Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1993, Side 3
FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993
33
tónli0t
frá stríðsárunum
Tónleikar Borgardætra síðastliðið
vor á Hótel Borg nutu svo mikilla
vinsælda aö þær ákváðu að taka
þráðinnmpp að nýju i haust og nú er
komin frá þeim geislaplatan Svo
sannarlega með gömlum slögurum
frá stríðsárunum, eins og til dæmis
lögum Andrews-systra.
„Upphaflega ætíuðum við bara að
hafa eina sýningu en það var uppselt
og því urðu sýningamar fleiri í vor.
Viö fórum svo að koma fram aftur í
haust og vorum þá fimm, við þrjár
og bassaleikari og píanóleikari. Helst
myndum við vilja koma fram með
Zetuliðinu öllu en vegna kreppu-
ástandsins í landinu er það ekki
alltaf hægt,“ segir Ellen Kristjáns-
viKunnar
dóttir, ein Borgardætra, en hinar
tvær eru Andrea Gylfadóttir og Berg-
lind Björk Jónasdóttir.
Lögin á plötu
í einum grænum
Þar sem þær urðu varar við
mikinn áhuga ákváðu þær að skella
lögunum á plötu í einum grænum og
var það gert á fjórum dögum. Allir
textamir eru á íslensku.
„Aðalvandinn vegna tímaskorts
var að fá texta. Við vorum svo heppn-
ar að fá frábæra menn til að vinna
textaria fyrir okkur, þá Þórarin
Eldjárn, Guðmund Andra, Þránd
Thoroddsen og Einar Thoroddsen.
Andrea Gylfadóttir á einnig einn
texta á plötunni," segir Ellen.
Hún tekur það fram að Eyþór
Gunnarsson hafi stjórnaö Borgar-
dætrum af mikilli fagmennsku.
Kjartan Valdimarsson hafi svo
hlaupið í skarðið þegar Eyþór þmfti
að fara utan í haust.
Ofboöslega gaman
Borgardætur eru með mjög ólíkan
tónlistarbakgmnn og hafa fengist við
ýmiss konar tónlist um dagana.
Sjálf hefur Ellen verið mikið í
poppi og djassi. Andrea Gylfadóttir
er löngu þekkt fyrir söng sinn með
Todmobile. Berglind Björk Jónas-
dóttir hafði verið minna í sviðs-
ljósinu en hún hefur tekið þátt í
ýmsum sýningum á Hótel íslandi,
auk þess sem hún tók þátt í
sýningunni Kötu á Akureyri.
Gömlu stríðsáralögin falla þeim
ágætlega, að sögn Ellenar. „Við höf-
um ofboðslega gaman af þessu. Það
er líka óvenjulegt að þrjár söngkonur
með svona ólíkan bakgrunn komi
saman.“
Það hversu Borgardætur hafa
sjáifar gaman af að syngja saman
hefur ekki farið fram hjá tónleika-
gestum sem hafa hrifist með.
Það er nóg að gera hjá Borgar-
dætrum um þessar mundir og þær
hyggjast halda áfram aðsyngja fyrir
landannfyrstumsinn. „Á meðanþað
er eftirspurn höldum viö áfram,“
segir Ellen.
Hún segir þær ekki vera famar að
skipuleggja aðra geislaplötu. „En það
er til nóg af lögum svo það er aldrei
að vita. Við sjáum bara til.“
Tónlistargetraun DV og Spors
Tónlistargetraun DV og Spors er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
í og hlotið geislaplötur að launum.
Leikurinn fer þannigfram að í hverri
viku verða birtar þrjár spumingar
um tónlist. Fimm vinningshafar
hljóta svo geislaplötu í verðlaun frá
hljómplötufyrirtækinu Spori hf.
Að þessu sinni er það safnlaga-
platan Ýkt stöfF sem er í verðlaun.
Hér koma svo spumingamar:
1. Á plötunni Ykt stöíf er að finna
lagið Ég veit þú kemur í Qutn-
ingi Stjórnarinnar. Hvað hét
hljómsveitin sem gerði lagið
vinsælt á sínum tíma?
2. Dúóið Bong á lagið Heal Me á
plötunni Ýkt stöff. Hvaða þjóð-
kunnir listamenn skipa Bong?
3. Á plötunni Ýkt stöff er að fmna
lagið Ótíndir þjófar eftir Birgi
Jóhann Birgisson og Sigrúnu
Evu Ármannsdóttur. Hvað heit-
ir hljómsveitin sem þetta lista-
fólk leiðir?
Rétt svör sendist DV fyrir 16.
desember, merkt:
Lagið Ótíndir þjófar er eftir Sigrúnu
Evu Ármannsdóttur og Birgi Jóhann
Birgisson.
DV, Tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavik
Dregið verður úr réttum lausnum
16. desember og rétt svör verða birt
í tónlistarblaði DV 23. desember.
Hér eru svo birt rétt svör við get-
rauninni sem birtist 18. nóvember:
1. Svíþjóð
2. Þijár
3. Bandaríkjunum
JAPISS
tónlistardeild
Brautarholti og Kringlunni
Símar 625290 og 625200
Dreifing: Sími 625088
BARNABROS
Stórskemmtileg plata sem laðar fram
bros hjá börnum á öllum aldri.
PÁLL ÓSKAR
STUÐ
Nú byrjar fjörið, stuðpartýplata ársins.
YUKATAN
Safnar guðum
Sigurvegarar músiktilrauna færa okk-
ur á gullfati grimmdarrokk eins og það
gerist best.
SMIÐUR
JÓLASVEINANNA
Heillandi nýtt íslenskt jóla-barnaleik-
rit.
SÚKKAT
óúettinn Súkkat er nýgræðingur í
[ónlistarheiminum en sló í gegn í fyrra
Tieð lagi sínu „.í lauginni". Plata
;em kemur á óvart.
Bjárni Ara og Stormsker
OR-ÆVI
BJARNI ARA OG
STORMSKER
ÖR-ÆVI
Þegar öll sund virðast lokuð birtast
þeir félagar með timaþært innlegg í
poppsöguna.