Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1994, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1994, Síða 4
30 ► * FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994 tOnlist 'T Pétur Einarsson „altmúligmaður" í tónlistinni: Möguleikarnir með vinnslu á hljóði eru óendanlegir Pétur Einarsson tónlistarmaður fer ótroðnar slóðir til að koma tónlist sinni á framfæri. Hann gerði mynd- band við eitt laga sinna, The World Within, og bauð sjónvarpsstöðvun- um tveimur til sýningar. Það hreif og hefur myndbandið nú verið sýnt nokkrum sinnum í tónlistarþáttum beggja stöðva og vakið talsverða at- hygli. „Það var nánast fyrir tilviljun að ég réðst í að gera þetta myndband með Guðmundi Ámásyni, kunningja mínum," segir Pétur. „Hann baö mig að vinna tónlist við heimildarmynd sem hann er að gera og ég bað hann á móti að gera með mér myndband við eitt lag. Hann hafði aldrei gert neitt slíkt en sló samt til. Ég bjó þess vegna til texta og grunn að laginu í júlí síðastliðnum. Hálfum mánuði síðar var tilbúið handrit að mynd- bandi. Við tókum það upp og svo gekk ég frá laginu nokkru siðar. Það má því segja að vinnsluröðin hafi verið nokkuð óvenjuleg því að alla jafna eru myndböndin gerð við tilbúin lög.“ Jimi Hendrix - Stone Free: ★ ★ ★ Verulega eiguleg plata fyrir alla Hendrix-aðdáendur og reyndar miklu fleiri. -SÞS Elton John - Duets: ★ ★ ★ 1 heild er Duets vel heppnuð plata sem vinnur á við hverja hlustun. Lög-Eltons eru bæði ný og gömul og sameinast í vel heppnuðum flutningi. -HK Úr kvikmynd - Philadelphia: ★ ★ ★ Philadelphia er sérstaklega góð og heilsteypt plata af kvikmyndatónlist að vera og nú er bara að bíða og sjá hvort myndin er eins góð og platan. -ÁT Jackson Browne- l'm Alive: ★ ★ ★ Það er mikið gleðiefni fyrir gamla Jackson Browne-aðdáendur að heyra að hann virðist vera að ná sér á strik á ný. -SÞS Borgardætur- Svo sannarlega: ★ ★ ★ Söngurinn er aðalsmerki plötunnar og raddimar eru frábærlega slípaðar sam- an. Rúsínan í pylsuendanum eru textar plötunnar sem eru til mikillar fyrir- myndar. -SÞS Atomic Swing - A Car Crash Into The Blue: ★ ★ ★ Plata Atomic Swing er eitt besta byrjendaverk ársins 1993, einkennandi við plötuna eru óhefðbundnar hljóma- samsetningar og áheyrilegar laglínur. -GBG INXS - Full Moon, Dirty Hearts: ★ ★ ★ Þessi plata er það besta sem komið hefur frá þessari áströlsku hljómsveit í langan tima. -GBG Crowded House - Together Alone: ★ ★ ★ Þeir sem hafa ánægju af vandaðri melódískri popptónlist ættu ekki að láta þessa plötu fram hjá sér fara. -SþS Eins manns hljómsveit Pétur kallar hljómsveitina, sem leikur undir í The World Within, P-6. Hann er raunar eini liðsmaður hljómsveitarinnar því að hann leikur á öll hljóðfæri og syngur að auki. „Skýringin á nafninu er raunar einíöld," segir hann. „Péið er upp- hafið í nafninu mínu og talan sex táknar að sex ár eru liðin síðan ég hætti í hljómsveitastússi og fór að einbeita mér af fullum krafti við að stúdera tónlist með tölvum." Pétur segir að eiginlega sé ómögu- legt að tímasetja hvenær tónlistar- ferill hans hófst. Átta eða níu ára gamall hóf hann að læra á orgel og stundaði það nám í flmm ár. í því námi fékk hann grunnmenntun i tónfræði og lærði að eigin sögn jafn- framt að hlusta á og skynja tónlist. Síðar lá leiðin i ýmsar hljómsveitir. Hann lék til dæmis með hljóm- sveitinni Autobahn sem kom fram á Músíktilraunum Tónabæjar vorið 1985. Hann var um skeið í djass- hljómsveit og náði meira að segja að leika með Lúdó og Stefáni eitt kvöld! Og síðar