Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1993, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1993, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NOMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð i lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Rússnesk lýðræðisskref Rússar hafa stigiö tvö mikilvæg skref í átt til lýöræö- is. Þeir hafa staðfest nýja stjómarskrá og kosiö til þings á lýðræðislegan hátt. Áöur var forsetinn eina stjómvald- ið, sem haföi lýðræðislegt umboð, en nú er einnig til þing og lagalegur grundvöllur fyrir lýðræðislegar leikreglur. Boris Jeltsín forseti getur ekki farið með nýja þingið á sama hátt og hið gamla, sem var arfur frá Sovétríkjun- um og átti lítið skylt við þjóðþing í vestrænum skiln- ingi. Nýja þingið hefur umboð frá þjóðinni til að fara með vald, sem skilgreint er 1 nýju stjómarskránni. Til þessa hefur skort samkomulag um, hver réði hverju í Rússlandi, af því að hin gömlu form frá Sovét- ríkjunum gerðu ekki ráð fyrir ágreiningi milli forseta og þings. Nú hafa valdsviðin verið skilgreind, svo að ósamkomulag milli forseta og þings fær fastan farveg. Rússar hafa samþykkt stjórnarskrá, sem veitir forset- anum svipuð völd eða heldur meiri völd en forseti Frakk- lands hefur í sínu landi, en til skemmri tíma í senn. Þetta era óvenjulega mikil forsetavöld, en rúmast þó bærilega innan ramma lýðræðislegrar hefðar Vesturlanda. Um leið og Rússar gáfu Jeltsín umboð til þess forseta- valds,.sem hann óskaði eftir, hafa þeir gefið honum skýra aðvörun í þingkosningunum. Nýja og lýðræðislega þing- ið verður honum þungt í skauti, því að umbótaöflin biðu ósigur fyrir afturhaldsöflum gamla og nýja tímans. Alvarlegasta og neikvæðasta niðurstaða kosninganna er sigur Vladimírs Zhírínovskí, sem hefur lýst grófari skoðunum en Hitler hafði á sínum tíma. Þær em bein ógnun við heimsfriðinn, ef hann fær völd á þinginu, og óbein ógnun, þótt hann verði bara í minnihlutanum. Afskræmd þjóðemishyggja Zhírínovskís, afturhald kommúnistaflokksins og landbúnaðarflokksins reyndust samanlagt hafa meiri hljómgrunn meðal Rússa en vest- rænn hugsunarháttur flokkanna, sem hafa staðið að eða stutt efnhagslegar umbætur á vegum Jeltsíns forseta. Þetta boðar ekki gott efnahagsástand í landinu og ekki gott samkomulag landsins við umheiminn. Þótt forsetinn sé valdamikill samkvæmt stjómarskránni, verður hann að taka tilht til þingsins og ná málamiðlunum við það, rétt eins og forseti Frakklands verður að gera. Ef farið verður eftir leikreglum stjómarskrárinnar, verður mynduð stjóm, sem gengur mun skemur fram í efhahagslegum umbótum en verið hefur að undanfómu. Þótt sú hemlum sé hið versta mál, er hún í fullu sam- ræmi við vilja þjóðarinnar í kosningunum um helgina. Jeltsín getur sjálfum sér um kennt, að svona fór. í kosningabaráttunni kom í ljós, að lýðræðishyggja hans er ekki vel þroskuð. Þjóðin hafði þvi ástæðu til að óttast hann og til að efla mótvægi við hann með því að velja sér þing, sem mun vafalítið reyna að binda hendur hans. Mestu máli skiptir, að kosið var á lýðræðislegan hátt. Rússar hafa því ekki bara forseta með umboð. Þeir hafa líka þing með umboð og þeir hafa leikreglur um skipt- ingu valdsins. Þetta era ekki síðri skref á lýðræðisvegi Rússa en forsetakosningamar vom fyrir tveimur árum. Vandséð er, að Jeltsín geti framvegis stjómað með til- skipunum eins og hann hefur haft tilhneigingu til að gera að undanfómu. Hann hefur fengið samþykktar leik- reglur, sem hann verður að fara eftir eins og aðrir, jafn- vel þótt ekki gangi allt í pólitíkinni eftir hans höfði. Á leikreglum verður smám saman reist lýðræðishefð, sem gerir Rússum kleift að skipta út stjómmálamönnum og þjóðmálalínum á vestrænan og átakalítinn hátt. Jónas Kristjánsson —-- Greinarhöfundur segir þekkingarlegan, upplýsingalegan og skipulagslegan viðbúnað þjóðfélagsins gegn samdrætti vera í skötuliki. - Frá stofnfundi Félags atvinnulausra á sl. ári. Atvinnuleysi og niðurlæging Einn fylgikvilli þess atvinnuleys- is og þess skipulags sem komið hefur verið upp til að taka á því er sá að fjöldi fólks þarf að þola þung- bæra og oft illskiljanlega niðurlæg- ingu af ýmsum toga. Atvinnubótavinna eða bótaleysi