Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1994, Qupperneq 4
30
‘•■'IMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994
: l@nlist
Helgi Már Hubner og samstarfsfólk hans kveðja sér hljóðs:
Samdi eitt árið þrjú til
fjögur hundruð lög
Helgi Már Hiibner hefur aðeins
sent frá sér tvö lög á plötum og það
þriðja er á leiðinni. Hann hefur hins
vegar ekki tölu á því hve mörg lög
hann hefur samið síðustu flórtán árin
frá því aö hann var sex ára og
langmestum hluta þeirra hefur hann
reyndar fleygt.
„Ársgömul lög era undantekn-
Deep Forest- Deep Forest:
★ ★ ★
Deep Forest er plata fyrir þá sem vilja
leggja eyrun við einhverju nýju og
spennandi og vilja brjótast úr viðjum
hversdagsleikans. -SþS
Tori Amos - Under the Pink:
★ ★ ★
Á plötunni fæst gott sýnishom af þvi
að Tori Amos ræður hvort heldui" sem
er við léttpoppað rokk og torræðar
tónsmíðar með skrítnum textum. -ÁT
Elvis Costello - Brutal Youth:
★ ★ ★ i.
í heildina litið er hér um að ræða eina
af betri plötum Costellos síðustu ár.
-SþS
ZZ-Top - Antenna:
★ ★ ★ ’Á
Antenna sýnir að ZZ Top er í fullu fjöri
og heldur stöðu sinni fyiliiega sem ein
áheyrilegasta blús-rokkhljómsveit sam-
tímans. -ÁT
Troublegum - Therapy:
★.★ ★ ★
Ætli platan Troublegum sé ekki
stærsta sprengja rokkheirasins frá
árinu 1991. -GBG
Morrissey- Vauxhall and I:
★ ★ ★ ★
Vauxhall And I er fjarri því að vera
vinsældapopp, hún er miklu betri en
það, sannkallað Listapopp með stóru
IA. -SþS
Counting Crows
- August and Everything after:
★ ★ ★ 'k
Þessi fyrsta plata hijómsveitarinnar er
einstaklega vel heppnað byrjendaverk
þar sem allt sameinast í sterkri heild,
lagasmiðar, Ðutningur og útsetningar.
-SþS
Saint Etienne - Tlger Bay:
★ ★ ★
Tiger Bay er tónlistarlegt samsafn af
öllum mögulegum stílum og stefnum þar
sem höfúndunum tekst að sameina allt
inni i einum ramma án þess að úr verði
kaos. -SþS
T
Frí heimsending
ingarlaust orðin ónothæf," segir
Helgi. „Ég renni stundum yfir þau og
finn þá kannski stöku hljóma eða
bassalínur sem má nýta en almennt
eru þau ekki nógu góð til að þau séu
þess virði að varðveita þau.“ Þannig
eru öll lögin sem Helgi samdi þrettán
ára gamall týnd og tröllum gefin,
milli þrjú og fjögur hundrað talsins.
Fyrra lagið eftir Helga Húbner kom
út á safnplötunni Reif í tætiur. Hið
síðara er Disappearing (Into the Void
of Unknown) sem kom út á plötunni
Algjört kúl á dögunum. Það er skráð
á Vitrun og það verður einnig næsta
lag Helga sem kemur að öllum
líkindum út í þessum mánuði.
„Égætla aðhalda Vitrunamafhinu
til haga og hef þess vegna verið að
semja dálítið af tónlist i svipuðum stíl
og Disappearing,“ segir hann.
„Næsta lag varður þó ekki þannig.
Það er aðgengileg ballaða sem heitir
Child og fær vonandi meiri athygli
en fyrri lögin.“
Samstarfs-
fólkið
Helgi Már Húbner stendur ekki
einn í tónlistarsköpun sinni og
flutningi. Kristian Guttesen sér um
textasmíðina, Anna Björk Ólafsdóttir
syngur og nýlega bættist Valdimar
Kristjánsson trommuleikari í hóp-
inn. Ennþá vantar gítarleikara en
sjálfur sér Helgi um hljómborðsleik.
Hann semur öll lögin sín á hljómborð,
tengir það við tölvu og varðveitir
lögin á disklingum.
„Ég er alveg hræðilega illa tækjum
búinn,“ segir hann og hlær. „Þessar
græjur era komnar til ára sinna og
ég er upp undir tíu mínútur að
kveikja á þeim. Þegar ég fer i hljóðver
til að taka upp þarf ég að fá tæki
lánuð. Það er því á dagskránni að
fjárfesta í hljóðfærum."
Þegar Helgi nefnir að sig vanti
gítarleikara’ kemur óneitanlega
Tryggvi Húbner upp í hugann ...
„Já, hefurðu heyrt að við séum
Helgi Már Húbner ásamt samstarfsfólki sínu. Allar frístundirnar fara í lagasmíðar.
bræður,“ segir Helgi. „Það er
misskilningur. Við erum reyndar
frændur en hins vegar á ég tvo bræð-
ur sem leika á gítar. Annar þeiira,
Egill Ámi, spilaði í Disappearing en
fyrir mistök var hans ekki getið á
plötuumslaginu. Við bræðumir höf-
um prófað að vinna saman en það
gengur ekki. Ég býst við að þeim þyki
ég of stjómsamur."
