Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1994, Page 4
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994
tnlist
DV
DV, Bylgjan og Kókfagna samstarfsafmæli:
Islenski listinn eins árs
Þann 28. janúar 1993 hóf íslenski
listinn göngu sína á ný eftir langt hlé.
Ný ímynd listans var sam-
starfsverkefni DV, Bylgjunnar og
Kók og fagna þessir aðilar nú eins árs
samstarfsafmæli og óska hlustendum
til hamingju með ársgamlan
islenskan lista. Flestir vita að maður
getur gengið aö listanum vísum í DV
og á Bylgjunni á fimmtudögum og að
hann er endurfluttur á Bylgjunni á
laugardögum.
Færri vita að á bak við 6 tíma
vandað útvarpsefni á viku eru 90-100
vinnustundir þar sem 20 manns
leggja hönd á plóginn. Enn færri vita
að Islenski listinn hefúr einnig fengið
viðurkenningu erlendis frá en við
hann er stuðst í útreikningum á
Heimslistanum (Radio World Chart).
Hvernig verður
listinn til?
Ferli listans byijar á laugardegi. Þá
setjast starfsmenn DV niður með 200
manna úrtak og 40 lagabrot og byrja
að hringja út. Hver könnun tekur 6-10
mínútur og fer þannig fram að
hlustendur fá að heyra þessi 40
lagabrot og gefa þeim einkunnir frá
0-5. Hlustendur velja að auki sín 3
Jimi Hendrix - Stone Free:
★ ★ ★
Verulega eiguleg plata fyrir alla
Hendrix-aödáendur og reyndar miklu
fleiri. -SÞS
Elton John - Duets:
★ ★ ★
í heild er Duets vel heppnuð plata sem
vinnur á við hveija hlustun. Lög Eltons
eru bæði ný og gömul og sameinast í vel
heppnuðum flutningi. -HK
Sigtryggur dyravörður - Mr.
Empty:
★ ★ ★
Frumraun hljómsveitarinnar lofar
góðu og það eina sem skortir á plötunni
eru sterkari laglinur. -ÁT
Jackson Browne- l'm Alive:
★ ★ ★
Það er mikið gleðiefni fyrir gamla
Jackson Browne-aðdáendui- að heyra
að hann virðist vera að ná sér á strik á
ný. -SÞS
Borgardætur- Svo sannariega:
★ ★ ★
Söngurinn er aðalsmerki plötunnar og
raddimar eru frábærlega slípaðar
saman. Rúsínan í pylsuendanum em
textar plötunnar sem eru til mikillar
fyrirmyndar. -SÞS
Björgvin Halldórsson og fleiri
- Kom heim:
★ ★ ★
Söngvaramir Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Guðrún Gunnarsdóttir, Egill ulafsson
og Björgvin Halldórsson sýna öll
sparihliðarnar á plötunni. -ÁT
INXS
- Full Moon, Dirty Hearts:
★ ★ ★
Þessi plata er það besta sem komið
hefur frá þessari áströlsku hljómsveit í
langan tíma. -GBG'
PS & C0 - Erkitýpur,
streitarar & frík:
★ ★ ★
Plata sem tvímælalaust mætti heyra
meira af opinberlega. Hún fyllir upp í
ákveöið tómarúm í íslensku rokki -SÞS
Fjölmargir leggja hönd á plóg við gerð
íslenska listans, Ágúst Héðinsson-sér
um handritsgerð, Jón Axel Ólafsson les
listann inn á band og Þorsteinn
Ásgeirson sér um upptökur, fram-
leiðslustjórn og samsetningu. Fjöl-
mennt starfslið á DV hringir einnig út á
laugardögum í hlustendur sem látnir
eru gefa vinsælustu lögunum einkunn-
ir.
DV-myndir Brynjar Gauti/Sveinn
r-“* 'J vfj■
Iþl@tugagnrýni
► ▼ 4
Concrete Blonde
- Mexican Moon
★
Jaðrar við
þunglyndi
Hljómsveitm Concrete Blonde á að
baki 5 breiðskifúr. Þetta segir
ýmislegt um hljómsveitina og sjöttu
plötu hennar, Mexican Moon. Platan
hefur að geyma fjórtán lög. Við
fyrstu hlustun rennur platan í gegn
eins og ekkert hafi gerst. Við aðra
hlustun komast þrjú lög í gegn (sem
eru fyrir ofan meðallag) en við þriðju,
fjórðu og fimmtu hlustun gerist lítið
meira. Þessi þrjú lög plötunnar eru
titUlagið Mexican Moon, Jonestown,
þar sem Jim Jones sjálfur flytur
áhrifamikla ræðu í byrjun, og Jesus
Forgive Me (For The Things I Am
About To Say). Afgangur plötunnar,
sem er heil níu lög, er viðburðalítill.
Þetta er kassagítarrokk og það er
Johnette Napolitano sem á heiðurinn
að flestum lögunum en hljómsveitin
sá sjálf um að útsetja. Melódíur
plötunnar eru kaffærðar með þungri
spilamennsku og almennt má segja að
aðalerindin nái aldrei að hefja sig
upp. Hljómsveitin heldur sig því við
meðalmennskuna og má segja að
platan jaðri við þunglyndi (þó hún
nái ekki þeim ágæta kosti).
