Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1994, Qupperneq 4
FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 1994
I t©nlist dv
A ► T *
Michael Cretu, öðru nafni Curly MC, enn á ferð:
Tónlist fyrir gáfumenn en
með barnslegu yfirbragði
„Enigma er hvorki listamaður né
hljómsveit. Miklu nær væri að tala um
hugmynd eða áætlun, segir rúmenski
tónlistarmaðurinn Michael Cretu.
Hann segir að með Enigma hafi einn
af æskudraumum sínum ræst. Draum-
ur um að stofna Enigma, tákn um
skapandi og tilraunakennda tónlist og
hann leggur hana fram fyrir hlust-
andann án nokkurra upplýsinga.
Það var fyrir fjórum árum sem
Michael Cretu sendi frá sér fyrstu
plötuna sem bar nafn Enigma. Platan
hét MCMXC (rómverskar tölur sem
tákna ártalið 1990). Á plötunni var
lagið Sadness Part 1 sem er betur
þekkt sem munkalagið. Það kom út á
smáskífu þá um haustið og sló í gegn
hjá útvarpsmönnum í ýmsmn lönd-
um. Flytjandinn var skráður Curly
MC. Curly þýðir krullaður eða
hrokkinn og er ensk þýðing á
rúmensku ættamafni Michaels. MC
er síðan fangamark listamannsins.
Þótt nafn hans sé lítt þekkt hér á landi
Jimi Hendrix - Stone Free:
★ ★ ★
Verulega eiguleg plata fyrir alla
Hendrixaðdáendur og reyndar miklu
fleiri. -SÞS
Elton John - Duets:
★ ★ ★
í heild er Duets vel heppnuð plata sem
vinnur á við hverja hlustun. Lög Eltons
eru bæði ný og gömul og sameinast í vel
heppnuðum flutningi. -HK
Sigtryggur dyravörður
- Mr. Empty:
★ ★ ★
Frumraun hljómsveitarinnar lofar
góðu og það eina sem skortir á plötunni
eru sterkari laglínur. -ÁT
Jackson Browne - l'm Alive:
★ ★ ★
Það er mikið gleðiefni fyrir gamla
Jackson Browne-aðdáendur að heyra að
hann virðist vera að ná sér á strik á ný.
-SÞS
Borgardætur- Svo sannarlega:
★ ★ ★
Söngurinn er aðalsmerki plötunnar og
raddimar eru frábærlega slipaðar sam-
an. Rúsínan í pylsuendanum eru textar
plötunnar sem eru til mikillar fyrir-
myndar. -SÞS
Björgvin Halldórsson og fleiri
- Kom heim:
★ ★ ★
Söngvaramir Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Guðrún Gunnarsdóttir, Egill Ólafsson
og Björgvin Halldórsson sýna öll spari-
hliðamar á plötunni. -ÁT
Ýmsír flytjendur
- Bítlar og blómabörn:
★ ★ ★
Bítlar og blómabörn er hið þokka-
legasta þversnið þess sem náði mestum
vinsældum á seinni hluta sjöunda ára-
tugarins. -ÁT
PS&CO
- Erkitýpur, streitarar & frík:
★ ★ ★
Plata sem tvímælalaust mætti heyra
meira af opinberlega. Hún fyllir upp i
ákveðið tómarúm í íslensku rokki -SÞS
- segir listamaðurinn um sköpunarverk sín
og svo til óþekkt í Bretlandi hefur
hann hins vegar getið sér gott orð á
meginlandi Evrópu og þá sér í lagi í
Þýskalandi þar sem hann býr ásamt
þýskri eiginkonu sinni, söngkonunni
Söndru. Þar af leiðandi þótti honum
rétt að nota ekki sitt eigið nafn heldur
dulnefni þegar Enigmaplatan kom út
til að fólk blandaði henni ekki við
nafn sitt og gæti metið tónlistina af
eigin verðleikum án þess að tengja
hana við listamanninn.
:pl©tugagnrýni
Mariah Carey - Music Box:
r ★ ★ ★
Aferðar-
fallegt
Mariah Carey semur og flytur afar
áferðarfailegt popp undir souláhrif-
um. Reyndar minnir hún oft á tíðum
á Whitney Houston en þegar grannt
er hlustað er þó eitt og annað sem
skilur þær að. Ég er ekki frá því að
Carey sé einlægari í flutningi sinum
og Houston þá yfirborðskenndari.
Vinsældir beggja eru miklar um
þessar mundir, sér í lagi vestanhafs,
og hefur Mariah Carey verið á toppi
bandaríska vinsældalistans síðustu
vikur með eitt lag plötunnar Music
Box.
Undirleikur laganna á Music Box
er að mestu leyti unninn í tölvum. Þó
bregður fyrir gítar og öðrum
gamaldags handknúnum fyrirbærum
eins og Hammond-orgeli hér og þar.
Þótt sá sem þetta ritar sé aila jafiia
ekki hrifinn af tölvudóti og kunni
best við handspilaða tónlist verður að
játast að músíkin á Music Box er
áferðarfalleg og snyrtileg og greini-
lega unnin af toppmönnum í sándum
og synþum. Lög Careys eru einnig
sterk mörg hver þótt sum séu
reyndar meðalmennskan uppmáluð.
Það kemur ekki að sök því að þau fá
sömu meðferð og hin sem sterkari
hafa laglínuna og því er heildin góð.
