Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1994, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1994, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 24. MARS 1994 29 nafn vikunnar tónli0t: Á eftir Todmobile kemur Tweety - Þorvaldur Bjarni og Andrea snúa sér að danstónlist með rokkívafi „Við völdum þetta nafh úr sjötíu tillögum sem við settum á blað. Biddu mig ekki um að rifja hinar hugmyndimar upp. Þær voru sumar hryllilegar. Það erfiðasta sem ég kem nálægt er að finna nöfn á hljóm- sveitir,“ segir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Dúett hans og Andreu Gylfadóttur er tekinn til starfa og Tweety varð fyrir valinu sem na&i á hann. Orðið skýra þau sem kvak í fuglsunga sem er nýskriðinn úr egginu. Það fyrsta sem Tweety lætur frá sér fara verður lagið So Cool á safnplötunni Ringulreif. Hún kemur út um páskana. „Það kveður þama við nýjan tón hjá okkur, gamla Todmobíle-fólk- inu,“ segir Þorvaldur. „Ég fékk ívar Bongó með mér í hljóðvinnsluna og Mána Svavarsson í útsetningar til að opna okkur nýja möguleika. Sam- starfið gekk vel og útkoman varð danslag sem þó er groddalegra en gengur og gerist með þess háttar tónlist. Með því að stilla upp vissum andstæðum tókst mér að fá út blöndu sem mætti allt eins kalla dansrokk. Lagið er í grunninum köld tölvu- tónlist en síðan tek ég allt annað lag með hefðbundinni hljóðfæraskipan og blanda því við. Þetta er vinnslu- aðferð sem við byrjuðum að fikra okkur áfram með fyrir nokkm og prófúðum til dæmis í laginu Hvað með þig? á plötunni Spillt." Tónlistargetraun DV og Japis Urban Cookie Collective sem áttu nýlega- vinsælt lag, Feels Like Heaven. í því lagi er blandað saman hörðum danstakti og algjörum sykri þannig að útkoman verður mjög at- hyglisverð. Þá hef ég einnig hlustað á Culture Beat og 2 Unlimited sem mér heyristþafa verið að gera margt áhugavert eftir aö lagið No Limit gekk sér til húðar.“ Þegar fyrsta diskóbylgjan reið yfir í lok áttunda áratugarins var Þorvaldur Bjami tólf ára. Bylgjan sú hreif hann ekki með sér. „Ég var diskóhatari númer eitt á landinu," segir hann og hlær. „Ég hélt með Þursunum og vildi ekki hlusta á annað en framsækið rokk. Það hefur reyndar verið leyndarmál hingað til en ég get svo sem játað það núna að ég hlustaði líka á ABBA og hafði mikið álit á Bimi Ulvaeus og Benny Anderson sem laga- höfundum. Þá komst ég heldur ekki hjá því að taka eftir hljómsveitinni Chic. Þar heyrði maður slíkan öndvegis rytmagítarleik að ekki varð hjá því komist að leggja hann á minnið.“ Framtíðin Dúettinn Tweety ætlar ekki að láta staðar numið eftir að lagið So Cool er komið út. Þorvaldur Bjami og Andrea em þegar farin að vinna að plötu í fullri lengd sem kemur út í haust á vegum fyrirtækis þess sem gaf út plötur Todmobile erlendis. Þau skipta með sér verkum sem fyrr þannig að hann semur lögin og hún textana. „ Við höfúm náð að þróa með okkur svo gott samstarf að það hefði verið synd að fara að shta því,“ segir Þorvaldur. „Það tekur að minnsta kosti tvö ár að ná samstarfmu þannig að það renni áfram eins og hugur manns og okkur héfur með tímanum tekist að ná æ betur saman. Þess vegna ákváðum viö strax, þegar við gerðum okkur grein fyrir að samstarf Todmobile yrði ekki þróað lengra, að halda áfram í einhverju formi og gerum það sem Tweety.“ Akkilesarhæli nútima danssveita er að þótt þær hljómi ákaflega vel á plötum geta þær ekki komið fram og spilað án þess að hafa upptökur á bak við sig. Þorvaldur tekur undir þetta Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum. Leikurinn fer þannig fram að í hverri viku eru birtar þrjár léttar spum- ingar um tónlist. Fimm vinnings- hafar, sem svara öllum spumingum rétt, hljóta svo geisladisk í verðlaun frá fyrirtækinu Japis. Að þessu sinni er það geisladiskurinn Creedence Clearwater Revival - Greatest Hits sem er í verölaun. Hér koma svo spurningamar: 1. Hvað heitir höfuðpaurinn í Creedence Clearwater Revival? 2. Hvað em mörg lög á Hit Mix ‘94? 3. Hvað heitir fyrsti diskurinn með hljómsveitinni Breeders? Rétt svör sendist DV fyrir 30. mars, merkt: DV, tónlistargetraun Þverholti 11 105 Reykjavík Dregið veröur úr réttum lausnum Hvað heitir höfuðpaurinn í Creedence Clearwater Revival? 30. mars og rétt svör verða birt í tónlistarblaðinu 7. apríl. Hér em svörin úr getrauninni sem birtist 3. mars: 1.2.490 krónur. 2. Bom to Choose 3. Sjö. og segir fátt vandræðalegra en diskósveitir sem reyni að láta líta út fyrir að þær séu að flytja lifandi tónlist en séu svo með undirleikinn á böndum og jafhvel sönginn líka. „Við ætlum okkur að finna leið til að geta spilað lifandi tónlist. Hugs- anlega þarf eitthvað að vera á bandi en lifandi hljóðfæraleikur verður einnig að vera til staðar. Ég skal fúslega viðurkenna að ég er farinn aö iða í skinninu að koma fram. Þetta þýðir ekki að við séum á leið í ballbransann að nýju. Við ætlum ekki að fara hringinn aftur. Þeim ferðum lauk með Todmobile." Og vel á minnst: Todmobile? „Todmobile er hætt,“ segir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og leggur áherslu á orðin. „En eftir eitt eða tvö ár stendur til að við tökrnn saman safn okkar bestu laga og gefum út og þá notum við þaö kannski sem ástæðu til að fara í stúdíó og taka upp eitt nýtt lag til að hafa með.“ -ÁT- Vaxtar- broddurinn Þorvaldur Bjami segir að sig hafi lengi langað til að kynna sér danstónlistina nánar. Hann hefur raunar hlustað á hana síðustu tvö ár og stúderað það sem um var að vera. „Þama er mesti frumleikinn og nýjabrumið í dægurtónlistinni um þessar mundir," segir hann. „Auð- vitað em þama misjafnir sauðir eins og annars staðar en það er enginn vafl að vaxtarbroddurinn er í dans- tónlistinni. Ef ég á að nefna dæmi um áhugaverða flytjendur get ég bent á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.