Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1994, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1994, Blaðsíða 4
 l&nlist Hljómsveitin Bong er ein fjöldamargra sem fram koma á plötunni. ís fyrir alla - ný Reif plata á markaðnum Það er komin ný danssafhplata á markaðinn. Þessi ber náfnið Reif i(s)taurinn og er samvinnuverkefni Spors hf. og Emmess sem hafa komið sér mjög smekklega fyrir í nafni plötunnar. Platan inniheldur 17 lög og tekur 70 mínútur að leika hana. Hlutfall íslenskra danssveita hefur aukist miðað við fyrri útgáfur slíkra diska og má þar fyrst telja samstarf Bong og Bubbleflies. Fyrir stuttu túruðu þessar hljómsveitir landið við Pink Floyd - The Division Bell: ★ ★ ★ Það má auðveldlega hafa gaman af plötunni hvort sem menn vilja láta hana malla í bakgrunni eða sökkva sér niður í lög og texta, söng og spil. -ÁT Julio Iglesias — Crazy ★ ★ ★ Crazy er plata sem á alla athygli skilið. -SþS Jet Black Joe -You Ain't here: ★ ★ ★ ★ Sveitin sýnir enn aukinn þroska í tónsmíðum auk þess sem hún stíl- hreinsar hljóminn fyrir erlendan mark- að. -GB HörðurTorfa-Þel: ★ ★ ★ ★ Niðurstaðan er 17 lög sem spanna öll þessi 23 ár og gefa gott yfirlit yfir þroskaferil tónlistarmannsins Harðar Torfasonar -SþS Ýmsir flytjendur — íslandslög 2: ★ ★ ★ AUt er vandað og nostursamlegt. Maður fær það á tilfinninguna að stjórnandinn hafi aUtaf fengið tíu í smíði. -ÁT Dos Pilas— Dos Pilas: ★ ★ ★ Dos Pilas eiga hrós skUið fyrir þessa útsetningu. -GB Sissel - Gift of Love: ★ ★ ★ Gift of Love býður upp á popp í klassískum dúr, eins áferðarfallegt og hægt er að hafa það, og fyrsta flokks söng. -SþS góðan hljómgrunn en lagið Loose Your Mind er það eina sem það samstarf skilur eftir sig. Þorvaldur og Andrea undirbúa útgáfu stórrar plötu, Tweety, og til upphitunar er lagið „Lollipops" látið fylgja með á þessari plötu. Bong á þama enn nýrra lag sem ber nafnið „Live in a Life“ en nýjasta vítamínsprautan í íslensk- an dansmarkað er hljómsveitin Fluxus sem þama fer á kostum með gamla Þú og ég smellinn „Dans, dans, dans“. Af erlendum sveitum em þarna helstar 2 Unlimited með lagið „The Real Thing“, Capelia með „U & Me“, Urban Cookie Collective, Stelia Getz, Deep Forest og Maxx, allar með ný lög. Ný og eftirtektarverð sveit ber nafnið Def Dames Dope og flytur lagið „Don’t Be Silly“ (put a condom on your willy) og er þar að flnna þarfa áminningu til þeirra sem enn stunda frjálst kynlíf. Aðrar minna þekktar sveitir eru Atsju, K3m Feat. Gale Robinsson, Ahmez, Snipers, C.B. Milton og Ánticapella. GBG plðtugagnrýni ► T 4 Milljón á mann - Páll Óskar og Milljónamæringarnir ★ ★★★ Suðræn sveifla 2 + Söluhæsta plata síðasta árs var án efa Ekki þessi leíðindi með Bogomil Font og Milljónamæringunum. Flestir kunna nú söguna um söngvaraskiptin og er styst frá því að segja að nú heitir söngvarinn Páll Oskar Hjálm- týsson, sveiflukóngur og diskó- stuðbolti. Ný plata og nýr söngvari hafa sem sagt litið dagsins ljós. Platan hefur að geyma 14 lög sem öll sveiflast um í suðrænni. Þó má sjá ný áhrif innan sveitarinnar í lagavali. Á henni eru tvö lög eftir Burt Bacharach, sem tæpast getur talist td sveiflukónganna, og Páll setur sinn svip á plötuna méð því að þýða texta og taka lag eftir grinistann Tom Lehrer sem útleggst á íslensku Masó Tangó. Hin textaþýðing söngvarans er á laginu Negró José og verður að teljast honum til hróss. Hljómur þessarar plötu er talsvert betri en þeirrar sem kom út í fyrra enda þessi tekin upp í hljóðveri á móti því að hin var tekin upp á tónleikum. Hljóðfæraleikur er allur til fyrirmyndar hjá þeim Ástvaldi Traustasyni (flygill og Helenu- stokkur), Birgi Bragasyni (rafbassi og kontrabassi), Jóni Björgvins (slagverk, víbrafónn og marimba), Sigurði Jónssyni (saxófónn) og Steingrimi Guðmundssyni (trommur). Hápunktur plötunnar verður að teljast dúett þeirra Bogomils og Páls Óskars í laginu Something Stupid sem er hvað þekktast í flutningi Franks og Nancy Sinatra. Samhljómur raddanna er mjög skemmtilegur sem og vinnslu- aðferöin en BogomU söng sinn hluta erlendis og Páll sinn hérlendis. Einnig eiga lögin L.O.V.E., Pabbi vill mambó, Speak Up Mambo og Quando Quando eftir að setja sinn svip á sumarið. Allt í allt er platan skemmtUegt framhald frá síðasta sumri og má teljast nokkuð líklegt að sagan endurtaki sig hvað varðar sölu. Lagavalið í heUdina er skemmtUegt en.