Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1993, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1993, Page 4
44 A FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER1993 _> ^ _ ------------------------------------------------------------------------------ " -------------- I t@nlist dv ------------------------------------------------------------------------------------------ og Árið sem senn geispar golunni var um margt hið ágætasta i tónlistarlegu tilliti. Fjölbreytni í íslenskri plötu- útgáfu var með meira móti og gæðin þegar á heildina er litið vel yfir meðallagi. Það voru tveir fyrrverandi meðlimir Sykurmolanna sem stálu senunni með plötum sem komu út í júní. Björk Guðmundsdóttir sendi frá sér sólóplötu sem beðið hafði verið með óþreyju og sú olli fáum von- brigðum. Björk vann Debut algerlega á eigin forsendum óbundin af lög- málum markaðarins og útkoman var persónuleg plata sem var frábmgðin flestu því sem menn höíðu heyrt áður. Jass, danstónlist, indversk strengja- tónlist og hörpusláttur voru þeir ólíku litir sem Björk hrærði saman á Debut. Platan var djörf tilraun sem gekk upp og ekki er að efa að Björk verður áberandi í uppgjörum er- lendra tóniistarblaða á áramótum. Með Debut náði hún ámóta athygli og Sykurmolamir með Life’s too Good áriö 1988 og er sala á Debut komin í tæpa mifljþn eintaka í heiminum öllum. Björk er listamaður sem kastar gönflum gfldum, þorir að fara eigin leiðir og uppsker samkvæmt því. Sigtryggur Baldursson i gervi Bogomfls Fonts er annar tónlist- armaður sem sló í gegn á árinu en ólíkt Björk náði frægð hans lltt út fyrir landsteinana. Bogomil og hljómsveitin Mifljóna- mæringarnir fengu hita í freðna fætur mörlandans með suðrænum tónum sem hægt var að heyra í danshúsum um land allt í sumar og á plö’tunni Ekki þessi leiðindi sem tekin var upp í Hlégarði (Costa del Mosó) í marsmánuði. Platan innihélt fjórtán standarda og eitt frumsamið lag. Stemmningin í bandinu og umgjörðin öll hreif fólk inn í heim taumlausrar gleði þar sem ellibelgir og bijóstmylkingar upplifðu sjálfa sig sem meistara í suður-amerískum dönsum. . V k 4 Fjölskylduóður Tveir af ástsælustu söngvurum landsins voru á hjartnæmum nótum fyrir þessi jól og tileinkuðu fjöl- skyldum sínum plötur sinar. Bubbi Morthens opinberaði sjálfan sig sem hamingjusaman fóður og eiginmann á plötunni Lífið er ljúft sem er gripur af háu kalíberi. Og Stefán Hflmarsson sendi frá sér plötu með svipuðum titli en Líf heitir fyrsta sólóplata hans og þar svífur andi soul-tónlistar yfir vötnum. Líf er einlægur ástaróður tfl fjölskyldunnar og þó fátt komi á óvart á plötunni er hún vönduð í alla staði. Todmobfle setti punktinn aftan við farsælan ferfl með plötunni Spfllt og þar með hverfur ein sérstæðasta hljómsveit síðustu ára af sjónar- sviðinu, tímabundið að minnsta kosti. Todmobile þekkir sinn vitjun- artíma og eftir fjórar plötur á jafn- mörgum árum gefur sveitin sjáífiun sér og öðrum frí. Á sama tíma og Todmobile skríður í híði fljúga aðrar hljómsveitir hærra en áður og eru Ný dönsk og Jet Black Joe gott dæmi. Ný dönsk hleypti skáldafáknum á Hun- angi þar sem andstæðurnar skapa hefldstætt og íjölbreytt verk. Hunang er allt í senn; sæt, þung, gróf og ljúf. Meðlimir Jet Black Joe klæddust hins vegar messuskrúða á You Aint Here og rokkuðu á háu nótunum. You Aint Here er plata sem er líkleg tfl að skola Jet Black Joe á ókunna strönd þar sem tfljómsveitin mun starfa í fram- tíðinni. Af öðrum ungum sveitum vakti Lipstick Lovers athygli með sinni fyrstu plötu, sömu sögu er að segja af Bubbleflies og safnplatan Núll og Nix færði mönnum heim sanninn um að fleira er að finna í bílskúrum landsins en blikkbeljur. Diskóplata Páls Ósk- ars Hjálmtýssonar var skemmtfleg viðbót í flóru íslenskrar dægurtón- listar og þá var húmorinn i lagi hjá hinum glaðbeitta tvíbreiða trúbador sem gegnir nafninu Súkkat. KK-band gerði ágætlega í að fylgja eftir met- Todmobile setti punktinn aftan við farsælan feril með plötunni Spillt og þar með hverfur ein sérstæðasta hljómsveit síðustu ára af sjónarsviðinu. DV-mynd GVA söluplötunni Bein leið með Hotel Föroyar. Hér hefur aðeins verið stiklað á því markverðasta á tónlistarárinu 1993 og kannski ýmsu sleppt sem réttflega ætti heima í yfirreið sem þessari. Svo sem eins og floppi ársins sem skrifast á endurkomu Pelican í sviðsljósið. Að ósekju hefði einhver mátt setjast á stélfjaörir Pelican á útmánuðum, enda flugfjaðrirnar ónýtar eins og kom á daginn. SMS Bogomil Björk - hápunktar tónlistarársins 1993 ]þl@tugagnrýni v ► v *------— Phil Collins- Both Sides ★ i. Mesta púðrið búið Heldur er Phil kallinn Collins farinn að láta á sjá eftir margra ára sjóbissness. Honum