Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1994, Síða 3
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994
29
DV
Alvaran
skalhún
- stefnt að stórri plötu með haustinu
„Fyrstu drögin að þessari hljóm-
sveit urðu til í október eða nóvember.
Þá mistókst að stofna hana. En það
tókst í annarri tiiraun,“ segir Grétar
Örvarsson um nýja hljómsveit sína.
Hún heitir Alvaran og kemur í fyrsta
skipti fram opinberlega í Sjallanum
á Akureyri annað kvöld.
Með Grétari i hljómsveitinni eru
Jóhann Ásmundsson, Kristján
Edelstein, Sigfús Óttarsson og Ruth
Reginalds sem gengur nú til liðs við
hljómsveit í fyrsta skipti í langan
tíma. Jóhann lék i Stjórninni til
skamms tima og Kristján og Sigfús
hafa verið að vinna saman að tónlist
á Akureyri auk þess sem Kristján
kennir þar við tónlistarskólann.
- En nafnið? Hvemig skyldi það
vera til komið?
„Það er einfalt mál,“ svarar Grétar
og brosir. „Ég sá satt að segja fram
á mikil heilabrot og vangaveltur því
að það getur verið ótrúlega erfitt að
finna nöfn á hljómsveitir. Nafnið
Alvaran er satt að segja fengið að láni
hjá kunningja mínum sem er oft ansi
orðheppinn. Ég spurði hann um jólin
hvort hann ætti ekki gott hljóm-
sveitarnafn handa mér. Hann var
ekki alveg viss. Átti reyndar eitt
skráð. Ég velti nafninu fyrir mér í
viku og komst að lokum að raun um
að það er alveg eins gott og hvað
annað. Það má til dæmis auglýsa
Alvömball og annað í þeim dúr.
Fólk hefur talað um að nafhið sé
skrítið," heldur Grétar áfram. „Ég
minni bara á nöfh eins og Náttúra,
Tilvera .ó.ö. Pláhnetan. Þetta em allt
skritin nöfn en þau venjast. Það tók
fólk eitt og hálft til tvö ár að venjast
nafninu á Stjóminni. Það varð til
eftir miklar fæðingarhríðir. Þegar
við vorum búin að spila saman í hálft
annað ár tókum við þátt i Evrópu-
söngvakeppninni í fyrra skiptið og
þá var fólk að spyrja hvort við vildum
nú ekki reyna að fmna almennilegt
nafii á hljómsveitina!"
tónli0t
Hljómsveitin Alvaran. Öll nöfn hljóma undarlega til að byrja með, segir Grétar Örvarsson
— i—w~
SPrý'- m f_ > 4 i 1
m - 1
. .*! Iv • rniiirir-^
Stefnan mótuð
Liðsfólk Alvörunnar hefur verið
við æfingar sfðustu vikur. Grétar
segir að tónlistarstefnan sé að þróast
hægt og sígandi út frá því hvaða
tónlist fellur best að söngrödd
Ruthar. „Það em talsverð souláhrif
í gangi. Og fónk. Ætli þess háttar
tónlist eigi ekki eftir að skipa stóran
sess hjá okkur. En ég á ekki von á að
við leggjum mikla áherslu á rokk þótt
við leikum það náttúrlega á böllum.
Nú, og svo fórum við náttúrlega að
huga að okkar eigin tónlist upp úr
þessu,“ bætir Grétar við. „Við
stefhum á að fara í hljóðver þegar
hljómsveitin hefur spilast vel saman.
Áætlunin er sú að koma lögum á
safnplötu með vorinu og svo ér
draumurinn sá að við getum sent frá
okkur stóra plötu í haust. Allur
tíminn hefur hins vegar farið í
æfingar og undirbúning við að koma
hljómsveitinni í gang. Við erum þó
búin að bóka okkur nokkuð og
raunar liggur beinagrindin fyrir
alveg fram í september. En núna
fljótlega getum við snúið okkur að
fleiri þáttum eins og frumsömdu
tónlistinni."
Endurnýjunarþörf
Grétar Örvarsson segir að tími
hafi verið kominn til aö leggja
hljómsveitina Stjórnina niður og
snúa sér að nýjum hlutum. Hann
segist hafa fundið það á dans-
leikjagestum síðastliðið sumar að
þeir voru famir að þreytast á til-
breytingarleysinu. Þó var aðsókn
góð og stemning á böllunum síst
verri en árin þar á undan.
„Maður fær svona hluti á tilfmn-
inguna," segir Grétar. „Það er líka
hætt við því að þreyta myndist hjá
þeim sem spila og syngja í hljóm-
Tónlistargetraun
DV og Japis
Tónlistargetraun DV og Japis er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
í og hlotið geisladisk að launum.
Leikurinnfer þannigframað í hverri
viku eru birtar í DV þrjár léttar
spumingar um tónlist. Fimm vinn-
ingshafar, sem svara öllum spum-
ingum rétt, hljóta svo geisladisk í
verðlaun frá fýrirtækinu Japis. Aö
þessu sinni er það geisladiskurinn
Stuð með Páli Oskari Hjálmtýssyni
sem er í verðlaun.
Hér koma svo spumingamar:
1. íhvaðahljómsveiterPállÓskar
Hjálmtýsson?
2. Nefnið tvær hljómsveitir sem
Eric Clapton hefur starfað í?
3. Hvað heitir lagið eftir The
Carpenters sem Sykurmolamir
gerðu vinsælt?
Rétt svör sendist DV fyrir 17.
febrúar, merkt:
DV, Tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum
17. febrúar og rétt svör verða birt í
blaðinu 24. febrúar.
Hér em svörin úr getrauninni sem
birtist 20. janúar:
1. Þrjú.
2. Do It.
3. Bat Out Of Hell.
sveitunum ef endumýjunin er ekki
nóg. Stjómin spilaði í fimm ár og
okkur fannst einfaldlega tími til
kominn að stokka spilin. Ef maður
líkir henni við leikrit þá var einfald-
lega komið að lokasýningimni.
- Ástæðan fyrir þessari endumýj-
unarþörf er hve markaöur inn er lítill
hér. Maður keyrir hratt í gegn á
honum. Ef hljómsveit kemur ekki
með tvær plötur á ári þreytist fólk.
Við hefðum vissulega getað teygt
lopann eitt ár í viðbót en okkur
fannst best að hætta núna.“
Hljómsveitarinnar Alvörunnar
bíður nú að spila sig saman næstu
vikurnar og fara síðan í hljóðver
jafhframt því að leggja drög að næsta
sumri. AUt útlit er fyrir að sam-
keppnin verði hörð rétt eins og
síðustu sumur. „Við tökum á mál-
unum af alvöru,“ segir Grétar Örv-
arsson, sposkur, að lokum. -ÁT-
Að þesu sinni er það geisladiskurinn
Stuð með Páli Óskari Hjálmtýssyni sem
er í verðlaun.