Lögin Dreamlover og Hero hafa notið
mestra vinsælda hingað til en önnur
eins og Music Box, All I ever Wanted
og jafnvel fleiri hafa góða möguleika
á að slá í gegn líka verði þau gefm út
á smáskífum.
Þá sómir gamla flugan Without
You, sem Harry heitinn Nilsson gerði
frægt á sínum tíma, sér ágætlega á
plötunni.
Ásgeir Tómasson
INXS - Full Moon, Dírty Hearts:
★ ★ ★
Það besta í
langan tíma
Fyrir allmörgum árum gaf
ástralska hljómsveitin INXS út sína
fyrstu plötu, „Listen Like Thieves".
Hljómsveitin þótti efnileg. Stuttu
síðar kom platan „Kick“ út og
hljómsveitin skaust upp á stjömu-
himininn með látum. Þrem plötum
síðar hefur hljómsveitinni ekki enn
tekist að endurtaka velgengni
þessarar einu plötu. Platan „Full
Moon, Dirty Hearts" kom á óvart til
að byrja með. Fyrsta smáskífan var
lagið „The Gift" og má segja að þar
hafi komið nýtt hljóð í strokkinn,
þyngra hljóð. Lagið er gott, en þó ekki
dæmigert fyrir það sem á plötunni er
að fmna. Hljómsveitin virðist hafa
leitað aftur til upprunans á þessari
plötu. í lögum eins og „Make Your
Peace“, „Time“, „I’m Looking For
The One“ og „Please You Got That“
(dúett með Ray Charles og eitt besta
lag plötunnar) hefur hljómsveitin
endurheimt ákveðinn sjarma og
hljómar vel fyrir vikið. Á öðrum
hlutum plötunnar má flnna blúsáhrif
og eitt fallegasta lagið á plötunni er
dúett með Chrissie Hynde sem ber
samnefhi plötunnar. Þegar á allt er
litið er platan það besta sem komið
hefur frá hljómsveitinni í mjög
langan tíma.
Guðjón Bergmann
Michael Bolton -The One Thing:
★ ★
Gjörsamlega
strand
Michael Bolton kom fram á
sjónarsviðið í Bandaríkjunum fyrir
nokkrum árum, feiknaöflugur
söngvari sem skipaöi sér umsvifa-
laust á stjömubekkinn. Þar hefúr
hann setið síðan, þvælst rnn á
slúðursíðum blaðanna og baðað sig í
sviðsljósinu:
En hvað með tónlistina? Hefúr
hann staðið undir þeim væntingúm
sem til hans vora gerðar?
Fyrir mína parta er svarið nei.
Hann hefúr vissulega sjarmerandi og
Leikurinn
endurtekinn
Platan MCMXC fékk hlýjar
móttökur víða um lönd, svo sem i
Bandaríkjunum, Grikklandi, Ítalíu,
Þýskalandi, Taiwan, Bretlandi,
Japan og Ástralíu.
Michael Cretu bendir á að hún hafi
hitt í mark á ólíkum menningar-
svæðum og þakkar það því að
tónlistin sé í senn við hæfi djúpt
hugsandi fólks og með einfaldri og
barnslegri tilfinningu. „Ég hóf að
vinna að þessu verkefni eitt sinn
þegar mig langaði til að brjóta allar
reglur og skapa eitthvað sem hvergi
var hægt að finna i plötubúðunum,
segir hann.
Nú endurtekur Michael Cretu
leikinn. Hann sendi nýlega frá sér
plötuna Cross of Changes sem var
hljóðrituð á Miðjarðarhafseyjunni
Ibiza. Cretu samdi öll lög plötunn-
ar. Hann annaðist upptökustjóm og
útsetningar og fékk hóp af góðu fólki
til að vinna að plötunni með sér.
Sandra kona hans sér um allar raddir
ásamt Angel og Louisu Stanley. Jens
Gad og Peter Comelius leika á
gitara og þá aðstoðuðu þeir E-Magic
og Euphonix við upptökur plötunn-
ar.
Lagið Return To Innocence af
plötunni hefur verið gefið út á
smáskífu og það stekkur einmitt hæst
allra nýrra á íslenska listanum að
þessu sinni.
-ÁT
öfluga söngrödd en maðurinn staðn-
aði nánast áður en hann byrjaði. Ég
er viss um að ókunnugur gæti ekki
sagt með vissu hvort væri fyrsta plata
Boltons, sú sem kom út fyrst eða sú
sem hann sendi frá sér skömmu fyrir
jól. Svo líkar eru þessar plötur og
reyndar aflar plötur hans að upp-
byggingu og karakter að engu er lík-
ara en að þær séu gerðar á sama
tíma.
Lögin eru hvert öðru keimlík,
mestanpart ballöður í angurvaérum
tón en til að hlustendur lognist ekki
alveg út af er takturinn þéttur á milli
í því sem hægt væri að kalla mjúkt
ballöðurokk.
Svo er eitt sem hægt er að ganga að
sem vísu á hverri plötu Michaels
Boltons en það er endurgerð hans á
einhverju gömlu lagi og að þessu
sinni er það gamla góða lagið hans
Biils Withers, Lean On Me, sem
margir hafa spreytt sig á. Utgáfa
Boltons er engin endurbót en lagið
stendur fyrir sínu. Það sama verður
hins vegar varla sagt um þessa plötu
Bolton í heild og hann þarf heldur
betur að taka sig saman í andlitinu ef
hann ætlar ekki að koðna niður smátt
og smátt hjakkandi í sama farinu
plötu eftir plötu.
Sigurður Þór Salvarsson