Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1994, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1994, Side 3
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1994 25 » I » tónli0l: Mambókóngarnir enn á ferð r - Páll Oskar og Milljónamæringarnir fara geyst upp vinsældalistana Páll Óskar og Milljónamæringamir: Það borgar sig að þora að vera öðruvísi en hinir. DV-mynd: ÞÖK „Meira að segja við vitum ekki almennilega hvað er að gerast. Plötunni var dreift í verslanir í tvö þúsund eintökum á einni viku og áður en við vissum af var helmingurinn seldur. Það liggur við að þetta sé of gott til að vera satt,“ segir Páll Oskar Hjálmtýsson söngvari. Það fer ekki á milli mála að hann er undrandi á góðum við- tökum plötunnar Milljón á mann. Og jafnframt glaður. Milljónamæring- amir renndu blint í sjóinn þegar þeir réðu hann sem söngvara í stað Bogo- mils Fonts en söngvaraskiptin virð- ast engin áhrif hafa haft á vinsæld- imar. „Það var dálítið erfitt að byija upp á nýtt þegar Palli kom til sögunnar,“ segir Astvaldur Traustason pianó- leikari. „Þegar hann kom í hópinn vissi enginn í raun og vem hverjir Milljónamæringarnir vom. Bogomil Font hafði fengið alla athyglina. Hljómsveitin var einhvers staðar á bak við í skugga söngvara á egóflippi. Þessi skipti hafa verið mjög holl fyrir hljómsveitina því að nú fær hún sem slík að sanna sig.“ „Meginmunurinn á mér og Bogomil er sá að hann var þessi svali gæi sem kom með hattinn og söng eða jafnvel talaði lögin til áheyrenda. Lét ekkert á sig fá, stóð bara við hljóðnemann og söng. Ég er hins vegar á fullu í því að fá fólk í stuðið með okkur," bætir Páll Óskar við. „Það er til í dæminu að lögin teygist upp í sjö minútna metalmambó þar sem fólk dansar konga og tekur virkan þátt í fjörinu. Það er mikið „show“ á böllunum hjá okkur og það er fariö að spyijast út.“ Ruglingur í byrjun Um það leyti sem Páll Óskar Hjálmtýsson var að ganga til liðs við Milljónamæringana kom hans fyrsta plata út, platan Stuð sem hefúr að geyma dans- og diskótónlist af ýms- um toga. Hann segir að því sé ekki að neita að fólk hafi ruglast í riminu við það. „Þetta var endalaust rugl í upphafi. Ég var þarna í tveimur hlutverkum og tók tvöfaldar vaktir. Hins vegar blönduðust hlutverkin ekkert saman. Milljónamæringamir fluttu aldrei neitt af Stuðplötunni og ég hafði ekkert af rúmbum og sömbum á prógramminu þegar ég kom fram án þeirra. Það er í raun og veru ekki nema svo sem mánuður síðan ég varð var við að fólk var farið að greina þama á milli.“ „Við vorum heldur ekki með neitt í gangi um það leyti sem söngvaraskiptin fóm fram,“ heldur Ástvaldur áfram. „Það var ekki fyrr en lagið Negro José fór að hljóma í útvarpi sem fólk fór að átta sig almennilega á að Páll Óskar var með tvenns konar verkefni í gangi.“ Negro José virðist ekki síður hafa hitt í mark en Marsbúa cha cha cha í fyrra. Það er nú í þriðja sæti íslenska listans og virðist hafa talsverða möguleika á að ná toppnum. Þeir Ástvaldur og Páll Óskar segja að önnur lög plötunnar hafi einnig fengið mikla athygli í útvarpi. Helst þó að Burt Bacharach- lagið The Look of Love hafi orðið útundan. Þeir em þó sammála um að það sé eitt athyglisverðasta lag plötunnar. „Tónlistin virðist höfða til breiðs hóps,“ segir Páll. „Það hringja í mig tíu ára krakkar, rígfullorðið