Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1994, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1994
DV
Hopp, hí.
spe og
söngvar
Gauragangur sviðsettur í Þjóðleikhúsinu
Áriö 1988 kom út bókin Gaura-
gangur eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Bókin fékk góðar viðtökur, ekki síst
vegna innsæis Ólafs í heim ungl-
inganna. Nú hefur Þjóðleikhúsið
ráðist í uppsetningu þessa viðamikla
verks og taka hátt í þriðja tug leikara
þátt í verkinu.
Sögusvið Gauragangs er Reykja-
vík okkar tíma og aðalpersóna
verksins er ofursnillingurinn, ljóð-
skáldið, kennaraskelfirinn og gull-
gerðarmaðurinn Ormur Óðinsson.
Leikstjóri verksins er Þórhallur
Sigurðsson en með helstu hlutverk
fara Ingvar E. Sigurðsson, Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir, Sigurður
Sigurjónsson og Ólafla Hrönn Jóns-
dóttir. Auk þes að vera leikrit er
mikið af söngvum í verkinu. Textar
eru flestir eftir Ólaf Hauk Símon-
arson en það er hljómsveitin Ný-
dönsk sem semur og flytur alla
tónlist í verkinu.
Nýdönsk
á leikhúsfjölum
Hljómsveitin Nýdönsk er ekki
ókunn landsmönnum enda hefur
hún gefið út 6 plötur til þessa og verið
_ein vinsælasta ballhljómsveit land-
sins síðustu ár. Nú standa liðsmenn
sveitarinnar, þeir Jón Ólafsson,
Björn Jr. Friðbjörnsson, Daníel
Ágúst Haraldsson, Ólafur Hólm
Einarsson og Stefán Hjörleifsson
hins vegar á fjölum Þjóðleikhússins.
Hljómsveitin samdi alla tónlist við
verkið og var einnig fengin til að
flytja hana, en liðsmenn leika þar að
auki ýmis mikilvæg aukahlutverk í
leikritinu. Nýdönsk hefur sem sagt
látið af ballspilamennsku um stund
og er ráðin á fjölum Þjóðleikhússins.
Aukahlutverkin
Aukahlutverk í sýningunni eru
mörg, jafnt stór sem smá. Eins og
áður segir fara liðsmenn hljóm-
sveitarinnar Nýdönsk með nokkur
hlutverk en aðrir leikarar í verkinu
eru: Elva Ósk Ólafsdóttir, Erla Ruth
Harðardóttir, Felix Bergsson, Flosi
Ólafsson, Guölaug María Bjarna-
dóttir, Hinrik Ólafsson, Hjalti Rögn-
valdsson, Hjálmar Hjálmarsson,
Jóhann Sigurðarson, Lilja Þorvalds-
dóttir, Margrét Guðmundsdóttir,
Randver Þorláksson, Rúrik Haralds-
son, Sigríður Þorvaldsdóttir, Sigurð-
tónli0t
Meðal leikara í Gauragangi eru Randver Þorláksson, Ingvar E. Sigurðsson og Öm Árnason.
DV-mynd GVA
ur Skúlason, Stefán Jónsson, Tinna
Gunnlaugsdóttir og Öm Ámason.
Þjóðleikhúsið og
Skífan sameinast
um útgáfu
Tónlistin spilar stóran þátt í þessu
gáskafulla verki. Til að varðveita
stemningu leikhússins hafa Skífan
og Þjóðleikhúsið sameinast um
útgáfu á 17 laga geislaplötu og
hljóðsnældu sem kom út frum-
sýningardaginn 11. febrúar. Flutn-
ingur laganna er eins og áður segir
í höndum Nýdanskrar og leikara
Þjóðleikhússins. Leikritið er eitt það
kraftmesta og skemmtilegasta sem
undirritaður hefur séð í langan
tíma en við eftirlátum leikhús-
gagnrýnendum að dæma verkið út
frá faglegu sjónarmiði. Þjóðleik-
húsið, Nýdönsk, Skífan og allir
leikarar verksins eiga þó skildar
bestu þakkir fyrir allan gaura-
ganginn. ; /
GBG
Tónlistargetraun DV og Japis
Tónlistargetraun DV og Japis er léttur
leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotiö
geisladisk að launum. Leikurinn fer þannig
fram aö í hverri viku em birtar þrjár léttar
spumingar um tónlist. Fimm vinningshafar,
sem svara öllum spumingum rétt, hljóta svo
geisladisk í verðlaun frá fyrirtækinu Japis. Að
þessu sinni er það geisladiskurinn World Is
Still Alive með Bubbleflies sem er í verðlaun.
Hér koma svo spumingarnar:
1. Hvaða tónlistarmaður var að vinna Brit-
verðlaunin nýverið í Bretlandi?
2. Hvaða framhaldsskóli flytur söngleikinn
Jesus Christ Superstar?
3. Hver syngur aðalhlutverkiö í Evu Lunu?
Rétt svör sendist DV fyrir 24. febrúar, merkt:
DV, Tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum 24.
febrúar og rétt svör verða birt í tónlist-
arblaðinu 3. mars.
Hér em svörin úr getrauninni sem birtist
27. janúar:
1. Aladdin
2. Unplugged.
3. Jar Of Fhes.
DV-mynd BG