Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1994, Side 3
FIMMTUDAGUR 28. APRIL 1994
29
tónliSt:
*n +
Gríðarlegt stuð, fjör og
stemning í allt sumar
r
- Vinir vors og blóma frá Islandi
Þaö geröist í febrúar árið 1993.
Eftir aö hafa æft í sama húsnæði í
nokkra mánuði sameinuðust hljóm-
sveitimar Testemony Soul & Co. og
Busarnir í mestu stuðhljómsveit
landans í dag, Vinum vors og blóma.
FQjómsveitina skipuðu þá og skipa
enn: Gunnar Þór Eggertsson
„Gröller“ á gítar, Siggeir Pétursson
,,S”cka Pé“ á bassa, Þorsteinn G.
Olafsson „Stönweld" sér um söng-
inn, Njáll Þórðarson „Nils Master"
fer fimum fingrum um keyboard
„Korg Pro“ og Birgir Nilsen „Bæks
Jörgensen" slær húðir.
Það sem vekur athygli við nafna-
kall hljómsveitarinnar er ef til vill
viðurnefnin. Þau. virðast saman
komin úr fleiri en einu tungumáli en
þó er það þýskan sem er efst á baugi
hjá hljómsveitarmönnum. Þýsku-
áhugi „Bæks“ byijaði með forvitni á
æskuárunum og þróaðist síðar inn I
tónlistina sbr. „Gott í kroppinn".
Stór plata í sumar
„Gott í kroppinn“ var einmitt
fyrsta útgefna lag hljómsveitarinnar,
en það kom út árið 1993 á Laga-
safninu 3 og varð mjög vinsælt á
útvarpsstöðvunum. Sama ár var því
fylgt eftir með laginu „Maður með
mönnum" sem kom út á Heyrðu 2 og
nú síðast kom út lagið „Frjáls“ á
Heyrðu 3, en það lag hefúr aldeilis
tekist á loft og flýgur nú hraðbyri inn
á vinsældalista hér á landi.
Um þessar mundir standa yfir
samningaviðræður viö Skífuna um
stóra plötu í sumar og segja strák-
arnir það nokkuð öruggt að hún
komi út innan tíðar. „Það fer allt eftir
því hvenær hljóðverin eru laus og
hvaða stefnu þessar samninga-
viðræður taka. Við munum hins
vegar gera allt sem í okkar valdi
stendur til þess að þetta takist.“
Aðspurðir um eöiistök plötunnar
segja strákamir: „Meginþorri plöt-
unnar byggist upp á okkar efni en þó
hafa nokkrir þekktari hljómlist-
armenn sýnt áhuga á að semja fyrir
okkur lög en það er enn á viðræðu-
stigi. En hvernig gengur spila-
mennskan?
Grúppíur á írlandi
„Okkur hefur gengið alveg
frábærlega vel að spila og fengið
góðar viðtökur hvert sem við
vikunnar
Vinir vors og blóma ætla að hefja sig til flugs í sumar og von er á stórri plötu innan tíðar frá hljómsveitinni.
komum. Til dæmis þegar við
spiluðum í Rockgarden í Dublin með
hfjómsveitunum Kerbdog og
Shampoo 2, komu til okkar nokkrar
írskar stelpur og sögðu einfaldlega
„You’re going to be famous“. í
Firðinum um daginn lögðu nokkrar
miðaldra konur land undir fót til að
heyra okkur spila nýju afurðina
„live“.
Það eru þónokkur atriði sem
hljómsveitin leggur áherslu á þegar
hún er að spila. Númer 1, 2 og 3 er
að vera alltaf edrú uppi á sviði. „Við
gætum aldrei keyrt „sjóvið" áfram
með þessum hraða ef við værum,
drukknir, það væri bara lífsins
ómögulegt. Við erum ekki með neina
æfða sviðsframkomu og við spilum
ekkert óvinsældapopp. Til að mynda
erum við bara með eitt rólegt lag á
prógramminu og við spilum það
sjaldnast. Það eru engin takmörk
fyrir því hvað við gerum til að halda
uppi stuðinu.“
Ætla að spila einir
Sumarið er næstum fullbókað hjá
hljómsveitinni en af ráðnum hug
hefur hún ákveðið að halda nokkrum
dagsetningum opnum til að geta
hliðrað til fyrir hlutum eins og
fyrirliggjandi Frakklandsferð. Liðs-
menn leggja áherslu á það að þeir
ætli að „túra“ einir, en það virðist
vera einhver lenska hjá íslenskum
sveitum að „túra“ saman í sumar.
Nýtt atriði hjá Vinunum verður
„Sick TV“. Þetta verða fjögur
gríðarstór sjónvörp og verða þau
helst notuð sem ljósasýning og
auglýsingamiðifl fyrir styrktaraðila
auk þess sem smáatriði munu sýnd
inn á milli. Þessa stundina er
hljómsveitin hins vegar í þriggja
vikna fríi frá stúdíóvinnu, en eftir
það tekur við stanslaust stuð, íjör og
stemning.
-GBG
Tónlistargetraun DV og Japis
Tónlistargetraun DV og Japis er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
i og hlotið geisladisk að launum.
Leikur inn fer þannig fram að í hverri
viku eru birtar þrjár léttar spurn-
ingar um tónlist. Fimm vinnings-
hafar, sem svara öllum spumingum
rétt, hljóta svo geisladisk að launum
frá fyrirtækinu Japis. Að þessu sinni
er það diskurinn Chaos A.D. með
hljómsveitinni Sepultura sem er í
verðlaun.
Hér koma svo spumingamar:
1. Hvað heitir nýjasta plata hljóm-
sveitarinnar Sepultura?
2. Hvernig tónlist spilar Otis
Rush?
í getrauninni er spurt hvað nýjasta plata
hljómsveitarinnar Sepultura he'rtir.
3. Hvað heitir nýjasta plata Pink
Floyd?
Rétt svör sendist DV merkt:
DV, tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum
5. maí og rétt svör verða birt í
tónlistarblaðinu 12. maí.
Hér em svörin úr getrauninni sem ■
birtist 7. apríl:
1. 27.
2. Hips and Makers.
3. Last Splash.