Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1994, Blaðsíða 4
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994
r>v
Phil Collins er vinnusamur eins og fyrri daginn:
Skilaði plötunni Both Sides
langt á undan áætlun
'jfc
* ■ x .. •
4i
U
Phil Collins. Það verður líka að sinna dapurlegu hlutunum í Irfinu.
Síðustu vikur ársins 1993 fóru fyrst
og fremst í að fylgjast með útkomu
íslenskra hljómplatna. Miðað við
athyglina sem innanlandsmarkað-
urinn fær dagana fyrir jól mætti ætla
að ekkert markvert væri að gerast
utan landsteinanna. Þar gekk lífið
hins vegar sinn vanagang og ýmsar
áhugaverðar plötur komu út eins og.
á öðrum tímum ársins. Ein þessara
platna var Both Sides með Phil
Collins.
Sé hægt að tala um hina fullkomnu
sóló- eða einherjaplötu er Both Sides
það svo sannarlega. Phil Collins
samdiöUlögogtextaplötunnar. Hann
stýrði upptökunni, söng aUt sjáifur og
lék á ÖU hljóðfærin að auki. Lengra
verður vart komist í einherja-
mennskunni. Og að auki virðist
platan hafa orðið tU fyrir háifgerða
tUvUjun. PhU CoUins hafði ætlað að
helga leiklistinni krafta sína á slðasta
ári og snúa sér siðan að músíkinni á
þessu.
í ofanálag skilaðihann plötunni af
sér aUt of snemma! Útgefandinn hafði
ekki reiknað með því að fá hana í
hendumar fyrr en einhvem tíma á
fyrri hluta þessa árs. En fyrst platan
var tUbúin var hún að sjálfsögðu send
á markað og var með söluhæstu
plötum í Bretlandi og víðar síðustu
vikumar fyrir jól.
PhU CoUins segir að Both Sides hafi
orðið tU í ígripum, miUi þess sem
hann var að fást við aðra hluti. Hann
á hljóðver heima hjá sér í Surrey á
Englandi og þegar menn era á annað
borð vinnusamir er ágætt að labba út
í stúdíó og taka upp svo sem eitt lag
ef ekkert annað er um að vera. „Mér
lá ekkert á af fjárhagslegum ástæð-
um. Ég þurfti ekki að koma frá mér
plötu því að ég þyrfti að fá peninga í
flýti,“ segir hann. Raunar hef ég ekki
þurft að vinna af fjárhagsástæðum
síðan um miðjan síðasta áratug.
Platan var bara tUbúin og mér fannst
rétt að skila henni tU útgefanda þótt
ég þyifti ekki að gera það fyrr en eftir
hálft ár.“
Both Sides er fimmta platan sem
PhU CoUins sendir frá sér undir eigin
nafni. Sú fyrsta, Face Value, kom út
árið 1981. Sú næsta, HeUo, I Must Be
Going, var gefin út ári síðar. No
Jacket Required kom út 1985 og loks
kom platan But Seriously út síðla árs
1989. AUar hafa þær fengið mjög góðar
viðtökur. Sama má segja um Both
Sides þótt á henni kveði við nokkuð
annan og dapurlegri tón í textunum
en áður. Phil Collins hefur
skýringuna á því á reiðum höndum.
„Lífið er ekki eintómur dans á
rósurn," segir hann. „Eins og ég orða
það í einum textanum er ekki hægt
að brenna sumar brýr að baki sér.
Sumir draugar verða ekki kveðnir
niður. Svoleiðis er það bara. Mig
langaði tU að vera á þeim nótum. Búa
tU plötu fyrir þá sem eru daprir og
langar tU að hlusta á dapurlega texta
frekar en að láta einhvem hressa sig
við með bjartsýni og jákvæðum hug.
Svona plötur verða að vera tU líka,
plötur eins og Both Sides. Það eru
tvær hliðar á lífinu, önnur bjartsýn
og hressUeg, hin svartsýn og döpur.
Ég er að fást við þá hlið að þessu
sinni.“
vi
Iplgtugagnrýni
--P-T*----------
ÍXPÍRIÍNÍE THjlWHf
a*
w 1
' í
BETTE MIDIER
C. H k A I r S
Bette Midler
- Experience the Divine:
★ ★
Lögin úr Rose
eigulegust
Þeir eru ófáir söngvaramir og
söngkonumar sem hafa látið sig
dreyma um að verða
kvikmyndastjömur og tU eru dæmi
um öfuga röð á þessu fyrirbæri. í
langflestum tUvUrum hafa þessir
draumar orðið að martröð líkt og
dæmin um Madonnu, PhU CoUins,
Mick Jagger, Eddie Murphy o.fi. o.fl.
sanna. A þessu em þó heiðarlegar
undantekningar eins og tU dæmis
Barbra Streisand og að sumu leyti má
jafnvel flokka Bette Midler sem
listakonu sem hefur af verðleikum
náð langt bæði sem söng- og leikkona.