lá leiðin í nám til Lundúna. „Mig langaði til að læra hljóð- upptökur og fór þess vegna til Bret- lands,“ segir hann. „Þar var ég i tvö ár og var í alhliða námi við upptökur, effekta og tölvunotkun. Eftir þetta pKútugagnrýni Pétur Einarsson - eins manns hljómsveitin P-6. nám má segja að ég sé kominn af frumstiginu á forstigið því að ég er langt frá því að vera fullnuma. Ég þyrfti raunar að vera þama fjögur ár í viðbót og mig langar að fara og vikka sjóndeildarhringiim meira. Stúdera hljómburð með tilliti til að skapa visst andrúmsloft á hljómleikum, vinna meira með hljóðeffekta - mögu- leikamir með vinnslu á hljóði eru nánast óendanlegir. Og svo langar mig til að kynna mér myndbanda- gerð betur." Nóg af lögum Pétin- segist hafa orðið undrandi þegar hann sá útkomu myndbands- ins við lagið The World Within. „Það em þama nokkur atriði sem ég myndi gera öðruvísi núna. En útkoman varð merkilega góð þótt ég segi sjálfur frá og það em margir á sömu skoðun,“ segir hann. „í því er fýlgt ákveðnum söguþræði sem tengist textanum en hann liggur samt ekki alveg í augum uppi við fyrstu sýn. - Við Guðmundur höfðum hvor- ugur komið nálægt því að gera myndband áður en fengum heilmikla hjálp úr ýmsum áttum. Menn höfðu gaman af því sem við vorum að fást við og vom til i að hjálpa okkur í sjálfboðavinnu. Myndbandið kostaði um fimmtíu þúsund en ef ég hefði þurft að borga fúllt verð fyrir alla aðstoðina sem ég fékk hefði heild- arupphæðin ekki verið undir einni og hálfri milljón." Pétur segist ekkert hafa fyrirfram hugleitt að gefa The World Within út á plötu en nú sé i bígerð að það komi út á safnplötu í sumar. Hann er jafn- vel að velta fyrir sér stórri plötu síðar og á meira en nóg af lögum til að fylla hana. Alls á Pétur um fhnmtíu lög. Stór hluti þeirra er tilbúinn i tölvu en upp á síðkastið hefúr hann samið á gítar og á eftir að vinna þau lög. En hvemig líst honum á tónlistar- markaðinn? Býst hann við að lögin falli í kramið hjá almenningi? „Að sumu leyti líst mér vel á markaðinn og að sumu leyti ekki,“ svarar hann. „Það sem ég hef verið að semja hef ég fyrst og ffernst búið til fyrir sjálfan mig og sú reynsla sem ég hef öðlast skín út úr lögunum. Það er náttúrlega áhætta að gefa út plötu en maður verður að taka áhættu öðm hveiju. Ég hef fengið góðar viðtökur með myndbandið og það eykur á bjartsýnina frekar en hitt. -ÁT- Richard Marx - Paid Vacation Iðnaðar- legt Þau era rétt að verða sex árin sem era hðin síðan Richard Marx kom fram á sjónarsviðið. Síðan þá hefúr hann nánast ekkert breyst. Hann gengur afskaplega hreint til verks. Lögin hans era snoturlega samin. Undirleikur er pottþéttur enda í höndum valinkunnra manna sem fást við það eitt að leika undir hjá mönn- um sem hafa eíhi á að ráða þá í vinnu. Sjálfúr syngur Marx lögin sín óaðfinnanlega. Hann er raunar dæmigerður fyrir bandaríska tónlistariðnaðinn eins og hann gerist iðnaðarlegastur. Allt er skothelt og umleið afar ópersónulegt. Á Paid Vacation era fjórtán lög. Öll era þau eftir Richard Marx nema eitt. Það er Miami 2017 eftir Billy Joel sem mig minnir endilega að sé að finna á plötunni Streetlife Serenade (eða var það Tumstiles?) og ber þar undir- titilinn I’ve Seen The Lights Go Out On Broadway. Þetta er sennilega eitt af betri lögum Joels frá fyrsta hluta ferils hans - fyrir plötuna Stranger. Richard Marx bætir lagið svo sem ekkert í sinni útsetningu. Hann vinnur svo sem engan skaða á því heldur. Ef að líkum lætur eiga mörg lög af Paid Vacation effir að komast á vinsældalista