Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1994, Side 3
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994
29
tónli0t
1972 er lagið Without You slo i gegn um allan heim en undarlegt
nokk er það lag ekki eftir hann sjálfan. Þess má geta að þessa
dagana er þetta lag einmitt talsvert leikið í útvarpi í flutningi
Mariuh Carey. Nílsson dró sig í hlé frá tónlistariðkunfyrir 10 árum
og fékk hjartaáfall í fyrra sem hann náði sér aldrei almennilega
af og er það talið hafa dregið hann til dauða. -SþS-
vikunnar
Nemendafélag Verslunarskóla
íslands er ekki þekkt fyrir að ráðast
á garðinn þar sem hann er lægstur
hvað varðar uppsetningar á hinum
ýmsu söngleikjum. Meðál þeirra
söngleikja sem N.F.V.Í. hefur sýnt
eru Evita (1983), Rocky Horror Show
(1984), Hárið (1989) og Tommy (1993).
Nú er hins vegar komið að einni
djörfustu tilraun félagsins hingað til,
að minnsta kosti þegar fjármála-
hliðin er skoðuð. Það er söngleikur-
inn viðfrægi Jesus Christ Superstar
sem verður fyrir valinu að þessu
sinni. Alls eru það níutíu manns sem
taka þátt í uppfærslunni og mun
sýningin kosta litlar 4 milljónir.
Krefjandi
aðalhlutverk
Tónlistargetraun DV og Japis
Tónlistargetraun DV og Japis er
léttur leikur sem ailir geta tekið þátt
í og hlotið geisladisk að launum.
Leikurinn fer þannig fram að i hverri
viku eru birtar þrjár léttar spum-
ingar um tónlist. Fimm vinnings-
hafar hljóta svo geisladisk í verðlaun
frá fyrirtækinu Japis. Að þessu sinni
er það geisladiskurinn Hótel Foroyar
með KK sem er í verðlaun.
Þorsteinn Bachmann, leikstjóri verksins, og Þorvaldur B. Þorvaidsson sem tók að sér kórstjóm og útsendingar.
Þegar söngleikurinn var settur
upp í Austurbæjarbíói árið 1973 voru
aðalhlutverkin þrjú, Jesús, Júdas og
María Magdalena í höndum þeirra
Guðmundar Benediktssonar (þá
söngvara í Mánum), Pálma
Gunnarssonar og Shady Owens.
Sýningin sló í gegn og alls voru
sýndar um 40 sýningar fyrir hús-
fylli.
Fróðir menn segja að aðalhlut-
verkin séu í höndum ekki síðra
tónlistarfólks í dag. Það eru þau
Valgerður Guðnadóttir (María),
Björgvin Skúli Sigurðsson (Jesú) og
Guðmundur Aðalsteinsson (Júdas)
sem fara með aðalhlutverkin í
uppfærslu N.F. V.í. Öll þessi hlutverk
eru mjög krefjandi og eiga þau hrós
skilið fyrir áræði og kjark í þessu
tilfelli. Við eftirlátum leiklistargagn-
rýnendum þó að dæma frammistöðu
þeirra þegar þar að kemur.
Tónlist og
leikstjórn
Annað ár ið I röð var það Þorvaldur
Bjami Þorvaldsson sem tók að sér
kórstjóm og útsetningar fyrir Versl-
unarskólanema. Þorvaldur hefur
lengi verið kenndur við hljómsveit-
ina Todmobile, þó ekki sé hægt að
klína því á hann nú þar sem hljóm-
sveitin er hætt störfum. Þorvaldur
hefur skipað saman einvalaliði til að
sjá um undirleik í söngleiknum.
Hljómsveitarmeðlimir em: Ingólfur
Sigurðsson (trommur), Eiður Áma-
son (bassi), Tómas Gunnarsson
(gítar), Þorvaldur B. Þorvaldsson
(gítar), Rafn Jóhannesson (hljóm-
borð) og Pálmi Sigurhjartarson
(hljómborð).
Leikstjórinn er gamall versl-
unarskólanemi, Þorsteinn Bach-
mann að nafni, en hann útskrifaðist
úr Leiklistarskóla íslands um vor
árið 1991.
Sýningar á söngleiknum verða 3
talsins. Sú fyrsta í dag, þann 3.
febrúar kl. 13.00 (einungis fyrir nem-
endur) en almenningi gefst kostur á
að sjá sýninguna 6. og 7. febrúar fyrir
litlar 700 kr. í aðgangseyri.
Geislaplata og
útsendingar
á Sýn
Að venju em tekin upp lög og búin
til myndbönd tengd nemendamótum
skólans. Að þessu sinni hafa verið
tekin upp tvö lög í tengslum við
sýninguna. Þetta em lögin „Heaven
on Their Minds“ sem Guðmundur
Aðalsteinsson syngur fantavel og,„I
Don’t Know How To Love Him“ sem
Valgerður Guðnadóttir syngur eigi
síður. Myndband hefur veriö gert við
hið fyrmefhda.
Einnig er í deiglunni geislaplata
sem á að innihalda 5 lög frá þessu og
Að þessu sinni er það geisladiskurinn Hótel Foroyar með KK sem er í verðlaun.
DV-mynd Brynjar Gauti
fyrri nemendamótum. Platan verður
í takmörkuðu upplagi (1500 eintök)
og verðinu verður stiilt í hóf (500-700
kr. pr. eintak). Á geislaplötunni
verður að flnna lögin ,Easey to Be
Hard“ sem Alma Rögnvaldsdóttir
flutti í Hárinu 1989, „Tallulah" sem
Svanhildur Björgvinsdóttir flutti í
Bugsy Malone 1990, „Búkalú" sem
Óttar Pálsson flutti 1992, „Pinball
Wizard“ sem Björgvin Skúli
Sigurðsson flutti í Tommy 1993 og
síðast en ekki síst „Heaven on Their
Minds“ sem Guðmundur Aðalsteins-
son flytur Jesus Chris Superstar
þetta árið.
Einnig má minnast þess að
Verslunarskóli íslands hefur leigt
sjónvarpsstöðina Sýn í tvo daga þar
sem útsendingar hófust í gærkvöldi.
Ekki amalegt nemendamót þetta.
GBG
Hér koma svo spumingarnar:
1. Hvaða þekkti tónlistarmaður
var að gera samning við Japis
nýlega?
2. Hver var mest selda jólaplata
síðasta árs?
3. Björk situr á toppi íslenska
listans þriðju vikuna í röð með
lagið Big Time Sensuality. Af
hvaða plötu er lagið?
Rétt svör sendist DV fyrir 10.
febrúar, merkt:
DV, Tónllstargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum
10. febrúar og rétt svör verða birt í
blaðinu 17. febrúar.
Hér eru svörin úr getrauninni sem
birtist 13. janúar:
1. Reif á sveimi.
2. You Aint There.
3. Reif á sveimi.