Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1994, Page 6
22
‘l rY\tVi?)7J ‘l db pc
11J J Pf n
r y / f JhL 4 r
Stjömubíó:
CT3Cr
cLac
Stjömubíó frumsýnir í dag gaman-
mynd Woodys Allen, Morögátu á
Manhattan eða Manhattan Mystery
Murder. Söguþráðurinn er eitthvað
á þá leið að hjónakorn nokkur hafa
ásamt vinahópi sínum sökkt sér gjör-
samlega inn í sögusögn um hugsan-
legt morð á gamalli konu í New York.
Myndin er tekin þar og er sú 23ja sem
Allen leikstýrir og skrifar handrit að
eða endurskrifar. Alan Alda, Woody
Allen, Anjelica Huston og Diane Kea-
ton eru stjörnur myndarinnar.
Ótímabær dauði eldri konu í West
Side, sem annars var frekar hraust,
kemur menntaelítunni til þess að
breytast í leynilögreglumenn. Grun-
urinn beinist ekki eingöngu að hin-
um hugsanlega morðingja heldur
blandast fleira inn í þessa farsa-
kenndu kvikmynd. Diane Keaton
leikur Carol Lipton sem er sjálfkjör-
inn leiötogi hópsins. Carol gaf starfs-
frama sinn upp á bátinn til þess að
ala upp son sinn.
Alan Alda leikur ógiftan vin henn-
ar, Ted, sem er kvikmyndaleikstjóri
og leikari. Anjelica Huston leikur
aftur á móti afskaplega greindan og
kynæsandi rithöfund. Ron Rifkin
Diane Keaton og Woody Allen I gamanmynd Allens, Morðgátu á Manhattan.
leikur Sy sem giftur er Marilyn, Joy
Behar. Allir vinirnir halda áfram að
reyna að leysa morðgátuna með sín-
um eigin hugmyndum, skoðunum og
tæknilegum ráðleggingum sín í milli.
Myndin hefur verið nokkuð lengi í
vinnslu þar sem formlegar tökur
hófust í september 1992. Á bak við
tjöldin er valinkunnur mannskapur,
eins og Robert Greenhut, Jack Roll-
ins og Charles H. Joffe.
Morðgáta á Manhattan
,./
Sagabíó:
Nóttin sem
viö aldrei
hittumst
Saga-bíó hefur nú tekið til sýninga
gamanmyndina Nóttin sem við aldr-
ei hittumst. Þau Sam, Ellen og Brian
eru í húsnæðisvandræðum í New
York og leysa máhn með því að leigja
saman íbúð sem þau hafa afnot af
sinn daginn hvert.
Sam Lester, sem Matthew Brod-
erick leikur, vinnur á matvörumark-
aði í New York og veit nánast allt
um sælkerafæðu en þess heldur
minna um lífið og ástina.
Allen Holder, Annabella Sciorra,
er tannheilsufræðingur. Hún er gift
manni sem myndi kaupa stóran bú-
garð án þess að láta hana vita.
Brian McVeigh, Kevin Anderson,
hefur loksins ákveðið að stíga skrefið
til fulls með kærustunni Janet sem
Justine Bateman leikur. Hann vill
jafnframt halda áfram piparsveina-
lífi sínu. Öll þurfa þau stað þar sem
þau geta verið í einrúmi og verður
íbúðin svar við óskum þeirra.
Leikstjóri myndarinnar er Warren
Leigh. Hann hefur skrifað mikið af
sögum, blaðagreinum, handritum og
fleiru og hefur sópað að sér verðlaun-
um fyrir þau skrif sín.
-em
Þrjár manneskjur höfðu sömu íbúð til afnota sinn daginn hvert.
Bíóhöllin:
F
I
loft-
inu
Sambíóinfrumsýnduígærgamanmyndina
í loftinu í Bíóhölhnni. Kevin Bacon leikur
aðstoðarkörfuboltaþjálfarann Jimmy sem
heldur til Afríku til þess að finna hinn eina
sanna körfuboltasnilhng framtíðarinnar.
í trássi við skipanir yfirboðara sinna rýkur
hann af stað til Áfríku. Þaö eru þó ekki allir
sem vilja verða körfuboltastjörnur eins og
Jimmy kemst að þegar hann hittir framtíðar-
draumakörfuboltasnihinginn Saleh, Charles
Gitonga Maina. Saleh er stríðsmaður og ekki
er auðsótt að fá hann til þess að glepjast af
frægð og auðæfum. Paul M. Glaser leikstýrði
myndinni. -em
Jimmy fer til Afríku og reynir að lokka efnilega menn til
Ameriku með loforði um frægð og frama í körfuboltaheiminum.
Háskólabíó:
Orson
Welles-hátíð
Hreyfimyndafélagið stendur fyrir
kvikmyndahátíð, theinkaðri banda-
ríska kvikmyndaleikstjóranum Or-
son Welles. Sýndar verða sjö myndir
eftir hann. Myndirnar, sem sýndar
verða, eru Citizen Kane, The Magni-
ficent Ambersons, The Stranger,
Othello, The Third Man, The Trial,
The Immortal Story og F for Fake.
Orson Wehes er einn þekktasti
leikstjóri kvikmyndasögunnar.
Fyrstu mynd sína, Citizen Kane,
gerði hann árið 1941. Breska kvik-
myndatímaritið Sight & Sound
stendur fyrir því á tíu ára fresti að
fá kvikmyndagerðarmenn og gagn-
rýnendur um víða veröld til að velja
bestu mynd allra tíma. í könnunum
aUar götur síðan 1962 hefur Citizen
Kane aUtaf veriö vahn besta myndin
og The Magnificent Ambersons hef-
ur einnig veriö ofarlega á blaði.
