Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1994, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1994, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1994 H>V tónligi: Þúsund andlit samanáný - gamalt og nýtt á geislaplötu fyrir sumarið Nafnið Þúsund andlit varð Is- lendingum fyrst kunnugt árið 1991 í tengslum við Landslagskeppnina. Framlag þeirra til keppninnar var lagið Vængbrotin ást sem síðan varð mjög vinsælt á öldum ljósvakans. En það var ekki fyrr en sumarið 1992 að hljómsveitin hetjaði á landann með ballspilamennsku, fjör og stemningu í rassvasanum. Sveitin tók sér hins vegar hlé frá áramótum 1992 og er nú að byija á ný. Að sögn hljómborðsleikara sveit- arinnar, Birgis Jóhanns Birgissonar, virðist sem sveitin hafi byrjað á öfugum enda: „Það er vaninn að gefa breiðskífuna út fyrst og byrja svo að spila - en ekki öfugt,“ segir Birgir og verður nú gerð bragarbót þar á. Tvíefld eftir hléið Sumir gætu haldið að dampurinn væri ekki sá sami eftir rúmlega eins árs hlé. Svo virðist þó ekki vera hjá þessari sveit því hún kemur tvíefld inn á markaðinn með nýjan mann- skap. Nýir menn innanborðs eru þeir Ari Einarsson, gítarleikari úr Svört- um pipar, og Eiður Amarson bassa- leikari sem áður spilaði með Tod- mobile. Rótgrónari meðlimir sveitarinnar eru Sigrún Eva Ármannsdóttir sem sér um sönginn, Birgir Jóhann Birgisson hljómborðsleikari, Cecilía Magnúsdóttir bakraddasöngkona og Jóhann Hjörleifsson bumbuslag- ari/trommuleikari. í þessari mynd mun hljómsveitin síðan halda á vit ævintýranna til að fylgja eftir vænt- anlegri plötu. Hljómsveitin Þúsund andlit gefur út stóra plötu í maímánuði þar sem verða fimm ný lög og einnig lög sveitarinnar sem hafa komið á safnplötum undanfarið. DV-mynd ÞÖK Geislaplatan Á þessum þremur árum sem 1 nafin viHunnar sveitin hefur starfað hefur hún jafnt og þétt gefið út lög á safnplötum (nú síðast á plötunni Algjört Kúl). „Safnast þegar saman kemur“ segir máltækið og á vel við í þessu tilviki. Nú strax í maí kemur út stór plata með hljómsveitinni þar sem öll safnplötulögin verða saman komin, auk fimm nýrra laga. Fram að þessu hefur Birgir verið prímus mótor lagasmíðanna í hljóm- sveitinni og Sigrún séð um texta- geröina. Þetta breytist hins vegar með tilkomu nýrra manna þar sem Eiður er annálaður textasmiður og Ari hefur talsvert unnið við að klambra saman lögum. Samstarfið virðist ganga vel og þessa dagana er sveitin einmitt að leggja síðustu hönd á væntanlega plötu. Þegar und- irritaður spurði hvaða tónlistar- stefnu væri að vænta stóð ekki á svarinu: „Nú, auðvitað Þúsund andlit." Eldmóður og rauð rúta Sumarið 1992 þeysti hljómsveitin um landiö vítt og breitt og tryllti landann á „gulu hættunni“. Nú er hins vegar komin ný rúta sem ber rauða litinn og mun það vera farartækið sem á eftir aö flytja sveitina um landið þvert og endilangt. Fyrstaframkomanverður í Keflavík aðra helgina í apríl og eftir það heldur spilamennskan áfram. Með þessum orðum kveðjum við þessi sex „Þúsund andlit" og óskum þeim góðs gengis í sumar. -GBG Tónlistargetraun DV og Japis Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotið geislaplötu að launum. Leikurinn fer þannig fram að í hverri viku eru birtar þrjár léttar spumingar um tónlist. Fimm vinn- ingshafar, sem svara öllum spurningum rétt, hljóta svo geislaplötu í verðlaun frá fyr- irtækinu Japis. Að þessu sinni er það geislaplatan Sleepless in Seattle eftir samnefndri kvikmynd sem er í verðlaun. Hér koma svo spumingamar: 1. Númer hvað er nýjasti Now- diskurinn? \Hvernig tónlist spila þeir uddy Guyog Pinetop Perkins? 3. Hvaða hljómsveit flutti fyrst lagið Have You ever Seen the Rain? Rétt svör sendist DV, merkt: DV, Tónlistargetraun Þverholti 11 105 Reykjavík Dregið verður úr réttum lausnum 7. ápríl og rétt svör verða birt í tónlistarblaðinu 14. apríl. Hér eru svörin úr getrauninni sem birtist 10. mars: 1. Níu. 2. Verdi. 3. (Nefnið eina óperu eftir Mozart) t.d. Don Giovanni, Brúðkaup Fígarós, Töfraflautan, Brott- námið úr kvennabúrinu o.fl. Tom Hanks leikur aðalhlutverkið í Sleepless in Seattle en tónlistin úr þeini kvikmynd er í verðlaun að þessu sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.