Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1994, Side 3
FIMMTUDAGUR 10. MARS 1994
29
Hátíðisdagar ungra og efnilegra hljómsveita framundan:
tónli0t:
-
Enn einu sinni er blásið til Músík-
tilrauna í Tónabæ. Þær eru haldnar
í tólfta sinn og heijast í kvöld. Alls
eru 29 hljómsveitir skráðar til leiks.
Upphaflega voru þær reyndar 35 en
sex hafa helst úr lestinni. Keppnin er
haldin með sínu hefðbundna sniði.
Undanúrslitakvöldin eru þrjú:
tíundi, sautjándi og 24. mars og
úrslitin ráðast síðan fostudagskvöld-
ið tuttugasta og fimmta. Níu til tíu
hljómsveitir koma fram á hverju
kvöldi og hver um sig leikur þrjú
frumsamin lög. í mörg ár voru lögin
fjögur en áhugi ungra tónlistar-
manna á að komast á Músíktilraunir
hefur stöðugt farið vaxandi og því
hefur orðið að stytta dagskrá hverrar
hljómsveitar til að koma sem flestum
að.
Hljómsveitimar sem fram koma að
þessu sinni koma víða að af landinu.
Flestar eru frá höfuðborgarsvæðinu
en nokkrar koma frá Suðumesjum,
úr Ámessýslu og öðrum nágranna-
byggðum Reykjavíkur. Nokkrar
koma þó langt að svo sem frá
Hvammstanga, Húsavík og Akur-
eyri. Frá Austurlandi kemur engin
hljómsveit að þessu sinni en mörg
undanfarin ár hafa efnilegar sveitir
komið þaðan.
Nokkrar þekktustu hljómsveitir
landsins ætla að heiðra Músík-
tilraunir með nærvem sinni. Gesta-
hljómsveitin í kvöld verður Jet Black
Joe. Enn hefur ekki verið endanlega
gengið frá gestum annars kvöldsins.
A því þriðja skemmta Bubbleflies og
sigurvegarar Músíktilrauna í fyrra,
Yukatan. Á lokakvöldinu skemmtir
síðan KK-bandið.
Þrjár stigahæstu hljómsveitir
úrslitakvöldsins verða verðlaunaðar
aö vanda. Sigurvegarinn hlýtur 25
hljóðverstíma í Sýrlandi, hljómsveit-
in í öðm sæti fær 25 tíma í Grjót-
námunni og sú sem verður númer
þrjú faer tuttugu tíma í Hljóðrita.
Margvísleg aukaverðlaun em í boði
að þessu sinni. Athyglisverðasta
hljómsveit Músíktilrauna fær
tuttugu hljóðverstíma í Stúdíó Stef.
Besti gítarleikarinn fær gítar frá
hljóðfærabúð Steina. Besti söngvar-
inn fær hljóðnema frá Tónabúðinni
á Akureyri. Besti bassaleikarinn fær
úttekt í Hljóðfærahúsi Reykjavíkur
og besti trommarinn fær úttekt í
Samspili. Aðrir sem gefa verðlaun
era Rín, Paul Bemburg, Pizzahúsið
og Japis. Nokkur fyrirtæki til
viðbótar styrkja Músíktilraunir á
annan hátt.
Hugmynd
Jóhanns G.
Það var Jóhann G. Jóhannsson,
tónlistarmaður og lagahöfundur, sem
átti hugmyndina að Músíktil-
raunum. Hann kom að máli við Ólaf
Jónsson sem þá var forstöðumaður
Tónabæjar og Ólafur útfærði hana.
Jóhann var um þetta leyti formaður
samtaka sem nefndust SATT, Samtök
alþýðutónskálda og -textahöfunda.
nafn
vikunnar
Gestahljómsveitimar hafa ávallt skipað veglegan sess á Músíktilraunum Tónabæjar. Bubble Flies verður í gestahlutverki á
þriðja kvöldi Músíktilrauna að þessu sinni. DV-mynd JAK
Upphaflega var efnt til keppninnar
til að gefa ungum og ffamsæknum
tónlistarmönnum kost á að koma sér
og tónlist sinni á framfæri óháð
almennum markaðslögmálum.
Reyndar máttu eldri menn einnig
koma fram með sitt efni ef það var
framsækið og öðmvísi en það sem
þeir fengust við alla jafna. Keppnin
þróaðist síðan fljótt út í að knáar
bílskúrshljómsveitir urðu alls
ráðandi.
Á sama ári og Músíktilraunir vora
haldnar í fyrsta skipti stóðu
Tónabær og SATT fyrir maraþon-
hljómleikum í félagsmiðstöðinni.
Ætlunin var að setja heimsmet og
komast í Heimsmetabók Guinnes.
Tónlistarmenn á öllum aldri spiluðu
samfellt í hálfan mánuð án þess að
taka sér hlé. Metið fékkst að vísu
ekki skráð í bókina en sjálfsagt er
langt í að tónlistarmenn taki sér
annað eins fyrir hendur. Um svipað
leyti var einnig hleypt af stokkunum
Frístæl-danskeppni Tónabæjar sem
enn er haldin á hverju ári.
Ólafur Jónsson stýrði Músíktil-
raununum til ársins 1987 þegar hann
lét af störfum forstöðumanns
Tónabæjar og gerðist upplýsinga-
fulltrúi Reykjavíkurborgar. Hann
hefur tvívegis litið inn á
Músíktilraunir slðan þá „rétt til að
athuga hvort allt fari ekki fram eins
og til var stofnað". Sjálfsagt getur
Ólafur verið ánægður með fram-
kvæmdina því að keppnin hefur
nánast engum breytingum tekið á
tólf árum. Það hefúr því greinilega
vel verið vandað til verka í upphafl.
-ÁT-
Tónlistargetraun DV og Japis
Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur
sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að
launum. Leikurinn fer þannig fram að I hverri
viku eru birtar þrjár léttar spurningar um
tónlist.
Fimm vinningshafar, sem svara öllum
spumingumrétt, hljóta svo geisladisk í verðlaun
ffá fyrirtækinu Japis. Að þessu sinni er það
geisladiskurinn 5 x Ungversku dansamir eftir
Brahms sem er í verðlaun.
Hér koma svo spurningarnar:
1. Hvað samdi Beethoven margar sinfóniur?
2. Eftir hvem er óperan Aida?
3. Nefnið eina ópem eftir Mozart.
Rétt svör sendist DV fyrir 17. mars, merkt:
DV, Tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum 17. mars og
rétt svör verða birt í tónlistarblaðinu 24. mars.
Hér em svörin úr getrauninni sem birtist 17.
febrúar:
1. Björk Guðmundsdóttir.
2. Verslunarskólinn.
3. Sólveig Amardóttir.
Hvað samdi Beethoven margar sinfóníur?