Eitt af því sem verkar niðurlægj- andi er það þegar fólki er misboðið með því að skylda það til þýðingar- lítillar vinnu sem það er óvant og óþjálfað til að sinna. Vera bótalaus ella. Nú er það svo að undirritaður er alfarið þeirrar skoðunar að það eigi að vera nánast undantekningar- laus regla að þeir sem missa hefð- bundin störf vinni fyrir því fé sem þjóðfélagið reiðir fram í formi at- vinnuleysisbóta. Skapi þannig auk- in verðmæti í stað þess að sitja í iðjuleysi. Haldi því sambandi við annað fólk sem vinna ein getur veitt. Tryggi um leiö vissa og hugs- anlega verulega vöm gegn því and- lega áfalli sem missir hefðbundinn- ar atvinnu er fyrir flesta. Núverandi fyrirkomulag, þar sem bætur eru greiddar til fólks án þess að nokkurt framlag komi í staðinn, er óeðlilegt og andstætt lögmálinu um gagnkvæmni. Lögmáli sem er ein meginstoð heilbrigðs samfélags.' Krafan um vinnuframlag má þó ekki að leiða til þess að fjölda fólks sé misboðið stórlega með því að neyða það til að vinna verk sem em ekki samboðin þjálfun þess, reynslu og menntun. Það er óafsakanlegt ef Kjallariim Jón Erlendsson yfirverkfræðingur, Upplýsinga- þjónustu Háskólans ekki er reynt allt sem fært er til aö verkin, sem unnin era, nýti til hins ýtrasta þann mannauð sem er á lausu á samdráttartímum. Þegar fólk með langvarandi reynslu úr atvinnulífinu og mikla menntun er sett í tilgangslitla jarðvinnu er rétt aö huga að „uppskurði á kerfinu" sem slíkt heimtar. Lítill viðbúnaður-fábreyttar hugmyndir Fljótgert að benda á þaö hvar meinið Uggur. Hinn þekkingarlegi, upplýsingalegi og skipulagslegi viðbúnaður þjóðfélagsins gegn samdrætti er í skötulíki. Hugmynd- irnar um það hvaða verk þarf að vinna eru fáar og fábreyttar. Enn færri eru áætlanirnar um fram- kvæmd þessara hugmynda. í gamla daga lærðu menn að lest- ur af Biblíunni. Ekki sakir þess, eins og einhverium gæti hug- kvæmst, að hún hafi verið besta lestrarbókin sem völ var á heldur vegna þess að hún var eina bókin sem var til á bænum. Á sama hátt búa menn í dag við það fráleita ástand aö fábrotnar og fátæklegar hugmyndir manna um nýtingu vinnuafls þeirra atvinnu- lausu leiða til þess að fjölda fólks er svo misboðið meö þeim verkefn- um sem völ er á að það kýs frekar að draga fram lífið án bóta en að vinna þessi verk. Þessu ástandi er auðvelt að breyta og það er allra hagur að því verði breytt. Vilji og fyrirhyggja er allt sem þarf. Jón Erlendsson „Núverandi fyrirkomulag þar sem bæt- ur eru greiddar til fólks, án þess að nokkurt framlag komi 1 staðinn, er óeðlilegt og andstætt lögmálinu um gagnkvæmni.“ Skoðanir annarra Bankakerf ið tekur við sér „Aðferð ríkisvaldsins til að hrinda vaxtabreyt- ingunni í framkvæmd var einfaldlega sú að lækka vexti á spariskírteinum ríkissjóðs í 5%. Þær afleið- ingar er vænst var í kjölfar vaxtalækkunarinnar hafa nú að nokkru leyti komið fram . Bankakerfið hefur tekið við sér og vextir teknir að lækka til hags- bóta fyrir atvmnulífið og einnig fólkið í landinu." ÞI í forystugrein Dags 9. des. Þrasið við skattyf irvöld „Sjaldan er spurt um kostnað fyrirtækjanna sem þurfa að eyða ómældri orku og miklum fjármunum í að svara skattyfírvöldum. Útlagður kostnaöur hleypur auðveldlega á bilinu 200 þúsund upp fyrir eina milljón hjá hveriu fyrirtæki sem telst í hundrað- um milljóna fyrir fyrirtækin í eftirlitsátakinu. En dýrast er þó aö hafa bestu stjómendur landsins upp- tekna við að þrasa viö skattyfirvöld í stað þess að hagræða og auka verðmætasköpun í fyrirtækjum sínum.“ Vilhjálmur Egilsson alþm. í Mbl. 11. des. Nýr vettvangur breytti engu Þegar minnst er á hugmyndir um valddreifingu og hverfastjómir í borginni fellur minnihlutaflokk- unum - nema Kvennalistanum - allur ketill í eld... „Fólk hefur spurt hvað orðið hafi um sameiningar- neistann sem kviknaði með Nýjum vettvangi. Svariö er einfalt. Nýr vettvangur sameinaði enga og breytti engu. Neistinn var kæfður í fæðingu. Framboð Nýs vettvangs klauf reyndar Alþýðubandalagiö í Reykja- vík og varð til þess að Alþýðuflokkurinn bauð ekki fram í eigin nafni, en niðurstaðan varð hin sama og fyrr. Þórunn Davíðsdóttir stjórnmálafræðingur í Pressunni 9. des.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.