Welles var aha tíð dáður af yngri
leikstjórum og talinn frumherji í hst-
inni. -em
FÖSTUDAGUR 4. MARS 1994
Kvikmyndir
BÍÓBORGIN
Sími 11384
Hús andanna *★★!/;
Bille August hefur tekist að gera áhrifamikla
og vandaða kvikmynd, mynd sem snertir við
tilfinningum og læturengan ósnortinn. -HK
Skytturnar ★★'/;
Nýjasta útfærsla sögunnar er ægilega amer-
isk en ansi skemmtileg og þó nokkuð iburðar-
mikil. -GE
BÍÓHÖLLIN
Simi 78900
Demolition Man ★★
Visindaskáldsögu-hasar-gamanmynd sem
fiður fyrir ófrumlega sögu og slappan hasar.
Húmorinn kemur betur út og sérstaklega já-
kvæð framtíðarsýn. -GE
Fullkominn heimur ★★
Róleg vegamynd með góðan kjarna en veld-
ur ekki lengd sinni vegna upphleðslu óþarfa
hismis og full yfirdrifins endaspretts. Costner
er óvenju góður en of mikið gert úr Clint. -GE
Aladdin ★★★
Aladdin er einstaklega vel heppnuð teikni-
mynd, íslensku leikararnir, sem tala inn á
myndina með Ladda í broddi fylkingar, ná
góðumtökumápersónunum. -HK
SAGA-BÍÓ
Sími 78900
Mrs. Doubtfire ★★★
Robin Williams er frábær. Hann sýnir allar
sínar bestu hliðar sem gamanleikari i tvöföldu
hlutverki. Góð skemmtun fyrir aila fjölskyld-
una. -HK
HÁSKÓLABÍÓ
Simi 22140
Sagan af Qiuju ★★ 'A
Zang Yimou sýnir aukna fjölhæfni með
skemmtilegri dæmisögu um bóndakonu sem
fer viðreist um kinverska nútimaþjóðfélagið
í leit að réttlæti. -GE
Leið Carlitos ★★ Zi
Kröftug mynd frá Brian de Palma um fyrrum
glæpamann sem gengur erfiðlega að koma
undir sig fótunum á heiðarlegan hátt. Stór-
leikurhjáAI Pacino. -HK
Undir vopnum ★
Þótt myndin skarti stjörnum á borð við Lam-
bert og Van Peebles dylst engum að hér er
aðeins um að ræða þriðja flokks videomynd.
-GE
Vanrækt vor ★★ '/1
Kennarar á móti nemendum i dönskum efri-
stéttarskóla ca. 1950. Myndin leggur áherslu
á léttari hliðar kaldhæðninnar. Kennaratýp-
urnarerusérlegavelheppnaðar. -GE
Addams fjöiskyldugildin ★★
Það er alltaf gaman af sérkennilegum tiltekt-
um Addams-fjölskyldunnar og aðdáendur
verða ekki fyrir vonbrigðum en stundum er
farið yfir markið í vitleysunni. -HK
LAUGARÁSBÍÓ
Sími 32075
Banvæn móðir YrW
Heldur billegur sálfræðitryllir um snarklikkaða
konu sem á sér þá ósk heitasta að fjölskyldan
sameinistáný. -GB
Hinn eini sanni ★★'/2
Fjörug, fyndin og umfram allt rómantisk
mynd um tilraunir ungs manns til að finna
fullkominn eiginmann fyrir fyrrum eiginkonu
sina. -GB
Geimverurnar ★★
Geimverugrin, unnið upp úr sjónvarpsþátt-
um, teygir svolitið lopann en vekur hlátur
þessámilli. -GE
REGNBOGINN
Sími 19000
Flótti sakleysingjans ir'/i
Heldur ótrúverðug og efnisrýr mynd um ung-
an dreng á flótta um hálfa Italiu undan morð-
óðum mannræningjum. -GB
Kryddlegin hjörtu ★★★
Heillandi frásagnarmáti í bragðmikilli og
dramatiskri mynd þar sem ýkjukennd sagna-
hefð nýtur sín vel. Athyglisverð og vel leikin
kvikmynd i háum gæðaflokki. -HK
Maður án andlits ★★!/
Gott drama um forboðna vináttu. Gibson er
efnilegur leikstjóri og hinn ungi Stahl er
undraverður. Aðeins vantar einbeitingu i
handritið. -GE
Hin helgu vé ★★
Lítil, stundum sæt, stundum gróf mynd, sem
hefði ekki veitt af nokkrum vítamínsprautum.
Frásögnin er slitrótt og dramatíkin rýr en
húmorinngóður. -GE
Píanó ★★★
Píanó er einstaklega vel heppnuð kvikmynd,
falleg, heillandi og frumleg. Þrátt fyrir að rauði
þráðurinn sé erótík með öllum sínum öfgum
er myndin aldrei yfirþyrmandi dramatísk. -HK
STJÖRNUBÍÓ
Simi 16500
Fleiri pottormar -k'/i
Hugmyndin var góð í fyrstu myndinni en er
orðin útþynnt og að láta hunda hugsa eins
og manneskjurerfullmikiðafþvígóða. -HK
i kjölfar morðingja ★★
Bruce Willis í banastuði sem fljótalögga í
Pittsburgh í spennandi eltingarleik við band-
óðan fjöldamorðingja. Hasar í góðu meðal-
lagi. Einnig sýnd i Laugarásbíói.
-GB
Öld sakleysisins ★★★
Klassisk skáldsaga fær hér verðuga úrvinnslu
frá Martin Scorsese. A látlausan hátt tekst
honum að skapa rafmagnað andrúmsloft
meðal þriggja aðalpersónanna. -HK