Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1994, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1994, Síða 3
FIMMTUDAGUR 14. APRIL 1994 vikunnar „Þetta er eins árs gömul hljóm- sveit en viö höfum bara starfað 3 vikur í þessari mynd,“ segir Leifur „Hammer“ Óskarsson, gitarleikari sveitarinnar. Þau eru flögur sem skipa hljómsveitina Blackout í dag og skýrt skal tekið fram að þrátt fyrir nafnið spilar Blackout ekki þunga- rokk. „Fólk áttar sig strax og það heyrir lagið okkar,“ segir Jóna. Eins og áður segir eru þau fjögur sem skipa sveitina og heita: Jóna de Groot (söngkona og prímus mótor), Leifur „Hammer" Oskarsson (gítarleikari og lagahöfundur), Stefán „frændi" Sigurðsson (bassaleikari) og Hreiðar „Hredds“ Júlíusson en þeir tveir síðastnefndu eru nýgengnir til liðs við hljómsveitina. 6 ára gamall hljómagangur Þeir sem hafa hlustað eitthvað á útvarp upp á síðkastið hafa eflaust heyrt nýjustu afurð Blackout. Lagið heitir „Come Around“ og er að fmna á safhplötunni Algjört kúl. En hversu nýtt er þetta lag? „Þetta er lag sem er búið að vera að velkj ast I hausnum á mér í 6 ár en það var ekki fyrr en síðasta haust að lag, laglína og texti smullu saman,“ segir Leifur „Hammer" en hann á bæði lag og texta. Leifur, Hreiðar og Stefán eiga allir nokkrar hljómsveitir að baki en Jóna er nýbyrjuð i bransanum, hvemig kom það til? „Ætli ég hafi ekki uppgötvað sjálfa mig í karaoke Það er verið að búa til myndband með hljómsvertinni Blackout sem verður fnimsýnt í Poppi og kóki á næstu vikum. DV-mynd ÞÖK fýrir svona ári en það em ekki nema 6 mánuðir síðan þetta varð eitthvað af viti,“ segir Jóna. Bókuð fram í júlí Hljómsveitabransinn er líklega sá fallvaltasti í heimi en þrátt fyrir það hvað þau era nýbyrjuð með hljóm- sveitina em þau strax farin að lifa af þessu. „Það var dálítið erfitt að bóka okkur fyrst, aðallega út af nafninu. En núna erum við búin að æfa gott prógramm og þetta rokgengur allt saman. Við erum bókuð fram i júlí.“ Sem sagt, næg tækifæri til að berja hljómsveitina augum á næstunni. En hvernig verður laginu síðan fylgt eftir? Loksins okkar eigið efni „Það er verið að búa til myndband sem verður.síðan frumsýnt í Poppi og kóki á næstu vikum og síðan ætlum við bara að spila eins mikið og við getum. Við höfum æft það mikið upp á síðkastið að lítill tími hefur gefist í okkar eigið efni en nú er komið að því.“ Það er sem sagt við miklu að búast frá hljómsveitinni Blackout á næstunni og er þetta vel þegin viðbót við tónlistarmenningu Islendinga í dag. GBG Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur sem allir geta tekið þátt I og hlotið geisladisk að launum. Leikurinn fer þannig fram að í hverri viku em birtar þrjár léttar spurningar um tónlist. Fimm vinningshafar, sem svara öllum spurningum rétt, hljóta svo geisladisk í verölaun frá fyr irtækinu Japis. Að þessu sinni er það geisladiskurinn Sleepless in Seattle sem er i verðlaun. Hér koma svo spumingamar: 1. Hvað em mörg lög á plötunni Now 27? 2. Hvað hét söngvari hljómsveit- arinnnar Nirvana? 3. Hvað heitir nýja plata The Charlatans? Rétt svör sendist DV merkt: DV, tónlistargetraun, Þverholti 11 105 Reylqavik Dregið verður úr réttum lausnum 21. apríl og rétt svör veröa birt í tónlistarblaðinu 28. apríl. Hér eru svörin úr getrauninni sem birtist 24. mars: 1. John Fogerty. 2. 35 lög á-tveimur diskum. 3. Pod. Að þessu sinni er það geisladiskurinn úr myndinni Sleepless in Seattle sem er í verðlaun. tónliöt i Ekkert þungarokk! - Blackout brýst inn í baráttuna um markaðinn Tónlistargetraun DV og Japis

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.