er vissulega fjölmargt til lista lagt, eins og að leika á öll hljóðfæri á þessari plötu, en platan ber þess einnig merki að hér er á ferðinni maður sem er búinn með mesta púðrið. Hann hefur fyrir nokkru dottið niður á pottþétta uppskrift að angurværum lögum sem öll hljóma meira og minna eins og hér hefúr ljósritunarvélin verið notuð ótæpilega. Þetta eru ósköp faileg lög mestanpart en þar eð þau eru ölí í sama stflnum renna þau út í eitt og niðurstaðan verður sú að það er engu líkara en að það sé bara eitt lag á plötunni; eitt langt lag með örlitlum áherslubrevtineum hér oe bar. En þetta er huggulegt að hafa gjálfrandi í bakgrunninum á hugljúf- um kvöldstundum. Sigurður Þór Salvarsson Borgardætur - Svo sannarlega Svo sannarlega gott Undanfarin ár hefur mikil fortíðar- fikn gripið um sig í tónlistarlífi á íslandi og reyndar víðar. í fyrstu var mestanpart um afturhvarf til Bítlanna að ræða en nú upp á síðkastið liggur leið sumra enn lengra aftur í tímann. Bogomil Font og félagar ruddu brautina í sumar sem leið og nú eru tvær plötur á jólamarkaðnum hérlendis sem innihalda tónlist frá því um og fyrir miðja öldina. Önnur er plata Móeiðar Júníusdóttur en hin er plata þeirra Borgardætra sem hér er til umfjöllunar. Borgardætur eru þær söngkon- umar Andrea Gylfadóttir, Ellen Kristjánsdóttir og Berglind Björk Jónasdóttir. Þær hafa skemmt borgarbúum á Hótel Borg með söng og hljóðfæraslætti undanfarið misseri og viðtökur verið með þeim hætti að nú er kominn tími til að leyfa fleirum að njóta. Fyrirmynd þeirra Borgardætra eru hinar bandarísku Andrews systur sem gerðu garðiim fræean á siötta áratuenum oe voru hvað kunnastar fyrir feiknagóðar og samstflltar raddir. Það sama er uppi á teningnum héma, söngurinn er aðalsmerki plötunnar, raddimar em frábærlega slipaðar saman og er það Eyþór Gunnarsson sem á heiðurinn af raddútsetningum þó að auðvitað eigi söngkonumar mestan heiðurinn. Þar kemur Berglind Björk mest á óvart því löngu var vitað að Andrea og Ellen væm úrvalsdeildarsöngkonur, en Berglind Björk stendur þeim ekkert að baki nema síður sé. Lögin sem hér em flutt em öll gamalkunnir slagarar, sem sumir hveijir hafa vissulega ekki heyrst mikið opinberlega á síðari árum. Þetta em allt lipur og skemmtileg lög og það má greinflega heyra á plötunni að söngkonumar skemmta sér prýðilega við að syngja þau. Rúsínan í pylsuenda plötunnar em svo textamir en það er tfl mikillar fyrirmyndar að hafa fengið islenska texta við þessi lög. Höfúndamir em héðan og þaðan, Þórarinn Eldjám, Einar Thoroddsen, Þrándur Thoroddsen. Raenheiður Ásta . Pétursdóttir, Guðmundur Ámi Thorsson og Andrea Gylfadóttir. Eins og við er aö búast frá öllu þessu andans fólki era textamir settir saman af mikilli list og ekki skemmir fyrir að sumir þeirra em bráð- spaugilegir. Hljóðfæraleikur á plötunni er í höndum þeirra Eyþórs Gunnarssonar, Matthíasar Hemstocks, Þórðar Högnasonar, Sigurðar Flosasonar, Viðars Margeirssonar og Össurár Geirssonar og eiga allir þessir menn sinn þátt í að gera þessa plötu að þeirri afbragðs skemmtun sem hún er. Sigurður Þór Salvarsson Ýmsir — Ýkt stöff ★ ★ Pís of keik langbest Blandaðar safhplötur, þar sem íslensk lög em höfð í bland við erlend, hafa mtt sér til rúms á síðari árum. Þessar plötur hafa verið afskaplega misjafnar að gæðum enda vandi að velja nokkur lög saman svo vel fari. Sömuleiðis hafa lögin verið mjög misjöfn að gæðum eins og gengur og gerist. Á Ýktu stöffi em 16 lög og þar af em sjö innlend en níu erlend. Yfírbragð plötunnar er frekar dansvænlegt þótt inni á milli séu lög sem afls ekki flokkast undir þá kategoríu. Tvö innlendu laganna era gömul í nvium búninei. Fvrst er bað Stiómin meö ágæta útgáfu af gamla Trú- brotslaginu, Eg veit að þú kemur, og svo em Lipstick Lovers með ósköp tilþrifalitla útgáfu af Play That Funky Music. Þá er hliðarhljómsveit þeirra Þorvalds Þorvaldssonar og Móeiðar Júníusdóttur, Bong, með þokkalegt danslag en ég get ekki að því gert að • mér finnst rödd Móeiðar ekki passa þessari tónlist. Þúsund andlit bjóða upp á danslag í mýkri kantinum sem skilur ekki mikið eftir en Pís of keik á hins vegar besta lag plötunnar að þeim erlendu meðtöldum. Þetta er hörkugott danspopp i rólegri kantinum, fín melódía og vel flutt. Þá er aðeins ógetið laga Dos Pilas og Bone China af þeim íslensku en lag þeirra fyrr- nefndu er pínleg órafmögnuð stæling á Jet Black Joe, en lag Bone China karakterlaust rokklag sem er hvorki fúgl né fiskur. Af erlendu lögunum má geta lags 2 Unlimited sem er allt að því í klassa með Pís of keik og lags Alice in Chains sem er virkflega gott rokklag í Seattlestilnum. -SÞS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.