Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1994, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1994, Side 3
- Kombóið með útgáfutónleika í kvöld Á sumarmánuðum gengur í garð tími sveitaballaharksins. Hver hljðmsveitin á fætur annarri ferðbýr sig til þingfarar í leit að gulli og grænum skógum. Lög á safhplötum og breiðskífur þessara hljómsveita eru oft hugsaðar til hróðurs og aukinnar aðsóknar þegar böllin eru haldin. Einstaka sinnum koma þó fram sveitir sem í stað þess að sjá gróða sinn í peningum sjá tón- listarlegan ávinning með útgáfunni. Kombóið er ein slíkra sveita. Eftir tíu mánaða samstarf lítur nú loks fyrsta breiðskífa sveitarinnnar dagsins ljós. Skífan hefur að geyma 10 lög, 5 eftir Kombóið, 4 úr smiðju Ellenar og 1 úr smiðju Toms Waits. Þetta er hljómsveit sem drifin er áfram af miklum áhuga frekar en gróðahugsjón og á henni er engan bilbug að fmna. Hægfara popp Á haustmánuðum ársins 1993 stóð Ellen Kristjánsdóttir í miklum framkvæmdum. Hugmyndir voru uppi um sólóplötu og af þvi tilefni voru Birgir Baldursson, Þórður Högnason og Eðvarð Lárusson kall- aðir til. Kombóið varð að veruleika. Til að gera langa sögu stutta small bandið saman og platan breyttist úr sólóplötu i breiðskífu sveitarinnar, því allir höfðu eitthvað tii málanna að leggja. Á fyrstu og annarri æfingu urðu strax til lög og við þau bættist (og bætist enn) stöðugt. Birgir segir tónlistina vera hægfara popp. vikunnar Kombóið gefur út fyrstu breiðskífu sína eftir tíu mánaða samstarf. „Markmið sveitarinnar í fyrstu var að spila allt mjög hægt og hljótt, þ.e. undir 20 db. Það klikkaði náttúrlega þegar við komumst í stærri hljóð- kerfi, en lögin eru enn spiluð hægar en fólk á að venjast." Eins og áður hefur komið fram eru þau ekki í þessu peninganna vegna. Fyrir þeim er þetta eins konar sparihljómsveit, áhugamál sem þau stjana við auk þess að vera í öðrum hljómsveitum. Margs konar tónlistaráhrif Þegar leikmaður lítur á hljóð- færaskipan er nokkuð öruggt að það fyrsta sem hann segir er: „Er þetta djass?“ Svo er ekki. Hljómsveit- armeðlimir taka það skýrt fram að þeir hafi ekkert á móti þeirri tónlistarstefnu heldur finnst þeim ekki hægt að einskorða tónlistina við einhverja ákveðna stefnu. Þegar bak- grunnur sveitarmeðlima er skoðað- ur kemui- glöggt í ljós að mörgu ægir saman. Ellen hefur í sinni söngkonu- tið verið í hljómsveitum eins og Mannakomum, Ljósunum í bænum, Tíbrá, Flokki mannsins míns (Mezzo), K.K. bandi (en hún samdi meðal annars lagið Búmsjagga sem var á síðustu plötu sveitarinnar), E.E. dúettinum (hún og Eyþór) og nú starfar hún jafnt með Borgardætrum og Kombóinu. Birgir hefur komið víða við á sínum trommuleikara- ferli. Hann hefur spilað í sveitum eins og S.H. draumi, Bless, ýmsum ballgrúppum, m/Árna Scheving, Mannakornum, Sálinni hans Jóns míns, ýmsum djassböndum, Vinum Dóra, Skólahljómsveit Kópavogs og nú starfar hann jafnt með Silf- urtónum og Kombóinu. Þórður hefur pikkað kontrabassann i Sinfóníu- hljómsveit íslands, hinum ýmsu djassböndum og nú starfar hann með Borgardætrum og Kombóinu. Eðvarð hefur slegið strengi sína í hinum ýmsu djassböndum líkt og hinir félagamir. Einnig var hann í sveitum eins og Tíbrá, íslands- vinum, Vinum Dóra og nú síðast Kombóinu en með því kennir hann í FÍH. Eins og áður segir koma þau úr ýmsum áttum en virðast smell- passa saman. Útgáfutónleikar í kvöld Vegna þess hve þetta er mikil sparihljómsveit og hvað meðlimir hafa mikið annað að gera i sumar verður ekkert túrað til fylgis plöt- unni fyrr en í haust. Kombóið mun þó stíga á stokk í kvöld, sjálfan útgáfudaginn, og halda útgáfutón- leika. Tónleikamir verða haldnir í nýja Tunglinu og hefjast klukkan 22.00 að staðartíma. Fyrir þá sem ekki komast í kvöld hafa þeir allt sumarið til að melta plötuna og venjast henni fyrir haustiö. Meira mun ekki sagt í bili um þessa eðlu, áhugasömu sveit. Sumt er meira virði en peningar. GBG Tónlistargetraun DV og Japis Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur sem allir geta tekið þátt i og hlotið geisladisk að launum. Leikurinn fer þannig fram að í hverri viku eru birtar þrjár léttar spurn- ingar um tónlist. Fimm vinn- ingshafar sem svara öllum spurn- ingum rétt hljóta svo geisladisk í verðlaun frá fyrirtækinu Japis. Aö þessu sinni er það geisladiskurinn Miiljón á mann með Páli Óskari og Milljónamæringunum, sem Japis gefur út, í verðlaun. Hér koma svo spumingarnar: 1. Hvaða lag syngja Páll Óskar og Bogomil Font saman á nýju plötunni með Páli Óskari og Milljónamæringunum? 2. Hvað heitir nýja platan með Ellen Kristjánsdóttur og Kom- bóinu? 3. Hver syngur lagið Hann mun aldrei gleym’enni? Rétt svör sendist DV merkt: DV, tónlistargetraun Þverholti 11 105 Reykjavík Hvaða lag syngja Páll Oskar og Bogomil Font saman? DV-mynd RaSi Dregið verður úr réttum lausnum 30. júní og rétt svör verða birt í tónlistarblaðinu 7. júlí. Hér eru svörin úr getrauninni sem birtist 9. júní: 1. Kanada. 2. Take me to God. 3. Klassísk tónlist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.