Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1994, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1994, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 17. MARS 1994 29 V*4-'* tónli0t: Búast má við tveimur tii þremur sumarsmellum frá hljómsveitinni SSSól nær líður sumri. DV-mynd Brynjar Gauti Alltaf eitthvað nýtt að fæðast - plata fyrir næstu jól frá SSSól Þeir sem þekkja til strákanna i SSSól vita aö þeir stunda list sína af miklum krafti. Á síðasta ári kvaö við nýjan tón hjá hljómsveitinni í kjölfar ttvang. Ekki mátti Bobby við margnum frekar e tjurogvarhonumstungióinnensleppteftirno gn greiðslu. Hætt er vió að hraðaksturssek ikka eitthvað eftir þessa uppákomu. nafnabreytinga þegar hljómsveitin gaf út plötuna SSSól og þótti flestum sú breyting til betri vegar. Nú, í kjölfar mannabreytinga í hljómsveit- inni kveður enn við nýjan tón og hljómsveitin er strax farin að semja. „Það er alltaf eitthvaö nýtt að fæðast," segir Helgi. „Við erum bara að bæta við og breyta þessa dagana.“ Þungavigtin ekki langt undan Á síðustu plötu hljómsveitarinnar fengu þeir tn liðs við sig skotan Ian Morrow til að sjá um útsendingar. Hljómurinn tók stakkaskiptum og var það mál manna að hljómsveitin hefði aldrei „sándað“ betur. Leikur- inn verður nú endurtekinn. Ian Morrow kemur til landsins seinni- partinn i mars og hefst þá leitin að hljómnum eða svokölluð for-útsetn- ingarvinna svo maður snari þessu yfir á íslensku. Hljómurinn er ekki fundinn, en eftir því sem greinarhöfundur heyrði, verður hann örlítið þyngri en áður. „Við erum óðum að nálgast þungavigtina,“ segir Eyjó. Platan verður síðan tekin upp eftir páska undir stjóm Morrow. Bassaleikara- Björn segist ánægður með skipti Það fór ekki fram hjá neinum að um síðustu jól urðu bassa- leikaraskipti í hljómsveitinni. Jakob Magnússon kvaddi sveitina í leit að nýjum verkefnum og í hans stað kom fyrrum „Deep Jimi... “ bassa- leikarinn Björn Árnason. En hvemig hefur þetta gengið fyrir sig? „Smellpassað. Eins og flís við rass,“ segir Helgi. „Það er varla hægt að trúa því að tuttugu dögum eftir að við urðum bassaleikaralausir vorum við farnir að leika með nýjan mami innanborðs og það var eins og við hefðum aldrei gert annað.“ að spila fyrir hvem einásta skóla á landinu upp á síðkastið." Safnplata í lok mars Auk þess að vera með plötu fyrir jól verður hljómsveitin með nýtt lag á plötunni Heyrðu 3 sem kemur út í lok mars og síðan má búast við tveimur til þremur sumarsmellum frá hljómsveitinni þegar nær líður sumri. Hljómsveitin SSSól verður þó að teljast hvað þekktust fyrir þá yfimáttúrlegu stemningu sem hún nær upp á böllum og það verður enginn fyrir vonbrigðum í sumar. Hljómsveitin er bókuð fram í október og fyrir þá sem vilja ná forskoti á sæluna eru strákarnir að spila í Víkurröst, Dalvík, á morgun og á laugardaginn verða þeir á Eskiflrði. -GBG Tónlistargetraun DV og Japis Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum. Leikur inn fer þannig fram að í hverri viku eru birtar þrjár léttar spurningar um tónlist. Fimm vinningshafar, sem svara öllum spurningum rétt, hljóta svo geisladisk í verðlaun frá fyrirtækinu Japis. Að þessu sinni er það geisladiskurinn Love & Liberte með Gipsy Kings sem er í verðlaun. Hér koma svo spumingamar: 1. Á nýju safnplötunni „Brit Awards" er að fmna þekktustu og vinsælustu söngvarana og hljómsveitimar í dag. Þeirra á meðal er einn íslendingur. Hver er það? Edda Heiðrún Backman söng lagið Blinda stúlkan Mimi úr söngleiknum Eva Luna sem spurt var um í getrauninni 24. febrúar. 2. Hvað heitir nýjasta plata Gypsy Kings? 3. Hverrar þjóðar var söngkonan Melina Mercoury sem nú er nýlega fallin frá? Rétt svör sendist DV fyrir 24. mars, merkt: DV, Tónlistargetraun Þverholti 11 105 Reykjavík Dregið verður úr réttum lausnum 24. mars og rétt svör verða birt í tónlistarblaðinu 31. mars. Hér era svörin úr getrauninni sem birtist 24. febrúar: 1. 690 krónur. 2. Chaos a.d. 3. Edda Heiðrún Backman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.