, Being
Human, stenst Can’t Walk Away
snúning. Þar eru þó nokkur sem
vinna vel á við hlustun, einna helst
Our Love Is Real, Someone To Hold,
I Need Love og jafhvel Life’s A
Circle eftir að maður hefur vanist
háum söng Herberts í því.
Being Human ber þess merki að
nostrað hefur verið við hana. Hún
er fjölbreytt. Herbert býður jöfnum
höndum upp á rokk, popp, fönk og
róleg lög. Allir textar eru á ensku
og fjalia flestir um ástina. Sumir
eru þokkalegir en einstaka afar
slakir og draga plötuná niður.
Svo langt var liðið frá því að Her
bert Guðmundsson sendi síðast frá
sér plötu að maður bjóst ekki við
því að heyra meira úr þeirri átt
inni. Being Human sannar að Her
bert er sprelllifandi. Hann mætti að
skaðlausu láta líða færri ár þar til
næsta plata kemur.
Ásgeir Tómasson
Bubbi Morthens - Lífið er Ijúft:
r ★ ★ ★
Astarjátning
Það er jafh víst að haustið færi
landsmönnum plötu með Bubba
Morthens og að laufin falli af tiján
um. Þannig hefur það verið undan
farin sjö ár að minnsta kosti og í
flest skiptin hefur Bubbi sent frá
sér metsöluplötur. Enn virðist
Bubbi fmna nýja leið að hjörtum
lands manna því platan Lífið er
ljúft sýnir hann í hörkuformi.
Bubbi er sem fyrr leitandi í list-
sköpun sinni og í þetta skiptið er
það ljúfsárt kántri og ólgandi bít
kreólatónlistar sem er viðfangs-
efnið. Hann er meðvitað ur um
nauðsyn þess að róa á ný mið til að
staðna ekki sem tónlistar maður.
Það er hreint með ólikindum
hvað maðurinn getur framleitt af
skot heldum lögum og með Eyþór
Gunn arsson við takkana er ekki
við öðru að búast en frábæru verki
sem þessi plata vissulega er. Þetta
er hiö dína míska dúó sem líkt og
knattspymu þjálfari og fyrirliði ná
því besta út úr liði sínu. Þannig
hefur t.d. Guð mundur Pétursson
gítarleikari sjaldan átt jafh frábæra
spretti.
Lífið er ljúft tileinkar Bubbi konu
sinni og bömum. Hann opnar sig á
einlægan hátt og játar fjölskyldunni
ást sína. Lög eins og Sem aldrei
fyrr, Það er gott að elska, Leiðin til
San Diego og Útsýnið er fallegt em
allt ljúfar ástarballöður og skemmti-
leg er líkingin um konuna og fjallið
í síðastnefnda laginu. í raun er
þessi plata trúarjátning Bubba
Morthens. Hún sýnir trú hans á
lífið, ástina og fegurðina í tilver-
unni. Skilaboðin em hógvær en
skýr. Ræktaðu garð inn þinn og það
er gott að vera til.
Snorri Már Skúlason