Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1994, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1994
51
Íþróttalífið yfir páskahátíðina:
dagar á
Siglufirði
Gylfi KrÍEtjánsson, DV, Akureyn:
Bæjaryfirvöld á Siglufirði gang-
ast fyrir menningardögum þar í
bæ um páskana í minningu
tveggja brautryöjenda í uppbygg-
ingu og þróun byggðar í bænum,
þeirra Snorra Páissonar og
Bjama Þorsteinssonar.
Aðalheiður Sigríður Eysteins-
dóttir heldur málverkasýníngu í
sýningarsalnum í Ráðhúsinu.
Þetta er hennar fyrsta einkasýn-
ing og sýnirhún olíumálverk sem
hún hefur unniö út frá æsku-
minningum sínum frá Siglufirði.
Annan dag páska kl. 16 verða
tónleikar í Tónlistarskólanum,
Wilma Young fiðluleikari og El-
ías Davíðsson pianó- og harmón-
ikuleikari leika og syngja þjóðlög
úr ýmsum áttum, nýstofnaður
blandaður kór syngur og Sigurð-
ur Hlöðversson og Daníel Dam'-
elsson leika.
Spilaborgin
Hljómsveitin Spilaborgin
skemmtir á nýjasta skemmtistað
borgarinnar í Turnhúsinu á laug-
ardagskvöld. Hljómsveitinni hef-
ur borist liðsauki, það er bongo/-
congo leikarinn Stína Bongo. Á
efnisskránni er djass, blús, latin
og frumsamið efni. Hljómsveitina
skipa Ásdís, George, Pétur, Guð-
jón og Kristín.
Tommy í
Háskóla-
bíói
Hreyfimyndafélagið sýnir kvik-
myndina Tommy eftir leikstjór-
ann Ken Russell á fimmtudag kl.
19. Myndin er byggð á tónverki
hljómsveitarinnar The Who en
söngleikurinn Tommy hefur not-
ið gríöarlegra vinsælda og er nú
sýndur á Broadway. Framhalds-
skólanemar hafa sett verkið upp
hér heima, síðast verslunarskóla-
nemar í fyrravetur.
Tvær sýn-
ingar á
Akureyri
Tvær listsýningar verða opnaö-
ar í Listasafninu á Akureyri á
laugardag í. í miðsal eru sýndar
vatnslita- og oliumyndir Guð-
mundar frá Miödal. Það eru
myndir írá Ölpunum, Grænlandi
og hálendi íslands.
í austursal eru sýndar Ijós-
myndir Vigfúsar Sigurgeirssonar
sem hann hefur tekið á Norður-
landi við ýmis tækifæri.
Stöðlakot
Ijósmyndasýning verður opn-
uð í Stöölakoti á fimmtudag. Inga
Sólveig Jjósmyndari sýnir þar
verk sín. Verkin á sýningunni,
sem ber titilinn In memoriam,
eru öll unnin á síðasta ári. Sýn-
ingin er tileinkuð vinum sem
smitaðir eru af eyðniveirunni.
Þriöja viðureign Grindvíkinga og
Skagamanna í undanúrslitum Visa-
deildarinnar í körfuknattleik verður
í Grindavík í kvöld klukkan 20. Um
er að ræöa oddaleik þar sem liðin
hafa unnið hvort sinn leikinn, Grind-
víkingar heima í fyrsta leiknum og
Skagamenn jöfnuðu siðan metin í
annarri viðureigninni á Akranesi á
sunnudagskvöldið. Það lið sem vinn-
ur í kvöld ávinnur sér sæti í úrslita-
leik um íslandsmeistaratitilinn í
körfuknattleik.
Oddaleikur á Akureyri
Þór og ÍR leika sinn þriðja leik á Akur-
eyri í kvöld en leikurinn sker úr hvort
liðið vinnur 1. deildina í körfuknatt-
leik. Ef breytingar um fjölgun liða í
úrvalsdeildinni ná fram að ganga á
næsta ársþingi KKI leika bæði liðin í
úrvalsdeild á næsta tímabili.
Skíðalandsmótið
á Siglufirði
Um páskana verður skíðalandsmót
íslands haldið á Siglufiröi. Mótið
verður sett í Siglufjarðarkirkju í
kvöld en mótinu lýkur á páskadag. Á
meðan á mótinu stendur verður
ýmisleg afþreying í boði fyrir heima-
menn og gestkomandi.