í minum huga er hún þó fyrst og
fremst góð söngkona og það kemur
einmitt vel frahi á þessari safhplötu
sem inniheldur mörg af hennar
þekktustu lögum gegnum tiðina.
Reyndar verður ekki annað séð en að
menn hafl átt í talsverðu basli með að
fyUa heUa plötu af aimennUegu efni
því sumt af þessu er ósköp
lítilfjörlegt.
En inn á mUli er að finna lög sem
sýna hvers Midler er megnug, lög
eins og þau sem hún söng í þeirri
ágætu kvikmynd Rose, sjálft titUlagið
sem er lítU perla og gamli smeUurinn
When a Man Loves a Woman úr
óborganlegri senu úr myndinni.
Þessi tvö lög halda þessu safhi uppi
og bera af þó hér séu líka margar
sykursætar melódíur eins og From a
Distance, Wind beneath My Wings og
Shiver Me Timber.
Sigurður Þór Salvarsson
Jackson Browne - l'm Alive:
★ ★ ★
Kominn aftur
heim
Eftir margra ára eyðimerkurgöngu
er Jackson Browne búinn að skUa sér
heim á ný á lífi, eins og hann segfr í
titiUagi þessarar plötu. Browne var
fyrir margt löngu mikUl gúrú og
guðfaðir kántrirokksveita eins og
Eagles og fleiri stórsveita í
kántrírokkinu. Sjáifur naut hann
engrar víðáttuhyUi en var þeim mun
meira metinn á bak við tjöldin og
hafði gífúrleg áhrif. Síðan lenti hann í
aUs kyns persónulegmn
hremmingum, missti konuna sína og
fleira og þá fór að haUa undan fæti í
tónlistinni. Hann reyndi að rokka og
poppa hana upp án árangurs en
meginvandamáhð var einfaldlega að
lagasmíðamar voru ekki svipur hjá
sjón.
Þess vegna er það mikið gleðiefni
fyrir gamla Jackson Browne
aðdáendur að heyra að hann virðist
vera að ná sér á strik, að minnsta
kosti er þessi plata sú besta sem hann
hefur sent frá sér í hartnær 15 ár.
Það sem gerir gæfumuninn er að
Browne er að semja nnklu betri lög
en hann hefur gert um langa hríð.
Hann er líka að róast aftur en hans
styrkleiki hefúr lengst af verið rólegri
lögin. Þá getur það haft sitt að segja
að hann hefur aftur tekið upp
samstarf við David Lindley en þeir
seni muna eftir laginu Stay af
tónleikaplötmmi Running on Empty
ættu að minnast þess hvemig þeir
Browne og Lindley fóm þar á kostum.
Við bjóðum Browne velkominn
heim en bíðum með að slátra
kálfinum.
Sigurður Þór Salvarsson
Sigtryggur dyravörður - Mr. Emty:
.. ★ ★ ★
Oflug
frumraun
Frumraun hljómsveitarinnar
Sigtryggs dyravarðar, Mr. Empty,
lofar góðu. Ekki síst þegar hafðar era
í huga þær aðstæður sem
hljómsveitin vann plötu sina við: á
átta rása upptökutæki í heimahúsi
nema hvað trommumar vora
hljóðritaðar í FÍH salnum. Þetta
minnir einna helst á ástandið eins og
það var áður en Hljóðriti og önnur
hljóðver landsins urðu til og plötur
voru teknar upp í tannlæknasal og
ýmsum öðrum salarkynnum
borgarinnar. Miðað við aðstæður er
hljómurinn á Mr. Empty ótrúlega
MR. EMPTY
Sigtryggur dyravörður
góður þótt dýptin hefði vissulega mátt
vera eilítið meiri.
Sigtryggur dyravörður er gegnheil
rokkhljómsveit. Jóhannes Eiðsson
söngvari hefur vart sungið annað en
rokk allan sinn feril og hefur
sennilega aldrei verið traustari en nú.
Jón Elvar gítarleikari er þama miklu
frekar á heimavelli en með Stjóminni
á sínum tíma. Eiður Alfreðsson
bassaleikari og Tómas H.
Jóhannesson trommari skila sínu
einnig með sóma - miðað við
aðstæður. Það eina sem skortir á
plötunni Mr. Empty era sterkari
laglínur. Öll tíu lög plötunnar eiga
vissulega rétt á sér og sér í lagi hið
fyrsta, Queen Of The Alley. En að
skaðlausu hefðu mátt vera eitt eða tvö
meira grípandi lög á plötunni. Þá
hefði Mr. Empty öragglega orðið ein
af eftirminnilegri plötum ársins 1993.
Ásgeir Tómasson