vestan hafs. Eitt þeirra, Now And Forever, er þegar farið að gera það gott og önnur hafa ekki síðri burði til að slá í gegn. Til þess er líka leikurinn gerður. Allt er unnið sam- kvæmt bókinni, afar pottþétt og ger- samlega ófrumlegt. Iðnaðarmaðurinn Richard Marx tekurþvergi áhættu. Ásgeir Tómasson Smokin Suckaz Wit Logic - Playin' Foolz ★ ★ ★ Reyktir og rökvísir Rappsveitir nútimans grípa æ meira til hefðbundinna hljóðfæra við undirleik. Þetta er fært til sanns vegar á plötunni „Playin’ Fpolz” sem hljómsveitin Smokin Suckaz Wit Logic gaf út á síðasta ári. Eins og öðrum rappsveitum er tamt era textar fullir af ádeilum á þjóðfélag Bandaríkjanna en nokkurra grasa kennir í tónlistinni þar sem fónk- og rokk áhrif era ríkjandi. Plötunni er skipt í tvær hliðar. Annars vegar er það reykta hliðin þar sem meðlimir hafa greinilega sótt áhrifin í eitthvað annað en sígarettur. Svo er það rökvísa hliðin sem er örlítið misskilin þvi að ekki finnast mörg rökin fyrir einu eða neinu á þeirri hlið. Platan er kraftmikil í heildina og „grúvar” alveg skugga- lega (svo gripið sé niður í engil- saxneskuna). Eitt er mér þó alveg óskiljanlegt - en það era nöfn hljóm- sveitarmeðlima. Þama era menn eins og G(Suave), Spank Dog, Money Mike, A Joe, Mr. Watts og D-Smooth. Mr Watts er eina nafiiið sem gæti kallast eðlilegt í bandarískri vísitölufjölskyldu en með nafni hans er örugglega verið að vitna í það sem við köUum vött. Smokin Suckaz Wit Logic era alveg örugglega reyktir en rökvísin getur vel hafa veriö skilin eftir heima. Rappplatan Playin’ Folz verður að teljast stórfmt framlag til þessarar tegundar tónlistar. Guöjón Bergmann Úr leikriti — Gauragangur ★ ★ ★ Á Fyrirtaks gauragangur AUt frá því plötuflóð jólanna sjatnaði hefur íslensk plötuútgáfa legið í dvala. Fyrsta lífsmarkið á nýju ári er þó að sjást um þessar mundir og í báðum tilvikum er um að ræða tónhst tengda leiklist. í öðra tílvikinu er um að ræða erlent leikverk en í hinu rammíslenskt verk, Gauragang eftir Ólaf Hauk Símonarson. Maður skyldj ætla að jafn fjölhæfur Ustamaður og Ólafur Haukur færi létt með að semja tónlist við þetta ieikverk sitt en hann lætur ekki á það reyna að þessu sinni og hefúr fengið hljómsveitina Ný dönsk tíl verksins. Það er skemmst frá því að segja að þessi samvinna Ólafs Hauks og Ný danskra gengur fullkomlega upp. Liðsmenn Ný danskra hafa greinUega gengið tU þessa verks af mikUli einlægni og náð að skapa einstaklega góð tengsl tónlistarinnar við texta leikverksins og um leið einstaklega aðgengUega tónlist. Tón- list við jafii fjölbreytt verk og Gaura- gang þarf auðvitað að vera fjölbreytt og þar er styrkur Ný danskra meiri en hjá nokkurri annarri hljómsveit hér á landi. Engin önnur hljómsveit státar af fjórum virkum og fram- bærilegum lagasmiðum. Það er þessi breidd fýrst og fremst sem gerir plötuna með tónlistina úr Gauragangi að jafii mikUli skemmtun og hún er. Hér er rokk og ról, fónkrokk, gúanórokk, blíðar ballöður, kórverk og guð má vita hvað og aUt myndar þetta eina heUd og eina sögu. Ekki má gl "ma þætti leikaranna á þessari plötu en ''i"inunn Ólína Þor- steinsdóttir og ” Sigurðsson gefa atvinnusöngvurui iiu..__:?rt eftir nema síður sé. Flosi bregst heldur ekki frekar en fyrri daginn. Gauragangur er plata sem stendur fyUUega á eigin fótum ein og sér og er besta söngleiksverk sem komið hefur út hér á land síðan Með aUt á hreinu kom út en það var reyndar kvik- myndasöngleiksverk. Sigurður Þór Salvarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.