Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1994, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 14. APRIL 1994
vikunnar
„Þetta er eins árs gömul hljóm-
sveit en viö höfum bara starfað 3
vikur í þessari mynd,“ segir Leifur
„Hammer“ Óskarsson, gitarleikari
sveitarinnar. Þau eru flögur sem
skipa hljómsveitina Blackout í dag
og skýrt skal tekið fram að þrátt fyrir
nafnið spilar Blackout ekki þunga-
rokk. „Fólk áttar sig strax og það
heyrir lagið okkar,“ segir Jóna. Eins
og áður segir eru þau fjögur sem
skipa sveitina og heita: Jóna de Groot
(söngkona og prímus mótor), Leifur
„Hammer" Oskarsson (gítarleikari
og lagahöfundur), Stefán „frændi"
Sigurðsson (bassaleikari) og Hreiðar
„Hredds“ Júlíusson en þeir tveir
síðastnefndu eru nýgengnir til liðs
við hljómsveitina.
6 ára gamall
hljómagangur
Þeir sem hafa hlustað eitthvað á
útvarp upp á síðkastið hafa eflaust
heyrt nýjustu afurð Blackout. Lagið
heitir „Come Around“ og er að fmna
á safhplötunni Algjört kúl. En hversu
nýtt er þetta lag? „Þetta er lag sem
er búið að vera að velkj ast I hausnum
á mér í 6 ár en það var ekki fyrr en
síðasta haust að lag, laglína og texti
smullu saman,“ segir Leifur
„Hammer" en hann á bæði lag og
texta. Leifur, Hreiðar og Stefán eiga
allir nokkrar hljómsveitir að baki en
Jóna er nýbyrjuð i bransanum,
hvemig kom það til? „Ætli ég hafi
ekki uppgötvað sjálfa mig í karaoke
Það er verið að búa til myndband með hljómsvertinni Blackout sem verður fnimsýnt í Poppi og kóki á næstu vikum.
DV-mynd ÞÖK
fýrir svona ári en það em ekki nema
6 mánuðir síðan þetta varð eitthvað
af viti,“ segir Jóna.
Bókuð fram í júlí
Hljómsveitabransinn er líklega sá
fallvaltasti í heimi en þrátt fyrir það
hvað þau era nýbyrjuð með hljóm-
sveitina em þau strax farin að lifa af
þessu. „Það var dálítið erfitt að bóka
okkur fyrst, aðallega út af nafninu.
En núna erum við búin að æfa gott
prógramm og þetta rokgengur allt
saman. Við erum bókuð fram i júlí.“
Sem sagt, næg tækifæri til að berja
hljómsveitina augum á næstunni. En
hvernig verður laginu síðan fylgt
eftir?
Loksins okkar
eigið efni
„Það er verið að búa til myndband
sem verður.síðan frumsýnt í Poppi
og kóki á næstu vikum og síðan
ætlum við bara að spila eins mikið
og við getum. Við höfum æft það
mikið upp á síðkastið að lítill tími
hefur gefist í okkar eigið efni en nú
er komið að því.“ Það er sem sagt við
miklu að búast frá hljómsveitinni
Blackout á næstunni og er þetta vel
þegin viðbót við tónlistarmenningu
Islendinga í dag.
GBG
Tónlistargetraun DV og Japis er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
I og hlotið geisladisk að launum.
Leikurinn fer þannig fram að í
hverri viku em birtar þrjár léttar
spurningar um tónlist. Fimm
vinningshafar, sem svara öllum
spurningum rétt, hljóta svo
geisladisk í verölaun frá fyr irtækinu
Japis. Að þessu sinni er það
geisladiskurinn Sleepless in Seattle
sem er i verðlaun.
Hér koma svo spumingamar:
1. Hvað em mörg lög á plötunni
Now 27?
2. Hvað hét söngvari hljómsveit-
arinnnar Nirvana?
3. Hvað heitir nýja plata The
Charlatans?
Rétt svör sendist DV merkt:
DV, tónlistargetraun,
Þverholti 11
105 Reylqavik
Dregið verður úr réttum lausnum
21. apríl og rétt svör veröa birt í
tónlistarblaðinu 28. apríl.
Hér eru svörin úr getrauninni
sem birtist 24. mars:
1. John Fogerty.
2. 35 lög á-tveimur diskum.
3. Pod.
Að þessu sinni er það geisladiskurinn úr myndinni Sleepless in Seattle sem er í
verðlaun.
tónliöt i
Ekkert þungarokk!
- Blackout brýst inn í baráttuna um markaðinn
Tónlistargetraun DV og Japis