Guðjón Bergmann
Atomic Swing
- „A Car Crash Into The Blue"
★★★
Einstakur
hljómur
Þeir svifa um i bláum skugga, sjá
allt í vínrauðri móðu, textagerðin er
slík að streitarinn fær svimakast en
þeir halda sig við taktinn, tvöfalda
bítið sem er þeim svo kært. Þetta er
stutt lýsing á sænsku hljómsveitinni
Atomic Swing sem snemma á síðasta
ári gaf út sína fýrstu plötu. Það.sem
grípur mann, alveg við fyrstu hlustun
er hljómurinn. Þetta magnaða
samspil vel hljómandi söngraddar,
melódísks gítars, tvöfalda bítsins og
Hammond orgelsins sem er allt að
fmna á fyrstu smáskífunni, „Stone
Me Into The Groove“. Afgangur
plötunnar er heldur ekki vonbrigða-
valdur og hljómurinn er sá sami.
Klæðaburðurinn er í stíl blóma-
bamanna og viðhorfm eru á sama
veg. Þessi unga hljómsveit sem
Atomic Swing er heldur sig við
óhefðbundnar hljómasamsetningar,
skrýtnar en samt áheyrilegar laglinur
og góða spilamennsku allt út plötuna.
Þó verður að viðurkennast að ekki er
allt jafn gott, en gott er það engu að
síður. Það eina sem þessi hljómsveit
mætti taka til athugunar er
takturinn, sem er mikið sá sami. Að
öðru leyti má segja að platan sé eitt
besta byrjendaverk ársins 1993.
Guðjón Bergmann
Together Alone
- Crowded House
★★★
Fyrsta
flokks
popptónlist
Rétt eins og við íslendingar hafa
hljómsveitir og einstaklingar frá
afskekktum heimshomum átt erfitt
uppdráttar á hinum alþjóðlega
poppmarkaði. Á þessu em þó ýmsar
heiðarlegar undantekningar og þar á
meðal er nýsjálenska/ástralska
hljómsveitin Crowded House. Hún sló
í gegn fyrir nokkrum árum með
stórgóðu lagi, Don’t Dream It’ s Over,
og hefur haldið velli síðan og bætt
uppáhaldslög. Þessi liður er settur
inn til að viðhalda ferskleika listans.
Allar þessar upplýsingar eru skráðar
af samstarfsmönnum DY niður á
miða sem minna einna helst á
lottómiða. Miðunum er síðan rennt i
gegnum tölvu sem reiknar að lokum
út listann. En þótt listinn sé kominn
er vinnan rétt að byrja.
Handritsgerð hefst á sunnudegi og
er hún í höndum Ágústs Héðinssonar
og Góðra punkta. Handritsgerðin
tekur u.þ.b. 2 daga, meðan verið er að
fmna til upplýsingar um þá listamenn
er listann prýða hverju sinni. Þeir
Jón Axel Ólafsson og Þorsteinn
Ásgeirsson taka síðan við handriti og
lista um hádegi á þriðjudegi. Jón Axel
les listann inn á band en Þorsteinn
sér um upptökur, framleiðslustjóm
og samsetningu. Þegar þetta allt er
tilbúið og uppsetningu listans hjá DV
er lokið er kominn fmuntudagur en
þá fer allur pakkinn inn um
bréfalúgur og út í loftið. Listinn er
síðan endurfluttur á laugardögum og
ferlið hefst á ný.
Marktækur listi
Vegna þess hve margir leggja hönd
á plóginn hefur íslenski listinn orðið
eitt vandaðasta útvarpsefni sem völ
er á um þessar mudnir. Samstarf
þessara þriggja aðila og ánægja
hlustenda hefur séð til þess að listinn
mun halda áfram í óbreyttri mynd,
öllum til ómældrar ánægju.
Það má líka segja að listinn sé
marktækari en aðrir listar sem unnir
hafa verið hér á íslandi og er það
vegna þess að það er fólkið í landinu
sem velur á listann og það er fólk sem
mark er á takandi
GBG
stöðu sína ef eitthvað er.
Að vísu hefur hún ekki styrkt
stöðu sína á vinsældalistum þar sem
vinsældir einstakra laga eru mældar;
hún hefúr miklu heldur sótt í sig
veðrið meðal gagnrýnenda og
undantekningarlaust fá plötur hennar
afbragðsdóma.
Á þessu verða engar breytingar
með þeirri plötu sem sveitin sendi frá
sér skömmu fyrir áramót, innihaldið
samanstendur af einstaklega fágaðri
og vandaðri, melódískri popptónlist
með örlitlu ívafi af hráu rokki og
ofan á þetta allt saman bætist
afbragðs söngur og raddanir.
Sá sem á heiðurinn af þessu sem
og fyrri verkum Crowded House er
náungi að nafni Neil Finn sem, eins
og heyra má af því sem hann lætur
frá sér fara er upprunninn frá
Bítlatimabilinu. Ahrifin þaðan eru
greinileg og þá ekki hvað síst í
útsetningum, bæði tónlistar og
kannski sér í lagi radda. Together
Alone er enn ein skrautfjöðrin í hatt
Crowded House og Neil Finn og þeir
sam hafa ánægju af vandaðri
melódískri popptónlist ættu ekki að
láta þessa plötu fram hjá sér fara.
Sigurður Þór Salvarsson