þó væri gaman að heyra frumsamda suðræna sveiflu fyrir næsta sumar. Guðjón Bergmann FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1994 13 V Heyrðu mig nú! Heyrðu 4 kemur út 27. júní. Safn- plötuútgáfa hefur verið með öflug- asta móti á íslandi þaö sem af er þessu ári. Skífan og Spor hafa gefið út sínar þrjár hvor, Japis eina og Smekkleysa eina og nú bætir Skífan um betur og gefur út sína fjórðu þetta árið. Hún ber heitið Heyrðu 4 og hefur að geyma 20 lög. Hljómsveitin SSSÓL hafði hug á að gefa út fjögurra laga smáskífu þetta árið en vegna veikinda Helga Bjöms- sonar var því aflýst. Þess í stað er að finna tvö ný lög með Sólinni á Heyrðu 4. Það fyrra heitir Lof mér að lifa og hefur þegar fengið feiknagóðar viðtökur útvarpshlustenda en hitt lagið heitir Ótrúlegt. Evróvision- lagið Nætur með Siggu Beinteins hefur ratað inn á þessa safnplötuna og á henni er líka að finna ný lög með Quicksand J[esus og Hunangi (nýrri sveit Karls Örvarssonar). Einnig er á plötunni að finna hljómsveitina Bliss með lagið Lilla Jóns (heilmikið leyndarmál sem verður upplýst síð- ar) og þar með eru íslensku lögin upptalin. Topplistalög plötunnar eru Sweets For My Sweet með CJ Lewis, Baby I love Your Way með Big Mountain, Oblivion með Terror- vision og Sleeping in My Car með Roxette. Einnig er á henni að flnna lög líkleg til vinsælda með lista- mönnum eins og Dr. Alban, Morrissey, Yello, Enigma, The Auters, Out of My Heart, Cluster- funk, Milla og Free Soda Inc. Ofan- taldar hljómsveitir og lög er sem sagt að finna á safhplötunni Heyrðu 4 sem ætti vísast að geyma eitthvað fyrir alla. GBG Hljómsveitin SSSól á tvö lög á nýju safnplötunni Heyröu 4. Ifl Tfil/li uírlfflvír N USímteMtöMJtök S i 11 ur! á i; a r í52llS!á&EOT2t2l” I Ssit & SkmiCéísÍj Hniatiii innrmrmn F á b s r II é:tarrlr Ciiar&Hs'r-frl R 3 b b í FáImi SGanarssan (aarRagnarssiin Ýmsir-Já takk ★ ★ * Misjafn sauður í mörgu fé Safnplatan Já takk er óvenjuleg fyrir þær sakir að hún inniheldur eingöngu lög með íslenskum flytjendum en nokkuð er síðan „stóru“ útgáfufyrirtækin hættu að gefa út slíkar plötur. Þau hafa í staðinn geflð út safnplötur þar sem blandað er saman vinsælum og verðandi vinsælum erlendum lögum og nýjum innlendum. Ekki skal ég dæma um hvort er vænlegra til vinnings en óneitanlega geta safnplötur eins og Já takk átt erfitt uppdráttar því þær innihalda að mestu leyti óþekkt efni sem er undir hælinn lagt hvort verður vinsælt. Og þar í liggur kannski einmitt höfuðverkur þessarar plötu; á henni er enginn stórsmellur, enn sem komið er að minnsta kosti, og i fljótu bragði sé ég ekki að hann sé að fmna á plötunni. Það er einna helst lagið Sé ég þig með Nl+ sem nýtur einhverra vinsælda. Engu að síður er margt góðra laga á plötunni en líka miður góðra. Ég skil til dæmis ekki hvaða erindi hallærisleg lumma eins og lag þeirra Ómars Ragnarssonar og Hemma Gunn á héma. Og sama er eiginlega að segja um lagið með hljómsveit Stefáns P. Þetta eru átakanlegar tilraunir til að búa tO einhverja sumarsmelli en sem betur fer held ég að þjóðin sé vaxin upp úr trakteringum af þessu tagi. Sem betur fer er þetta efni í mOdum minnihluta og meðal þess sem hægt er að tína tO af góðum lögum hér má nefna bæði nýju Mannakomalögin, Fínn dagur og Gálgablús, ekta lög a la Magnús Eiríksson; Nl+ lögin Sé ég þig og Frelsið, pottþétt popplög; lög Haraldar Reynis, AHt sem ég óska mér og Flaskan, létt og grípandi trúbadorpopp, og lag SOfurtóna, Tælandi fógur, sem reyndar minnir mjög á þá félaga Einar VOberg og Jónas R. frá árum áður. Sigurður Þór Salvarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.