Úrslitakeppni 2. deildar
Úrslitakeppni 2. deildar karla á ís-
landsmótinu í handknattleik verður
fram haldið í kvöld. Þrír leikir eru á
dagskrá og er keppnin orðin það jöfn
að ekki verður ljóst fyrr en í lokaum-
ferðinni hvaða lið vinna sér sæti í
1. deild. í kvöld klukkan 20 leika
Fjölnir og HK, Grótta-Fram og ÍH-
Breiðablik.
Grindvíkingar og Skagamenn leika í kvöld i Grindavik og kemur þá í Ijós hvort liðið leikur til úrslita um Islands-
meistaratitilinn í körfuknattleik. Hvort liðið hefur unnið einn leik en Skagamenn lögðu Grindvikinga að velli á
Akranesi á sunnudagskvöldið var og er myndin frá leiknum.
Ferðafélagið leggur á Snæfellsjökul um helgina.
Ferðafélag íslands:
Fjölbreyttar páskaferðir
Um páskana verður farin þriggja
daga ferð til Snæfellsness þar sem
meðal annars er gengið á Snæfells-
jökul. Gist verður á Lýsuhóli í Stað-
arsveit. Gangan á jökulinn tekur 7-8
klukkustundir en einnig verða aðrar
göngu- og skoðunarferðir í boði.
Farið verður í skíðagönguferðir í
Landmannalaugar og er hægt að
velja þriggja og fimm daga ferðir.
Ekið verður að Sigöldu, gengið þaðan
á skíðum í Laugar. Jeppar flytja far-
angur. Gengiö verður daglega á skíð-
um frá sæluhúsinu þar sem gist verð-
ur allar næturnar. Gistiaðstaða er
mjög góð en húsið er upphitað með
hveravatni og laugarnar frægu eru
skammt undan.
Ganga um Laugaveg
Samhliða Landmannalaugaferð-
inni verður aukaferð sem ekki hefur
verið í boði áður en það er skíöa-
ganga um hinn fræga Laugaveg
óbyggðanna. Þetta er fimm daga ferð
og verður gist fyrstu nóttina í Land-
mannalaugum en hinar við Álfta-
vatn, í Emstrum og Þórsmörk. Að-
eins 10 manns komast með í þá ferð.
Þá verður einnig í boði fimm daga
ferð austur á Síðumannaafrétt í sam-
vinnu við heimamenn á Klaustri.
Farið verður á skíöum að Miklafelh,
Síðujökli og Lakagígum. Gist verður
í skálum og þarna er séð um flutning
á farangri á milli skála. í allar ofan-
greindar ferðir er lagt af stað á
fimmtudagsmorgun, skírdag, kl. 9.00.
í dag verður farið af stað í sex daga
skíðagönguferð um Kjalveg. Farið
verður á milli sæluhúsa á Kili en
feröinni lýkur í Haukadal.
Að lokum skal nefnd þriggja daga
Þórsmerkurferð sem lagt verður af
staö í á laugardagsmorgun kl. 9.00.
Gist er í Skagfjörðsskála í Langadal
og eru skipulagðar gönguferðir með
fararstjóra um Mörkina. Auk lengri
ferðanna verða styttri feröir alla dag-
ana.
Útívist:
Vatnajökull
ogLand-
mannalaugar
Á skírdag stendur Útivist fyrir
dagsferð sem lagt verður af stað
í kl. 10.30. Gengin verður gamla
þjóðleiðin sem lá frá Selvogi í
Þorlákshöfn. Þetta er strand-
ganga sem er 18 kílómetra löng.
Á fóstudaginn langa verður far-
ið á söguslóðir Snorra Sturluson-
ar og ekið i Reykholt í Borgar-
firði. Sérfróður fararstjóri verður
með og fræðir fólk um söguna. .•
Lagt verður af stað kl. 10.30,
Á skírdag stendur Útivist fyrir
skíðagönguferð í Sigöldu, Land-
mannalaugar og Bása. Ekiö er að
Sigöldu og gengið þaðan í Land-
mannalaugar. Þaðan verður
gengið áfram 1 Bása á næstu
þremur dögum, Gist verður við
Álftavatn og í Emstrum og síö-
ustu nóttina í Básum. Þessi ferö
er eingöngu fyrir vel þjálfað
skíðagöngufólk.
Útivist stendur einnig fyrir
skíðagönguferð á Vatpjökul og
Esjuljöll. Gist verður 1 skála Jö-
klarannsóknafélagsins í Esju-
fjöllum og farið í ferðir út frá
honum.
Á föstudag fer Útivist af stað í
Bása í Þórsmörk. Þetta eru
gönguferðir fyrir alla fjölskyld-
una og veröur sérstök dagskrá
fyrir börnin: leikir, gönguferðir
og leitin að páskaeggjunum.