Helgi segir að nánast allar frí-
stundimar fari í að semja tónlist.
Hann hefúr prófað sig áfram í nánast
hvaöa stil sem er, djassi, reggae,
poppi, rokki og danstónlist, svo að
eitthvað sé nefnt. Hann hefur gaman
af að hlusta á búlgarska þjóðlaga-
tónlist og indverska tónlist og hefur
fengist við þá stíla líka en segir að
tækjabúnaðurinn hái sér í indversku
tónlistinni. „Ég héf raunar jafn
gaman af öllu, hvaða nafni sem það
nefnist," segir hann. „Þegar ég sem
lög, sem ég er ánægöur með, geymi
ég þau. Ef mér líst ekki á h vaða stefnu
þau taka slekk ég bara og byrja aftur
frá grunni. Nei, mig vantar aldrei
hugmyndir. Þær koma endalaust. Og
með þessu öllu saman vil ég koma
ákveðnum boðskap á framfæri. Ég er
dýravinur og mig tekur sárt að horfa
upp á fólk borða dýr og misnota þau
á annan hátt. Þess vegna hvét ég alla
til að gerast grænmetisætur."
^K^Iugagnrýni
► ▼ 4
Roxette-Crash! Boom! Bang!
★ ★ -k
Tilvistar-
kreppa
Fólki sem dettur í hug að skýra
plötu nafninu Crash! Boom! Bang!
getur tæpast verið sjálfrátt þvi mér
er til efsta að hallærislegra plötunafn
hafi dúkkað upp I háa herrans tíð.
Naöiið er þvílík lágkúra að það eitt
fælir ábyggilega fjölmarga frá þvi að
kaupa þessa plötu, sem aftur á móti
r slæmt því þetta er þokkalegasta
ilata.
Sænski dúettinn Roxette, sem sló í
egn fyrir tilviljun fyrir nokkrum
rum, er greinúega í nokkurri
Ivistarkreppu um þessar mundir og
kín það berlega í gegn á þessari
lötu.
Vandamálið snýst um það að
iljómsveitin hefúr á sér
yggjópoppsstimpilinn sem skapar
irýsting og kröfúr um að halda áfram
ið búa til ódýra og einfalda smelli á
vinsældalistana. Það er vissulega
erfitt út af fyrir sig en jafn snjall
lagasmiður og músíkant og Per
Gessle kemst alveg skammlaust frá
því. Gallinn er bara sá að í honum
býr miklu meiri tónlistarmaður en
það að hann nenni aö semja
endalaust tyggjópopp. Hér á þessari
plötu virðist vera að hann sé sums
staðar að reyna að fara einhvem
miúiveg og búa til alvarlegri
popptónlist. En því miður er hann
ekki jafn snjall textasmiöur og
lagasmiður og því verður útkoman
oft ágætt lag með svo bamalegum
klisjutextum og vemmilegheitum að
það hálfa væri nóg.
Ég held að Gessle ætti að byrja á
því að fá sér almennilegan
textahöfúnd og ákveða svo hvorum
megin hryggjar hann vill hggja, í
tyggjópoppsfeninu eða á grösugum
engjum gæðapoppsins.
Sigurður Þór Salvarsson
Kurious - A Constipated Monkey
★ ★ ★
Grófmalað
rapp
Gróft gaman er það sem Kurious
Jorge lætur flakka á þessari fyrstu
plötu sinni, „A Constipated Monkey".
Eftir þvi sem á líður verður minna
um gaman, meira um gróft mál og
mikið meira af góðri tóníist. Á móti
því sem margir „bræður" rapparans
unga em að gera þessa dagana lætur
Kurious Jorge sér htið annt um
málefni og notar því meira af
grófyrðum likt og ákveðinn „hundur“
sem hefúr náð þónokkrum vin-
sældum í sama geira. Textagerðin er
götumál sett saman í heilar setningar
og er þar af leiðandi htið meira um
það að segja. Tónhstin, sem undir
rímunum er leikin, er hins vegar
eitthvað sem betur má ræða. Kurious
Jorge hefúr tekið upp þann
skemmthega sið í tónsmíðum að nota
ekki einungis þau „tölvuhljóð" sem
við þpkkjum svo vel í dag. Tónlistin
er blönduð jass-, fónk- og
poppáhrifum og útkoman verður að
teljast til fyrirmyndar i þessum
sístækkandi geira rappsins. A
Constipated Monkey er byrjendaverk
vel fyrir ofan meðahag og má
Kurious Jorge vel við una. Bestu lög
plötunnar að mínu mati eru „I’m
Kurious", „Uptown Shit“, „Fresh Out
The Box“ og grófinalað gamanmáhð í
byijun lagsins „Speh It With A J“.
Guðjón Bergmann