Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1994, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1994, Side 3
29 /FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994 DV Gömul risaeðla vaknartil lífsins á tónlDt * 4 Pink Floyd fagnar þrítugsafmælinu Sjálfsagt voru margir farnir að ímynda sér að hljómsveitin Pink Floyd heyrði sögunni til. Hún sendi árið 1987 frá sér plötuna A Moment- ary Lapse of Reason og hafði þá látið líða þrjú ár frá næstu plötu á undan, hinni að mörgu leyti ágætlega heppn- uðu Final Cut. Svo fóru að berast af því fréttir á seinni hluta síðasta árs að Dave Gilmour, Nick Mason og Rick Wright væru komnir í hljóðver að nýju, hygðust jafnvel senda frá sér plötu og hugsanlega fylgja henni eftir með hljómleikaferð. Og nú er platan The Division Bell komin og hljómleikaferðin hafin. Það gerðist reyndar fyrir rúmu ári að þremenningarnir hittust og spiluðu af fingrum fram í svo sem tvær vikur. „Við spiluðum i raun og veru saman. Rétt eins og í gamla daga,“ segir Rick Wright og virðist hálfhissa á að það hafl gengið. Þessir endurfundir virðast síðan hafa leitt til þess að hljómsveitin hafi byrjað að rifja allrösklega upp gamla tíma. Til dæmis var gamall félagi frá áttunda áratugnum kallaður til leiks. Sá var Dick Parry saxófónleikari sem síðast lék með Pink Floyd í laginu Shine on You Crazy Diamond á plötunni Wish You Were Here árið 1975. Hann lagði rörið reyndar á hilluna eftir þann leik en sendi Dave Gilmour jólakort um síðustu jól og sagðist vera til í að draga það fram að nýju. Parry var umsvifalaust ráðinn í vinnu. Fleira sem minnir á gamla tíma er að finna á The Division Bell. Til dæmis fær Rick Wright nú að syngja aðalrödd í fyrsta skipti síðan hann raulaði (einkar laglega) Time á Dark Side ofThe Moon árið 1973. I sjálfu sér er það eðlilegt að Pink Floyd skuli vakna til lífsins á ný árið 1994. Hljómsveitin á þrjátíu ára afinæli á þessu ári. Það var einhvem tíma árs 1964 sem fjórir skólabræður í The Regent Street Polytechnic ákváðu að byrja að spila saman. Þeir stúdemðu arkitektúr og að minnsta kosti einhverjir þeirra vom einnig í tónlistamámi. Af fyrstu liðsmönn- unum fjórum era aðeins Mason og Wright eftir. Syd Barrett, óum- deilanlegur leiðtogi hópsins fyrstu fjögur árin, heltist úr lestinni vegna ofneyslu ofskynjunarlyfja og gamall félagi Rogers Waters úr bamaskóla, Pink Floyd. A nýju plötunni er að ýmsu leyti leitað aftur til gamalla og góðra daga. Dave Gilmour, var fenginn í hópinn. Waters leiddi hljómsveitina næstu fimmtán árin og fullyrða má að á þeim árum hafi blómaskeið Pinks Floyd staðið. Þótt vissulega hafi tilraunaskeiðið í hljóðeffekta- og ljósanotkun undir stjórn Barretts verið glæsilegt reis tónlistar- sköpunin hæst á plötunum Dark Side of the Moon og The Wall. Og þá em hljómleikaferðirnar, sem famar voru til að fylgja plötunum eftir, þeim ógleymanlegar sem kömu til að sjá hljómsveitina og hlýða á hana. Árið 1983, eftir að The Final Cut kom út, varð ljóst að samkomulag Rogers Waters og hinna var ekki upp á það besta. Waters var reyndar búinn að reka Wright sem slóst aftur í hópinn meðan Gilmour og Mason unnu að A Momentary Lapse Of Reason. En eftir að þremenningamir fylgdu þeirri plötu eftir með glæsi- legri hljómleikaferð virtust þeir draga sig inn í skelina og fór litlum sögum af þeim á tónlistarsviðinu. Gamlar plötur voru þó sífellt að skjótast fram í dagsljósið og þá aðallega Dark Side of the Moon. Fyrir nokkm var til dæmis tilkynnt að hún væri búin að seljast í þrettán milljón eintökum og teldist nú fjórða vin- sælasta hljómplata allra tíma á eftir Thriller Michaels Jacksons, Roumors Fleetwood Mac og safn- plötu með Eagles. Gömul forystusveit Pink Floyd var árum saman í fararbroddi framsæknustu hljóm- sveita heimsins, hljómsveita sem þróuðu alls kyns tæknibrellur sem þykja margar hveijar sjáifsagðar nú á tímum. Fjórmenningamir em altir um flmmtugt og þeir hafa fyrir löngu eftirlátið yngri mönnum forystu- hlutverkið í þróunarstarfmu. Þeir em alla jafna flokkaðir með helstu risaeðlum rokksins en ef marka má plötuna The Division Bell leynist ennþá merkilega mikið lif í gamla eðlubúknum. Tónlistargetraun DV og Japis Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum. Leikurinn fer þannig fram að í hverr i viku em birtar þijár léttar spum- ingar um tónlist. Fimm vinnings- hafar, sem svara öllum spuming- unum rétt, hljóta svo geisladisk í verðlaun frá fyrirtækinu Japis. Að þessu sinni er það diskurinn Live at Brixton með Motorhead sem er í verðlaun. Hér koma svo spumingamar: 1. Hvað heitir nýjasta plata hljóm- sveitarinnar Motorhead? 2. Hvaðan er rokkhljómsveitin Valtari? 3. Hvemig tónlist spila Easy-E og Gang Starr? Rétt svör sendist DV merkt: DV, tónlistargetraun Þverholti 11 105 Reykjavík Dregið verður úr réttum lausnum 12. maí og rétt svör verða birt í tónlistarblaðinu 19. maí. Hér em svörin úr getrauninni sem birtist 14 apríl: 1. 38. 2. Curt Kobain. 3. Up to our Hips. ■ /:i 7 / / / / / / / í al , \ [ . ■ ítvr; /í [ft.ijf * * V' ! : j / Jlj / SO FINE! / Hvaðan er rokkhljómsveitin Vattan? er ein af spumingunum í getrauninni að þessu sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.