Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1994, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1994, Síða 3
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994 29 DV Hljómsveitin Synir Raspútíns er á förum til Svíþjóðar í fyrramálið. Nánar tiltekið til Gautaborgar þar sem hún kemur fram á rokk- hátíðinni Norden Rockar á laugar- dagskvöldið. Hljómsveitin Yucatan spilaði á þessari sömu hátíð síðasta haust og áður hafa komiö fram á henni fyrir íslands hönd Langi Seli og Skuggarnir, Risaeðlan og Tod- mobile. Upphaf þessarar samnorrænu rokkhátíðar má rekja aftur til ársins 1990 þegar haldin var vinabæja- ráðstefna um æskulýðs- og íþrótta- mál í Reykjavík. Á sama tíma var RykkRokk hátíðin í gangi og fóru nokkrir ráðstefhugestir þangað til að sjá hvað um var að vera. í framhaldi þess fæddist hugmyndin að Norden Rockar hátíðinni sem er haldin tvisvar á ári. Hún er alltaf á vorin í Gautaborg en á haustin til skiptis í Árósum, Bergen, Turku og Reykja- vík. Og það er einmitt komið að Reykvíkingum að halda hátíðina næsta haust. Markmiðin með Norden Rockar eru meðal annars þau að kynna tónlistarstefnur og tónlist vinabæj- anna á sameiginlegri hátið. Hún er vettvangur þar sem upprennandi tónlistarmenn hitta félaga sína annars staðar frá Norðurlöndunum og hljómlistarmennirnir eiga að flytja frumsamda tórilist á móður- máli sínu. Synir Raspútíns, fulttrúar íslands á Norden Rockar. Þeir halda upp á þriggja ára afmæli hljómsvertarinnar með tónleikunum í Gautaborg. DV-mynd ÞÖK Norræna tónlistarhátíðin Norden Rockar um næstu helgi: Synir Raspútíns rokka fyrir íslands hönd í Gautaborg - hátíðin verður haldin í Reykjavík næsta haust vikunnar Nóg af frumsömdu Hfjómsveitin Synir Raspútíns ætti að fara létt með að uppfyUa kröfuna um að leika eigin tónlist og syngja á móðurmálinu. Að sögn Hafþórs Ragnarssonar á hljómsveitin nóg til af efni til að fylla upp í tímann sem henni er ætlaður í Gautaborg á laug- ardaginn og vel það. Auk Hafþórs eru í hljómsveitinni Baldvin Baldvins- son, Kolbeinn Proppé, Kristinn Schram, Valur Einarsson og Ólafur Kristjánsson. Verkaskiptingin í hljómsveitinni er nokkuð óvenjuleg. I henni eru tveir söngvarar og kassagitarleikari auk bassa-, tronunu- og rafmagnsgítarleikara. Á laugardaginn kemur eru einmitt liðin þijú ár síðan Synir Raspútíns var stofriuð. „Við vorum upphaflega nokkúrs konar húshljómsveit í Menntaskólanum í Kópavogi," segir Hafþór. „En þótt hljómsveitin eigi þriggja ára afmæli á laugardaginn höfum við ekki spilað af krafti nema í rúmlega eitt ár.“ Að hans sögn hefur hljómsveitin nóg að starfa, kemur fram tvisvar til þrisvar í viku á pöbbum, í félags- miðstöðvum og á skóladansleikjum. Frumsamin tónlist er ekki ein- vörðungu á efnisskránni heldur einnig gamalt efni með David Bowie, lög með Donovan, Who og fleiri gömlum meisturum. „Við kópíerum þessi lög ekki nákvæmlega heldur útsetjum við þau eftir okkar höfði,“ segir Hafþór. Vegna mikils kostnaðar við að koma hljómsveitum út fyrir land- steinana hafa íslendingar ekki sent hljómsveitir á Norden Rockar nema á haustin. Þangað til nú. Ástæðan er sú að Synir Raspútins höfðu mikinn áhuga á að komast út og spila á hátiðinni og greiða því ferðakostnað sinn að nokkru leyti sjálfir. „Okkur langaði að breyta til,“ segir Hafþór. „Við höfum hingað til ferðast ákaflega lítið því að við höfum aðallega spilað á Reykja- vikursvæðinu. Síðan eru orðnir sjö eða átta mánuðir síðan við höfum haldið almennilega hljómleika og okkur fannst tilvalið að gera það erlendis fyrst möguleikinn var fyrir hendi.“ Þegar er búið að ákveða að Norden Rockar verður í Reykjavík seinni hlutann í október í haust. Ekki hefur endanlega verið ákveðið hvar hátíð- in verður haldin en skemmtistað- urinn Tveir vinir kemur sterklega til greina eins og sakir standa. Smekk- leysa og rokkdeild Félags íslenskra hljómlistarmanna koma til með að standa að hátíöinni með Iþrótta- og tómstundaráði Reykjavikur sem hingað til hefur haft veg og vanda af að senda hljómsveitir til Árósa, Bergen og Turku. -ÁT- Tónlistargetraun DV og Japis Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum. Leikurinn fer þannig fram að í hverri viku eru birtar þijár léttar spumingar um tónlist Fimm vinningshafar, sem svara öllum spumingum rétt, hljóta svo geisladisk í verðlaun frá fyrirtækinu Japis. Að þessu sinni er það geisladiskurinn Eva Lima úr samnefhdu leikriti sem er í verðlaun. Hér koma svo spumingamar: 1. Hvað kosta Nexus geisladiskar í Japis? 2. Hvað heitir nýjasti geisladiskurinn með hljómsveitinni Sepultura? 3. Hver syngur lagið Blinda stúlkan Mimi úr söngleiknum Eva Luna? Rétt svör sendist DV fyrir 3. mars, merkt: DV, Tónlistargetraun Þverholti 11 105Reykjavík Dregið verður úr réttum lausnum 3. mars og rétt svör verða birt í tónlistarblaðinu 10. mars. Hér em svörin úr getrauninni sem birtist 3. febrúar: 1. Kristján Kristjánsson. 2. Desember. 3. Debut. Platan Desember með Sigríði Beirrteinsdóttur var mest selda jólaplatan íár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.