fólk og allt þar á milli til að segja álit sitt. Krakkamir og þeir sem era komnir yfir miðjan aldur era hins vegar ekki á böllunum hjá okkur, af skiljan- legum ástæðum. Ég held að skýringin á þessum vinsældum okkar sé sú að við þorum að vera öðra vísi en hinir,“ heldur hann áfram. „Það virðist loða við allt of marga að þeir þora ekki að taka neina sénsa. Það er verið að sýna Wayne’s World tvö í bíó en það gleymist alveg að einu sinni tók einhver sénsinn á að gera Wayne’s World eitt. Tónlistarlífíð er svipað. Hljómsveitimar era meira og minna að hnoðast í sama norræna rokk- poppinu. Við þorum að vera öðra vísi og það virkar. Platan selst og aðsókn á böllin okkar er góð.“ Hörð samkeppni Þeir Ástvaldur og Páll Óskar segja að samkeppnin um hylli danshúsagestanna sé ótrúlega hörð þetta sumarið. Jafnvel sú harðasta í manna minnum. „Þegar ónafn- greindir staðir era famir að segja upp ónafngreindum hljómsveitum og ráða aðrar sterkari er ástandið orðið slæmt,“ segja þeir. „Við megum þakka fyrir hvemig okkur gengur og gerum okkur jafnframt grein fyrir að eftir svo sem hálft ár getur vel verið að við verðum í sporum þeirra sem gengur illa núna. Þannig er baráttan.” Milljónamæringarnir spiluðu ríflega fullskipaðir um síðustu helgi. Þá bættust í hópinn tveir blásarar sem léku með á plötunni Milljón á mann þannig að hljómsveitin var orðin að oktett. Þannig hljómar hún best að sögn Ástvaldar sem vildi gjarnan hafa átta manns með í sumar. Og nóg er að gera næstu helgar. Um verslunarmannahelgina liggur leiðin á Neistaflug ‘94 í Neskaupstað. Síðan á hljómsveitin eftir að koma við á Akureyri, ' Selfossi, Akranesi og Homafirði, auk þess að koma reglulega fram á Ömmu Lú. Og annað kvöld láta Páll Óskar og Milljónamæringarnir til sín taka á Hressó þegar fagnað verður sextiu ára afmæli staðarins. Þar verður afmælisgestum boðið upp á mat og drykk jafnframt því sem þeir geta dansað við latneska tóna Milljónamæringanna. Á laugardag fær hljómsveitin það erfiða hlutskipti að vera á tveimur stöðum sama daginn. Fyrst á Woodstock- hátíð á Reykjanesi og um kvöldið á dansleik í Sindrabæ á Höfn í Hornafirði. Enn er ekki alveg búið að leysa það landshomadæmi en því verður væntanlega kippt í liðinn í tíma. Eitt er víst að bjartsýni ríkir i ; herbúðum Milljónamæringanna um þessar mundir. Tónlistargetraun DV og Japis Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum. Leikurinn fer þannig fram að í hverri viku era birtar þrjár léttar spurningar um tónlist. Fimm vinningshafar sem svara öllum spurningunum rétt hljóta svo geisladisk í verðlaun frá fyrir- tækinu Japis. Að þessu sinni eru verðlaunin geisladiskurinn Drög að upprisu með Megasi og Nýdanskri sem Japis gefur út. Hér koma svo spumingamar: 1. Hvað heitir nýjasta platan með Megasi og Nýdanskri? 2. A hvaða nýútkomna diski syngur Egill Ólafsson lagið ísland er land þitt? 3. Hvaða kór syngur á plötunni ísland er lýðveldi? Rétt svör sendist DV merkt: DV, tónlistargetraun Þverholti 11 105 Reykjavík Dregið verður úr réttum lausnum 7. júlí og rétt svör verða birt í tónlistarblaðinu 14. júlí. Hér eru svörin úr getrauninni sem birtist 16. júní: A hvaða diski syngur Egill Ólafsson lagið Island er land þitt? 1. Milljón á mann. 3. Umakkeri. 2. Einar Örn Benediktsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.